Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 30
30 Fólk 27.–29. september 2013 Helgarblað Knattspyrnuferill Grétars Rafns 1998 Grétar Rafn spilaði sína fyrstu leiki með Knattspyrnufélagi Siglufjarðar, KS, en þar var Grétar fæddur og upp­ alinn. Fyrsti meist­ araflokksleikur hans var í 2–1 tapi gegn Tindastóli í bikarkeppninni þann 4. júní árið 1998. Skömmu síðar hóf hann feril sinn í landsliðinu þegar hann var í tapliði Íslands gegn Noregi í U17. Leikurinn endaði 8–2 fyrir Noregi. Janúar 1999 Þá samdi Grétar Rafn við ÍA og lék hann sinn fyrsta leik með meistara­ flokki ÍA í 1–0 sigri liðsins á Leiftri frá Ólafsfirði í fyrstu umferð Landssímadeildarinnar sem þá var og hét. Grétar kom inn á sem varamaður þegar 10 mínútur lifðu leiks. 2001 Sumarið 2001 var Grétar Rafn orðinn fasta­ maður í liði Skagamanna. Þetta sumar landaði Grétar Rafn sínum fyrsta og eina Íslandsmeist­ aratitli í knattspyrnu. Maí 2004 Grétar Rafn skrifaði undir nýjan samning við ÍA sem gildir til áramóta. Þetta gerðist þrátt fyrir að svissneska félagsliðið Young Boys hefði lýst yfir áhuga sínum á að fá hann í sínar raðir. Grétar gaf það út opinberlega að hann vonaðist til að fá tækifæri í atvinnu­ mennsku síðar. Júlí 2004 Þess var ekki langt að bíða að Grétar fengi tækifærið í atvinnumennsku. Samningar tókust milli Young Boys og ÍA um félagaskipti Grétars. Hann kláraði tímabilið með Skagamönnum og hélt svo til Sviss um áramótin 2004/2005 en samningurinn gilti til ársins 2007. Ágúst 2012 Eftir að hafa spilað með Bolton í rúm fjögur ár var tími Grét­ ars hjá félaginu á enda runninn ­ Bolton ákvað að endurnýja ekki samning hans við félagið. Þann 22. ágúst var tilkynnt að Grétar hefði náð samkomulagi við tyrkneska félagið Kayserispor um að leika með því. Meiðsli settu strik í reikninginn og lék Grétar því aðeins níu deildarleiki með liðinu. September 2013 Grétar tók þá ákvörðun að hætta í knattspyrnu fyrir fullt og allt en vegna meiðsla. Segist verða viðloðandi knattspyrnu áfram. Ágúst 2005 Hollenska félagið AZ Alkmaar náði að landa Grétari og var því endir bundinn á stutta veru hans í Sviss. Grétar átti góðu gengi að fagna í Hollandi en tæpum þremur árum síðar tók hann stærsta skrefið á ferli sínum. Febrúar 2005 Grétar lék sinn fyrsta leik með Young Boys í þegar hann kom inn á sem varamaður í leik gegn Grasshoppers. Fyrr en varði var Grétar búinn að eigna sér bakvarðarstöðuna og vekja athygli annarra liða. Síðar þetta ár, í mars, lék hann sinn annan landsleik fyrir Ísland. 15. janúar 2008 Grétar samdi til fjögurra ára við enska úrvalsdeildarliðið Bolton. Bolton greiddi 440 milljónir króna á þáverandi gengi, fyrir Grétar. Grétar lék með Bolton við góð­ an orðstír þar sem hann spilaði hann á annað hundrað leiki.7. mars 2002 Grétar lék sinn fyrsta A­landsleik fyrir Ísland þegar liðið heimsótti Brasilíu í vináttuleik. Óhætt er að segja að fer­ ill hans með landsliðinu hafi farið vel af stað því hann skoraði eina mark Íslands í 6–1 tapi. um fréttum allt að 12 milljónum króna á mánuði. En nú þegar hann stendur frammi fyrir því að leggja skóna á hilluna verður að spyrja hann hvort hann sé ríkur maður eftir öll þessi ár í atvinnumennsku. „Hvað er að vera ríkur? Maður hefur það fínt, lifir lífinu. Ég hef það mjög gott og er búinn að koma mér vel fyrir á Englandi. Fótbolti hjá mér snerist aldrei um peninga. Þegar ég fór í atvinnumennsku var ég á lægri launum en hjá ÍA. Fótbolti var leiðin að þessum markmiðum sem ég ætl­ aði mér að ná. Markmiðin voru gerð þegar ég var líklega níu til tíu ára. Fótbolti snýst aldrei um peninga fyrr en í lokin þegar menn eru að pæla í því.