Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 22
Sandkorn B orgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson hefur verið einn þeirra stjórnmálamanna sem hefur fylgt eigin sannfæringu í störfum sínum og starfað þvert á pólitískar línur. Hann hefur ekki fallið í gryfju skotgrafarpólitíkur og henti­ stefnu heldur hefur hann haft einarða afstöðu í flugvallarmálinu og unnið með meirihlutanum að nýju aðalskipulagi borgarinnar. Það hefur hann gert ásamt þeim Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og Áslaugu Maríu Friðriksdóttur. Saman hafa þau stundað samræðu­ stjórnmálin sem Hanna Birna Kristjáns­ dóttir boðaði á sínum tíma, og snerist um að vinna að góðum málum með öðrum flokkum, finna lausnir og stuðla að sátt þrátt fyrir ólíkar áherslur. Fyrir vikið hefur Gísli Marteinn notið vin­ sælda í borginni en verið umdeildur innan flokksins. Vinnubrögðin hafa gengið þvert á hefðina, að gera lítið úr andstæðingn­ um og gagnrýna hann fyrir það sem hann gerir, sama hvað hann gerir, óháð eigin sannfæringu. Þar sem áherslan hefur verið á sterka forystu og flokk sem stendur sterkur fyrir, sem sameinuð heild, ein eining. Þar sem fólk fórnar hugsjónum fyrir flokkslínuna af því að það er auðveldara að selja stefnur og frasa sem flokksmenn sameinast um. Af því að í gegnum tíðina hefur það reynst farsælt að vera trúr og tryggur málstaðnum, flokknum og gildunum. En á sama tíma og tryggð er dyggð get­ ur hún einnig snúist upp í andhverfu sína. Blind hollusta getur valdið röng­ um ákvörðunum og dregið úr trúverð­ ugleika stjórnmálamanna sem geta ekki staðið með sannfæringu sinni og mál­ um sem þjóna hagsmunum almenn­ ings. Við þekkjum dæmin, það er ekki langt síðan Þorbjörg Helga sagðist enn skammast sín fyrir að hafa tekið þátt í að gera Ólaf F. Magnússon að borg­ arstjóra. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis­ flokksins hefðu misnotað vald sitt til þess að flokkurinn næði aftur völdum í borginni. Nú er svo komið að aðeins lítill hluti þjóðarinnar treystir stjórnmálamönn­ um til góðra verka. Fyrst og fremst vegna framkomu þeirra við hvern ann­ an, stjórnmálamenn sýna hver öðrum virðingarleysi og standa sífellt í óþarfa rifrildi og skítkasti á kostnað málefna­ legrar umræðu og samvinnu. Sjálfstæðisflokkurinn leitar nú log­ andi ljósi að næsta leiðtoga í borginni. Þar takast ólíkar fylkingar á, þeir sem styðja nýtt aðalskipulag og hinir sem gera það ekki. Fyrirséð er að sterk staða Besta flokksins ógnar öðrum flokkum nú þegar styttist í sveitarstjórnarkosn­ ingar og átökin um flugvöllinn, þéttingu byggðar og áherslur í samgöngumálum eru hafin. Enn sem komið er ekki ljóst hverjir stefna á fyrsta sætið, en Júlíus Vífill er sá eini sem hefur lýst því opin­ berlega yfir að hann ætli að taka slaginn. Hann var einu sinni stuðningsmaður þess að flugvöllurinn færi en hefur skipt um skoðun og talar nú í takt við leiðar­ ahöfund Morgunblaðsins sem vill flug­ völlinn áfram í Vatnsmýrinni. Hann hefur því lagst gegn aðalskipulaginu og gagnrýnt meirihlutann. Gísli Marteinn sem var orðaður við oddvitaslaginn hefur hins vegar ákveðið að draga sig út úr baráttunni og borgar­ málunum. Af því að hann vildi ekki fórna sannfæringunni og hefur fyrir vik­ ið þurft að standa