Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Side 32
Helgarblað 15.–18. ágúst 201432 Fólk Viðtal Þ að er mikið um að vera í Borgarleikhúsinu þegar blaðamaður fer á fund við leikhússtjóra um miðja síð­ ustu viku, þó svo að leik­ ararnir mæti ekki til æfinga fyrr en eftir helgi. Sumrin eru notuð til þess að sinna viðhaldi og ber umhverfið þess merkis. Veggir hafa verið mál­ aðir og lagnir endurnýjaðar. Meðan á viðtalinu stendur kemur maður og tengir netið við tölvuna hennar Krist­ ínar. Skrifstofa leikhússtjóra er ekki undanskilin raski og viðgerðum. „Við nýtum sumrin í þetta því það er svo mikil dagskrá yfir vetrartímann,“ út­ skýrir Kristín. Þegar við höfum náð okkur í sitthvorn kaffibollann í al­ menningi svokölluðum, þröngu rými fyrir utan vistarverur leikaranna, göngum við inn á skrifstofu Kristínar, setjumst niður og spjöllum saman. Við byrjum á upprunanum. Tónlistin heillaði fyrst Kristín er uppalin á Seltjarnarnesi og er yngst þriggja systkina. Al­ gjört örverpi að eigin sögn. Þeir sem trúa á áhrif systkinaraðar á mótun persónuleika vita að yngstu systkinin eru gjarnan bæði félagslynd og upp­ full af sköpunargleði – þar er Kristín engin undantekning. „Ég átti mjög týpískan barndóm á Nesinu. Svæð­ ið var að mörgu leyti óbyggt og beint á móti blokkinni okkar var til dæm­ is mýri þar sem við lékum okkur á skautum á veturna,“ segir hún. „Það sem einkennir æskuminningarnar er frelsið sem maður hafði sem barn. Samfélagið var mjög lítið. Í grunn­ skólanum mínum voru til að mynda bara þrír bekkir þannig ég þekkti alla krakkana í skólanum. Þetta var bara eins og lítill bær í stórri borg.“ Listin var aldrei langt undan hjá Kristínu og í fyrstu var það tónlistin sem heillaði. Hún var í kór hjá Mar­ gréti J. Pálmadóttur, Möggu Pálma, frá níu ára aldri og byrjaði síðan að spila á gítar þrettán ára. „Þá fór ég að semja mín eigin lög,“ segir Kristín. „Þegar ég var í Kvennó spilaði ég svo í nokkrum hljómsveitum og þegar ég var 21 árs gaf ég út plötu. Ég hafði alltaf hugsað mér að leggja tónlist fyrir mig en hef lítið getað sinnt henni síðastliðin ár.“ Það var einmitt í gegnum tón­ listina sem Kristín kynntist síðan eigin konu sinni, Katrínu Oddsdóttur lögfræðingi. Stórkostleg breyting Í menntaskóla kom Kristín út úr skápnum. „Ég velti þessu aldrei neitt sérstaklega fyrir mér. Svo þegar ég var svona sautján, átján ára varð ég bara skotin í konu. Þá einhvern veg­ inn áttaði ég mig á því að það væri hægt – að þetta væri til,“ segir Kristín sem segist aldrei hafa mætt fordóm­ um vegna kynhneigðar sinnar. „Ég á mjög margar góðar minningar frá þessum árum. Þetta var tíminn þar sem ég var að uppgötva sjálfa mig. Á þessum tíma var samfélag samkyn­ hneigðra ákveðinn menningarkimi, en í dag er þetta allt öðruvísi. Þetta er orðið mikið opnara. Þegar ég var að gefa út plötuna mína talaði ég mjög mikið um þetta opinberlega en hvað réttindabaráttu samkynhneigðra varðar þá skiptir svo miklu máli að hafa sterkar fyrirmyndir. Það er svo mikilvægt að vera heill í því sem mað­ ur gerir og standa með sjálfum sér.“ Kristín segir margt hafa breyst í ís­ lensku samfélagi frá því hún kom út úr skápnum. Hún nefnir sem dæmi fyrstu Gleðigönguna sem hún tók þátt í, þá nítján ára, en þá fór minna fyrir gleði og meira fyrir kröfum um sjálfsögð mannréttindi. „Á þessum tíma gengum við niður Hverfis­ götuna sem er mjög táknrænt því þetta var mjög mikið í felum enn­ þá. Við vorum um þrjátíu manns og öll með kröfuspjöld. Nokkrum árum síðar gengum við niður Laugaveginn og þúsundir manns horfðu á. Það er alveg stórkostlegt hvað umræðan og viðhorfin sem maður mætir hafa breyst frá því ég kom út úr skápnum.