Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Qupperneq 18
18 Lífsstíll 9. október 2013 Miðvikudagur Þetta ætti að vera á matseðlinum Þ að þarf ekki að vera flókið að bæta mataræði sitt en með breyttu mataræði get- ur þú minnkað hættuna á hjartaáfalli, haldið þér í kjörþyngd og styrkt ónæmiskerfi þitt. Á síðunni Healthland.time.com hafa nokkrir næringarfræðingar tekið saman 31 tegund matvæla sem allir ættu að neyta. Hér eru nokkur þeirra. Grænkál n Af hverju er það hollt? Grænkálið er ein þeirra grænmetis- tegunda sem vinna gegn krabbameins- myndun og er stútfullt af trefjum og andoxunarefnum. Það er einnig ríkt af K-vítamíni. n Hvernig er gott að nota það? Settu grænkál í ofninn með smá ólífuolíu og salti. Einnig er gott að nota það í grænmetissúpuna. Hitaeiningar: 34–36 í 1 bolla. Lax n Af hverju er hann hollur? Laxinn er ríkur af D-vítamíni og Omega 3-fitusýrum sem eru góðar fyr- ir hjartað. Rannsóknir hafa einnig sýnt að fitusýrurnar vinna gegn öldrun í heila og minnisleysi. n Hvernig er gott að nota lax? Grillaðu laxinn með sítrónu, hvít- lauki og smá sojasósu. Ef það eru af- gangar getur þú geymt þá í ísskápn- um og notað út í salat. Hitaeiningar: 155 í 85 grömmum. Bláber n Af hverju eru þau holl? Ber sem eru skær á litinn eru með mikið af andoxunarefnum. Bláber eru sérstaklega auðug af karótín- óðum og flavanóðum sem eru góð fyrir hjartað, minnið og þvagkerfið. Þau innihalda einnig C- og E- vítamín. n Hvernig er gott að nota þau? Skelltu bláberjum í hafragrautinn eða ab-mjólkina á morgnana. Þau eru líka frábær í heilsudrykkinn. Hitaeiningar: 84 hitaeiningar í 240 millílítrum. Bananar n Af hverju eru þeir hollir? Bananar innihalda mikið kalíum sem er gott fyrir blóðþrýstinginn, vöðvana og meltinguna. Þeir innihalda einnig mikið af trefjum, sem metta þig vel og þú verður lengur saddur. n Hvernig er gott að nota þá? Bananar eru hin fullkomna fæða til að hafa í veskinu. Prófaðu að bæta smá hnetusmjöri við bananann, gómsætt millimál. Bananar eru líka fullkomnir út á morgunkornið. Hitaeiningar: Einn lítill banani er 90 hitaeiningar. Spínat n Af hverju er það hollt? Spínat er stút- fullt af næring- arefnum eins og járni, kalki og A-vítamíni sem er nauðsynlegt fyrir sjónina og húðina. Spínat er einnig auðugt af fólati sem er gott fyrir blóðmyndun og er talið eiga þátt í að koma í veg fyrir fæðingargalla. n Hvernig er gott að nota það? Notaðu spínat í salatið, á samlok- una eða í eggjahræruna. Hitaeiningar: Í einum bolla eru 7 til 21 hitaeining. Tómatar n Af hverju eru þeir hollir? Það þekkja all- ir tómatana en þeir innihalda langan lista af næringarefnum, svo sem A-, C- og K- vítamín. Rauði liturinn stafar af andoxunarefninu lycopene sem heldur sýkingum niðri sem og kól- esteróli. n Hvernig er gott að nota þá? Þetta vita flestir en það má nota þá í nánast allt. Þeir eru til dæmis frá- bærir í súpur. Hitaeiningar: Í einum bolla eru 32–43 hitaeiningar. Linsubaunir Jafnvel þótt þú sért ekki mikill aðdá- andi bauna ættir þú að prófa þessar. Það er auðvelt að nota þær í matar- gerð en óþarft er að láta þær liggja í bleyti. Þær eru auk þess ekki með gasmyndandi efni eins og aðrar baunir. n Hvernig er gott að nota þær? Þær eru frábærar í súpur, í græn- metisborgara eða út á salatið. Hitaeiningar: Í ½ bolla eru 115 hitaeiningar Eggaldin n Af hverju er það hollt? Eggaldinið er fullt af trefjum og B-vítamíni sem veitir þér orku. Fjólublái liturinn gefur til kynna að það innihaldi mikið af góðum andoxunarefnum sem verja heila- sellur. n Hvernig er gott að nota það? Það er hægt að nota eggaldin á mjög