Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 20
20 Sport 27.–29. september 2013 Helgarblað
Chelsea með gott
tak á Tottenham
n Tottenham vann Chelsea síðast árið 2010 n Arsenal unnið sjö útileiki í röð
S
jötta umferð ensku úr-
valsdeildarinnar fer fram
um helgina og er óhætt að
segja að umferðin byrji á
sannkölluðum stórleik í há-
deginu á laugardag. Þá taka Gylfi
Þór Sigurðsson og félagar í Totten-
ham á móti Chelsea í Lundúnaslag.
Fleiri athyglisverðir leikur eru á
dagskrá um helgina og á topplið
Arsenal til að mynda erfitt verkefni
fyrir höndum þegar liðið heim sækir
Swansea.
15–8 fyrir Chelsea
Ár og dagar eru síðan Totten-
ham lagði Chelsea síðast að velli.
Það gerðist þann 17. apríl 2010
þegar Tottenham vann 2–1 sigur í
deildinni með mörkum frá Jermain
Defoe og Gareth Bale. Síðan þá hafa
liðin leikið sjö sinnum gegnt hvort
öðru; Chelsea hefur unnið þrjá leiki
en fjórir hafa endað með jafntefli.
Markatalan í þessum leikjum er 15–
8, Chelsea í vil.
Bæði lið hafa byrjað tímabilið
vel og eru í efri hluta deildarinnar.
Tottenham deilir toppsætinu með
Arsenal þar sem liðið er með tólf
stig en örlítið lakara markahlutfall.
Chelsea er hins vegar með 10 stig í
4. sætinu. Spenntir áhorfendur ættu
ekki að gera ráð fyrir markasúpu;
Chelsea hefur aðeins skorað sex
mörk í fyrstu fimm leikjum sínum
og Tottenham aðeins fimm mörk.
Manchester-liðin í eldlínunni
Englandsmeistarar Manchester
United þurfa að fara að hrökkva í
gang ef liðið ætlar að blanda sér
í toppbaráttuna af fullum krafti.
United situr í 8. sæti deildarinn-
ar með 7 stig og mætir West Brom,
sem situr í 14. sæti með fimm stig,
á Old Trafford á laugardag. Þessi lið
mættust síðast í lokaumferð úrvals-
deildarinnar í vor og endaði sá leik-
ur með ótrúlegu 5–5 jafntefli.
Nágrannar United, Manchester
City, virðast vera komnir í gang eft-
ir stórsigur á United um liðna helgi,
4–1. City mætir Aston Villa á Villa
Park á laugardag, en Villa-liðið
verður án Christian Benteke sem er
Laugardagur
Tottenham – Chelsea 2-1
„Ég held að Chelsea og Mourinho vinni
þennan leik, 2–1. Gylfi smellir sjálfsagt
einu marki en ég held að Chelsea-liðið sé
of sterkt fyrir Tottenham. Og ef Torres er
farinn að skora þá er voðinn vís. Ég held
að Chelsea verði að berjast um titilinn,
það er engin spurning.“
Aston Villa – Man. City 2-1
„Ég er ekki jafn skotinn í City og Chelsea.
Ég held að Villa vinni þennan leik, 2–1.
Ætli City verði ekki það lið í vetur sem
vinnur stóru leikina en verður í basli með
minni liðin – alveg eins og Liverpool í
fyrra. Eftir að hafa labbað yfir félaga sína
í United held ég að þeir komi inn í þennan
leik og haldi að sigur verði sjálfgefinn.“
Fulham – Cardiff 1-0
„Þarna mun Cardiff vinna 1–0 og Aron
Einar mun smella einu. Þeir þurfa að ná
sterkum útisigrum og ég held að þeir eigi
að vera nógu góðir til að halda sér uppi.“
Hull – West Ham 1-1
„Þessi leikur fer jafntefli, 1–1. Gamla
Íslendingaliðið nær að jafna undir lokin,
þetta verður stál í stál en endar í bróðerni.“
Man. United – WBA 5-0
„Þetta fer 5–0 fyrir United. Nú er Moyes
búinn að taka sína menn á teppið og þeir
klára þetta almennilega. Þeir verða klárir
í þennan leik og eru vanir að klára þessi lið
fyrir neðan miðju. United verður sjálfsagt
eitt af þessum 3–4 liðum sem verða að
berjast um titilinn en auðvitað er erfitt fyrir
Moyes að fylla í skarðið sem Ferguson skildi
eftir sig.“
Southampton – C. Palace 2-0
„Ég er skotinn í þessu Southampton-liði
og held það fylgi eftir sannfærandi sigri
á mínum mönnum og vinni þetta 2–0.
