Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Page 25
Umræða 25Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 Ég flokka sorp Hún er svo miklu stærri Líffræðingur segir óvenju margar tilkynningar um snæuglu. – DVGestur Pétursson, forstjóri Elkem, er náttúruunnandi. – DV Við erum í hamingjukasti Erna Bergmann fatahönnuður gekk að eiga Birgi Ísleif Gunnarsson um helgina. – DV Mest lesið á DV.is 1 „Mér er ótrúlega misboðið“ Katrín Lilja Sigurðardóttir efnafræðingur hefur ákveðið að kæra framkvæmd Jökulsárhlaupsins til Jafnréttisstofu. Ástæðan er sveitakeppnin en þar segir Katrín Lilja konur ekki eiga neinn möguleika. 55.937 hafa lesið 2 Hvers vegna er bremsufar í g-strengn- um? Konur sem ganga í undirfötum í formi g-strengs kannast sennilega við að þegar farið er úr g-strengnum í dagslok, leynist oft í honum örlítið bremsufar. 48.441 hefur lesið 3 „Mér fannst þetta skítleg framkoma“ Sölvi hefur áður rætt opinskátt um uppsögnina á Stöð 2, meðal annars í viðtali við DV árið 2009. Þar rifjaði blaðamaður upp þegar Sölvi spurði Geir H. Haarde að því í beinni útsendingu hvort hann vissi til þess að lífeyris- sjóðsmönnum hefði verið mútað af fjármálafyrirtækjum. Aðspurður hvort hann liti svo á að tengsl hafi verið á milli þessa viðtals og uppsagnarinnar sagðist Sölvi hafa öruggar heimildir fyrir því að eftir þessa umfjöllun hafi verið haft samband inn á æðstu staði á Stöð 2. 47.187 hafa lesið 4 Hilmar sendi kröfuna til lögfræðings Iðnaðarmaður sem segir að sér hafi verið hótað af Hilmari Leifssyni barst þann 25. október árið 2012 krafa um endurgreiðslu á innborgun frá Lögfræðistofu Reykja- víkur og skrifar undir það þáverandi lögmaður stofunnar. 40.985 hafa lesið 5 „1.800 þúsund eða heyrnin“ Ég hringi í Hilmar á Sæbrautinni og hann öskraði á mig: „Helvítis, djöfulsins hortugheit í þér helvítis fíflið þitt. Þú skalt sko borga fyrir þetta með einum eða öðrum hætti. Þú rífur ekki kjaft við mig“.“ Svo lýsir rafeindavirki, sem ekki vill koma fram undir nafni, símtali sem hann átti við Hilmar Leifsson árið 2012. 39.934 hafa lesið Myndin Nýja hafmeyjan Komin á sinn stað eftir langt ferðalag.. MyNd ÞorMar ViGNir GuNNarssoN Vanhæft fjárveitingavald? Þ ingmaður Sjálfstæðisflokks­ ins veltir því fyrir sér hvort ekki sé tími til kominn að forstjórar ríkisstofnana sem fari fram úr fjárlögum leiti sér að starfi sem þeir ráði við. Þing­ maður Framsóknarflokksins, for­ maður fjárlaganefndar, lýsir því yfir að nú verði forstöðumenn kallaðir á teppið. Tilefnið er birting á hálfs árs uppgjöri á fjárreiðum ríkisstofnana. Nokkrar stofnanir hafa farið fram úr áætlunum, þar á meðal Sjúkra­ tryggingar og Landspítalinn. Fyrir síðustu kosningar lofuðu stjórnarflokkarnir að stórefla heil­ brigðiskerfið. Sjálfstæðisflokkurinn var vissulega blendnari í yfirlýsing­ um sínum en Framsóknarflokkurinn sem dró hvergi af sér og lagði á það áherslu að hann myndi beita sér fyr­ ir þjóðarsátt um eflingu heilbrigðis­ þjónustunnar og tiltók Landspítal­ ann sérstaklega; til hans yrði veitt stórauknu fjármagni kæmist Fram­ sóknarflokkurinn í ríkisstjórn. Ekki hefur þetta gengið eftir. Fram kemur hjá Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans, að spítalinn sé rekinn fyrir minna fé nú en árið 2008, sé miðað við fast verðlag. Þurfa hinir loforðaglöðu stjórnmálamenn