Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2014, Síða 12
Vikublað 23.–25. september 201412 Fréttir
Vill fá bætur upp
á 155 milljónir
S
igurþór Arnarsson sem var
ranglega dæmdur fyrir morð
árið 1998 í Hæstarétti hefur
höfðað skaðabótamál á hend-
ur íslenska ríkinu og krefur
það um rúmlega 155 milljónir króna
í skaða- og miskabætur. Hæstiréttur
úrskurðaði árið 2012, eftir að Sigur-
þór hafði kært málsmeðferð málsins í
Hæstarétti til Mannréttindadómstóls
Evrópu, að Sigurþór væri saklaus og
að ákæruvaldinu hefði mistekist að
sýna fram á sekt Sigurþórs með full-
nægjandi hætti árið 1998. Dómur-
inn var því leiðréttur 12 árum eftir að
hann féll og 9 árum eftir að dómur
Mannréttindadómstóls Evrópu féll.
Sigurþór sat í fangelsi í 18 mánuði en
hann fékk dóm upp á tvö ár og þrjá
mánuði.
Ákveðin fordæming sem fylgir
Lögmaður Sigurþórs segir í samtali
við DV að krafan sé ekki svo há, sé
litið til dóma sem fallið hafa í svip-
uðum málum erlendis, og þá segir
hann að málið eigi sér ekki hlið-
stæðu hér á landi. „Málið snýst
um það að hann hafi verið dæmd-
ur ranglega og auðvitað líka þann
miska sem fylgir því að vera dæmdur
fyrir svona lagað. Grundvöllur máls-
ins er þessi, hann var fangelsaður og
því fylgir ákveðin fordæming að hafa
svona dóm á bakinu,“ segir Bjarni
Hauksson, lögmaður Sigurþórs.
Hann segir upphæðina vera fundna
út eftir ákveðnum útreikningum, en
eins og gera má ráð fyrir hefur það
verið erfitt fyrir Sigurþór að verða
sér úti um vinnu eftir hefðbundnum
leiðum. Algengt er orðið að vinnu-
veitendur óski eftir sakavottorði svo
dæmi sé tekið, en þá verður einnig
að taka tillit til þess að nafn hans
varð þekkt í tengslum við morðið.
Dómurinn hefur því einnig haft
áhrif á hans persónulega líf, sem
endurspeglast í bótakröfunni þó að
auðvitað sé ekki alltaf hægt að meta
slíkt til fjár.
Bótakrafa eðlilegt framhald
Forsaga málsins er sú að árið 1997
var framið morð á skemmtistaðnum
Vegas. Sigurþór var ákærður fyrir
morð ásamt Sverri Þór Gunnarssyni,
en Héraðsdómur Reykjavíkur komst
að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri
Sigurþór en sannað taldist að Sverr-
ir hefði valdið dauða fórnarlambs-
ins. Í dómnum sagði meðal annars
að ekki hefði verið sýnt fram á með
óyggjandi hætti að Sigurþór bæri
ábyrgð á dauða mannsins. Frá-
sagnir þeirra stönguðust á og sagði
Sverrir að Sigurþór hefði sparkað í
höfuð fórnarlambsins. Vitni sagði
Sverri hins vegar hafa sparkað í höf-
uð fórnarlambsins og hljómaði sú
lýsing allt öðruvísi en frásögn Sverr-
is af atvikum málsins. Sem fyrr segir
varð niðurstaða héraðsdóms sú að
sýkna bæri Sigurþór en Sverrir hlaut
dóm. Sá síðarnefndi áfrýjaði til
Hæstaréttar og var þá alfarið stuðst
við vitnisburð og skýrslur frá árinu
áður. Í dómnum vísuðu dómarar til
þess að Sigurþór hefði átt upptök-
in að átökunum sem enduðu með
dauða fórnarlambsins og að hann
hefði áður gerst sekur um lögbrot,
meðal annars fjársvik, þjófnað og
líkamsárásir.
Sigurþór vildi þó ekki una þessu
og kærði til Mannréttindadómstóls
Evrópu og árið 2003 úrskurðaði
dómstóllinn á þann veg að Hæsti-
réttur hefði virt reglur um réttláta
málsmeðferð. Í niðurstöðu dóm-
stólsins segir að vegna þess hve
flókið málið hafi verið, hafi Hæsta-
rétti borið að hlýða milliliðalaust
á skýrslur málsaðila og vitna, sem
ekki var gert. Á endanum tók Hæsti-
réttur málið aftur fyrir og komst þá
að þeirri niðurstöðu að Sigurþór
skyldi dæmd sýkna. Bótakrafa Sig-
urþórs er því eðlilegt framhald en
ríkið hefur ákveðið að láta reyna
á frávísun. Óvíst er hvenær niður-
staða fæst í málinu. n
Hæstiréttur dæmdi hann saklausan
Sigurþór var ranglega dæmdur fyrir morð.