“ Hvað framhaldið varðar segist Grétar hafa verið heppinn að nú hafi vissar dyr opnast fyrir honum með tækifæri á að starfa áfram við knattspyrnu, nokkuð sem ekki allir leikmenn geti sagt. „Ég er ekkert að fara að setjast í helgan stein, ég er bara ekki þannig týpa. Ég hef það mjög fínt og ég hef heilsu, fjölskyldan hefur heilsu og það er það sem skiptir máli. Og ég veit að Ísland fer á HM og þrátt fyrir að ég hafi aðeins spilað tvo eða þrjá leiki í því dæmi þá tel ég samt að ég eigi einhvern hlut í því. Ef ég fer á HM þá strika ég yfir síðasta markmiðið mitt og lít glaður til baka.“ Margir ungir menn standa frammi fyrir því þegar þeir gerast atvinnu­ menn að þeir eigi allt í einu sand af seðlum. Slíkt getur breytt mönnum. Aðspurður hvort velgengnin, pen­ ingarnir og sviðsljósið sem fylgir því að vera knattspyrnumaður í vinsæl­ ustu deild í heimi hafi breytt hon­ um segir Grétar að hann sé enn sami maðurinn og hann var. Hann hafi aldrei viljað vera í sviðsljósinu og hefði miklu frekar bara viljað geta verið fótboltamaður. „Þetta er alltaf spurning hvenær þú ert orðinn eign annarra og hvenær ertu ekki knattspyrnumaður og þú sjálfur. Ég hef gaman af bílum og hef alltaf haft. Ef þú getur keypt þér bíl þá gerir þú það. En þetta breytir þér ekki. Þú ert alltaf sami vit­ leysingurinn. Þú ert alveg eins. Þegar maður var yngri og fór út í búð gekk maður á milli Einarsbúðar og Skaga­ vers á Akranesi því að osturinn var fimm krónum ódýrari í Einarsbúð, þessir hlutir breytast en þú ert alltaf sama persónan og kemur fram við fólk alveg eins sama hvort þú ert með 100 þúsund kall eða ekki. Ég lagði mig fram, náði langt og sé ekk­ ert athugavert við það. Ef fólki vegn­ ar vel og hefur lagt sig fram án svika og pretta þá á það að njóta þess. Ég er ekki öfundsjúkur út í neinn.“ Seðlaflóð í búningsklefanum Í heimi atvinnumennskunnar er mikið af uppblásnum egóum og moldríkum ungum mönnum sem eiga nóg af frítíma og enn meira af peningum. Margir hafa farið flatt á veðmálum, spilavítum og djammi á þessum árum sínum svo blaðamað­ ur stenst ekki mátið að spyrja Grétar hvort hann hafi einhvern tímann stigið dans við skuggahliðar atvinnu­ mennskunnar. „Ég steig nú engan dans við skuggahliðarnar. Ég gambla ekki, einfaldlega vegna þess að ég er svo tapsár. Ég hef gaman af því að fara á hestaveðreiðar en ég legg ekki undir. Ég hef séð ótrúlegustu fjárhæðir í reiðufé fara milli leikmanna í bún­ ingsklefanum, meiri peninga en ég hef nokkurn tímann séð.“ Hvað er það hæsta sem þú hefur séð menn henda sín á milli? „Ætli það séu ekki 50 þúsund pund sem voru á borðinu fyrir bara einhver fíflalæti. En það hafa margir farið flatt á þessu. Ef ég tapaði leik í fótbolta þegar ég var yngri og grenj­ aði og var kallaður Grétar grenju­ skjóða var það bara út af keppnis­ skapi. Ég er auðvitað ekki að fara að grenja inni á veðmálaskrifstofu Lad­ brokes yfir að tapa einhverju veðmáli þannig að ég er ekkert í svoleiðis. Ég hef gaman af ákveðnum hlutum þannig að ég gerði þá og sé ekki eft­ ir því.