Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2013, Síða 42
42 Lífsstíll 27.–29. september 2013 Helgarblað
Kókosmjöl í stað hveitis
n Hægt er að baka lágkolvetna brauð og kökur
Þ
eir sem aðhyllast lágkolvetna-
mataræðið hafa haldið því
fram að ofneysla á kolvetnum
sé meginorsök offitufaraldurs
sem riðið hefur yfir vestrænar þjóðir.
Það eru afar skiptar skoðanir
um ágæti þessa mataræðis en fjöl-
margir eru ánægðir með þann ár-
angur sem næst með því að breyta
mataræði sínu. Næringarfræðingar
hafa þó margir hverjir verið gagnrýn-
ir á mataræðið og haft efasemdir um
hollustu þess. Þrátt fyrir að LKL geti
verið áhrifarík leið til að grennast þá
hafi þeir áhyggjur af því að lágkol-
vetnamataræði geti haft slæm áhrif
á blóðfitu vegna þess að í flestöllum
tilvikum sé gert ráð fyrir aukinni
neyslu á fitu.
Samkvæmt ráðleggingum LKL á
að forðast meðal annars sterkju en þá
þarf maður að sleppa brauði, pasta,
hrísgrjónum, kartöflum, hafragraut,
kornvörum, múslí og gulrótum. Það
eru þó til ótal uppskriftir að lágkol-
vetnabrauði auk þess sem finna má
slík brauð í verslunum og bakaríum.
Þegar kemur að því að baka lág-
kolvetnabrauð þá er notað til dæm-
is Husk, kókos- og möndlumjöl svo
eitthvað sé nefnt. Fjölmargar upp-
skriftasíður eru á netinu sem sýna
hvernig elda má allt milli himins og
jarðar án kolvetna, svo sem pipar-
kökur fyrir jólin.
LKL-mataræðið útilokar einnig
sykur en hægt er að kaupa Sukrin
sem er eins og sykur en hollari en
Sukrin framleiðir einnig púður- og
flórsykur. Þar að auki er til pasta sem
inniheldur engar hitaeiningar og
engin kolvetni. n gunnhildur@dv.is
Vilhjálmur
Ari Arason
Af sjónarhóli
læknis
Færðu slæma
flensu í vetur?
N
ú er byrjað að bólusetja
gegn árlegri inflúensu á öll-
um heilsugæslustöðvum og
víða í fyrirtækjum. Erlend-
is er orðið „vaccination“
(ónæmisaðgerð) notað yfir bólusetn-
ingar, en hér á landi notum við ennþá
hið þjóðlega orð bólusetning og sem
höfðar til árangurs kúabólusetningar-
innar gegn stórubólu á sínum tíma
fyrir rúmlega tveimur öldum og sem
í dag er búið að útrýma. Umræða um
bólusetningar hefur samt því miður
stundum fengið á sig neikvæðan blæ
vegna misskilnings og stundum rang-
túlkana á hugsanlegum aukaverkun-
um örfárra. Vel heppnuð bólusetn-
ing við árlegri inflúensu er hins vegar
talin gefa allt að 70% vörn hjá þeim
sem eru „bólusettir“ og aukaverkanir
eru yfirleitt litlar sem engar.
Hefðu fengið drómasýki
Fyrir rúmlega ári var ég á norrænu
þingi um bólusetningar á Norður-
löndum. Þar voru meðal annarra
rannsókna kynntar athyglisverðar
niðurstöður rannsóknar um auka-
verkanir svínaflensubólusetningar-
innar, sem forðaði okkur frá mikið
verri faraldri en annars hefði orðið.
Sérstaklega var fjallað um hugsan-
legar orsakir tengsla svínaflensu-
bólusetningarinnar (Pandemrix) við
aukna tíðni drómasýki (svefnsýki) í
Finnlandi. Leiddar voru fram sterkar
líkur á að tengslin hefðu senni-
lega mest með veikleika sumra fyrir
drómasýki almennt að gera, og sem
hefði að öllum líkindum þróast hjá
sömu einstaklingum um síðir, óháð
bólusetningunni. Svörunin tengd-
ist líklega efnum í svínaflensubólu-
efninu sem juku ónæmissvarið og
sem var mjög gott (>80%).
