Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Page 15
 Umræðan spillti mannorðinu n Segist draga línuna við ásakanir um refsivert athæfi E gill Einarsson segist hafa upp­ lifað margar andvökunætur í kjölfarið á tíðum harðyrtri net­ umræðu um mál sín. Þetta sagði hann í Héraðsdómi Reykjavík­ ur nú laust fyrir hádegi. Hann telur umræðuna hafa spillt mannorði sínu og að viðskiptavinum í fjarþjálfun fækki í hvert sinn sem mál hans rati í fjölmiðlana. „Það skráði sig enginn í tíu daga í röð núna í september, sem er mikilvægasti mánuðurinn,“ segir Egill. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli Egils fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Egill stefndi Sunnu Ben Guðrúnardóttur myndlistarkonu í desember í fyrra fyrir ummæli sem hún lét falla á samskiptavefnum Face­ book. Þar hafði viðburður (e. event) verið settur á laggirnar í mótmæla­ skyni við því að Egill prýddi forsíðu Monitor – því hann væri of umdeildur. Miklar umræður spunnust í kjöl­ farið fram á viðburðarsíðunni og fól Egill lögmanni sínum, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, að kæra þrjá viðmæl­ endur fyrir ærumeiðandi ummæli. Í ummælum Sunnu er Egill með­ al annars kallaður nauðgari og eru slík ummæli refsiverð að mati lög­ fræðings Egils þar sem þau séu til þess fallin að særa og meiða. Í skýrslu töku segir Egill að sér hafi fundist óþægi­ legt að vera kallaður nauðgari þrátt fyrir að nauðgunarákæran hafi verið látin niður falla. Að eigin sögn megi fólk kalla hann öllum illum nöfnum og nefndi hann sem dæmi „stera­ haus“ og „klámkjaft“. Hann dragi línuna þegar verið væri að ásaka hann um refsivert athæfi. Þá væri of langt gengið. Verjandi Sunnu, Sigríður Rut Júlíus dóttir, benti í málflutningi sínum á að Egill hafi sjálfur átt þátt í að skapa þá orðræðu sem hann er kenndur við, meðal annars vegna nauðgunar­ brandara og niðurlægjandi ummæla um nafngreinda einstaklinga. n Ánægð með að kennarinn víki É g er mjög sátt við þá niður­ stöðu að það eigi að hefja formlega og óháða rannsókn á þessu máli. Og ég er líka mjög sátt við að það sé loks­ ins búið að vísa þessum kennara frá störfum á meðan rannsókn fer fram,“ segir móðir tíu ára stúlku sem sagði frá einelti kennara í Vesturbæjarskóla í sinn garð. Eftir að hafa reynt að fá úrlausn á máli dóttur sinnar frá árinu 2011, án ár­ angurs, ákvað hún að taka barnið úr skólanum. Fjallað hefur verið um mál stúlk unnar í fjölmiðlum síðustu daga og á miðvikudag kom til­ kynning frá Ragnari Þorsteinssyni, sviðsstjóra skóla­ og frístunda­ sviðs Reykjavíkurborgar, um að kennarinn hefði verið leystur frá störfum á meðan rannsókn óháðra aðila færi fram. „Þetta er það sem ég hef verið að berjast fyrir allan þennan tíma, að okkur sé trúað,“ bætir móðirin við. Sálfræðingur tilkynnti málið Forsaga málsins er að umrædd stúlka hóf tungumálanám ásamt bekknum sínum árið 2011 og segir móðirin eineltið hafa byrjað strax í öðrum tíma tungumálakennsl­ unnar. Stúlkan segir kennarann meðal annars hafa öskrað á sig að ástæðulausu, tekið hana út úr hópnum og meinað henni þátttöku í tímum. Móðirin segir bekkjar­ félaga stúlkunnar hafa staðfest frá­ sögn hennar. Í sumarbyrjun 2012 eftir að dóttirin hafði lýst hegðun kennar­ ans og vanlíðan sinni var mál­ ið tilkynnt til barnaverndar. Til­ kynningin barst frá sálfræðingi stúlkunnar og foreldrum. Viðbrögð barnaverndar þá voru að fela Vestur bæjarskóla að rann­ saka málið, en það þótti móður­ inni ámælisvert. Að hennar mati skilaði sú rannsókn óásættanlegri niðurstöðu. Hún segir í raun ekk­ ert hafa gerst í málinu fyrr en hún fór með það í fjölmiðla. Eftir að hafa reynt allar aðrar leiðir. Skólastjórinn klúðraði málinu Á mánudagskvöld fór fram fundur með foreldrum barna í Vesturbæjar skóla, skólastjórnend­ um og fulltrúum frá skóla­ og frí­ stundasviði Reykjavíkurborgar. Móðirin segir foreldra hafa verið mjög reiða á fundinum, enda flest­ ir mjög ósáttir við að ekki hafi verið brugðist við málinu