Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 Spilaborg MalikiS n Herskáir íslamistar hagnast á valdabaráttu n Bandaríkjamenn skilyrtu herstuðning í Írak F orsætisráðherranum Nouri al-Maliki er að stórum hluta kennt um það algjöra stjórn- leysi sem nú ríkir í Írak. Ríkis- stjórn hans hefur þegið jafn- virði meira en tíu þúsund milljarða króna til að þjálfa öryggissveitir sem taka áttu við keflinu þegar Banda- ríkjaher yfirgaf landið árið 2011. Engu að síður hafa þær reynst gagnslaus- ar gegn herskáum íslamistum og rétt þeim hverja borgina á fætur annarri á silfurfati síðustu mánuði. „Eftir innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003 var búinn til öryggisgeiri sem var smitaður sama sjúkdómi og svo margir aðrir í nærliggjandi ríkj- um. Þar ráða stjórnmál, feðraveldið og verndargreiðar ríkjum. Almennt er velgengni herskárra íslamista vitnis- burður um að öryggismál eru nátengd stjórnmálum í Írak,“ segir Andreas Krieg, prófessor við King’s College í Lundúnum. Sjálfur hefur Maliki skellt skuldinni á Bandaríkin, sem hafi ekki staðið við skuldbindingar vegna sölu F-16-orr- ustuflugvéla. Þegar íslamistar tóku yfir borgina Mosul sagði Maliki að hann hefði betur keypt flugvélar af Bretum, Frökkum eða Rússum en Bandaríkja- mönnum. „Ef við gætum varið okkur úr lofti hefðum við komið í veg fyrir þetta.“ Stjórnar öryggissveitum En síðustu ár hefur forsætisráðherr- ann verið sakaður um persónuleg af- skipti af öryggissveitum landsins og að skipa þar menn í stjórnunarstöð- ur sem eru hliðhollir ríkisstjórn hans. Maliki komst upphaflega til valda vegna stuðnings við Bandaríkin og andspyrnu gegn Saddam Hussein. Nú hefur Maliki misst traust Banda- ríkjastjórnar, sem hefur ekki skipt sér af spillingarmálum Malikis frá upp- hafi og vill nú sjá á eftir honum sem fyrst. Stjórnarkreppa hefur ríkt í Írak frá þingkosningum þar í apríl þar sem samfylking undir forystu Malikis hlaut 92 þingsæti af 328. Er því erfitt að mynda starfhæfa ríkisstjórn án að- komu hans eða flokks hans. Pólitískt átök Þingið vildi ekki veita Maliki áfram umboð og samkvæmt stjórnarskrá bar forseta Íraks að veita leiðtoga stærstu stjórnmálafylkingarinnar umboð til að skipa nýja ráðherra á sunnudag. Þetta gerði hann ekki heldur veitti óvænt Haider al-Abadi, varaforseta þingsins, umboðið. Umboðið var veitt á grundvelli samkomulags milli póli- tísks arms sjíta-múslíma sem hafa snúist gegn Maliki. Nokkrum klukkustundum áður hafði Maliki sakað forsetann, Fuad Masum, um brot gegn stjórnar- skránni. Hann myndi kæra Masum og leita réttar síns fyrir dómstólum. Þessi afstaða Malikis hefur ekki breyst og munu dómstólar því líklega skera úr um hvort forsetinn mátti veita Abadi umboðið. Þangað til hyggst Maliki sitja sem forsætisráðherra. Frá því á sunnudag hafa öryggis- og lögreglusveitir verið áberandi á götum Bagdad til að koma í veg fyrir að óeirðir eða mótmæli brjótist út gegn ríkisstjórn Malikis. Prófsteinn á lýðræðið Á meðan Maliki reynir að tryggja sér forsætisráðherrastólinn í þriðja sinn, hafa íslamistar sótt hratt í suðurátt að höfuðborginni Bagdad og barist við öryggissveitir í um þrjátíu kíló- metra fjarlægð. Í norðaustri hafa þeir sótt að landsvæði Kúrda í átt að Íran, sem hingað til hafa veitt þeim harðari mótspyrnu en öryggissveitir Íraks með stuðningi bandarískra