Svo sannarlega er tilefni til að rann-
saka aðferðir í framleiðslu á bóluefn-
um með tilliti til hugsanlegra auka-
verkana, þótt auðvitað viljum við líka
geta treyst á sem öflugasta bóluefnið.
Af hverju þetta gerðist í Finnlandi og
í minna mæli í Svíþjóð, er sennilega
vegna mikið hærri tíðni almennt á
drómasýki í þessum löndum. Ekki
ólíkt og gerist með ýmsa gigtarsjúk-
dóma sem eru með ólíka tíðni milli
landa.
Óheftir bólgustormar
Umræða um afleiðingar af Spænsku
veikinni hér á landi fyrir tæpri öld
þegar engin bóluefni voru til stað-
ar, og jafnvel svínaflensunnar fyrir
þremur árum ef við hefðum ekki
haft aðgang að bóluefni í tíma, er
líka áminning um hvernig venjuleg
inflúensa getur hagað sér í verstu
tilfellunum, hjá hverju og einu
okkar. Þegar óheftir bólgustormar
geta herjað á lungu, bein og vöðva
á miðjum vetri, eins og hendi sé
veifað. Flestir fá þó sem betur fer
mildari einkenni, en samt oft með
háum hita og miklum beinverkjum
ásamt slæmum kvefeinkennum.
Börnin fá oft fyrst í magann, jafnvel
með uppköstum, en flestir særindi
í hálsi áður verstu einkennin koma
fram á nokkrum klukkustund-
um. Síðan harður hósti sem tekur
í allt brjóstið, höfuðverkur og verk-
ir í augum. Sótthitinn byrjar yfir-
leitt snögglega og varir síðan í 3–5
daga, stundum lengur. Vikuna á eft-
ir eru flestir hálfslappir með harð-
an hósta. Mikilvægt er því að fara
vel með sig. Ráðlagt er að taka para-
setamól við sótthitanum og bein-
verkjum eftir þörfum.
Mæði og óráð eru
slæm einkenni
Meiri hætta er á fylgisýkingum ef
viðkomandi er veikur fyrir og með
lungnasjúkdóma. Leita á ráðgjafar
til heilsugæslunnar eða vaktþjón-
ustunnar ef fólk er óöruggt með
einkennin, svo sem mæði, illvið-
ráðanlegan hita, óráð og slæman
höfuðverk. Einkenni sem geta líkst
öðrum alvarlegri sýkingum svo sem
heilahimnubólgu og blóðeitrun.
Oftast líða ekki nema nokkrir dagar
frá því einstaklingur tekur smit og
fyrstu einkenna verður vart (2–4
dagar). Smithætta frá þeim sýkta
varir síðan í allt að 1–2 daga eftir
að hitinn er genginn yfir. Flensulyf-
in,tamiflu (hylki) og relenza (úða-
lyf), má stundum nota í verstu til-
fellunum og þá sem allra fyrst. Ólíkt
sýklalyfjum, hefta þau aðeins fram-
gang veirunnar meðan ónæmis-
kerfið tekur við sér og fer sjálft að
framleiða sérhæfð mótefni sem gera
að lokum út af við vírusinn.
Ungbörnin varin
Eldra fólk og sjúklingar með
langvinna sjúkdóma eru sérstak-
lega hvattir til að láta bólusetja
sig gegn árlegri inflúensu á hverju
hausti. Eins er nú mælt með að
verðandi mæður láti bólusetja sig.
Það er ekki síst til að verja ung-
barnið á meðgöngunni og fyrst
eftir fæðingu. Í Bandaríkjunum er
einnig mælt með að öll ungbörn
frá sex mánaða aldri fái inflúensu-
bólusetningu að hausti, enda engin
bólusetning sem kemur jafn oft í
veg fyrir slæmar loftvegsýkingar og
meðfylgjandi fylgisýkingar á vet-
urna og einmitt inflúensubólusetn-
ingin.
Ekki vera hrædd
Það verður ömurlegt að þurfa að
liggja heima, í eina viku eða jafn-
vel tvær í vetur, með slæma flensu
vegna þess eins að við vorum hrædd
við inflúensubólusetninguna. Enn
verra verður að fá hugsanlegar
fylgisýkingar, svo sem skútabólgu,
lungnabólgu eða miðeyrnabólgu.
