Hagskýrslur um mannfjöldaþróun - 01.01.1963, Blaðsíða 25
23*
Mannfjöldaskýrslur 1951—60
Á 1000 manns komu
Lifandi Andvana Fæddir Lifandi Andvana Fœddir
fæddir fæddir alls fæddir fæddir alls
1944 3 213 94 3 307 25,3 0,7 26,0
1945 3 434 65 3 499 26,6 0,5 27,1
1946 3 434 70 3 504 26,1 0,5 26,6
1947 3 706 56 3 762 27,6 0,4 28,0
1948 3 821 81 3 902 27,8 0,6 28,4
1949 3 884 67 3 951 27,8 0,5 28,3
1950 4 093 66 4 159 28,7 0,6 29,3
1951 3 999 62 4 061 27,5 0,4 27,9
1952 4 075 78 4 153 27,6 0,5 28,1
1953 4 254 65 4 319 28,3 0,4 28,7
1954 4 281 69 4 350 27,8 0,4 28,2
1955 4 505 63 4 568 28,6 0,4 29,0
1956 4 603 65 4 668 28,6 0,4 29,0
1957 4 725 66 4 791 28,7 0,4 29,1
1958 4 641 63 4 704 27,5 0,4 27,9
1959 4 837 60 4 897 28,1 0,4 28,5
1960 4 916 63 4 979 28,0 0,4 28,4
Árleg meðaltöl 1941—45 3 092 72 3 164 24,7 0,6 25,3
1946—50 3 788 68 3 856 27,6 0,5 28,1
1951—55 4 223 67 4 290 28,0 0,4 28,4
1956—60 4 745 63 4 808 28,2 0,4 28,6
Til samanburðar við eldri tölur má geta þess, að á árunum 1876—85 var fæð-
ingarhlutfallið (lifandi fæddir) 31,4°/00, um aldamótin nálægt 29°!^, um 1920
25—28°/00, og í kringum 1930 25—26°/00. Næstu ár fór það lækkandi og varð lægst
1939, 19,8°/00. Á stríðsárunum fór fæðingarhlutfallið aftur hækkandi eins og ofan
greindar tölur sýna, og síðan 1947 hefur það haldizt nálægt 28°/00.
Samkvæmt skilgreiningu á fæðingarskýrslueyðublaðinu eru þau börn talin
andvana, sem fæðast án lífsmarks eftir að liðnar eru 28 vikur meðgöngutímans.
Lifandi fædd munu samkvæmt því talin öll þau börn, sem fæðast með einhverju
lífsmarki, hversu veikt sem það er, og án tillits til meðgöngutíma. Þetta er í sam-
ræmi við skilgreiningu hagstofu Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar á andvana fæðingu, en í ljósmæðrareglugerð frá 23. okt. 1933 er skil-
greining, sem kemur ekki alveg heim við þetta. Samkvæmt skilgreiningu reglu-
gerðar þessarar skulu þau börn, sem fæðast með lífsmarki, en ná því þó ekki að
anda sjálfkrafa, ekki talin lifandi fædd, heldur andvana. Af þessum sökum má
ætla, að andvana fædd börn sé aðeins oftahn, ef miðað er við skilgreiningu alþjóða-
stofnana á hugtakinu andvana fæðing. Þó geta mörkin milli andvana fædds barns
og fósturláts stundum verið óviss, þótt sjálf skilgreiningin sé skýr, þ. e. 28 vikna
meðgöngutími. Verður í reynd oft að styðjast við þroska fóstursins (sé t. d. líkams-
lengd þess fullir 35 cm mun tahð, að um andvana fætt barn sé að ræða, en ekki
fósturlát).
Andvana fæddum börnum hefur fækkað hlutfallslega, svo sem eftirfarandi
tölur 8yna. Tala andvana fœddra af 1000 fæddum
sveinum meyjum sveinum og meyjum
1906—15 34 27 30
1916—25 27 26 27
1926—35 26 20 23
1936—45 24 21 22
1946—55 19 14 17
1956—60 15 11 13