fjölbreyttan hátt í matargerð. Það má baka það, grilla, nota í ídýfur og sósur eða sem meðlæti. Hitaeiningar: Í ½ bolla af elduðu eggaldini eru 17 hitaeiningar. Dökkt súkkulaði n Af hverju er það hollt? Ef þú vilt gera vel við sjálfan þig þá er dökkt súkkulaði tilvalið til þess. Það er hollara en mjólkursúkkulaði þar sem það er mikið af kókó í því en það er fullt af andoxunarefn- inu flavónol. Það er lítið af því efni í mjólkursúkkulaðinu. Andoxunar- efnið hjálpar til við að minnka hætt- una á blóðtappa og lækkar blóð- þrýsting. Nýleg rannsókn sýnir jafnframt að þeir sem borða örlítið af dökku súkkulaði fimm sinnum í viku eru léttari en þeir sem gera það ekki. n Hvernig er gott að nota það? Vertu með dökkt súkkulaði á þér og fáðu þér lítinn bita þegar þig langar í sælgæti. Hitaeiningar: Í 28 grömmum eru 170 hitaeiningar. Rauðvín n Af hverju er það hollt? Ef þú getur drukkið á skynsaman hátt og hóflega er rauðvínið, svip- að og súkkulaðið, gott fyrir þig. Ráðlagt er að karlmenn drekki ekki meira en tvö glös á dag og konur eitt glas. Efnasambönd í rauðvíni sem heitir reseratrol hefur verið tengt við langlífi og minni hættu á sykursýki og hjartasjúkdómum. n Hvernig er gott að nota það? Það er engin röng eða rétt leið til að njóta rauðvínsglass. Hitaeiningar: Í 100 grömum eru 87 hitaeiningar. Valhnetur Yfirleitt eru hnetur hitaeininga- og fituríkar en fitan er þó einómett- uð sem er hollari fita. Það er einnig mikið af Omega 3-fitusýrum sem eru góðar fyrir hjartað. Í nýlegri rannsókn kemur fram að valhnetur innihalda meira af andoxunarefn- um en aðrar hnetur. n Hvernig er gott að nota þær? Bættu þeim út í morgunkornið, jógúrtina og brauðið. Hafðu bara í huga að þær eru hitaeiningaríkar. Hitaeiningar: Í 28 grömmum eru 185 hitaeiningar. n Bættu heilsu og líðan með hollu mataræði n Lax, spínat og rauðvín Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Hollusta Rétt mataræði hjálpar til við að forðast sjúkdóma og styrkja ónæmiskerfið. Fallegar konur komast áfram Í nýrri bók sinni, The XX Factor, rannsakar Alison Wolf vinnu- umhverfi kvenna og karla. Hún skoðar lífseigar mýtur um kon- ur, til að mynda að þær séu síð- ur í samkeppni og biðji ekki um launahækkanir. Alice kollvarpar þessum mýtum og segir kynja- muninn minni í þessum efnum en margir telja. Alice finnur helst einn mun á aðstöðu kynjanna á vinnumarkaði – að fallegar konur komist fremur áfram en hinar. Hjá körlum skipti útlitið einnig máli en minna en hjá konum. Súkkulaðilaus heimur 2020 Sérfræðingar vara við því að kakó- baunabirgðir heimsins verði uppurnar þann 2. október 2020. Frá þessu segir á fréttamiðlinum Daily Star. Súkkulaðiframleiðendur segja ekki nægilega mikið af ræktarlönd- um fyrir kakóbaunir til að mæta sí- vaxandi eftirspurn á heimsvísu. Angue Kennedy súkkulaði- smakkari er í viðtali við Daily Star og segir brátt munu bera á skorti á súkkulaði og það sé engin lausn í sjónmáli. Í raun þurfi 2,3 jarðir til að uppfylla þarfir mannsins fyrir súkkulaði. „Við þurfum aðra jörð ef við höldum svona áfram,“ segir Kennedy. Hlýir og fallegir vettlingar Margrét María Leifsdóttir prjóna- kona með meiru hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu þar sem kaupa má vettlinga hennar á vefslóðinni margretmaria.com. Margrét María prjónar vett- linga undir áhrifum frá uppá- haldstískuhönnuðum sínum og eiga prjónamynstrin rætur sínar að rekja til þeirra. Margrét María hefur lengi fengist við að búa til mynstur og gaf hún í fyrra út bókina Vettlinga sem margir gripu án efa fegins hendi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.