Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Side 2
Í herferð Vodafone er lufsum sem
líkjast íslenska fánanum sundur-
klipptum flaggað óspart. Fyrirtæk-
ið er nú rannsakað af lögreglunni
á Akureyri vegna gruns um brot á
fánalögum líkt og DV greindi frá fyrr
í vikunni.
Í fánalögum er skýrt kveðið á um
að fánanum skuli engin óvirðing
sýnd í orði eða verki, auk þess sem
ýmis ákvæði önnur gilda um notk-
un hans. Vodafone er þó langt því
frá fyrsti aðilinn sem misstígur sig
í meðferð fánans. Það þarf kannski
ekki að koma mjög á óvart, enda eru
fánalög og -reglur mjög í nákvæm-
ari kantinum.
Vanhelgaður á
þjóðhátíðardaginn
Ekki er lengra síðan en á þjóð-
hátíðardaginn sjálfan sem lögregla
þurfti að hafa afskipti af fánad-
ólgum. Eins og margir muna eftir
príluðu anarkistar upp á stjórnar-
ráðið og drógu byltingarfána Jör-
undar hundadagakonungs að húni
ásamt þjóðfánanum við mikinn
hrylling fánaunnnenda.
Uppátækið var að anarkistanna
sögn ætlað sem virðingarvottur við
Jörund sem vildi færa valdið til al-
mennings. Sjálfir töldu þeir þjóð-
fánann án efa hafa vanhelgast við
athæfið.
Svo virðist sem 17. júní sé í miklu
uppáhaldi hjá fánadólgum, því
árið 2007 nýttu aðrir mótmælend-
ur tækifærið og vanvirtu fánann.
Þá strengdu meðlimir Saving Ice-
land risavaxna eftirlíkingu íslenska
fánans á vinnupalla við Þjóðleik-
húsið í mótmælaskyni við álfram-
leiðslu á landinu.
Sá galli var hins vegar á fána
mótmælendanna að hann uppfyllti
hvorki lög um hlutföll þjóðfánans
né merkingar. Á fánann höfðu ver-
ið saumuð merki ýmissa álframleið-
enda, en eins og allir ættu að vita
mega aðeins merki tollgæslunnar
og skjaldarmerkið prýða íslenskan
fána.
Forsetinn fánadólgur?
Svo virðist sem enginn sé óhultur
fyrir hinum langa armi fánalaganna.
Sjálfur Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti lýðveldisins, fékk skömm í
hattinn frá Birni Bjarnasyni dóms-
málaráðherra vegna þess sem hann
kallaði „stílbrot“ við nýársávarp for-
setans. Þá höfðu þau mistök átt sér
stað að fáninn hékk við vinstri öxl
forsetans er hann flutti ávarp sitt.
Orðrétt sagði Björn á heimasíðu
sinni: „Íslenski fáninn sómir sér
vel í sal alþingis við hægri öxl þess,
sem situr á forsetastóli þingsins og
ræðumanns í salnum. Þarna er farið
að reglum um stað fánans. ... Þegar
forseti Íslands flytur þjóðinni nýárs-
ávarp sitt úr sal Bessastaða, er ís-
lenski fáninn hins vegar við vinstri
öxl forsetans. Þetta er stílbrot.“
Afreksmenn og Jesú Kristur
Fáninn hefur jafnframt ver-
ið misnotaður í þágu listarinnar
við misjafnan fögnuð þjóðarinnar.
Rokksveitin Mínus lét gera nokkuð
pönkaða boli með nafni sínu árið
2004. Það hefði ekki verið í frásögur
færandi nema fyrir þá staðreynd að
á bolunum var mynd af Jesú Kristi
krossfestum á krossi íslenska fánans.
Bolirnir vöktu mikið umtal og ein-
hverja hneykslan.
Gárungar hafa stundum hent að
því gaman hvað myndi gerast ef Ís-
lendingur ynni alþjóðlegt íþróttamót.
Erlendir íþróttamenn hafa það að sið
að grípa þjóðfána sinn, veifa honum
og láta öllum illum látum. Fáninn vill
þá oft dragast eftir jörðinni í hama-
ganginum. Íslenska fánann þarf hins
vegar að brenna ef hann snertir jörð.
Jón Arnar Magnússon tugþraut-
arkappi fann líklegast bestu lausnina
á þessu vandamáli og flaggaði henni
á Ólympíuleikunum 1996. Hann lit-
aði skegg sitt einfaldlega í fánalitun-
um, reyndar við mismikla hrifningu
tískuspekúlanta.