Þetta er flott liðsheild og það virðist vera
agi yfir þessu hjá þeim.“
Swansea – Arsenal 3-3
„Þetta eru tvö hörkulið og með betri
spilandi liðum í þessari deild. Ég hugsa
að þessi leikur gæti farið 3–3; þetta eru
sóknarlið sem halda bolta vel, það verður
allavega lítið um innköst og hornspyrnur.“
Sunnudagur
Stoke – Norwich 1-0
„Þetta verður karlrembuknattspyrna sem
fer 1–0 á annan hvorn veginn. Ætli það
lendi ekki Stoke megin og þeir skori eftir
einhverja hornspyrnu.“
Sunderland – Liverpool 2-0
„Af fenginni reynslu er þetta einn af þeim
leikjum sem eru stórhættulegir fyrir mína
menn. Di Canio er farinn en ég held að við
eigum tromp á hendi og Suarez klári þennan
leik. Hann skorar bæði mörkin í 2–0 sigri.“
Mánudagur
Everton – Newcastle 3-0
„Ég ætla að spá sannfærandi sigri Everton
í þessum leik, 3–0. Þetta eru stórir
klúbbar en ég held að Everton klári þetta.
Newcastle-liðið skortir stöðugleika en
er með ágætis mannskap. Ætli Baines
skori ekki allavega eitt úr aukaspyrnu og
Lukaku, einn efnilegasti framherji Evrópu,
skori tvö.“
Markaleikur hjá Arsenal
Páll Gíslason styður Liverpool og spáir sínum mönnum sigri gegn Sunderland
Vissir þú …
… að andstæðingar Fulham hafa átt
samtals 100 skot að marki liðsins í
úrvalsdeildinni. Ekkert lið hefur fengið á
sig fleiri skot.
… að Seamus Coleman,
varnarmaður Everton,
hefur átt fjögur skot
á mark andstæðing-
anna á tímabilinu, flest
allra varnarmanna.
… að Swansea hefur fengið flest gul
spjöld allra liða á tímabilinu fyrir kjaft-
hátt, eða fjögur.
… að Manchester United
hefur fengið á sig 11 mörk
í síðustu 6 úrvalsdeildar-
leikjum sínum eftir að
hafa fengið á sig aðeins
10 í 18 leikjum þar á undan.
… að 20 prósent skota Arsenal-liðsins
hafa endað með marki samanborið við 6
prósent skota Tottenham.
… að í 6 skipti af 13 sem Manchester
United hefur unnið úrvalsdeildina hefur
liðið aðeins verið búið að landa tveimur
sigrum í fyrstu fimm leikjum sínum.
… að Robin van Persie
hafði komið við sögu í
90 úrvalsdeildarleikjum
í röð áður en hann missti
af leiknum gegn Man-
chester City um liðna helgi.
P
áll Gíslason, þjálfari karla-
liðs Þórs í knattspyrnu, er
spámaður umferðarinnar
að þessu sinni. Það var létt
yfir Páli þegar DV hafði samband
enda tryggði Þórsliðið sér áfram-
haldandi sæti í Pepsi-deildinni að
ári. Páll er stuðningsmaður Liver-
pool og hann hefur trú á að sínir
menn komi sterkir til baka eftir
ósigurinn gegn Southampton um
liðina helgi og gengi Manche-
ster-liðanna verði misjafnt um
helgina.
meiddur. City er í 3. sæti deildarinn-
ar með 10 stig á meðan Villa er í 13.
sætinu með 6 stig.
Arsenal ósigrandi á útivelli
Topplið Arsenal hefur spilað feiki-
vel í undanförnum leikjum og
unnið fjóra leiki í röð í deildinni.
Liðið heimsækir sterkt lið Swansea
um helgina og má búast við
hörkuleik. Swansea-liðið er jafnan
sterkt á heimavelli en sú staðreynd,
að Arsenal hefur unnið síðustu sjö
útileiki sína, mun gera þetta að ein-
um athyglisverðasta leik umferðar-
innar.
Liverpool, sem tapaði um liðna
helgi fyrir Southampton, mætir
stjóralausu Sunderland-liði um
helgina. Búast má við því að Luis
Suarez verði í hópnum hjá Liver-
pool, en hann hefur nú lokið 10
leikja banni sem hann fékk fyrir að
bíta Branislav Ivanovic, leikmann
Chelsea. Liverpool er í fínum mál-
um í 5. sæti deildarinnar með 10
stig á meðan Sunderland er á botni
deildarinnar með aðeins eitt stig
og er eina liðið sem enn hefur ekki
unnið leik í deildinni. n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Af fenginni reynslu
er þetta einn af
þeim leikjum sem eru
stórhættulegir fyrir mína
menn.
Stórleikur
Gylfi Þór var á
skotskónum
síðast þegar
Chelsea og
Tottenham
mættust.
Þá endaði
leikurinn með
jafntefli, 2–2.