í stöðugum illdeilum, meðal annars við félaga og vini sem honum þótti vænt um. Sannfæringin varð honum þannig til trafala. Þótt það sé skiljanlegt, þá er það sorglegt að gott fólk skuli hverfa frá af þessum ástæðum og það er ekki til þess fallið að auka traust eða trú á stjórnmálunum. n Lýðræðisráðherra n Sigurður Ingi Jóhanns­ son umhverfisráðherra þykir vera á meðal kostu­ legustu stjórnmálamanna. Varla er hægt að nefna eitt embættis verka hans sem ekki hefur valdið fjaðrafoki. Nýjasta útspil ráðherrans er að boða afnám nýrra nátt­ úruverndarlaga. Ástæðan er óljós en hann talar um óeiningu vegna laganna og að þarna séu á ferðinni eins konar lýðræðisumbætur. Boðað hefur verið til mót­ mæla vegna þessa. Gæsalappadrífa n Hannes Hólmsteinn Giss­ urarson pró­ fessor er með pálmann í höndunum eftir að Sigur­ björg Sigur­ geirsdóttir lektor og Ro­ bert Wade prófessor báðu hann afsökunar á því að hafa sett ummæli um ágæti Davíðs Oddssonar í gæsalapp­ ir og gert að orðum Hannes­ ar. Sjálfur hlaut Hannes dóm fyrir að nota orð Halldórs Laxness án þess að setja í gæsalappir. Það er ljóst að gæsalappir eru örlagavaldar í lífi Hannesar Hólmsteins. Þorbjörg styrkist n Baráttan um leiðtogasæti sjálfstæðismanna í Reykja­ vík mun harðna enn frekar við brotthvarf Gísla Marteins Baldurssonar. Talið er að Gísli muni styðja Þor­ björgu Helgu Vigfúsdóttur til þess að leiða flokkinn en þau hafa lengst af verið sam­ herjar. Þessi hrókering mun þá styrka Þorbjörgu í slagn­ um við Guðlaug Þór Þórðar­ son, Júlíus Vífil Ingvarsson og Kjartan Magnússon. Spennan vex með degi hverjum. Prik fyrir Pál n Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis­ flokksins, kom mörgum á óvart með því að takast á hendur verk efni fyrir Ríkisútvarpið og hætta í at­ vinnustjórnmálum. Páll Magn­ ússon útvarpsstjóri réð Gísla í skarð Egils Helgasonar. Víst er að öðrum þræði er Páll þar með að koma sér í mjúkinn og næla sér í prik hjá valda­ mönnum Sjálfstæðisflokksins sem vildu ekki að borgarfull­ trúinn yrði leiðtogi í borginni. Fyrsta hlutverkið að leika blóm Arnmundur Ernst Björnsson leikur í Jeppa á Fjalli. – DV Erla Hlynsdóttir minnist Hugos Þórissonar. – DV Sannfæringin þvældist fyrir É g setti pistil inn á fésbókarsíð­ una mína í byrjun vikunnar og skrifaði um einelti. Ég eins og aðrir hef fylgst með fréttum af einelti í skólum og fæ hroll af til­ hugsuninni. Einelti þrífst því miður víðar en í skólum og þessi óþrifnað­ ur mannlífsins er grasserandi. Frétt­ ir af fullorðnu fólki sem leggur börn í einelti eru ömurlegri en tárum tek­ ur. Steininn tekur þó úr þegar sam­ starfsmenn ganga til liðs við lastar­ ann. Það er eins og lögreglan gengi í lið með nauðgaranum sem níðst hefur á fórnarlambinu. Svo virðist sem fórnarlömbum séu allar bjargir bannaðar. Yfirvöld, ráðuneyti og skólaskrifstofur koma ekki í veg fyrir óþverraskapinn þó svo allir viti hver staðan er. Það hafa margir reynt að stöðva níðingana og þykkar skýrslur skrifaðar og bent á leiðir til úrbóta. Það gerist ekkert. Í besta falli eru þeir reknir sem vilja taka á málum. Menntamálayfirvöld verða að spyrja skólayfirvöld og sveitarfélög spurn­ inga um stöðuna og fylgja eftir úr­ bótum sem bent er á í skýrslum. Er ekki mál að linni og ósóminn verði