“ Rómantík í Neskaupstað Kristín og Katrín hafa verið saman í tólf ár en þær kynntust í gegnum sameiginlega vini á miklum um­ rótstíma í lífi þeirra beggja. „Ég var í hljómsveit með vinkonum mínum á þessum tíma sem hét Rokkslæðan. Það sem byrjaði sem eitthvert grín í vinahópi vatt upp á sig og við vor­ um fengnar til að spila á fjölmörgum pöbbum í bænum og meira að segja úti á landi. Katrín var að vinna sem blaðamaður í Neskaupstað, á Austur­ glugganum, og bjó þar í eitt ár. Við kynntumst síðan í gegnum sameigin­ lega vinkonu þegar við fórum að spila fyrir austan. Við urðum ástfangnar og höfum verið saman síðan,“ seg­ ir Kristín og það leynir sér ekki að sagan af fyrstu kynnum þeirra hjúa er henni afar dýrmæt. „Þetta gerðist mjög hratt. Ég var að vinna við sýn­ ingu í Iðnó á þessum tíma og var sýn­ ingarstjóri um helgar. Á mánudögum flaug ég austur og var hjá henni alla vikuna. Þetta var mjög skemmtileg­ ur tími. Hún var alltaf að keyra um og taka viðtöl við einhverja bændur milli þess sem við áttum góðar stund­ ir saman. Tilhugalífið var mjög fallegt og skemmtilegt og því er Neskaup­ staður okkar rómantíski staður.“ Reyndu í sex ár Barneignir komu til tals fljótlega eft­ ir að Kristín og Katrín fóru að rugla saman reytum. Þær giftu sig árið 2006 og ákváðu síðan að reyna fyrir alvöru að eignast barn árið 2007. Það átti hins vegar eftir að taka alls sex ár að fá óskina um barn uppfyllta. „Við lít­ um á það sem ótrúlega gjöf að hafa eignast barn,“ segir Kristín. „Báðar vorum við búnar að fara í ótal með­ ferðir og vorum mjög nálægt því að taka ákvörðun um að hætta að reyna. Ég held að þessi reynsla hafi styrkt samband okkar því við stóðum mjög vel saman í gegnum þetta. Það eru ekki sjálfsögð mannréttindi að eign­ ast barn og við reyndum að nálgast þetta með jákvæðum hætti. Báðar blómstruðum við í því sem við vorum að gera og þá vorum við svo heppnar að hafa fundið hvor aðra. Þegar gjöf­ in kom síðan loksins til okkar urðum við þakklátari fyrir vikið og tókum henni síður sem sjálfsagðri.“ Dóttir þeirra Katrínar, Día Ben, er nú nýorðin eins árs. Kristín talar af mikilli ástríðu og eldmóði um leik­ húsið en hægir á sér þegar hún segir mér frá dóttur sinni. Þakklætið leyn­ ir sér ekki. „Ég gekk með hana en við notuðum egg frá Kötu. Þetta var því fullkomin samvinna. Día er samt mjög lík mér og það trúa því fáir að við séum í raun ekki genalega tengd­ ar. En svo er hún að líkjast konunni minni meira og meira núna. Þær eru mjög líkar í sér, uppátækjasamar og afar glaðlyndar. Þvílík gæfa sem það er að fá að eyða lífinu með þeim.“ Þakklát fyrir traustið Kristín var því nýkomin úr fæðingar­ orlofi þegar hún var ráðin leikhús­ stjóri Borgarleikhússins í mars á þessu ári. Flestir þekkja forsöguna. Magnús Geir Þórðarson, fyrrver­ andi leikhússtjóri, ákvað að sækja um starf útvarpsstjóra Ríkisútvarps­ ins eftir skyndilegt brotthvarf Páls Magnússonar, og fékk starfið. Um brotthvarf Magnúsar segir Kristín að Fyrsta heila leikhúsár nýs leikhússtjóra Borgar leikhússins er handan hornsins. Kristín Eysteins­ dóttir tók eftirminni- lega við starfi Magnúsar Geirs Þórðarsonar þegar hann hvarf skyndilega á nýjan vettvang fyrr á þessu ári. Kristín segist full tilhlökkunar fyrir nýju leikári og lofar sannkallaðri flugelda- sýningu í vetur. Áslaug Karen Jóhannsdóttir settist niður með Krist- ínu á skrifstofu hennar í Borgarleikhúsinu og ræddi meðal annars um nýja starfið, áhersl- ur hennar innan leik- hússins, ástina, listina og umdeildar ákvarð- anir. Áslaug Karen Jóhannsdóttir aslaug@dv.is „Málinu er algjörlega lokið með fullum sáttum „Við lítum á það sem ótrúlega gjöf að hafa eignast barn“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.