Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2013, Blaðsíða 14
14 Neytendur 9. október 2013 Miðvikudagur algengt verð 243,9 kr. 249,8 kr. algengt verð 243,7 kr. 249,6 kr. höfuðborgarsv. 243,6 kr. 249,5 kr. algengt verð 243,9 kr. 249,8 kr. algengt verð 245,9 kr. 249,8 kr. Melabraut 243,7 kr. 249,6 kr. Eldsneytisverð 8. október Bensín Dísilolía BL innkallar Nissan-bifreiðar BL ehf. hefur innkallað 564 Nissan- bifreiðar en um er að ræða Qash- qai J10-bifreiðar framleiddar á tímabilinu 1. desember 2006 til 15. maí 2012 og X-Trail T31-bifreiðar framleiddar á tímabilinu 29. nóv- ember 2006 til 11. október 2011. Á síðu Neytendastofu segir að ástæða innköllunarinnar sé sú að á slæmum vegum geti reim CVT- skiptingar snuðað með þeim af- leiðingum að það getur orðið vart við titring og/eða gripmissi í drif- hjólum. Ef ökutæki sé ekið áfram í þessu ástandi geti sú staða kom- ið upp að bilanaljós (MIL) komi upp með tilheyrandi óþægindum. Þessi innköllun eigi aðeins við varðandi uppfærslu á stjórnboxi og ekki sé um að ræða mekaníska bilun inni í skiptingu. Ekki hafi orðið vart við slys af þessum völdum. Viðkomandi bifreiðar- eigendur munu fá sent bréf vegna þessarar innköllunar. Vetrarakstur dýrari Bíllinn eyðir mismiklu eldsneyti eftir árstíðum en umtalsverður munur er á eyðslu bílsins í vetrar- kuldunum en um hásumarið þegar hlýjast er í veðri. Á heimasíðu FÍB segir að hægt sé vinna gegn þessu með því að setja vélarhitara í bílinn en hann hiti vélina upp í námunda við vinnsluhita þannig að hún og innanrými bílsins sé heitt þegar bíllinn er ræstur og eyðslutölurn- ar snarlækka. Ef ekki sé unnt að setja hitara í bílinn þá má til dæm- is varast að nota afturrúðu-, sæta- og speglahitarana meira en góðu hófi gegnir. Einnig skal athuga að loftþrýstingurinn í dekkjunum sé minnst sá sem hann á að vera sam- kvæmt handbók bílsins og gjarnan um það bil 0,2 loftþyngdum hærri þegar kuldinn ríkir. Keyra vélina á sem lægstum snúningi og ekki láta hana erfiða og muna að snattferðir kosta mikið. Því ættu allir að draga úr slíkum akstri svo mikið sem kostur er. Verð og gæði fara saman n Dekkin eru mikilvægt öryggisatriði í umferðinni n Óformleg verðkönnun Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Þ að getur verið þónokkur verðmunur á vetrardekkj- um en gjaldið fyrir að láta umfelga bílinn er afar svip- að hjá fyrirtækjum. Veturinn er farinn að minna á sig og snjórinn er farinn að láta sjá sig víða um land. Það er kominn tími til að huga að vetrardekkjunum og DV hafði samband við nokkur fyrirtæki sem selja vetrardekk og bað um verð á heilsárs-, vetrar- og nagladekkjum, undir fólksbíla annars vegar og jeppa hins vegar. Einnig var spurt um verð á umfelg- un. Þar kom í ljós að Dekkjahöllin er oftast með lægsta verðið. Neyt- endur er hvattir til að íhuga vel val á vetrardekkjum en þegar kemur að dekkjum þá gildir oftast sú regla að verð og gæði fara saman. Kynna sér gæða- og endingarmun dekkja Þessi óformlega könnun sýnir að töluverður verðmunur er á vetrar- dekkjum en spurt var um verð á þeim dekkjum