Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2014, Page 2
Vikublað 23.–25. september 20142 Fréttir
Ákærður bankastjóri
Aðalmeðferð í máli sérstaks
saksóknara gegn Sigurjóni Árna-
syni, fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans. Hann er sakaður,
ásamt Sigríði Elínu Sigfúsdóttur,
um umboðssvik. Mynd Sigtryggur Ari
Reyndi að
lokka barn
Reynt var að lokka barn upp í bíl
á horni Háuhlíðar og Hörgshlíðar
nú á mánudaginn. Þetta kemur
fram í orðsendingu til foreldra og
forráðamanna barna á svæðinu.
„Barnið brást hárrétt við og
hljóp í burtu, fann starfsmann
Eldflaugarinnar og sagði hon
um hvað gerðist. Við létum lög
regluna vita og erum hún búinn
að taka skýrslu af barninu,“ segir í
orðsendingunni en hún er undir
rituð af Herði Sturlusyni, for
stöðumanni Frístundaheimilisins
Eldflaugarinnar.
„Ég læt alla starfsmenn Eld
flaugarinnar vita hvað gerðist og
verðum við með augun opin fyr
ir grunsamlegum bílum. Okkur
langar að biðja ykkur að fræða
börnin um svona atvik og kenna
þeim rétt viðbrögð.“
Vont að sofa
í Leifsstöð
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er
getið á lista vefsíðunnar Sleep
ing in Airports og skipar hún sér
sess á meðal þeirra flugstöðva
sem verst er að sofa í. Í umsögn
segir að í tvígang hafi öryggis
verðir gert athugasemdir við að
þeir hinir syfjuðu lægju á gólfinu.
„Í þriðja sinn sparkaði öryggis
vörður í farangurinn og blés í
flautuna sína, til að halda öllum
vakandi,“ segir þar enn fremur.
Ef það að vekja fólk væri íþrótt
væru öryggisverðirnir á flugvell
inum íslenska þaktir verðlauna
peningum. Á listanum eru einnig
Bergamo Orio al Ser io Airport,
Christchurch In ternati onal Air
port, Berl in Teg el Airport sem og
Eind ho ven Airport.
Bankastjórar máttu
allt í lánamálum
n Panama-félög ódýrust n „Var hannað þannig að við værum undanþegnir“
J
á, við vorum undanþegnir
þessum reglum,“ var svar Sigur
jóns Árnasonar þegar hann var
spurður við skýrslutöku hvort
bankastjórar hafi „mátt allt“
þegar kom að lánareglum bankans.
Aðalmeðferð í máli sérstaks sak
sóknara gegn Sigurjóni Þ. Árnasyni,
fyrrverandi bankastjóra Landsbank
ans, og Sigríði Elínu Sigfúsdóttur,
fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrir
tækjasviðs bankans, hófst á mánu
dag.
Bæði eru þau ákærð fyrir um
boðssvik en þau eru sögð hafa mis
notað aðstöðu sína með því að fara
út fyrir heimildir til veitingar ábyrgða
meðan þau bæði sátu í lánanefnd
Landsbankans. Umboðssvikin, sem
þau eru ákærð fyrir, eru upp á tæp
lega fjórtán milljarða króna og snúa
að aflandsfélögum í eigu Lands
bankans. Féð sem fengið var að láni
frá öðrum bönkum var vegna kaup
réttarsamninga starfsmanna Lands
bankans. Bæði tvö neituðu sök.
Minnisleysi hrjáði báða sakborn
inga við skýrslutöku en algengasta
svar þeirra við spurningum sak
sóknara var að þau myndu ekki eftir
þeim atvikum sem spurt var um. Báð
ir sakborningar voru spurðir hvort
þeir hefðu skrifað undir sjálfskuldar
ábyrgðir og viðurkenndu bæði Sigur
jón og Elín það. Þau deildu þó bæði
talsvert um dagsetningar og sögðu
að þau hefðu ekki skrifað undir á
þeim dögum sem spurt var um.
Ábyrgð með litla tryggingu
Ákæra sérstaks saksóknara gegn tví
menningunum er tvíþætt. Annars
vegar eru þau ákærð fyrir að hafa
samþykkt og undirritað fyrir hönd
Landsbankans, sjálfskuldarábyrgðir
Landsbankans á lánssamninga
Kaupþings banka þann 4. júlí 2006
við tvö félög; félagið Empennage
Inc., að fjárhæð 2,5 milljarðar króna,
og hins vegar félagið Zimham Corp.,
að fjárhæð 4,3 milljarðar króna. Lán
Kaupþings til Empennage var tryggt
með veði í hlutabréfum í Lands
bankanum að nafnvirði rúmlega
122 milljóna króna og veð Zimham
var sömuleiðis hlutabréf í Lands
bankanum að nafnvirði 211 milljóna
króna.
