Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Side 18
18 Fréttir 27.–29. september 2013 Helgarblað
Hvíta ekkjan og
voðaverkin í kenía
n Eiginmaðurinn sprengdi sig í loft upp 2005 n Var hún meðal árásarmanna?
M
argt bendir til þess að
hin breska Samantha
Lewthwaite hafi verið í
hópi árásarmanna sem
réðust inn í Westgate-
verslunarmiðstöðina í Naíróbí í
Kenía um síðustu helgi. Sómalísku
hryðjuverkasamtökin al-Shabab
lýstu yfir ábyrgð á ódæðinu, sem
leiddi 137 manns til dauða. En
hver er þessi Samantha Lewt-
hwaite sem kölluð hefur verið
Hvíta ekkjan í heimspressunni?
Hryðjuverkin í Lundúnum
Samantha vakti fyrst athygli í
heimspressunni árið 2005, eða
í kjölfar hryðjuverkaárásarinn-
ar á lestarkerfi Lundúna þann 7.
júlí það ár þar sem 52 létust. Hún
var eiginkona Germaine Lindsay
sem var einn af árásarmönnunum
sem sprengdu sig í loft upp daginn
örlagaríka. Á þeim tíma var Sam-
antha ólétt og kvaðst ekkert hafa
vitað um fyrirhugaða hryðjuverka-
árás – raunar fordæmdi hún hryðju-
verkin opinberlega. Í ofan álag var
hún breskur ríkisborgari og af þeim
sökum fékk hún í raun samúð,
frekar en andúð, frá samborgurum
sínum vegna þeirra aðstæðna sem
hún var skyndilega komin í. Sam-
antha fæddist í Buckinghamskíri á
Englandi og er 29 ára. Hún kynnt-
ist Germaine þegar hún var 17 ára
og giftist honum ári síðar, árið 2001.
Lét sig hverfa
Eftir hryðjuverkin í Westgate-
verslunarmiðstöðinni um helgina
spurðist fljótt út að kona hefði
verið í hópi árásarmannanna. Á
upptökum úr öryggismyndavél-
um verslunarmiðstöðvarinnar
má greina andlit konu sem svipar
mjög til Samönthu, þó ómögulegt
sé að fullyrða hvort um sömu konu
sé að ræða. Vísbendingar benda
þó til þess að Samantha hafi verið
á staðnum og tekið þátt í ódæðinu.
Eftir hryðjuverkin í Lundúnum
árið 2005 lét Samantha sig hverfa
og yfirgaf Bretland. Lítið spurðist
til hennar í nokkur ár í kjölfar-
ið, eða þar til yfirvöld í Kenía létu
bresk yfirvöld vita að hún héldi til í
hafnarborginni Mombasa þar sem
hún væri í hryðjuverkasamtök-
um tengdum hinum alræmdu Al-
Shabab-samtökum.
Efni til sprengjugerðar fundust
Það var svo í desember 2011 að
lögreglan í Kenía réðst í húsleit á
þremur stöðum í Mombasa, þar á
meðal á heimili Samönthu. Ástæð-
an var sú að yfirvöld höfðu feng-
ið vísbendingar um yfirvofandi
hryðjuverkaárásir á vinsæla ferða-
mannastaði í borginni, þar á með-
al hótel. Í húsakynnum Samönthu
fann lögreglan sambærileg efni
og notuð voru við sprengingarn-
ar í Lundúnum 2005. Þegar hús-
leitin var framkvæmd var Sam-
antha á bak og burt og þrátt fyrir
skipulagða leit fannst hún hvergi.
Er talið að Samantha hafi allan
tímann vitað af fyrirætlunum eig-
inmanns síns árið 2005 og tengsl
hennar við Al-Shabab eigi sér
djúpar rætur. Hún sé nátengd
samtökunum og sjái meðal annars
um fjármögnun þeirra.
