Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.2014, Qupperneq 34
34 Menning Sjónvarp Vikublað 23.–25 september 2014
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Fer með aðalhlutverkið í annarri þáttaröðinni
Colin Farrell í True Detective
Miðvikudagur 24. september
16.30 Martin læknir e (5:6)
(Doc Martin) Breskur
gamanmyndaflokkur um
lækninn Martin Ellingham
sem býr og starfar í smábæ
á Cornwallskaga og þykir
með afbrigðum óháttvís og
hranalegur.
17.15 Disneystundin (34:52)
17.16 Finnbogi og Felix (7:13)
17.38 Sígildar teiknimyndir
17.46 Nýi skólinn keisarans
18.10 Táknmálsfréttir (24:365)
18.25 Eldað með Niklas Ekstedt
(5:12) (Niklas Mat) Meist-
arakokkurinn Niklas Ekstedt
flakkar á einni viku á milli
nokkurra bestu veitingahúsa
heims og reynir að heilla
eigendurna uppúr skónum
með matseld sinni.
18.54 Víkingalottó (4:52)
19.00 Fréttir
19.20 Veðurfréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Kastljós
20.00 Mánudagsmorgnar
(9:10) (Monday Mornings)
Bandarísk þáttaröð um líf
og störf skurðlækna sem
berjast fyrir lífi sjúklinga
sinna. Aðalhlutverk: Ving
Rhames, Jamie Bamber og
Jennifer Finnigan.
20.45 Frú Brown 7,5 (Mrs. Brown
Boys) Margverðlaunaðir
gamanþættir um kjaftforu
húsmóðurina Agnesi
Brown í Dublin. Höfundur
og aðalleikari er Brendan
O'Carroll, en þættirnir hafa
m.a. hlotið hin vinsælu
BAFTA-verðlaun.
21.15 Kiljan
22.00 Tíufréttir
22.15 Veðurfréttir
22.20 Stríð í nánd (2:3) (37 Days)
Glæný sjónvarpsþáttaröð í
þremur hlutum um síðustu
vikurnar í aðdraganda
heimsstyrjaldarinnar fyrri.
Aðalhlutverk: Ian McDi-
armid, Nicholas Farrell, Tim
Pigott-Smith.
23.15 Mótorsport 2014 (1:2)
Fyrri þáttur af tveimur
um Norðurlandamótið í
torfæru sem fram fór á
Akureyri í sumar þar sem
bestu torfærukappar heims
ótrúleg tilþrif.
23.45 Njósnadeildin 8,3
(5:6) (Spooks) Breskur
sakamálaflokkur um
úrvalssveit innan bresku
leyniþjónustunnar MI5 sem
glímir meðal annars við
skipulagða glæpastarfsemi
og hryðjuverkamenn. Með-
al leikenda eru Peter Firth,
Nicola Walker, Shazad Latif,
Max Brown, Lara Pulver,
Tom Weston-Jones og Alice
Krige. Atriði í þáttunum eru
ekki við hæfi barna.
00.40 Kastljós e
01.05 Fréttir e
01.15 Dagskrárlok
Bíóstöðin
Gullstöðin
Stöð 3
11:25 Premier League
13:05 Premier League
(Newcastle - Hull)
14:45 Premier League World
15:15 Premier League
(Burnley - Sunderland)
16:55 Enska 1. deildin
(Wigan - Ipswich)
18:35 League Cup (Tottenham -
Nottingham Forest)
20:40 Messan
21:55 Premier League
(Man. City - Chelsea)
23:35 Ensku mörkin (5:40)
00:30 Premier League
17:45 Strákarnir
18:10 Frasier (4:24)
18:35 Friends (8:24)
18:55 Seinfeld (6:13)
19:20 Modern Family
19:45 Two and a Half Men (3:24)
20:10 Örlagadagurinn (21:30)
20:40 Heimsókn
21:00 Homeland (5:12)
21:45 Chuck (13:22)
22:30 Cold Case (22:23)
23:15 Shameless (5:12)
00:10 E.R. (8:22)
00:55 Boss (5:10)
01:50 Örlagadagurinn (21:30)
02:25 Heimsókn
02:45 Homeland (5:12)
03:30 Chuck (13:22)
04:15 Cold Case (22:23)
05:00 Shameless (5:12)
10:50 Last Night
12:20 Silver Linings Playbook
14:20 My Cousin Vinny
16:20 Last Night
17:55 Silver Linings Playbook
20:00 My Cousin Vinny
22:00 The Firm
23:30 Me, Myself and Irene
01:25 One In the Chamber
02:55 The Firm
17:30 Last Man Standing (7:18)
17:55 Guys With Kids (11:17)
18:15 Hart of Dixie (8:22)
19:00 Jamie's 30 Minute
Meals (30:40)
19:25 Baby Daddy (3:21)
19:50 Who Do You Think You Are?
