Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Qupperneq 36
Helgarblað 15.–18. ágúst 201436 Skrýtið
10 undarlegir
fundir í garðinum
n Sprengjur, bílar og eiturlyf n Getur borgað sig að fara varlega með skófluna
Hver kannast ekki við að
hafa rótað með skóflu í
garðinum hjá sér? Bæði
sem barn eða þegar taka
á lóðina í gegn. Það er þó
æði misjafnt hvað fólk
finnur þegar það á annað
borð hefst handa. Hér
koma tíu sögur af
oddee.com um fólk sem
fann fleira en bara jarð-
veg í skóflunni sinni.
Frumbyggjar í „heim-
sókn“ Í upphafi þessa árs ætlaði íbúi í Salt
Lake City að grafa litla tjörn í garðinum hjá sér.
Honum til mikillar skelfingar fann hann bein í
garðinum og hringdi á lögregluna. Beinin voru send
til sérfræðings en þá kom í ljós að þau voru um
1.000 ára gömul. Sérdeild innan stjórnsýslunnar
sem sér um málefni indíána skoðar nú málið.
Peningabölvun Í ágúst 2011 fann Wayne Sabaj tösku í garðinum
sínum sem innihélt 17 milljónir í reiðufé. Wayne hafði áhyggjur af því að peningarnir
væru illa fengnir og fór með þá til lögreglunnar – með þeim formerkjum að ef enginn
myndi sækja þá fengi hann þá til baka árið 2012. Nágranni Wayne Dolores Johnson,
87 ára, gaf sig fram en hún sagðist hafa losað sig við peningana þar sem á þeim hvíldi
bölvun. Hún dó mánuði seinna. Dómari dæmdi að dóttir Johnson ætti peningana en
Wayne fékk hluta þeirra í fundarlaun. Wayne dó tíu dögum áður en hann fékk
peningana þannig að faðir hans átti að taka við þeim. Hann fékk hins vegar
hjartaáfall þegar hann frétti af andláti sonar síns. Sannarlega bölvaðir peningar.
Skart í lauginni Hinn
austurríski Andreas K. Var að stækka litla
sundlaug í garðinum hjá sér árið 2007. Hann
fann heilmikið magn af alls kyns járnadrasli
og gömlu glingri og safnaði því saman í
kistu. Það var svo ekki fyrr en tveimur árum
seinna sem Andreas veitti hlutunum athygli
á ný þegar hann seldi húsið. Þeir voru svo
þaktir drullu að erfitt var að sjá hvað var þar
á ferðinni. Eftir að hafa þrifið hluta fengsins
og sett myndir á netið kom í ljós að um 650
ára gamalt skart var að ræða – um 200 hluti
sem voru margir hverjir úr gulli og þaktir
eðalsteinum. Þegar Andreas bar fundinn
undir yfirvöld í heimlandinu kallaði
yfirmaður fornminjastofnunar fundinni
„ævintýri“. Andreas kærði sig lítið um að
græða og gaf hlutina á safn.
Barnaleikur og bíll Árið 1978 voru tveir krakkar að leik í garði nokkrum. Til að
drepa tímann ákváðu þeir að grípa í skóflu og grafa. Eftir stutta stund komu þeir niður á eitthvað
hart og stórt. Þeim til mikillar undrunar var heill bíll í bakgarðinum! Lögreglan kom á staðinn og
kláraði að grafa bílinn upp sem var af gerðinni Ferrari Dino 246 GTS. Eftir stutta rannsókn kom í ljós
að þjófar höfðu grafið bílinn í garðinum aðeins fjórum árum áður en enginn nágranni hafði tilkynnt
neitt undarlegt. Bílnum var skilað til tryggingafyrirtækisins sem hafði bætt fyrri eiganda tjónið.
Seinna kom í ljós að um tryggingasvik var að ræða. Þjófarnir áttu að farga bílnum en þótti hann svo
glæsilegur að þeir grófu hann í staðinn. Bíllinn er enn til og ber númeraplötuna „Dug up“.
Gull í garðinum Hvern hefur ekki dreymt um að finna grafinn fjársjóð? Par í
Sierra í Nevada í Bandaríkjunum upplifði þann draum árið 2013 þegar það fór í göngutúr með
hundinn sinn. Parið átti ágætis jörð og var í göngutúr þegar það sá ryðgað járnílát standa upp úr
jörðinni. Þau opnuðu lok á í látinu og fundu fullt af málmdiskum. Tóku þau ílátið heim til að skoða
innihaldið betur. Eftir skrúbb og þrif kom í ljós að ílátið var fullt af gullpeningum frá árinu 1890. Þau
fór aftur á staðinn þar sem þau fundu gullið og fundu tvö ílát til viðbótar. Alls fundust 1.373
gullpeningar sem metnir voru á 10 milljónir dala eða um 1,1 milljarð króna.