sem viðkomandi fyrir tæki myndu mæla með. Tekið skal fram að ekki er tekið tillit til gæða dekkjanna eða endingartíma þeirra í verðsamanburðinum og ekki var beðið um útsölu- eða til- boðsverð. Því ættu neytendur að fylgjast með auglýsingum um tilboð. Auk þess er mikilvægt að neytendur kynni sér gæða- og endingarmun dekkjanna. Þá er einnig vert að nefna að verðdæmin sem gefin eru hér eru ekki tæmandi fyrir þessi fyr- irtæki og einungis brot af því úrvali af dekkjum sem til boða stendur. Þeir sölumenn dekkja sem DV ræddi við voru sammála um að dekk væru misjöfn að gæðum og þar af leiðandi í verði. Einnig sé um- felgun ökutækja ábyrgðarhlutverk þar sem ekkert megi bregða út af. n Bílabúð Benna Edilon Hellertsson segir að það sem fólk þurfi að hafa í huga við kaup á vetrardekkj- um sé að það sé gríðarlega mikilvægt ör- yggisatriði. „Það er munur á verði og kostn- aði en þú vilt vera öruggur með veggrip, ná góðri endingu og það þarf að vera þægilegt að hafa þau undir bílnum. Of hörð og há- vær dekk eru allt of algengar athugasemdir við ódýru vöruna. Það að spara ákveðna upphæð við kaup á dekkjum gæti þýtt óör- yggi í umferðinni ef bíllinn rennur til, mikið veghljóð og óþægilegt að fara yfir til að mynda hraðahindranir. Ásamt því að þurfa jafnvel að kaupa annan gang af dekkjum mun fyrr en gert var ráð fyrir vegna slakrar endingar.“ Hann segir að harðskeljadekk séu vetrardekk en séu þó orðin vinsælustu heilsársdekkin í flestum stærðum. Þau séu umhverfisvæn, endingargóð og veita gríðarlega gott veggrip. Fólksbíladekk 175/65R14: Heilsársdekk BFGoodrich Geforce Winter. Verð 14.490 kr. Vetrardekk Toyo GSI5 harðskeljadekk Verð 15.990 kr. Nagladekk Toyo G2S Verð 16.980 kr. Umfelgun stál: 6.662 kr. Ál: 7.164 kr. 10% staðgreiðsluafsláttur Jeppadekk 235/65R17 Heilsársdekk Toyo GSI5 harðskeljadekk Verð: 45.990 kr. Vetrardekk TOYO GSI5 harðskeljadekk Verð 45.990 kr. Nagladekk: TOYO Ice Terrain Verð 43.980 kr. Umfelgun: stál: 7.776 kr. Ál: 8.855 kr. 10% staðgreiðsluafsláttur Dekkjahöllin Elín Dögg Gunnarsdóttir hjá Dekkja- höllinni segir að þegar kem- ur að vali á vetrardekkj- um sé mikilvægt að hafa í huga að fólk hér á landi keyri við margvíslegar og oft erfiðar vetraraðstæður. Á meðan sumir aki við aðstæð- ur sem krefjast nagladekkja, þá henti öðrum að nota heilsársdekk, loftbóludekk eða ónegld vetrardekk. Starfs- menn Dekkjahallarinnar séu þjálfaðir í að veita faglega ráðgjöf við val á hjólbörðum. Fólksbíladekk 175/65R14: Heilsársdekk SONAR PF2 Verð: 10.911kr. Vetrardekk Yokohama IG35 Verð: 12.241kr. Nagladekk Marangoni Verð: 11.730 kr. Umfelgun á ál- og stálfelgum Verð: 5.993 kr. Jeppadekk 235/65R17 Heilsársdekk Marangoni Meteo HP Verð: 23.533 kr. Vetrardekk WinterClaw Verð: 26.207 kr. Nagladekk Yokohama IG35 Verð: 19.701 kr. Umfelgun á stál- og álfelgum Verð: 7.678 kr. Max1 „Við hjá MAX1 leggjum áherslu á að veita viðskiptavinum ráðgjöf um val á dekkj- um því það er mjög mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Dekk eru ekki bara dekk því þau hafa mismunandi eiginleika. Við kaup á