20:50 Gang Related (10:13)
21:35 Damages (7:10)
22:30 Wilfred (12:13)
22:50 Originals (6:22)
23:30 Hart of Dixie (8:22)
00:15 Jamie's 30 Minute
Meals (30:40)
00:40 Baby Daddy (3:21)
01:00 Who Do You Think You Are?
01:50 Gang Related (10:13)
02:35 Damages (7:10)
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:00 Wonder Years (2:6)
08:25 Wipeout
09:10 Bold and the Beautiful
09:30 Doctors (58:175)
10:10 Spurningabomban (7:10)
11:00 Grand Designs (7:12)
11:50 Grey's Anatomy (8:24)
12:35 Nágrannar
13:00 Dallas (1:10)
13:45 Gossip Girl (1:10)
14:30 Smash (10:17)
15:20 Xiaolin Showdown
15:45 Grallararnir
16:10 Arrested Development
(11:15)
16:45 New Girl (6:24)
17:10 Bold and the Beautiful
17:32 Nágrannar
17:57 Simpson-fjölskyldan
18:23 Veður
Ítarlegt veðurfréttayfirlit.
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:54 Ísland í dag
19:11 Veður
19:20 Bad Teacher 5,2 (3:13)
Bandarískur gaman-
þáttur sem byggður er
á samnefndri kvikmynd
um kennslukonu sem er
ekki starfi sínu vaxin en
notar kynþokkann sér til
framdráttar.
19:40 The Middle (19:24)
20:05 How I Met Your
Mother (23:24)
20:30 Heimsókn (1:28)
20:50 Léttir sprettir (7:0)
21:10 Restless (2:2) Seinni hluti
breskrar framhaldsmyndar
frá 2012 með Hayley Atwell,
Rufus Sewell, Michael
Gambon og Charlotte
Rampling í aðalhlutverkum.
22:40 Covert Affairs (11:16)
23:25 Enlightened (3:8) Önnur
þáttaröðin frá HBO sem
fjallar um konu sem er á
barmi taugaáfalls og er
komin á endastöð. Þá fær
hún skyndilega andlega
uppvakningu. Með aðal-
hlutverk fara Laura Dern,
Diane Ladd og Luke Wilson.
23:55 NCIS (6:24)
00:40 Major Crimes (10:10)
Hörkuspennandi þættir
sem fjalla um lögreglukon-
una Sharon Raydor sem er
ráðin til að leiða sérstaka
morðrannsóknadeild innan
hinnar harðsvíruðu lögreglu
í Los Angeles. Sharon tekur
við af hinni sérvitru Brendu
Leigh Johnson en þættirnir
eru sjálfstætt framhald
af hinum vinsælu þáttum
Closer.
01:25 The Pool Boys
02:50 Nine Miles Down
04:15 Grand Designs (7:12)
05:05 How I Met Your
Mother (23:24)
05:30 Fréttir og Ísland í dag
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (10:25)
08:20 Dr. Phil
09:00 The Talk
09:40 Pepsi MAX tónlist
15:30 The Royal Family (2:10)
15:55 Welcome to Sweden (2:10)
16:20 Parenthood (1:22)
17:05 Extant (3:13)
17:50 Dr. Phil
18:30 The Tonight Show
19:10 The Talk
19:50 30 Rock 8,3 (1:13) Liz
Lemon og félagar í 30
Rockefeller snúa loks aftur
með frábæra þáttaröð sem
hlotið hefur fjölda verðlauna.
Liz kemst að því sér til mik-
illar skelfingar að yfirmaður
sinni virðist vera að skemma
fyrir NBC í þeim tilgangi að
láta hið hræðilega fyrirtæki
Kabletown selja það.
20:10 America's Next Top
Model (15:16) Bandarísk
raunveruleikaþáttaröð þar
sem Tyra Banks leitar að
næstu ofurfyrirsætu. Þetta
er í fyrsta sinn sem fleiri en 14
þátttakendur fá að spreyta
sig í keppninni enda taka
piltar líka þátt í þetta sinn.