„Saklaus ung kona“
CNN fjallaði um mál Samönthu á
dögunum og ræddi meðal annars
við fólk sem var henni vel kunn-
ugt á árum hennar í Bretlandi. Raj
Khan, bæjarfulltrúi í bænum Ayles-
bury, lýsir henni sem indælis-
manneskju – sem er lýsing sem
kemur ekki beint heim og saman
við ætluð voðaverk hennar í Kenía
um helgina. „Hún var saklaus ung
kona. Hún vildi gera allt til að að-
stoða fólk og var mjög góð mann-
eskja,“ sagði hann og varaði við að
hún yrði dæmd án þess að sannan-
ir um þátttöku hennar í hryðjuverk-
unum lægju fyrir.
Hvað sem því líður eru fulltrú-
ar kenískra yfirvalda vissir í sinni
sök og telja að konan sem sást
á upptökunum sé frá Bretlandi.
Þetta staðfesta þeir í samtali við
CNN. Utanríkisráðherra landsins,
Amina Mohamed, sagði þetta með-
al annars og að umrædd kona hefði
framið slík voðaverk „oft áður“.
Innanríkisráðherra Kenía, Joesph
Ole Lenku, hafði áður sagt að allir
árásarmennirnir hefðu verið karlar
en sumir hefðu klætt sig sem konur.
Interpol gaf út handtökuskipun á
hendur Samönthu á fimmtudag. n
Skelfilegt Á miðviku-
dag var greint frá því
að 137 hefðu látist. Fólk
átti fótum sínum fjör að
launa þegar byssumenn
hófu skothríð.
Þóttist ekkert vita Samantha kvaðst ekkert hafa vitað um fyrirhugaða árás í Lundúnum
árið 2005. Nokkrum árum síðar fundust sambærileg efni til sprengjugerðar og eiginmaður
hennar hafði notað.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Allar moskur
verði brenndar
Hópur ónafngreindra aðila hefur
hótað að brenna allar moskur í
Noregi áður en árði 2013 er liðið.
Þetta kom fram í fréttum TV2
í vikunni. Þar kemur fram að
tölvupóstur hafi verið sendur til
múslimasamtaka í Noregi þar sem
þessu var hótað. Á undanförnum
dögum hafa nokkur atvik komið
upp í Noregi þar sem múslimum
er óbeint hótað. Þannig var búið
að draga fána að húni á föstudag
fyrir framan mosku í Fredrikstad
sem á var mynd af pylsu. Á laugar-
dag fannst svo svínshöfuð fyrir
framan stærstu mosku Noregs
í Ósló. Lögregla kom saman til
fundar í vikunni vegna atvikanna.
Kínverji með
tvö nef
Kínverji að nafni Xiaolian hefur
ratað í fréttirnar í heimalandinu
fyrir óvenjulegar sakir. Maðurinn
er með tvö nef. Forsögu máls-
ins má rekja til bílslyss sem hann
lenti í í ágúst í fyrra. Hann meiddi
sig frekar illa á nefi en rak því
miður ekki inn nefið hjá lækni.
Xiaolian fékk sýkingu í brjósk-
ið í nefinu og nefinu varð ekki
bjargað. Læknar brugðu því á
það ráð græða vef (og brjósk) á
enni mannsins og móta þar nýtt
nef. Eins og sjá má er nýja nefið
nokkuð tröllslegt en til stendur að
færa það á sinn stað með skurð-
aðgerð innan skamms. Þangað til
hefur Xiaolian tvö nef.
Nakin í
draugahúsi
Hátíðarhaldarar Shocktoberfest
í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum
fara ótroðnar slóðir í þeirri við-
leitni sinni að hræða úr fólki
líftóruna. Að þessu sinni er há-
tíðargestum boðið upp á að láta
hræða sig berrassaða. Þeim er
boðið að ganga í gegnum hús þar
sem hermt er að draugar og aðrar
afturgöngur hafist við. Skorað er
á þátttakendur að afklæðast alveg
og ganga í gegnum húsið.
Talsmaður hátíðarinnar segir
að hugmyndin hafi sprottið upp
úr sjónvarpsþætti þar sem nakt-
ir þátttakendur þurftu að lifa af í
óbyggðum. „Þetta snýst ekki um
kynlíf eða ósæmilega hegðun að
nokkru leyti,“ staðhæfir hann.
Tekið er fram að aukagjald sé lagt
á þá sem mígi á gólfin af hræðslu.