Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2014, Qupperneq 23
Umræða Stjórnmál 23Vikublað 23.–25. september 2014
Pólitískt svigrúm til að
veita fé til starfsmanna
n Flutningur Fiskistofu sætir gagnrýni n Ekki ólögmætur flutningur eða styrkveiting
T
rausti Fannar Valsson, lekt-
or í lögfræði við Háskóla
Íslands og sérfræðingur í
stjórnsýslurétti, segir að
Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegsráðherra hafi svigrúm
til að veita starfsmönnum Fiski-
stofu fé ef þeir flytjast búferlum
með stofnuninni til Akureyrar.
Hann segist þó ekki hafa skoðað
tilboð Sigurðar Inga sérstaklega,
eða lesið bréfið frá ráðherranum
til starfsmanna Fiskistofu, held-
ur ræðir hann um málið út frá al-
mennum forsendum.
„Ráðherra hefur svigrúm til
að bæta mönnum tjón og annað
sem hlýst af slíkum flutningum.
Ég myndi ekki telja neitt ólögmætt
við það. Vissulega þarf að gæta að
jafnræðisreglu og að til séu pen-
ingar fyrir þessu. Svo framarlega
sem ekki er verið að þvinga starfs-
menn til að afsala sér réttindum þá
hafa opinberir aðilar nokkuð svig-
rúm.“ Trausti Fannar segir að sam-
kvæmt dómafordæmum Hæsta-
réttar Íslands þá sé yfirmönnum
opinberra stofnana veitt talsvert
svigrúm í slíkum málum.
Líkt og fram kom fyrir helgi hef-
ur Sigurður Ingi sagt að ríkisvaldið
muni greiða þeim starfsmönn-
um Fiskistofu sem ákveða að flytja
norður til Akureyrar með stofn-
uninni þriggja milljóna króna
styrk. Sá styrkur mun verða um-
fram flutningskostnað sem fylgir
hverjum starfsmanni en ríkið mun
greiða hann. Síðan bréf Sigurðar
Inga til starfsmanna Fiskistofu var
gert opinbert hefur farið fram um-
talsverð umræða um ráðagerðina.
Spurningunni um lögmæti styrks-
ins hefur hins vegar ekki verið
svarað þó að komið hafi fram að
enginn starfsmaður Fiskistofu ætli
að nýta sér tilboðið.
Gagnrýni úr eigin flokki
Vigdís Hauksdóttir, flokkssystir
Sigurðar Inga og formaður fjár-
laganefndar, var einn þeirra þing-
manna sem gagnrýndu tilboðið á
þeim forsendum að það væri brot
á jafnræðisreglu. „Af hverju eiga
starfsmenn einnar stofnunar að
fá einhverja ívilnun og eingreiðslu
fyrir það að flytja á milli lands-
hluta? Þetta er líka fordæmisgef-
andi, við verðum að passa upp á
það að við séum ekki að skapa ein-
hver alveg galin fordæmi,“ sagði
Vigdís um helgina en þessi gagn-
rýni á tilboðið er kannski sú sem
kemur hvað fyrst upp í hugann.
Reynir ekki á jafnræðisreglu
Trausti Fannar segir hins vegar að
ekki muni reyna á réttmæti styrk-
veitingarinnar út frá jafnræðis-
reglunni fyrr en við næsta flutning
á opinberri stofnun á milli lands-
hluta. Þá mun hugsanlega koma
upp umræða um hvort starfsmenn
þeirrar stofnunar, hver svo sem
hún kann að vera, eigi ekki líka
að fá þrjár milljónir króna ofan
á flutningskostnað fyrir að flytj-
ast með stofnuninni á milli lands-
hluta. „Þetta er í rauninni bara
framtíðarmúsík. Það myndi reyna
á hana við næsta flutning. Jafn-
ræðisreglan myndi heldur ekki
tikka inn nema ef tilfellin tvö væru
sambærileg. Flutningurinn þyrfti
að vera jafn íþyngjandi fyrir starfs-
mennina til dæmis,“ segir Trausti
Fannar og bendir á að hæpið sé því
að reyni á jafnræðisreglu stjórn-
sýsluréttar í þessu tilfelli.