stöðvaður í eitt skipti fyrir öll. Kjarasamningar Kjarasamningar eru lausir og við­ ræður aðila farnar af stað. Verkefnið er að auka kaupmátt og viðhalda honum. Það hefur því miður ekki verið raunin og því erfitt að bera okkur saman við lönd sem búa við stöðugt verðlag og kaupmátt. Sam­ flot í samningum verður til þess að þær greinar sem standa vel, fram­ leiða eða selja þjónustu til útflutn­ ings og eru að standa undir veru­ lega auknum útflutningstekjum greiða trúlega lægri laun en þau gætu staðið undir. Það þarf því að gæta að skattlagningu fyrirtækja og gera þau betur búin til að greiða hærri laun. Góð laun í stað hárra skatta munu verða drifkraftur auk­ innar neyslu sem hefur áhrif um allt þjóðfélagið. Samherji á Akureyri og fleiri fyrirtæki í sjávarútvegi hafa á undanförnum árum sent fiskverka­ fólki verulega jólabónusa á laun­ in. Bónusa sem nema hundruðum þúsunda á hvern starfsmann. Þetta er frábærlega gert og í senn viður­ kenning á mikilvægi starfsfólks­ ins og stöðu fiskverkafólks hjá þessum fyrirtækjum og spurning hvort laun hækki sem þeim nemur. Á undanförnum árum hefur hag­ ræðing í fiskvinnslu, sérstaklega uppsjávarveiðum, verið mikil. Ný tækni og sjálfvirkni hefur fækkað vinnandi höndum við framleiðsluna en fjölgað vel launuðum störfum við hönnun og framleiðslu nýrrar tækni í sjávarútvegi. Sjávarklasinn í Grindavík er að skapa ný, fjölbreytt og vel launuð störf. Fiskvinnslan er á siglingu og einstaklingsframtakið sér tækifæri framtíðarinnar og mun skapa vel menntuðu heimafólki störf við hæfi. Þeir fáu sem koma að vinnslunni í dag hafa ekki notið hagræðingar og aukinnar verð­ mætasköpunar. Ferðaþjónustan er önnur grein sem flytur út þjón­ ustu. Uppgangur og afkoma ætti að skapa grundvöll til endurskoðunar á launum starfsfólks í greininni. Við verðum að hafa kjark og þor til að skapa það umhverfi á vinnumarkaði að bestu fyrirtækin, sem hafa burði til að greiða bestu launin fái til sín besta starfsfólkið. Það mun hafa já­ kvæð áhrif á heimilin, sveitarfélögin og ríkissjóð með meiri veltu í samfé­ laginu. Við erum svo heppin að eiga öflugar útflutningsgreinar sem hafa svigrúm til að bæta kjörin án þess að kollvarpa stöðugleika. Nýtum það svigrúm. Fjárlögin Í næstu viku leggur fjármála­ og efnahagsráðherra fram fyrsta fjár­ lagafrumvarp ríkisstjórnar Sjálfstæð­ isflokks og Framsóknarflokks. Þessi fjárlög verða gríðarlega mikilvæg og þau skilaboð sem lögin senda út í samfélagið. Ég bind vonir við að sú sýn og von sem við þingmenn og ráðherrar ríkisstjórnarflokkanna höfum staðið fyrir í undirbúningi kosninga fái byr undir vængi. Verði upphaf að jákvæðum breytingum sem styrki heimilin, atvinnulífið, menntun, heilbrigðisþjónustu og alla grunnþjónustu í landinu. Að því viljum við öll vinna. Fjárlögin, einelti og kjarasamningar Leiðari Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu­ og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 22 27.–29. september 2013 Helgarblað „Svo virðist sem fórnarlömbum séu allar bjargir bannaðar. Kjallari Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokks „Það er auðveldara að selja stefnur og frasa sem flokksmenn sameinast um. Einn af merkustu mönn- um sem ég hef kynnst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.