“ Ævintýraþrá í Tyrklandi Það kom nokkuð á óvart þegar Grétar samdi við tyrkneska félagið Kayseri­ spor í fyrra enda höfðu margir búist við því að hann myndi héldi sig á Englandi. Aðspurður hvernig það hafi komið til að hann fór þangað segir hann að hann hafi þekkt þjálf­ ara liðsins og spilað með honum í Hollandi á sínum tíma. „Tímabilið endaði á Englandi og ég ætlaði mér aldrei að vera áfram í Bolton. Ég og þjálfarinn lit­ um fótbolta ólíkum augum. Ég var óánægður með það hversu óskipulagt allt var, ég vil hafa allt skipulagt eins og kannski hefur kom­ ið fram. Það var allt í óreiðu hjá fé­ laginu og ég hafði engan áhuga á að vera áfram og ég lenti upp á kant við þjálfarann nokkrum sinnum og þannig endaði það. Það var bara eitt símtal sem gerði það að verkum að ég fór til Tyrklands. Mig langaði að prófa eitthvað nýtt, læra nýtt tungu­ mál og kynna mér nýja menningu og prófa að sjá hvernig þetta væri svo ég stökk á þetta.“ Það var á miðvikudaginn síðast­ liðinn sem Grétar gekk frá því form­ lega að fá sig lausan undan samningi við Kayserispor. Hann átti inni laun hjá félaginu og það var því ekki vand­ kvæðum bundið að slíta samstarf­ inu. Grétar segir það reyndar hafa verið viðbúið að hlutirnir væru ekki jafn pottþéttir í Tyrklandi og annars staðar. „Þannig er þetta þarna úti, ég meina FIFPro varar leikmenn við að fara í þessar deildir eins og í Tyrk­ landi. Ég skil af hverju því þetta er ekkert eins og að fara til Englands eða Hollands. Það var reyndar alltaf vitað að þetta yrði þannig, þetta var meira svona ævintýraþráin heldur en gull og grænir skógar. Það er aldrei allt að fara að koma inn. Ég naut þessa tíma, kynntist mörgu góðu fólki, náði mér í góð sambönd sem ég mun nýta mér áfram í framhaldinu. Ég lærði aðeins af tungumálinu, ég get bjarg­ að mér við að panta á veitingahúsi á tyrknesku. Þetta var allt mjög öðru­ vísi. Það eru allir mjög trúaðir í þess­ um bæ og allt annar heimur fyrir ein­ hvern sem hefur búið á Íslandi. En það var gaman að sjá þetta og upplifa því það fá ekki allir tækifæri til á að búa á svona framandi slóðum.“ Grétar leigði sér íbúð í eitt ár í Tyrklandi og ætlaði sér í rauninni aldrei að vera lengur. „Ég var bara með bílaleigubíl frá klúbbnum. Þetta er ekkert glamúrlíf. Það eru ekki barir þarna, ekki golfvöllur eða neitt við að vera. Ég var bara að fara þangað til að prófa eitthvað nýtt og þetta var eins langt frá því að vera eitthvað glamúr­ líf sem fólk heldur að atvinnu­ mennskan kannski sé. Þetta var bara vinna í ákveðinn tíma og ævintýri.“ Erfiður skilnaður Þegar Grétar var að spila hvað best og Bolton gekk mjög vel í ensku úrvals­ deildinni þá var ekki hægt að segja að allt hafi verið í sóma utan vallar. Árið 2010 fóru að berast fregnir af því að hann og Manuela Ósk Harðardóttir væru skilin að borði og sæng. Skiln­ aðarferlið var langt og strangt og tók skiljanlega á. Málið fór fyrir dómstóla og hart var tekist á. Svo fór að Grétar þurfti að draga sig úr íslenska lands­ liðinu þar sem hann þurfti að sinna persónulegum málum sínum. Fyrir það var Grétar gagnrýndur en á sama tíma gat hann ekki tjáð sig opinber­ lega um ástæður þess að