Fordæmið fyrir slíkum styrk-
veitingum væri hins vegar komið
og lægi fyrir.
Pólitísk spurning
Miðað við mat Trausta Fannars á
tilboði Sigurðar Inga þá er ekkert
í lögum eða stjórnarskránni sem
kemur í veg fyrir að ráðherrann
bjóði starfsmönnum Fiskistofu
þennan styrk. Tilboðið virðist fyrst
og fremst vera pólitískt, rétt eins
og sú ákvörðun að flytja Fiskistofu
til Akureyrar er pólitískt ákvörðun.
Ráðherrann virðist geta ákveðið
slíkar styrkveitingar einhliða ef
fjárheimildir fyrir þeim liggja fyrir.
Trausti Fannar segir að hugsan-
legt sé að styrkveitingarnar rúmist
innan þeirra fjárheimilda sem
Fiskistofa hefur. „Punkturinn er
sá að þeir sem fara með stjórnina
yfir rekstri hins opinbera fara líka
með stjórnina yfir starfsmanna-
málunum og þeir hafa tiltölulega
mikið svigrúm svo framarlega sem
það rúmast innan fjárheimilda og
svo framarlega sem ekki er brotið
á rétti neins, til dæmis með því að
neyða fólk til að flytja með stofn-
uninni.“
Miðað við þetta þá eru það
ekki lög eða lagagreinar sem
stöðva munu Sigurð Inga í styrk-
veitingunum. Hugsanlegt er hins
vegar að pólitískar spurningar og
gagnrýni muni setja strik í reikn-
inginn, til dæmis gagnrýni frá
samflokksmönnum hans. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Deilt á hugmyndina Vigdís Hauksdóttir
gagnrýndi styrkveitingu Sigurðar Inga Jó-
hannssonar fyrir helgi á þeim forsendum að
hún væri brot á jafnræðisreglu. MynD SIGtRyGGuR ARI
telur styrkveitinguna ekki ólögmæta Trausti Fannar Valsson segist telja að styrkveiting Sigurðar Inga Jóhannssonar til starfsmanna
Fiskistofu standist lög. MynD SIGtRyGGuR ARI
„Það er í raun-
inni bara fram-
tíðarmúsík
– trausti Fannar Valsson
Taldi sérstakan fara að lögum
Ríkissaksóknari boðaður á fund allsherjarnefndar út af símhlerunum
S
igríður Friðjónsdóttir ríkis-
saksóknara mun sitja fyrir
svörum á fundi allsherjar-
og menntamálanefndar Al-
þingis sem fram fer í dag, þriðju-
dag. Ríkissaksóknari mun ræða við
nefndina um framkvæmd hlerana
hjá embætti sérstaks saksóknara
en nokkur umræða hefur verið
um hvort embættið hafi staðið að
þeim með lögmætum hætti. Fyrr-
verandi lögreglumaður hjá emb-
ættinu, Jón Óttar Ólafsson, hefur
sagt opinberlega að framkvæmd
hlerana hjá sérstökum saksóknara
hafi verið ábótavant.