Hugsum því dæmið í tíma. n
Fróðleikur um neglur
n Aðgreina prímata frá öðrum spendýrum
V
ið veitum nöglum okkar
kannski ekki mikla athygli
og tökum þeim jafnvel sem
sjálfsögðum hlut. Það er þó
svo margt varðandi neglur
sem við vitum ekki en á Huffington
Post má finna 15 atriði um neglur
sem gaman er að fræðast um. Hér
eru nokkur þeirra.
Vaxa 3,5 sentímetra á mánuði
Ef þú ert rétthent/ur vaxa neglurnar
á hægri hendi hraðar. Táneglur vaxa
hægar eða um 1,6 sentímetra á
mánuði.
Hvítir blettir á nöglum
Þeir eru ekki merki um kalkskort
eins og mýtan heldur fram. Sann-
leikurinn er sá að hvítu blettirn-
ir eru mjög algengir, skaðlaus-
ir og gefa enga vísbendingu um
vítamínskort. Rætt er við Jessicu
Krant naglafræðing sem segir að
líklega séu blettirnir vegna eldri
áverka á naglbol og naglrót.
Sama efni og hárið
Bæði neglur og hár
eru gerð úr kera-
tíni, samsetningin
er bara öðruvísi.
Það þýðir að sú fæða
sem er góð fyrir hárið er
einnig góð fyrir neglur. Fjölbreytt
fæða sem er rík af vítamínum,
ávextir sem innihalda andoxunar-
efni, grænmeti, prótein og stein-
efni hafa áhrif á heilbrigði nagla
og hárs. Keratín er prótein og holl-
ar olíur og fita hjálpa til við að
viðhalda raka í húð, hári og nögl-
um og veita styrk.
Neglur karla vaxa hraðar
Eina undantekningin á þessu
er mögulega þegar konur eru
ófrískar.
Að naga neglur kallast
onychophagia
Þetta er algengasti ávaninn sem fólk
grípur til við streitu. Í flokki yfir slíka
hegðun má einnig finna þá hegðun
að snúa upp á hár, hárreyting og húð-
kroppunaráráttu. Um það bil helm-
ingur barna á aldrinum 10–18 ára
nagar neglur en flestir eru hættir því
um þrítugsaldurinn.
Leyfðu nöglunum að anda
Það er í raun mikilvægt að
leyfa nöglunum að fá frí
frá naglasnyrtingunni
reglulega og takmarka
þann tíma sem þær
eru þaktar naglalakki.
Neglurnar er lifandi vef-
ur sem þarf súrefni sem kemst ekki í
gegnum lakkið. Þannig á nöglin erf-
iðara með að verjast sýkingum. Nagla-
lakk þurrkar einnig upp neglurnar og
á endanum verða þær viðkvæmari.
Vaxa hraðar á sumrin
Neglurnar vaxa hægar á veturna en
árstíðir hafa áhrif á vöxtinn, rétt eins
og aldur og erfðir.
Streita hefur áhrif
Auk þess sem margir grípa til þess
ráðs að naga neglur vegna streitu þá
hefur stress áhrif á vöxt naglanna.
Til að ná sem bestum vexti er mikil-
vægt að sofa vel og minnka streituna.
Langvarandi streita og þreyta beina
orku og næringarefnum frá nöglum
og hári.
Naglaböndin hafa tilgang
Þess vegna ráðleggja sérfræðingar
fólki frá því að fjarlægja þau. Þau hafa
þann tilgang að halda inni raka og
halda bakteríum úti. Það ætti því að
láta þau vera.
Aðgreina prímata frá öðrum
spendýrum
Flest spendýr eru með klær sem
hjálpa til við dagleg verkefni en
neglur aðgreina okkur og aðra
prímata frá öðrum spendýrum. n
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Heilbrigðar neglur Aldur,
erfðir, streita og árstíðir hafa
áhrifa á vöxt þeirra.
Lágkolvetnabrauð
Hægt er að baka úr öðrum hráefnum en
hveiti. MyNd PHotoS.coM