dekkjum þarf að taka mið af tegund bílsins, gerð, stærð, þyngd, hvernig og hvar hann er notaður. Á markaðnum er í boði fjöldinn allur af dekkjum sem eru ólík að gæðum. Við hjá Max1 leggjum mikla áherslu á öryggi og bjóðum eingöngu upp á Nokian gæðadekk á góðu verði,“ segir Sigurjón A. Ólafsson, framkvæmdastjóri Max1. Fólksbíladekk 175/65R14: Heilsársdekk. Nokian WR D3 Verð: 17.555 kr. Vetrardekk Nokian Hakkapeliitta R2 Verð: 25.160 kr. Negld dekk Nokian Nordmann Verð: 18.574 kr. Negld dekk Nokian Hakkapeliitta 8 Verð: 25.905 kr. Umfelgun stál: 5.054 kr. Ál: 5.474 kr. Jeppadekk 235/65R17: Heilsársdekk Tegund: Nokkian WR SUV3 Verð: 41.376.- Vetrardekk Tegund: Nokian Nordmann SUV Verð: 48.223.- Negld dekk Tegund: Nokian Nordmann Verð: 49.133.- Negld dekk Tegund: Nokian Hakkapeliitta 7 Verð: 58.847.- Umfelgun stál: 5.896 kr. Ál: 6.948 kr. Sólning „Það sem fólk þarf helst að huga að við kaup á vetrardekkjum er að velja það sem hentar þeirra notkunarmunstri. Þarna kem- ur aðstoð fagmanna við val á dekkjum að miklu gagni. Sumir vilja nota nagla en aðrir ekki, og þá spilar inn í hvort fólk er búsett á snjóléttum eða snjóþungum svæðum, og hvort fólk er eingöngu innanbæjar í Reykja- vík eða akandi fjallvegi við erfið skilyrði. Starfsfólk Sólningar hjálpar fólki að velja dekk sem henta hverjum og einum en við bjóðum upp á kornadekk, vetrardekk negld og ónegld, og heilsársdekk, á allar stærðir bifreiða,“ segir Jón Hauksson hjá Sólningu. Fólksbíladekk 175/65R14: Heilsársdekk Nankang Winter Activa SV-1 Verð: 11.690 kr. Vetrardekk Hankook Icept W606 kornadekk Verð: 14.390 kr. Kingstar Winter SW-41 Verð: 11.690 kr. Nagladekk Hankook Ipike W419 Verð: 15.380 kr. Kingstar Winter SW-41 Verð: 13.580 kr. Umfelgun stál: 5.990 kr. Ál: 6.490 kr. Jeppadekk 235/65R17 Heilsársdekk Nankang Winter Activa SV-1 Verð: 26.990 kr. Vetrardekk GT Radial Champiro IcePro Verð: 26.990 kr. Mastercraft MSR Verð: 32.390 kr. Nagladekk GT Radial Champiro IcePro Verð: 29.800 kr. Mastercraft MSR Verð: 35.200 kr. Umfelgun stál- og álfelgur: 7.992 kr. Vetrarakstur Mikilvægt er að hafa góð vetrardekk undir bílnum. Gæðakönnun Ekki hafa verið birtar niðurstöður úr árlegri vetrardekkjakönnun sem systur- félög Félags íslenskra bifreiðaeigenda í Evrópu gera. Hér má sjá niðurstöður könnunarinnar í fyrra en FÍB benti þar á að þeir stóru tróni á toppinum: Negld dekk: 1.–3. sæti: Continental Conti Ice Contact Goodyear Ultra Grip Ice Arctic Nokian Hakkapeliitta 7 Ónegld dekk: 1. sæti: Nokian Hakkapeliitta R 2.–4. sæti: Continental Viking 5 Dunlop SP Ice Sport Goodyear Ultra Grip Ice+ ath. * Verð er stykkjaverð Takmarkaðu eld- húsrúllunotkun Það má sparar pening og draga úr slæmum umhverfisáhrifum með því að minnka notkun á eldhús- rúllunni. Á matarkarfan.is segir að vel megi nota gömul dagblöð til að hreinsa glugga og spegla og nota svampa til að þurrka af borðum. Svo má plata sjálfan sig og setja eldhúsrúlluna á stað sem erfitt er að ná til en geyma tuskur á þægi- legum og aðgengilegum stað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.