20:55 Remedy - NÝTT (1:10)
Remedy er kanadísk lækna-
drama og fjallar um Griffin
Gonnor (Dillon Casey) sem
hættir í læknaskólanum og
snýr aftur heim. Hann fær
vinnu sem aðstoðarmaður á
sjúkrahúsinu sem faðir hans
stýrir og tvær metnaðarfull-
ar systur starfa. Griffin líður
hálfpartinn eins og svarta
sauðnum í fjölskyldunni, eftir
að hann hætti í miðju lækna-
námi, en lærir þó heilmargt á
því að vinna sem aðstoðar-
maður á spítalanum.
21:45 Unforgettable - NÝTT
(1:13) Bandarískir sakamála-
þættir um lögreglukonuna
Carrie Wells sem glímir við
afar sjaldgæft heilkenni
sem gerir henni kleift að
muna allt sem hún hefur
séð eða heyrt á ævinni.
Hvort sem það eru sam-
ræður, andlit eða atburðir,
er líf hennar; ógleymanlegt.
22:30 The Tonight Show
23:10 Revelations 6,5 (6:6)
Undarlegt mál um stúlku
sem liggur í dái á spítala en
muldrar vers úr Biblíunni
kemur Dr. Richard Massey,
stjarneðlisfræðingi frá
Harvard, í kynni við nunnuna
Josepha Montafiore. Hún
telur að stúlkan og ofskynj-
anir hennar séu verk Guðs
og vill rannsaka þetta mál
nánar með hjálp Richards.
23:55 Under the Dome (1:13)
00:35 Remedy (1:10)
01:20 Unforgettable (1:13)
02:05 The Tonight Show
02:45 Pepsi MAX tónlist
Stöð 2 Sport 2
07:00 Spænski boltinn 14/15
08:40 League Cup 2014/2015
13:00 UEFA Champions League
(Chelsea - Schalke)
14:45 Spænsku mörkin 14/15
15:15 Spænski boltinn 14/15
(Real Madrid - Elche)
16:55 League Cup 2014/2015
(Swansea - Everton)
18:35 League Cup 2014/2015
(Tottenham - Nottingham Forest)
20:40 League Cup 2014/2015
(Liverpool - Middlesbrough)
22:20 Spænski boltinn 14/15
(Malaga - Barcelona)
00:00 Spænski boltinn 14/15
(Sevilla - Real Sociedad)
C
olin Farrell hefur staðfest að
hann muni leika annað aðal-
hlutverkið í annarri þáttaröð
af True Detective og að hann
væri yfir sig ánægður. Hann sagð-
ist hins vegar vita lítið um sögu-
þráð þáttaraðarinnar, en hann
vissi að hún myndi innihalda átta
þætti og að tökur stæðu yfir í um
fimm mánuði. Eins sagði hann að
þættirnir yrðu teknir upp í kring-
um Los Angeles sem hentar hon-
um vel því þá getur hann far-
ið heim til sín í lok dags og eytt
tíma með börnunum sínum. Enn
er ekki komið á hreint hver muni
leika á móti honum en Matthew
McConoughey og Woody Harrel-
son léku aðalhlutverkin í fyrri
þáttaröðinni. Sögusagnir segja að
annaðhvort Rachel McAdams eða
Elisabeth Moss úr Mad Men verði
mótleikarar Farrells. Hvorki sjón-
varpsstöðin HBO, sem framleiðir
þættina, né umboðsmaður Farrells
hafa staðfest þessar fréttir. n
helgadis@dv.is
Lærbrotinn í óbyggðum
Þ
að er nánast daglega sem
inn á ritstjórn DV berast til-
kynningar frá Landssam-
bandi björgunarsveita,
Landsbjörg, þar sem greint er frá
aðgerðum sjálfboðaliða sem koma
til bjargar fólki í vanda. Ég les all-
ar tilkynningarnar full lotningar,
velti því fyrir mér hvernig fólk velst
í þessi verkefni en þakka fyrir það
öllum stundum að það nenni að
standa í þessu. Það er nefnilega
ekki sjálfsagt. Sumar tilkynningarn-
ar sitja eftir og maður veltir því fyrir
sér hvað gerist, reynir að fylgja því
eftir og segja frá. Heyra sögurnar,
því oftar en ekki eru þær magnað-
ar. Í mars í fyrra barst á ritstjórnina
tilkynning um slasaðan mann sem
hafði fótbrotnað illa við Botnssúlur.
