Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Qupperneq 29
Fólk 29Helgarblað 27.–29. september 2013 Ég spila aldrei fótbolta framar „Já. Ég byrjaði náttúrulega mjög seint í atvinnumennskunni. Var uppi á Skaga og ég mátti ekki fara í at- vinnumennsku fyrr en ég var búinn að klára fjölbrautaskólann. Móðir mín setti mér þau skilyrði og það var allt í lagi. Ég ætlaði alltaf að gera það sama og Eyjólfur Sverrisson talaði um að væri skynsamlegt. Ef ég myndi meiðast eða ég yrði ekki stjarna, þá væri nauðsynlegt að eiga eitthvað í bakhöndinni þegar atvinnumennsk- unni lyki. Þannig að ég kláraði skólann og lenti svo í því að slíta krossbönd. 23 ára fór ég í atvinnu- mennskuna, sem er auðvitað mjög seint, og fór á lægri laun en ég var með hjá ÍA. Þannig að ég var í raun að taka skref til baka til að komast til Evrópu. En ég var alltaf með hugann við það sem ég ætlaði að gera eftir fótboltann, vitandi að þetta gæti allt endað á morgun.“ Gæti snúið aftur til AZ Það var síðan fyrir ári, þegar hann var samningslaus hjá Bolton, að mörg lið höfðu samband við hann og vildu fá hann til að spila. Eitt þessara lið var hans gamla félagslið í Hollandi, AZ Alkmaar. „Þeir spurðu hvað ég ætlaði að gera. Ég sagði þeim að ég ætlaði að taka einn samning til viðbótar og síð- an ætlaði ég að hætta. Ég ætlaði alltaf að hætta árið 2014. Ég ætlaði að spila þangað til sumarið 2014 og snúa mér þá að öðru. Ég sagði þeim að ég væri því farinn að líta aðeins í kringum mig. Þeir spurðu mig því hvort ég hefði áhuga á að starfa fyrir þá í fram- tíðinni. Ég sagði já.“ Svo fór að Grétar á fund forráða- manna AZ í janúar síðastliðnum eft- ir að hann var búinn að semja við Kayserispor og búinn að meiðast. „Ég tjáði þeim að ég ætlaði líklega að hætta og vildi fá að vita hvað þeir hefðu í huga. Þannig að þeir vildu fá mig inn, til starfa innan félags- ins, þannig að ég hefði tækifæri til að byggja mig upp innan klúbbsins, komast hærra.“ Grétar átti góðu gengi að fagna sem leikmaður hjá AZ og vakti athygli margra liða víðs vegar um Evrópu þegar hann lék með liðinu árin 2006 til 2008. AZ-menn höfðu því áhuga á að fá það sem Grétar kallar „sitt öðru- vísi sjónarhorn á hlutina“ og drifkraft hans og til að vinna í þágu félagsins. „Þannig að þeir vildu fá mig til starfa 2014. Núna eftir að ég hætti hef ég eitt ár til að vinna að því þannig að núna er ég að læra og styrkja mín sambönd. Ég var í Tyrklandi í eina viku fyrir skömmu, var hjá klúbbi þar og er að læra inn á klúbba. Er að fara til Kanada eftir stuttan tíma í viku. Þá fæ ég að fara til Liverpool í viku, West Bromwich Albion í viku, verð í Búlgaríu í viku, Hollandi. Í augna- blikinu er ég að stækka tengslanet mitt, skoða klúbba af mismunandi styrkleika, sjá klúbba með mismun- andi fjárhagsstöðu og hvernig þeir vinna á bak við tjöldin og afla mér reynslu. Í staðinn fyrir að koma al- gjörlega grænn til starfa hjá AZ þá ætla ég að nýta tímann í stað þess að gera ekki neitt.