Um miðjan mánuðinn sendi
ríkissaksóknari frá sér tilkynn-
ingu sem sett var inn á vef stofn-
unarinnar þar sem hún sagði að
hún teldi ekki að brotið hefði verið
gegn lögum við framkvæmda hler-
ana. Orðrétt sagði: „Núverandi rík-
issaksóknari, sem skipaður var í
starfið 4. apríl 2011, hefur leitast
við að koma á eftirliti með hlust-
unum lögreglustjóra og embætt-
is sérstaks saksóknara og meðal
annars krafið embættin um gögn
og upplýsingar því tengdu. Þau
svör sem borist hafa frá embætti
sérstaks saksóknara hafa ekki gef-
ið tilefni til að ætla að þar sé ekki
farið eftir ákvæðum laga um með-
ferð sakamála.“
Ríkissaksóknari undirstrikaði
hins vegar mikilvægi þess að farið
væri eftir lögum við framkvæmd
hlerana. Hvort, og þá hvað, eitt-
hvað hafi breyst í mati Sigríðar á
hlerunum sérstaks saksóknara frá
því um miðjan mánuðinn liggur
ekki fyrir. DV hafði samband við
embætti ríkissaksóknara símleið-
is á mánudaginn til að spyrja Sig-
ríði um málið en var sagt að allar
fyrirspurnir ættu að koma í tölvu-
pósti.n ingi@dv.is
Boðuð á fund Ríkissaksóknari, Sigríður Friðjónsdóttir, hefur verið boðaður á fund
allsherjarnefndar út af símhlerunum. Fyrr í mánuðinum kom fram á vef Sigríðar að hún teldi
embætti sérstaks saksóknara fara að lögum við hleranir.
Ekki til sóma
Stjórnarþingmaðurinn Elín Hirst
telur eitt það alvarlegasta við það
að börn hafi verið beitt ofbeldi á
leikskólanum 101 sé að yfirvöld
ætli ekkert að aðhafast. „Þetta
mál er svo alvarlegt, og alvarleg-
ast etv. að yfirvöld ætla ekkert að
aðhafast,“ skrifar Elín en hún er
stödd í Finnlandi þar sem hún
verður viðstödd fund Norður-
landaráðs. „Réttindamál barna
verða ofarlega á baugi á morgun
og þar mun ég leggja orð í belg,“
skrifar Elín. Hún segir enn fremur
að mál leikskólans sé Íslending-
um ekki til sóma.
Flutningur vel
undirbúinn
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráð-
herra, sagði á Alþingi á mánu-
dag að vel hefði verið staðið að
undirbúningi Fiskistofu til Ak-
ureyrar. Þetta sagði ráðherrann
í svari við spurningu Brynhildar
Pétursdóttur, þingmanns Bjartr-
ar framtíðar. Sagði Bryndís að
flutningurinn og framkvæmd
hans væri vanhugsuð og spurði
jafnframt hvers vegna ekki væri
gert ráð fyrir flutningi í fjárlögum.
Sagði Sigurður Ingi að ástæða
þess væri sú að ekki væri vitað
hve margir starfsmenn færu með
norður. Sagði hann jafnframt að
þriggja milljóna króna flutnings-
styrkur væri ódýrari en ráðn-
ingarferli í hverja og eina stöðu,
og að upphæðin væri fundin út
frá launum starfsmanna.
Efla byggðar-
annsóknir
Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra
byggðamála ávarpaði Byggðar-
áðstefnu Íslands 2014 sem haldin
var á Patreksfirði um helgina.
Á ráðstefnunni kynnti Sigurður
Ingi sérstakan byggðarannsókna-
sjóð sem verður settur á laggirnar.
Sjóðurinn mun hafa til ráðstöf-
unar allt að 10 milljónum króna
á ári, næstu þrjú árin að minnsta
kosti. „Það er ljóst að það vantar
gögn og fræðilegan grunn til að
byggja á og erfiðlega hefur gengið
að fjármagna byggðarannsóknir í
gegnum samkeppnissjóðina sem
til staðar eru. Vonast er til þess
að öflugir rannsóknaraðilar sæki
í sjóðinn og að komandi rann-
sóknir verði mikilsverður grunnur
við mótun byggðastefnu,“ segir í
tilkynningu atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytisins. Að ráð-
stefnunni stóðu Byggðastofnun,
Fjórðungssamband Vestfirðinga,
Háskólasetur Vestfjarða og Vest-
urbyggð. Í ferðinni tók ráðherra
jafnframt þátt í vígsluathöfn ofan-
flóðavarnargarðanna Varðar og
Vaka í Bolungarvík.