Kjarnorkubyrgi
og vistir Chris og Collen Otcasek
keyptu hús í Woodland Hills í Kaliforníu árið
2013. Í gögnunum sem fylgdu kaupsamningi
kom fram að geymsla væri í garðinum.
Hjónin héldu að um holu í jörð væri að ræða
en þegar þau fluttu inn kom í ljós að um
kjarnorkubyrgi var að ræða sem hafði verið
byggt árið 1960. Það var óhreyft, hlaðið
vistum og nauðsynjavöru frá þeim tíma.
Kjarnorkuverkfræðingurinn Alvin Kaufman
hafði byggt byrgið þegar kalda stríðið
geisaði en þar var einnig að finna töluvert af
dagblöðum og tímaritum. Alvin ætlaði ekki
að leiðast ef til kjarnorkustríðs kæmi.
Lois Lane í
garðinum Árið 1996
fannst Lois Lane, ástkona
Superman, í bakgarði í Glendale
í Kaliforníu. Eða nánar tiltekið
leikkonan Margot Kidder sem
fór með hlutverk hennar í
kvikmyndunum sem skörtuðu
Christopher Reeve í aðalhlut-
verki. Leikkonan var heil á húfi
en hafði verið týnd í fjóra daga.
Hún var skelkuð og hrakin en
hún var seinna greind með
geðklofa. Hún hefur síðan
fengið aðstoð heilbrigðisyfir-
valda og náð góðum bata.
Hverfi á sprengjuæfingasvæði
Íbúar í hverfi í Orlando í Flórída fara varlegar en aðrir þegar þeir
grafa í garðinum. Ástæðan er sú að þúsundir húsa á um 5.000
hektara svæði voru byggð ofan á gömlu sprengjuæfingasvæði
frá seinni heimsstyrjöldinni. Frá árinu 1998 hafa fundist 126
virkar sprengjur á og í kringum hlaupavöll hjá framhaldsskóla.
Þónokkrar sprengjur hafa einnig fundist í görðum á svæðinu þó
herinn hafi eytt um milljarði króna í hreinsunarstörf. Húsnæðis-
verð hefur hrunið frá því að sprengjurnar fóru að finnast og fjöldi
lögsókna litið dagsins ljós.
Allt er vænt sem vel er grænt Í desember 2012 fann
Mack Reed, íbúi í Silver Lake-hverfinu í Los Angeles, nokkuð óvænt tösku í garðinum
sínum. Hann hafði fengið til sín verkamann til að setja upp sólarsellur til raforkuöflunar.
Í garðinum var niðurgrafin hvelfing sem var lítið notuð og þegar hún var opnuð í
tengslum við verkefnið kom í ljós græn taska. Í henni voru um tíu kíló af kannabisefnum
Reed hringdi í lögregluna en fékk þau svör að allir bílar væri úti vegna neyðartilviks.
Þjónustufulltrúi lögreglunnar bað þá Reed um að koma með efnin á lögreglustöðina.
Reed fannst það ekki nægilega góð hugmynd og á endanum var rannsóknarlögregla
send á staðinn. Reed skildi eftir miða í garðhvelfingunni sem á stóð: „Fann efnin og
hringdi á lögguna. Þeir gerðu efnin upptæk og eru núna að fylgjast með staðnum. Sorrí“.
500 kílóa steingervingur
Þegar Gary Johnson var í framhaldsskóla í Rancho
Palos Verdes í Kaliforníu rakst hann á undarlegan
stein nærri heimili sínu. Hann hafði mikinn áhuga á
fornleifafræði og með hjálp vina sinna rúlluðu þeir
500 kílóa hnullungnum inn í garð hjá sér. Gary
þreif mestu drulluna af steininum og fékk síðan
fornleifafræðing til að líta á gripinn. Sá sagði hann
nauðaómerkilegan. 35 árum seinna sá Gary þátt
um 300 kílóa steingerving af búrhval sem var
12.000 ára gamall. Sá fannst rétt hjá æskuheimili
Garys. Gary fékk því annan fornleifafræðing til að
meta steininn og þá kom í ljós að um sambæri-
legan og stórmerkilegan fund var að ræða.
Steingervingurinn er núna í Náttúruminjasafni
Bandaríkjanna.