Aðstæður voru slæmar og þyrla
Landhelgisgæslunnar komst ekki
að manninum. Um 60 manns fóru
af stað til að sækja hann. Veður var
ekkert sérstakt og aðstæður á svæð-
inu voru erfiðar. Það þarf um 40
manns til að bera slasaðan mann
niður fjalllendi, í bratta og hálku. En
fyrst þarf hann að bíða einn, slasað-
ur og veikur eftir aðstoð.
Ég vissi það ekki þá en maðurinn
er Daníel Magnússon, ungur björg-
unarsveitarmaður á Akranesi. Hann
hafði lagt á Botnssúlur til að kanna
aðstæður fyrir nýliða sem áttu að
ganga þar og æfa sig. Hann vissi að
aðstæður kunnu að vera slæmar, en
vildi vera viss um öryggi nýliðanna
áður en hann legði það á hópinn að
fara af stað.
Daníel er þrautþjálfaður björg-
unarsveitarmaður og vélvirki.
Hann er starfandi félagi í Björg-
unarfélagi Akraness og hefur
brennandi áhuga á útivist og hreyf-
ingu. Áður en hann lagði af stað
lét hann vita hvert hann væri að
fara og hvers vegna. Hann var vel
klæddur og útbúinn og fór af stað.
En slysin gera ekki boð á undan sér
og Daníel hrasaði og stórslasaði sig.
Hann beið einn í nokkurn tíma eft-
ir aðstoð með alvarlegt lærbrot og
honum var að blæða út.
Ég hafði lesið frásögn Dan-
íels í janúar og skrifað um það fyr-
ir vefinn okkar, DV.is. Á sunnudags-
kvöldið hlustaði ég á hann segja
sögu sína í þættinum Neyðarlínan.
Ég var með gæsahúð allan tímann.
Hann sagði frá af öryggi, en líka ein-
lægni sem hreyfði við öllum sem
fylgdust með. Hann lýsti hræðsl-
unni sem hann fann fyrir einn,
stórslasaður í óbyggðum, óörygginu
þegar þyrlan gat ekki lent hjá hon-
um en líka gleðinni þegar honum
var loksins bjargað. Þetta var alvöru
saga og alvöru sjónvarp. n
Colin Farrell Colin Farrell mun
leika annað aðalhlutverkið í
True Detective.
Í
rski leikarinn Liam Neeson og
samlandi hans, söngvarinn og
góðgerðapopparinn Bono úr
hljómsveitinni U2, hafa undan-
farin sex ár unnið að kvik-
myndahandriti í sameiningu.
Neeson missti upplýsingarnar út
úr sér í viðtali við breska dagblað-
ið The Independent á dögunum,
þegar hann ræddi um fræga vini
sína.
„Við spjöllum, eða ég hlusta
reyndar aðallega á hann. Hann
er stórkostlegur maður. Hann er
með hugmynd að handriti sem við
höfum verið að vinna undanfar-
in sex ár.“ Það eina sem leikarinn
vildi gefa upp um handritið var að
það fjallaði að einhverju leyti um
menningu sem skapaðist í kring-
um svokölluð show-bönd, sem
voru vinsæl á Írlandi á áttunda ára-
tugnum. Slíkar sveitir ferðuðust um
landið og spiluðu eigin útgáfur af
vinsælustu popplögum hvers tíma.
Neeson hefur hingað til fyrst og
fremst tekið sér stöðu fyrir fram-
an myndavélina í kvikmyndum
á borð við Star Wars, Taken og nú
síðast A Walk Among the Tomb-
stones. Bono hefur áður komið ná-
lægt handritagerð, en kvikmyndin
The Million Dollar Hotel, sem Wim
Wenders leikstýrði árið 2000, var
byggð á sögu söngvarans með sól-
gleraugun. n
kristjan@dv.is
Bono og Neeson
vinna að bíómynd
Um írskar ábreiðuhljómsveitir á 8. áratugnum
Skrifar kvikmynda-
handrit Bono vinnur með
Liam Neeson að kvikmynd
um írskar ábreiðuhljóm-
sveitir á 8. áratugnum.
Liam Neeson
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Pressa
Neyðarlínan
sýnd á Stöð 2