Átti að spara fé
Seinni liður ákærunnar snýr að
sjálfskuldarábyrgð Landsbank
ans á lánssamning Kaupþings við
Empennage Inc., sem þau sam
þykktu og undirrituðu fyrir hönd
Landsbankans, upp á tæplega sjö
milljarða króna. Það lán var tek
ið þann 29. júní árið 2007. Engin
utanaðkomandi trygging var veitt
vegna ábyrgðarinnar. Samkvæmt
sakborningum var þessi gjörn
ingur fyrst og fremst til þess að
spara Landsbankanum fé þegar
starfsmenn keyptu bréf í bankan
um á ákveðnu gengi. Í stað þess
að Landsbankinn keypti bréfin á
markaðsvirði þegar að því kom að
starfsmenn fengju bréfin hafi fé
lögin í Panama keypt þau áður og
svo selt bankanum þegar kom að
kaupum starfsmanna. „Lands
bankinn kaupir af þeim réttindi að
fá að kaupa af þeim bréf á ákveðnu
tímabili á ákveðnu gengi,“ útskýrði
Sigurjón.
Ódýrustu félögin í Panama
Bæði þessi félög voru skráð á
Panama. Málið hefur einnar helst
verið tengt við Panama fram að
þessu en Sigurjón ljóstraði því upp
við skýrslutöku hvernig til kom að
aflandsfélög Landsbankans væru
skráð í MiðAmeríku. „Kristján
Gunnar [Valdimarsson, fyrrverandi
forstöðumaður skattasviðs Lands
bankans] keypti félög þar sem þau
voru ódýrust, sem reyndist vera í
Panama,“ sagði Sigurjón. Hann seg
ist hafa sjálfur tekið eftir þessu og
spurt hvernig á þessu stæði.
Leitaði til Hreiðars
Málsvörn Sigurjóns sneri meðal
annars að því að kaupréttarkerfi
bankans hafi verið við lýði áður en
hann hóf störf við bankann. „Ég hef
alltaf sagt, að ég og Elín og allir aðr
ir sem unnu hjá bankanum, vorum
bara að vinna samkvæmt ákveðnu
skipulagi sem sneri að kaupréttar
kerfi bankans sem hafði verið búið
til árið 2000. […] Menn gerðu ráð fyr
ir að þessi bréf myndu hækka mjög
mikið og ákváðu að tryggja sig strax
með því að hafa aðgang að bréfum til
að geta afhent starfsmönnum,“ sagði
Sigurjón. Hann sagði að fyrra fyrir
komulag hafi verið að Landsbank
inn hafi stofnað sjálfseignarsjóð sem
fékk svo kaupréttarfélag, sem fékk
svo aftur lán frá bankanum. Fyrir það
hafi verið keypt hlutafé í bankanum.
Samkvæmt Sigurjóni hafi endur
skoðendur bankans lagt áherslu á
að lán fyrir þessari fléttu kæmi frá
öðrum stofnunum en bankanum
sjálfum og því hafi hann leitað til
„Hreiðars“ [Más Sigurðssonar, for
stjóra Kaupþings].
Segir saksóknara misskilja
Við skýrslutöku sakborninga bar
lánareglur Landsbankans oft á góma
en í ákæru sérstaks saksóknara er því
haldið fram að veiting sjálfskuldar
ábyrgðanna hafi brotið í bágu við þær
reglur. Sigurjón hafði oft orð á því að
sérstakur saksóknari hafi misskil
ið þessar reglur. Við skýrslutöku var
nokkur heift í Sigurjóni og var hann
harðorður í garð sérstaks saksóknara.
Hann gaf til að mynda oft sterklega í
skyn að hann væri mjög ósáttur við
að sá sami og yfirheyrði hann á sín
um tíma væri nú saksóknari í máli
gegn honum. Sigur jón sagði að lána
reglur hafi verið búnar til af Elínu og
að hann og Halldór J. Kristjánsson
hafi samþykkt þær reglur.
undanþegnir reglum
Sigurjón sagði að vegna þess að alla
jafna hækkaði hlutafé frekar en lækk
aði þá hafi ekki verið líkur á að reyna
myndi á ábyrgðirnar. „Síðan gerðust
ákveðnir hlutir sem við vitum öll af
sem hafa ekkert með þessar ábyrgð
ir að gera,“ sagði Sigurjón. „Þú undir
ritar ekki á sama tíma og aðrir. Þurfti
samþykki þitt?“ spurði saksóknari
Sigurjón í kjölfar þessara orða hans.
„Það þarf samþykki mitt, en það er
ekki þannig að það þurfi að gerast í
skilgreindri röð, það er misskilning
ur hjá þér. […] Þið eruð að meina að
við höfum brotið einhverjar lána
reglur en þær voru settar af manni
sjálfum. Þetta var hannað þannig að
við vorum undanþegnir þeim,“ sagði
Sigurjón. Sigurjón sagði að hundruð
lánamála, meirihluti lána, hafi verið
afgreidd sem millifundasamþykkt
ir. Saksóknari spurði því næst hvort
bankastjórar hafi mátt allt og hvort
engar takmarkanir hafi verið og var
svar Sigurjóns að ef Halldór skrifaði
líka undir þá væri svarið: já.
Aðalmeðferðinni verður fram
haldið í vikunni. n
„Þið eruð að meina
að við höfum brot-
ið einhverjar lánareglur en
þær voru settar af manni
sjálfum. Þetta var hann-
að þannig að við vorum
undanþegnir þeim.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is