“ Grétar kveðst nýta tímann vel núna. Hann sé að njósna um leik- menn, mæta á og horfa á leiki og mæla með leikmönnum og í raun að nálgast fótbolta frá öðru sjónarhorni en áður. Þó ekki sé búið að formgera það hlutverk sem Grétar Rafn kann að taka að sér hjá AZ né ganga frá samn- ingum, þá segir hann aðspurður hvert hann setji markið að hann vilji komast eins hátt og mögulegt er, þó honum hugnist ekki að gerast þjálf- ari eða knattspyrnustjóri. „Það er erfitt að segja nákvæmlega hvar ég enda. Þó ég og AZ höfum rætt hvert markmiðið er – því ég myndi aldrei fara þarna til að pússa skó hjá neinum – þá er ég að fara þangað til að láta draum rætast. Ég vil komast langt og ég vil ná árangri þrátt fyrir að ég sé hættur að spila fótbolta. Ég er enn með sama eldheita viljann til að ná árangri. Ég gæti fengið tækifæri hjá AZ og mig langar að skoða hvort það sé möguleiki. Það er auðvitað ekki búið að skrifa undir neitt og ef einhverjir aðrir möguleikar opnast í millitíðinni þá er aldrei að vita hvað maður gerir. Þetta er einn af þeim möguleikum. Mér hefur verið boð- ið að starfa við umboðsskrifstofuna mína úti. Hún hefur áhuga á að ég nýti mín tengsl í umboðsmennsku. Það er annar möguleiki sem ég velti fyrir mér en þetta er harður bransi – umboðsmennskan. Ef þú lítur á ís- lenska markaðinn þá eru ekki margir leikmenn sem geta haldið bolta á lofti sem ekki eru komnir með um- boðsmann. Það eru allir með um- boðsmann þó þeir eigi kannski ekki möguleika á því að verða nokkurn tímann atvinnumenn.“ Óheiðarlegur umboðsmaður Grétar hefur sjálfur slæma reynslu af umboðsmönnum. Það fékk hann að reyna þegar í undirbúningi var að gera nýjan samning við Bolton á sín- um tíma. Þá komst hann að því að umboðsmaðurinn, sem Grétar leit á sem einn af sínum bestu vinum og líkaði mjög vel við, var ekki umboðs- maður. „Ég hélt alltaf að hann væri um- boðsmaður en hann var það ekki. Hann kom mér á nokkra klúbba og allt í lagi með það. Síðan gerðist það að eftir að ég fór til Bolton, þá komst ég að því að hann er ekki umboðs- maður. Ég, ásamt klúbbnum, lenti í því að vera leiddur fyrir vitnadóm hjá enska knattspyrnusambandinu vegna þessa. Hann mátti ekki gera samninginn. Maður komst út úr því með að segja að maður hefði ekki notað þennan mann en svo kom að því að Bolton vildi gera við mig nýj- an samning. Með því skilyrði að þessi maður verði ekki notaður aftur. Þannig að ég gerði samninginn sjálf- ur og tilkynnti umboðsmanninum að þeir vildu ekki nota hann. Hann sagði það ekki vera mikið mál því hann fengi samt greitt frá klúbbnum. Ég tók mér nokkrar vikur í að semja við klúbbinn og gerði nokkuð vel þó ég segi sjálfur frá. Þegar það var frá- gengið þá var umboðsmaðurinn allt í einu mættur til Bolton, með mann með sér, og þeir komu bara heim til mín eftir fund með forráðamönn- um Bolton þar sem þeim hafði verið hafnað.“ Grétar segir umboðsmanninn hafa krafið hann um upphæð sem hann hafi átt að borga og mennirnir hafi neitað að fara fyrr en samkomu- lag næðist um það. „Þetta var ákveðin upphæð sem mér var tilkynnt að ég ætti að borga á ákveðnum tíma. Ég samþykkti að gera það vegna þess að þeir voru þarna heima hjá mér og þarna kom- inn maður sem ég hafði aldrei séð áður. Mun stærri í vexti en ég. Síðan eftir eitt ár fékk ég nóg og fékk mér öryggisverði til að vera fyrir utan húsið.“ Allt hljómar þetta svolítið eins og Grétar hafi lent í fjárkúgun þar sem umboðsmaðurinn krafði hann, á afar óþægilegan máta, um peninga sem hann átti enga heimtingu á. Grétar vill þó ekki ganga svo langt að kalla þetta fjárkúgun. „Tja, ég myndi ekki segja fjárkúg- un, en hann átti engan rétt á því. Ég var tilbúinn að borga honum þar sem ég er eins og ég er og við vorum bestu vinir. En peningar breyta fólki þannig að upphæðin sem ég var tilbúinn að greiða honum fyrir að gera í raun- inni ekki neitt – því hann gerði engan samning og mátti ekki gera samning – var stærri í hans augum en hún var í mínum. Því fór það svona.