Þetta helst
föstudagur 25. júlí 20082 Fréttir DV
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
DV greindi frá því á mánu-
dag og þriðjudag að faðir og
dóttir hans fengu að hittast
í fyrsta skipti í tíu mánuði.
Allan þann tíma hafði móð-
ir stúlkunnar komið í veg fyrir að
feðginin hittust. Móðirin neitaði
að láta stúlkuna af hendi mánuð-
um saman og valdi að greiða frekar
dagsektir en að senda stúlkuna
til dvalar hjá föður sínum eins og
kveðið hafði verið upp úr með í
dómi um forsjá og umgengnis-
rétt. Fulltrúar sýslumanns og
barnaverndarnefndar fóru með
föðurnum til að tryggja að móðirin afhenti honum stúlkuna. Stúlkan
og móðirin voru ekki heima þegar að var komið en fundust á heimili
ömmu og afa stúlkunnar í móðurætt. Ekki kom til þess að lögregla yrði
kölluð á staðinn eins og búist hafði verið við að gæti gerst.
barnið sótt
Stjörnurnar takaSt á
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
mánudagur 21. júlí 2008 dagblaðið vísir 131. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
StuðningSmenn Bjarkar BrugðuSt hart við þegar BuBBi morthenS Sagði að hann hefði frekar viljað Sjá Björk og Sigur róS halda tónleika um fátækt en umhverfiSvernd.
Móðirin hundsar fjölda dómsúrskurða
Hefur ekki séð dóttur sína í 10 mánuðiDóttirin sótt með lögregluvaldi í dag
ÍBúar á kjalarneSi hafa fengið Sig fullSadda á ólykt frá SvÍna- og kjúklingaBúum. þeir Segja óBærilegt að vera úti við þegar úrgangurinn er Borinn á tún.
fréttir
Matarboðið Dregur Dilk á eftir Sér
gróf Brot gegn umgengniSrétti föður Í Sex ár:
LOgregLA
SÆKIr
BArNIÐ
StærSta tapið í
áratugi
Skagamenn töpuðu 6–1 fyrir Blikum Sem tættu Skagavörnina Í Sig. Ía hefur aldrei tapað með meiri mun Í efStu deild og aðeinS tviSvar með fimm marka mun. það gerðiSt SÍðaSt árið 1976 og þar áður árið 1966 þegar Skagamenn féllu Ífyrra Skiptið Í Sögu Sinni úr efStu deild.
Sport
fréttir
jón magnúSSon þingmaður furðar Sig á þvÍ að ólafur ragnar grÍmSSon forSeti hafi farið út að Borða með mörthu Stewart, dæmdri konu.
kúgaSt ákjalarneSi
fréttir
Nýi Íslandsvinurinn Martha
Stewart var meðal gesta í
matarboði á Bessastöðum
síðasta laugardag. Þar voru
ásamt forsetahjónunum,
Ólafi Ragnari Grímssyni
og Dorrit Moussaieff, nokkrir af
helstu auðmönnum þjóðarinnar.
Martha ferðaðist mikið um land-
ið þá daga sem hún var hérna og
voru forsetahjónin þá stundum í
för með henni, Martha og Dorrit
eru vinkonur til margra ára. Þegar
Martha kom hingað síðasta föstu-
dag kom hún sér fyrir í forseta-
bústaðnum á Laufásvegi í Reykja-
vík. Hún fór líka á Bessastaði og
hitti þar forsetann og kynnti sér
aðstæður áður en þau fóru í mat á
Stokkseyri. Þegar Martha fór voru
forsetahjónin samferða henni enda öll á leið til New York.
Matarboð á bessastöðuM
BiLARf i m m t u d a g u r 2 4 . j ú l í 2 0 0 8umsjón: Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
Bílaframleiðand
inn Lotus frum
-
sýndi nýjan bíl
á bílasýningun
ni í
London sem hó
fst á mánudag. Þ
etta
er fyrsti nýi bíll
inn frá Lotus fr
á því
árið 1995 eða í
ein 13 ár en bíl
linn
kallast Lotus Ea
gle. Hann er væ
nt-
anlegur á marka
ð vorið 2009 og
um
2000 bílar verð
a framleiddir. E
ag-
le er með 3,5 lít
ra V6-vél sem e
r ein
277 hestöfl.
Forsvarsmenn
Lotus hafa hald
-
ið því fram að h
inn fislétti Eagle
hafi
náð betri tíma
í Nürnberg-hrin
gn-
um en Elise-bíll
inn er frá þeim.
Nýr Lotus
frumsýndur í Lond
on
Bílasýningin í Lo
ndon
BMW umhverfisv
ænstur lúxusbíla
Fisker í Finnland
i
Lifir Camaro?