Hann vill nú fá bætur.
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
„Málið snýst um það
að hann hafi verið
dæmdur ranglega og auð-
vitað líka þann miska sem
fylgir því að vera dæmdur
fyrir svona lagað.
Í héraðsdómi Sigurþór var sýknaður í héraðsdómi en
sakfelldur í Hæstarétti. Hann sat inni í 18 mánuði fyrir aðild
að morði en Hæstiréttur leiðrétti þann dóm árið 2012 þar sem
ekki þótti sannað að Sigurþór hefði orðið fórnarlambinu að
bana. Hann fer því fram á bætur upp á 155 milljónir króna frá
ríkinu, þar sem hann var ranglega dæmdur. Mynd TÍMinn
Svampburstastöð, 54 m löng
Snertilaus sjálfvirk bílaþvottastöð
Háþrýstiþvottur
Bónstöð
www.lodur.is / lodur@lodur.is
12
STAÐIR Nú er Löður á
12 stöðum +1
á Akureyri.
+1
Stöðvaði 300
ökumenn
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu stöðvaði hátt í þrjú hundruð
ökumenn um helgina í sérstöku
umferðareftirliti. Langflestir voru
allsgáðir undir stýri en í tilkynn-
ingu frá lögreglu kemur fram að
tveir ökumenn hafi reynst vera
ölvaðir og eiga þeir ökuleyfis-
sviptingu yfir höfði sér. Þá var
tveimur til viðbótar gert að hætta
akstri. Höfðu þeir neytt áfengis
í einhverjum mæli en voru þó
undir refsimörkum. Auk þessa
voru níu aðrir ökumenn teknir
fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í
umdæminu um helgina.
Tíu óku of hratt
Tíu ökumenn voru stöðvaðir fyrir
of hraðan akstur í umdæmi lög-
reglunnar á Vestfjörðum í liðinni
viku í nágrenni Ísafjarðar og við
Hólmavík. Þetta kemur fram í
dagbók lögreglunnar á Vestfjörð-
um. Þá var eitt umferðaróhapp
tilkynnt og var um að ræða bíl-
veltu á þjóðvegi 60 við Bæ í Reyk-
hólasveit. Ökumaður var fluttur
með sjúkrabifreið á Heilsugæslu-
stöðina í Búðardal til skoðunar
og reyndist sem betur fer lítið
slasaður. Bifreiðin var óökuhæf
og var hún flutt af vettvangi með
krana. Þrír ökumenn voru kærð-
ir fyrir meinta ölvun við akstur.
Þessu til viðbótar voru tvær lík-
amsárásir tilkynntar til lögreglu
og eru þau mál í rannsókn.
MS sektuð um 370 milljónir
„Algjörlega ljóst að við munum krefja Mjólkursamsöluna um endurgreiðslu“
Þ
að er algjörlega ljóst að við
munum krefja Mjólkursam-
söluna um endurgreiðslu á of-
teknum greiðslum og það er
skaðabótamál sem hleypur á hund-
ruðum milljóna,“ segir Ólafur M.
Magnússon, eigandi Mjólkurbúsins
Kú, sem mun höfða skaðabótamál
á hendur Mjólkursamsölunni í ljósi
úrskurðar Samkeppniseftirlitsins
sem hefur lagt 370 milljóna króna
sekt á Mjólkursamsöluna vegna
brota á samkeppnislögum.
Samkeppniseftirlitið komst að
þeirri niðurstöðu að Mjólkursam-
salan beitti smærri keppinauta
samkeppnishamlandi mismunun
með því að selja þeim hrámjólk á
17% hærra verði en fyrirtæki sem
eru tengd MS greiddu. Er það mat
Samkeppniseftirlitsins að verð-
munurinn hafi verið til þess fallinn
að veikja Mjólkurbúið Kú og stuðla
að sölu á fyrirtækinu Mjólku til Kaup-
félags Skagfirðinga á árinu 2009.
„Við höfum þegar tekið saman
okkar meginkröfu. Beint fjárhagstjón
lætur nærri að vera 200 milljónir.
Þetta skiptir gríðarlega miklu máli og
þýddi að við töpuðum eignarhaldi á
Mjólku eftir mikið uppbyggingarferli
og er ljóst að þeir hafa valdið minni
fjölskyldu og mér persónulega
gríðarlegum skaða,“ segir Ólafur í
samtali við DV.is. Hann segir þetta
mikla viðurkenningu á tíu ára bar-
áttu þeirra við við Mjólkursam-
söluna – en um leið dapurlega niður-
stöðu fyrir íslenskan mjólkuriðnað
og Mjólkursamsöluna. n
birgir@dv.is Ólafur M. Magnússon Ætlar í mál.
Mynd SkjÁSkoT af vef RÍkiSúTvaRpSinS.
n Var ranglega dæmdur í fangelsi n Lögmaður segir upphæðina ekki svo háa