ekki að skýra fyrir okkur hvers vegna þetta sé látið viðgangast á sama tíma og fé er ausið út og suður til gæluver­ kefna? Hin hliðin á peningnum Í þessu sambandi vil ég taka sér­ staklega undir með varaformanni Læknaráðs Landspítalans, Ebbu Margréti Magnúsdóttur, sem sagði í viðtali við RÚV í vikunni að hún ef­ aðist um hæfni stjórnmálamanna til að deila út fé skattborgaranna. Vís­ aði hún til loforða þeirra fyrir kosn­ ingar um að heilbrigðismál yrðu í forgangi en önnur virtist ætla að verða reyndin: „Ég verð að segja það sem starfsmaður á gólfinu að ég hef áhyggjur af ummælum þeirra stjórnmálamanna sem hafa tjáð sig að undanförnu. Við höfum vissu­ lega þurft að snúa bökum saman, starfsmenn spítalans, sama hvaða störfum við gegnum og haft flotta forystusveit þar. En formaður fjár­ laganefndar Alþingis hótaði því að menn yrðu jafnvel látnir taka pok­ ann sinn og mig langar að velta hinni hlið peningsins við og spyrja: Er þetta fólk starfi sínu vaxið, sem er í raun og veru að deila fjármun­ um almennings í kannski einhver nýpólitísk gæluverkefni?“ Í viðtalinu nefnir hún síðan fleiri sendiherra­ stöður og fleiri i jarðgöng sem dæmi. „Ég held við séum nú komin að þeim mörkum að við þurfum að fara að forgangsraða alvarlega í íslensku þjóðfélagi. Heilbrigðismálin áttu að vera á oddinum en ég hef verulegar áhyggjur af umræðu síðustu daga.“ stofnanir starfa samkvæmt lögum Þessi orð ættu að verða stjórnar­ meirihlutanum á Alþingi tilefni til að horfa í eigin barm. Gæti verið að það sé einmitt þar sem sé að finna fólk sem ekki er starfi sínu vaxið? Gæti verið að fjárlög séu þannig úr garði gerð af hálfu þessa fólks að úti­ lokað sé fyrir stofnanir sem sinna eiga lögbundnu hlutverki að halda sig innan ramma? Ekki má gleyma því að þetta sama Alþingi samþykkir lögin sem heilbrigðisstofnunum er ætlað að framfylgja. Hvað á bráða­ deild Landspítalans að gera þegar stórslys verður? Á hún að loka? Þess er skemmst að minnast að vakin var á því athygli að niðurskurður í heilsugæslunni yki álagið á bráða­ þjónustu stóru sjúkrahúsanna. Og hvað Sjúkratryggingar varðar þá eru þær einnig að starfa samkvæmt lögum og samningum sem fram­ kvæmdavaldið gerir við sérfræði­ lækna. Þegar skorið er niður við al­ menna heilbrigðisþjónustu má ætla að fólk leiti fremur á þessi mið. Allt þetta samhengi þarf að skoða áður en rokið er upp til handa og fóta í yfir lýsingum og upphrópunum. Fjárveitingavaldið ber ábyrgð Hvað embætti sérstaks saksóknara áhrærir er vert að minnast varnaðar­ orða Evu Joly sem hingað kom til ráð­ gjafar í kjölfar hrunsins. Hún sagði að þegar nær drægi skuldadögum í málaferlum vegna fjármálamisferl­ is mætti ætla að reynt yrði að bregða fæti fyrir framgang mála. Gæti verið að við séum að verða vitni að slíku? Ekki ætla ég að mæla því bót ef illa er farið með skattfé og að sjálf­ sögðu er fráleitt annað en að ríkis­ stofnanir sýni ráðdeild og fari að lögum, líka fjárlögum. En það þarf að horfa einnig til annarra laga sem snúa að réttindum fólks til velferðar­ þjónustu. Þar þarf fjárveitingavaldið að skynja ábyrgð sína. Annars ber að líta á það sem vanhæft. n Þorleifur Gunnlaugsson dúklagningameistari Kjallari „Hvað á bráðadeild Landspítalans að gera þegar stórslys verð- ur? Á hún að loka?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.