“ Grétar segir afar brýnt að menn fari varlega málum sem þessum. „Maður er bara grænn í hlutunum og fær einhvern sem kyssir mann og knúsar mann þegar maður hittir hann en á endanum snýst þetta allt um peninga. Það er gífurlega mikill peningur í umboðsmennsku og það er um að gera fyrir leikmenn að hugsa sig tvisvar um áður en þeir fara til einhverra umboðsmanna. Maður þarf að passa sig. Það er ekki hægt að treysta hverjum sem er. Maður getur fengið það allt í bakið.“ Hann segir foreldra ungra krakka á Íslandi þurfa að passa sig á að börn þeirra séu í réttum höndum. Þá skipti engu máli hversu mikinn fótbolta foreldrarnir hafi horft á eða hversu mikið þeir hafi lesið í slúð- urblöðum um hvernig þessir hlutir gangi fyrir sig. „Þar er ekki hægt að lesa um hvað raunverulega er að gerast í fótbolta þannig að það er um að gera fyrir for- eldra sem eru að skoða þessa hluti að vanda valið.“ Hafnað fyrir Spánarferð Eftir að hafa farið frá ÍA á Akranesi til Young Boys í Sviss árið 2004 og þaðan til AZ í hafði Grétar ýmsum möguleikum úr að velja eftir gott gengi í Hollandi. Aðspurður kveðst hann hafa átt fundi með nokkrum liðum, bæði á Ítalíu og í Þýskalandi en hann hafi hins vegar alltaf ætlað sér til Bolton. Í fyrsta lagi vildi hann feta í fótspor allra þeirra Íslendinga sem leikið höfðu með liðinu en í öðru lagi, og ekki síst, vegna þess að Bolton hafnaði honum á sínum tíma þegar hann var enn leikmaður ÍA og hafði farið á reynslu til félags- ins ásamt Ellerti Jóni Björnssyni, fé- laga sínum. „Þegar ég og Ellert fórum á reynslu til þeirra þá var Sam Allar- dyce knattspyrnustjórinn og Óli Þórðar og Guðni Bergsson höfðu komið okkur út til að æfa og við vorum frábærir. Það gekk allt upp hjá okkur og okkur leið ofsalega vel þarna. Við vorum því sannfærðir um að þeir myndu bjóða okkur samn- ing og kaupa okkur frá ÍA. Síðan tók Phil Brown, þáverandi aðstoðarmað- ur Allardyce, okkur afsíðis og hrósaði okkur fyrir það hversu vel við höfðum staðið okkur en valið stóð víst á milli þess að taka liðið til Spánar í helgarfrí eða kaupa okkur. Eins og þeir orðuðu það þá voru ekki til nægir peningar til að bæði verðlauna liðið fyrir gott gengi og kaupa okkur. Okkur var því hafnað fyrir helgarferð til Spánar.“ Grétar segir þessa höfnun hafa drifið hann áfram sem aldrei fyrr. „Ég ætlaði mér að verða atvinnumaður í Bolton. Ég ætlaði að sýna og sanna að ég væri maðurinn sem þeir hefðu átt að kaupa fyrr. Ég ætlaði mér því alltaf að fara til baka og sanna mig.“ Snerist um markmið ekki peninga Það er ekkert leyndarmál að menn fá ríkulega greitt fyrir viðvikið í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og umræðan um ofurlaunin ávallt skammt undan þegar rætt er um at- vinnumennskuna. Grétar er þar ekki undanskilinn. Hann var kominn í feitt og þénaði samkvæmt ýms- „Við erum í mjög góðu sambandi og erum fínir vinir í dag. Við eigum yndislega dóttur saman og allt er bara í himnalagi. Hættur Grétar Rafn Steinsson hefur lagt skóna á hilluna eftir að ljóst varð að hann myndi aldrei ná sér af alvar- legum meiðslum. Mynd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.