fyrr. Þrátt fyrir að móðirin fagni því að málið sé loksins komið í réttan farveg er hún ósátt við hvernig ferlið hefur verið. Og þó að dóttir hennar sé ekki lengur nemandi við skólann ætlar hún að fylgja málinu eftir í þeirri von um að önnur börn þurfi ekki að upplifa það sama. „Ég er ekki sátt við hversu langan þetta hefur tekið, alls ekki. Því það er ekki eins og ég hafi hlaupið með málið í fjölmiðla, þetta er búið að vera í gangi í eitt og hálft ár. Ég er síður en svo sátt við framgöngu skólans í minn garð og barnsins. Skólastjórinn ber ábyrgð og hann er algjörlega búinn að klúðra þessu máli. Eins skóla­ og frístundasvið, það stóð ekki með mér fyrr en málið fór í fjölmiðla. Það hafði ekkert gerst fram að því.“ „Órökstuddar yfirlýsingar hjálpa ekki“ Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla­ og frístundasviðs Reykja­ víkurborgar, ritaði grein í Frétta­ blaðið á fimmtudag um fjöl­ miðlaumfjöllun af harðræði í grunnskólum. Í greininni sem hef­ ur yfirskriftina: „Vöndum okkur í umræðunni um einelti“, segir Ragnar meðal annars: „Umfjöll­ unin hefur verið óvægin og órök­ studdar fullyrðingar settar fram.“ Óljóst er hvort hann á þar umfjöll­ un um mál stúlkunnar í Vestur­ bæjarskóla eða umfjöllunina um harðræði almennt. Í greininni tekur Ragnar þó fram að í Vesturbæjarskóla sé unnið gott faglegt starf og vísar í kannanir sem sýna að 97 prósent foreldra telji kennara skólans vera hæfa og metnaðarfulla. Og að þar mælist einelti marktækt minna en í öðrum reykvískum grunnskólum. Ragnar ritar jafnframt: „Engin mál eru jafn viðkvæm og flókin og erfið eineltis­ mál. Oft upplifa starfsfólk, foreldr­ ar og börn sig vanmáttug. Þá reynir á alla í skólasamfélaginu að vinna faglega og málefnalega að úrlausn, börnunum til heilla. Gífuryrði og órökstuddar yfirlýsingar hjálpa ekki til, þær beinlínis vinna gegn hagsmunum þolenda.“ n n „Ég er síður en svo sátt við framgöngu skólans“ n Mikil reiði á foreldrafundi Fréttir 15Helgarblað 27.–29. september 2013 Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Skólastjórinn ber ábyrgð og hann er algjörlega búinn að klúðra þessu máli Ósátt við ýmis- legt Þrátt fyrir að vera ánægð með að mál dóttur hennar sé loksins komið í réttan farveg er móðirin mjög ósátt við fram- göngu skólans. Mynd Bragi ÞÓr JÓSefSSon egill í dómsal Egill gengur út úr dómsal eftir aðalmeðferð meið- yrðamáls sem hann höfðaði gegn Sunnu Ben. Mynd Sigtryggur ari „Þessi maður er dáinn, viljað að hún léti þá hafa núm­ erið. Dóttir þeirra hefði vaknað við lætin og eftir að Friðrik hefði sofnað þá hefði hún verið í um klukkutíma að reyna svæfa dóttur þeirra. Hún staðhæfði að hann hefði ekki farið út aftur eftir að hann kom inn um kvöldið. Hugsað stanslaust um atburðinn Eftir að samtal Friðriks við Neyðarlínuna var spilað kom hann sjálfur fyrir dóminn. Þar sagðist hann þekkja sjálfan sig á upptökunum en tók einnig fram að hann myndi ekki eftir því að hafa stungið Friðrik með hnífi. Hann hefði stanslaust hugsað um atburðinn síðan í maí, hann muni eftir að hafa verið hjá honum og að hafa kýlt hann en man ekki til þess að hafa stungið hann með hnífi. Hann man eftir að hafa far­ ið tvisvar inn í íbúðina – í seinna skiptið hafi Karl verið látinn en Friðrik Brynjar hefur haldið því fram frá því hann var handtekinn að hann muni ekki eftir að hafa beitt hnífi. Saksóknari fer fram á að Frið­ rik Brynjar verði dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Karli að bana og segir framburð hans hafa breyst mikið. Verjandi Frið­ riks viðurkenndi að framburður Friðriks væri nokkuð reikull en allan tímann hefði hann þó haldið því fram að hann myndi ekki til þess að hafa notað hníf. n n Átakanlegt símtal Friðriks Brynjars í Neyðarlínuna n Ákærður fyrir að verða Karli Jónssyni að bana friðrik kemur fyrir dóminn Friðrik Brynjar skýldi sér með úlpunni sinni þegar hann mætti fyrir dóminn. Mynd Sigtryggur ari Þessi maður er dáinn“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.