flugsveita. Íslamistarnir hafa setið um Yazidi- fólk í Norður-Írak, sem hefur átt á hættu að verða útrýmt vegna trúar- bragða þess. Yazidi-fólkið náði að hörfa til fjalla þar sem beðið er átekta. Hingað til hefur tekist að koma stór- um hluta þess frá átakasvæðinu og hafa bandarískar flugveitir varpað matar- og vatnsbirgðum til fólksins. Stjórnarkreppan í Írak er ein þyngsta þolraunin í þessari tilraun Bandaríkjanna til að koma á lýð- ræðislegu stjórnarfari þar á með- an Maliki stjórnar með valdi í krafti eigin þingstyrks þótt hann njóti að- eins trausts í Suðaustur-Írak. Súnní- múslímar, Kúrdar og margir sjítar, þar sem stuðningur við Maliki er mestur, hafa krafist þess að hann segi af sér. Nauðsynlegt sé að leiðtogi Íraks tali fyrir hagsmunum allra Íraka ef koma eigi á samstöðu til lengri tíma litið. Áður hefur Maliki þó staðið af sér tilraunir andstæðinga til að steypa honum af stóli. Árið 2013 samþykkti þingið lög sem hefðu fyrirbyggt að hann starfaði lengur en tvö kjör- tímabil. Þessum lögum var hnekkt fyrir dómstólum. Hjálpa bara ef Maliki fer Bandaríska ríkisstjórnin sendi frá sér yfirlýsingu á mánudag þar sem hún studdi hlutverk Masums í að vernda stjórnarskrá landsins. Hún skilyrti jafnframt frekari herstuðning við Írak við farsæl stjórnarskipti. „Við ítrekum stuðning okkar við ferli þar sem for- sætisráðherra verður valinn og getur táknað vonir Íraka, byggt þjóðarsam- stöðu og stjórnað með samheldni að leiðarljósi … Við höfnum hvers lags tilraunum til að hafa áhrif á þetta stjórnarskrárbundna og réttarfars- lega ferli með kúgunum eða öðrum afskiptum.“ Eftir að Abidi hóf stjórnarmynd- unarviðræður sendu Bandaríkin 130 hernaðarráðgjafa til hjálpar Kúrdum. John Kerry, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, hefur þrýst á Abidi að mynda nýja stjórn hratt og þá helst þjóðstjórn, þar sem tekið verði tillit til allra stjórnmálahreyfinga í Írak. Örlagastund Malikis Talið er að örlagastund Malikis sé handan hornsins og að fljótlega komi í ljós hvort hann haldi sæti sínu. Bandarískir fjölmiðlar hafa haldið því fram að Maliki hafi nú þegar undir- búið flóttaleið, þar sem hann óttist að hann verði gerður að blóraböggli svo hægt verði að auka traust á ríkisstjórn Íraks. Hann hafi rætt við sína nánustu bandamenn um að hann njóti áfram friðhelgi frá lögum og verði tryggt pólitískt hæli fari allt á versta veg. n riðar til fallS Content: ISW Iraq Team and Jessica Lewis Graphics: Jennifer Cafarella Abu Kamal Yarubiyah at-Tanf 100km Northern Babil Khalis/Sudur mini-dam Átakasvæði Kúrdar (Peshwar) Jalula Fallujah Baqubah Mosul Basra An Nasriyah An Najaf Karbala Al Kut Ar Ramadi Samarra Tikrit Kirkuk Baghdad Al Amarah Al Hillah Ad Diwaniyah Tal Afar Sinjar Baiji Qaim Camp Ashraf Taji Balad Udhaim Tuz Khurmatu Suleiman Beg Hawija Sharqat Muqdadiyah Rawa Abu Ghraib Nebai Mada’in Hit Khanaqin Haditha Habbaniyah ISF Öryggissveitir Íraks Íslamska ríkið (ISIS) Óvissusvæði Yrráð ólíkra fylkinga í Írak: 10. ágúst 2014 Skýringar Sadia Rabia Ana Alam Rutba Mansouriyah Dhuluiya Daquq Badush dam Bashiqa, Qaraqoush, Tilkif, & Wana Arbil Gwer/ Makhmour Nýlegar breytingar á korti Trebil Al Waleed Nukhaib Ajil eld Andstæðingar ISIS (Súnní-múslímar) Írakskir ættbálkar Yusuyah Mashahda Mishag /Zowiya Mosul dam Íslamska ríkið (ISIS) Herská samtök