Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2014, Blaðsíða 56
Helgarblað 15.–18. ágúst 2014 63. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Saug hann á sviðakjamma við tölvuna? Velferðarríki fyrir kjúklinga n Þingkonan Elín Hirst tjáði vinum sínum á Facebook frá því sem voru að hennar mati bestu fréttir sem hún hafi heyrt í langan tíma. Þar átti hún við svokallaða velferðarkjúklinga. „Velferðarkjúklingarnir sem fá að alast upp við náttúrulegar að­ stæður er besta frétt sem ég hef heyrt lengi, þegar dýravelferð er annars vegar,“ skrifaði Elín á fimmtudag. Hún sagðist hlakka til að geta keypt slíkan kjúkling. „Gaman að vita einnig hvar hægt verður að kaupa þessar afurðir,“ skrifaði Elín. „Hreinræktaðir Íslendingar“ bíða í röðum n Dr. Gunni Hjálmarsson kom ferðamönnum til varnar á bloggi sínu á þriðjudag og segir bölv „hreinræktaðra Íslendinga“ yfir að þurfa að bíða í röð vera ein­ tómt væl. „Við þessa vælverja segi ég: Farið til Þorlákshafnar ef þið viljið endilega vera þar sem ekki sést sála á götunum. Ég man alveg þegar Reykjavík var eins og Þorlákshöfn. Maður fór kannski á einhverja drepleiðinlega mynd í MÍR klukkan 14 á sunnu­ degi, kom svo út og gekk um göturn­ ar þar sem ekki hræða var á ferð; í mesta lagi nokkrir að rúnta nið­ ur Laugaveg­ inn inni í bíl­ um,“ skrifar Dr. Gunni. Sigmundur snýr aftur n Forsætisráðherrann Sigmund- ur Davíð Gunnlaugsson sneri aftur af krafti á Facebook þegar hann uppfærði síðuna sína eftir tæplega mánaðarhlé. Á einni viku hefur hann sett inn þrjár færsl­ ur með nokkuð þjóðlegu ívafi. Sú fyrsta fjallaði um heimsókn hans á Handverkshátíðina í Eyjafirði. „Stórkostlegt að sjá fjölbreytileik­ ann og nýsköpunina í íslensku handverki og vöruþróun,“ sagði Sigmundur. Næst mærði hann íslensku kraftajötnana Bene- dikt Magnússon og Hafþór Júlí- us Björnsson sem unnu til afreka í vikunni. „Ég er hissa á að þetta skuli ekki hafa vakið meiri athygli hér heima en raun ber vitni,“ kvað Sigmundur. Að lokum brá hann sér til Siglufjarðar. „Hitti unga frænku sem var að keppa á Pæju­ mótinu,“ sagði forsætisráð­ herrann. 16/08 201 4 | WWW. LOTTO.IS Ert þú á Facebook? Magnað, við líka! facebook.com/lotto.is Lottópotturinn stefnir í 60 sætar og svalandi milljónir! Skelltu þér í smá Lottóleiðangur og fáðu þér miða. Leyfðu þér smá Lottó! 60 FRÍSKANDI KÚLUR!PIPAR \ TBWA • S ÍA Garðbæingar flykkjast til Ítalíu n Seldist strax upp í hópferð á leik Stjörnunnar gegn Inter Milan n 200 manns á biðlista E ins Greinilegt er að mikill áhugi er á viðureign Stjörnunnar gegn Inter Milan sem fram fer hér á Ís­ landi þann 20. ágúst sem og í Mílanó þann 28. ágúst. Íslensk ferðaskrifstofa bauð upp á hópferð á leikinn í Mílanó og varð uppselt í hana á örskömmum tíma. Ferðin kostaði rétt tæpar 130.000 krónur á mann. Leikurinn í Mílanó mun fara fram á San Siro­leikvanginum, sem er heimaleikvangur bæði Inter Milan og A.C. Milan. 80.000 manns kom­ ast fyrir á leikvanginum, en til gam­ ans má geta að Samsung­völlurinn, sem er heimavöllur Stjörnunnar er með sæti fyrir tæplega 1.000 manns. Victor Ingi Olsen, rekstrarstjóri knattspyrnudeildar Stjörnunnar, segir að ásókn í að komast á leik­ inn úti hafi verið gríðarleg og að áhuginn hafi verið miklu meiri en hann hafði nokkurn tíma þor­ að að vona. „Það er náttúrlega frá­ bært að sjá hvað Garðbæingar og aðrir hafa mikinn áhuga á að fylgja Stjörnunni í þetta rosalega verk­ efni,“ segir Victor. Hann segir að það hafi selst upp í leiguvélina, sem tekur 178 manns í sæti, á örskömmum tíma og nú sé verið að leita leiða til að koma enn fleira fólki út á leikinn með öðrum leiðum, en nú þegar eru komnar inn rúmlega 260 beiðnir um miða á leik­ inn. Victor telur að það verði um 300 Íslendingar á San Siro þegar leik­ urinn fer fram. Hann segir leikmenn Stjörnunnar gríðarlega spennta fyr­ ir leiknum gegn Inter, en segir þó að þeir reyni að halda fókusnum á næsta leik liðsins, en þeir spila á móti Val í kvöld. n jonsteinar@dv.is San Siro-leikvangurinn Victor býst við að 300 Íslendingar muni leggja leið sína til Ítalíu til að styðja Stjörnumenn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.