hann gæfi ekki kost á sér en spilaði samt fyrir Bolton. „Þegar þetta gerðist þá gekk mér mjög vel og liðinu gekk mjög vel. Þegar þú ert fótboltamaður og nærð langt þá getur þú eiginlega lokað á allt svona. Þetta er auðvitað alltaf erfitt og þetta er langt ferli, það er það erfiðasta við þetta – að þurfa síð­ an að einbeita sér að vinnunni, það er auðvitað mikið í húfi þar. Þó það sé gott að geta farið inn á fótboltavöll­ inn og slökkt á þá var annað gríðar­ lega erfitt. Þetta er erfitt en þú þarft stundum bara að einbeita þér að vinnunni þinni því að fótboltamenn eiga alltaf að vera vélmenni. Þú átt að geta farið inn á völlinn, það má enginn vera meiddur, það má enginn vera veikur, það má enginn eiga í vanda í persónulega lífinu út af því að þú átt að vera fótboltamaður og það er það sem fólk vill sjá. Fólk vill sjá fótboltamenn úti á fótboltavellin­ um. En eina sem þetta bitnaði á var í rauninni landsliðið. Þegar landsleikir komu upp var einfaldlega ekki hægt að vera á tveimur stöðum í einu þar sem ég þurfti að vera að klára mál­ ið og allt í einu þurfti ég að vera með landsliðinu. Ég þurfti því að velja og hafna og ég þurfti að vera á öðrum staðnum þannig að á þeim tíma taldi ég að því hefði verið sýndur skilning­ ur. Ég náði að klára mín mál. Erfið­ leika í persónulega lífinu óska ég ekki neinum manni. Þetta er leiðinlegt og erfitt en lífið heldur áfram. Sam­ bandið bara gekk ekki.“ Grétar segir mál eins og skilnað vera persónulega hluti sem komi öðrum ekki við. „Þetta fannst mér ekki koma fólki við. Þetta voru erfiðir tímar og erfið­ ir tímar hjá einhverjum ættu ekki að skemmta öðrum. Þetta var erfitt fyrir alla aðila og það þarf að virða það við alla aðila að þetta er eitthvað sem maður tjáir sig ekki um.“ Grétar segir það miður að lands­ liðið hafi þurft að sitja á hakanum en hann hafi ekki haft um annað að velja. Hann hafi oft komist í klandur hjá félagsliðum sínum fyrir að spila með landsliðinu eftir að forráða­ menn þeirra báðu hann um að spila ekki. „Það varð þess valdandi að ég tapaði miklum peningum, á því að tilkynna þá ákvörðun, eins og hjá Bolton. Ég var beðinn um það í Tyrk­ landi, að spila ekki með landsliðinu en ég gerði það samt, ferðaðist 24 tíma heim til Íslands til að spila landsleiki, þannig að landsliðið er eitt af þessum markmiðum hjá mér. En stundum þarf maður bara að hætta að vera knattspyrnumaðurinn sem fólk vill að maður sé og fá að vera maður sjálfur.“ Góðir vinir í dag Grétar segir aðspurður að þrátt fyrir allt sem á undan sé gengið skilji hann sáttur. „Já, já. Við erum í mjög góðu sam­ bandi og erum fínir vinir í dag. Við eigum yndislega dóttur saman og allt er bara í himnalagi og ekkert mál og ekkert vesen. Lífið heldur áfram. Hún er að gera frábæra hluti í dag, er auðvitað mjög hæfileikarík í því sem hún er að gera og á vonandi eftir að ná mjög langt í því og er sterkur einstaklingur sem á eftir að ná langt. Svo eigum við frábæra þriggja ára dóttur sem er að dafna vel. Þetta er bara smáhluti af löngu lífi.“ n „Meiðslin voru þess eðlis að ég var aldrei að fara að spila fótbolta aftur Í góðu sambandi Þrátt fyrir erfitt og langdregið skilnaðarmál segir Grétar að samband hans og Manuelu sé mjög gott í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.