múslíma hafa lagt undir sig meirihluta landsvæðisins Nineveh, þar á meðal borgirnar Sinjar og Zumar. Þeir hafa einnig sótt inn í Austur-Sýr- land, þar sem uppreisnarhópar hafa haldið til, og suður að Bagdad, höfuð- borg Íraks. Harðir bardagar geisa nú milli Kúrda og liðsmanna ISIS í Norður-Írak. Liðsmenn ISIS eru upp til hópa súnní- múslímar sem eru andvígir Íraksstjórn og vilja koma á nýju kalífadæmi sem byggt er á sharía-lögum og rekur trúarlegt stríð gegn öðrum þjóðfélagshópum. Talið er að ISIS hafi orðið til þegar öfgasinnuð- ustu liðsmenn al-Kaída klufu sig frá hreyfingunni í aðgerðum Bandaríkjanna og ríkisstjórnar Íraks undir forystu sjíta- múslíma. Sameinuðu þjóðirnar telja að 5.500 Írakar hafi látið lífið í þessum átökum fyrstu sex mánuði þessa árs og hefur verið óttast um líf tugi þúsunda nú í júlí og ágúst þegar þau náðu hápunkti sínum. Þar á meðal er Yazidi-fólk, fjörutíu þúsund talsins, sem ISIS hefur hótað að útrýma vegna trúar þess. Ríkisstjórn Íraks segir að sannanir séu fyrir því að ISIS hafi nýlega myrt að minnsta kosti fimm hundruð Yazida með köldu blóði í einni svipan og komið fyrir í fjöldagröf. Nouri al-Maliki Fæddur 1950 í Hilla Er sjíta-múslími sem skipulagði aðgerðir gegn stjórn Saddams Hussein á áttunda áratugnum þegar hann var meðlimur í Dawa-stjórnmálahreyfingunni. Hann flúði til Sýrlands þegar hann fór að óttast um öryggi sitt en hélt áfram að vinna gegn hagsmunum Husseins í útlegðinni. Maliki sneri aftur til Íraks eftir innrás Bandaríkjanna í Írak árið 2003 og varð fljótlega einn helsti pólitíski áhrifamaður landsins. Hann var talsmaður flokksins og kom á breiðara samstarfi milli stjórnmálaflokka sjíta-múslíma. Þessir flokkar buðu sig fram saman og unnu flest þingsæti í kosn- ingunum í desember 2005. Árið 2006 tók Maliki svo við stöðu forsætisráðherra. Maliki átti stóran þátt í gerð stjórn- arskrár Íraks, í nefnd sem skipuð var af bandarískum stjórnvöldum, og útilokaði skipulega Baath-hreyfingu Saddams Hussein frá því að koma frekar að stjórn landsins. Bandaríkin studdu Maliki vegna harðrar framgöngu hans gegn al-Kaída og Baath, sem voru upp til hópa súnní-múslímar. Árið 2008 upprættu íröksk og bandarísk stjórnvöld jafnframt róttæka hreyfingu trúarleiðtogans Moqtada Sadr. Frá árinu 2009 hefur Maliki verið undir auknum þrýstingi um að auka samstarf við súnní-múslíma og Kúrda sem finnst þeir vera áhrifalausir í stjórn landsins. Þvert á móti stofnaði Maliki nýja stjórn- málafylkingu sjíta-múslíma sem jók enn á óánægju annarra þjóðfélagshópa. Allt frá því bandarískar hersveitir voru fluttar í áföngum frá Írak frá 2009 til 2011, hefur Maliki verið sakaður um ofsóknir gegn pólitískum andstæðingum sem margir hafa verið handteknir og sumir dæmdir til dauða. Maliki hefur verið sak- aður um valdafíkn og að hafa tileinkað sér þá stjórnarhætti sem hann barðist sjálfur gegn hjá Hussein. Þetta hafi einangrað marga stóra þjóðfélagshópa sem hafi aukið tortryggni í garð ríkisstjórnarinnar og lýðræðis og gert þá hliðhollari öfga- kenndum hugmyndum, eins og Íslamska ríkinu (ISIS). ISIS-samtökin Eða ISIL eins og þau eru einnig nefnd sjást hér veifandi fánum og hlaðnir vopnum. Róbert Hlynur Baldursson skrifar frá Brussel HeIMIld: InStItute foR tHe Study of WaR, 10. ágúSt 2014

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.