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
dv.is
besta rannsóknarblaðamennska ár
sins
RúnaR BjaRki RíkhaRðsson, sem vaR dæmduR til 18 á
Ra fangels-
isvistaR fyRiR hRottafengið moRð og nauðgun, lyft
i 291
kílói í kRaftlyftingum á kvíaBRyggju. hann hefuR n
otað
tímann í fangelsi til að Byggja upp líkama sinn. ho
num
hefuR veRið lýst sem hættulegasta fanga landsins
.
fimmtudagur 24. júlí 2008 dagbla
ðið vísir 134. tbl. – 98. árg. – verð k
r. 295
forsetinn
bauð i
veislu
Kraftlyftingar
á Kvíabryggju
auðmenn hafa hin síðaRi áR sótt í jaRðiR
Bænda, meiRa að segja foRmaðuR Bænda-
samtakanna fékk ekki fRið.
vildu Kaupa jörð
bændaformanns
íslandsheimsókn sjónvaRpsstjöRnunnaR möRthu
stewaRt:
matarboð á bessastöðum fyrir mörthu stew
-
art og nokkra helstu auðmenn þjóðarinnar
martha dvaldi í forsetabú-
staðnum á laufásvegi
fór í útsýnisflug með einka-
þotu og heillaðist af jöklunum
forsetahjónin fóru til
new york með mörthu
al
lt
um
HE
im
sÓ
Kn
mö
rt
Hu
st
EW
ar
t
fréttir
fréttir
engaR sættiR hafa náðst í kjaRa-
deilu slökkviliðsmanna á kefla-
víkuRflugvelli. flugvölluRinn
gæti lokast um næstu mánaða-
mót ef ekki semst.
Óvissa
um flugið
fréttir
bílar 2
Upphaflegi gæsluvarð-
haldsúrskurðurinn yfir
Þorsteini Kragh, sem
grunaður er um aðild
að einu stærsta fíkni-
efnasmyglmáli Íslands-
sögunnar, rann út á miðviku-
dag. Ekki kom þó til þess að
honum yrði sleppt úr haldi
því héraðsdómari framlengdi
gæsluvarðhaldið. Sömu sögu
er að segja af Hollendingi
sem var tekinn með fíkniefnin
við komuna hingað til lands.
Hestahvíslarinn Monty Rob-
erts, sem varð heimsfrægur
í kvikmynd þar sem Robert
Redford fór með hlutverk
hans, vill fyrir alla muni að
Þorsteinn losni úr gæsluvarð-
haldi. Hann skilur ekkert í því að menn fái ekki
lausn úr haldi gegn tryggingu. Sýning hestahvíslarans er í uppnámi
vegna gæsluvarðhalds Þorsteins, sem er umboðsmaður hans.
kragh áfraM í fangelsi
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
dv.isbesta rannsóknarblaðamennska ársins
Vodafone hefur Verið sakað um að brjóta fánalög með nýjum auglýsingum. talsmenn fyrirtækisins segja ekki um þjóðfánann að ræða heldur lufsur sem líkist honum.
miðvikudagur 23. júlí 2008 dagblaðið vísir 133. tbl. – 98. árg. – verð kr. 295
vill frelsa
kragh
fréttirlögreglan rannsakar vodafone
fréttir
hestahvíslari
Þorsteinn kragh og Hol-lendingurinn fyrir dóm
gæsluvarðhald hans og Hollendingsins rennur út
Hestahvíslarinn frægi, Monty roberts, er hissa
á íslensku réttarkerfi
stórsöngVarinn björgVin halldórs-
son ætlar að breyta Verulega
um stíl á nýrri sólóplötu sinni.
Björgvinkemur á óvart
fólk
bjálkahúsið sem guðmundur jónsson, fyrrVer-
andi forstöðumaður í byrginu, byggði sér er
komið á sölulista. sölumaðurinn telur ekki að
orðspor guðmundar hindri söluna.
spron selur BjálkaHús guðMundar í Byrginu
„eins hallærislega og það hljómar Vildi ég einfaldlega hjálpa ríkinu,“ segir tryggVi þór herbertsson sem lækkar í launum Við að gerast efnahagsráðgjafi forsætisráðherra.
lækkarí launuM
fréttir
3
Fjórðu atrennu Guðjóns
Þórðarsonar sem þjálfara
ÍA lauk í upphafi vikunn-
ar þegar honum var sagt
upp störfum eftir 6-1 tap
gegn Breiðabliki. Erfitt gengi
í öllum mótum í sumar varð
banabiti hans. Í stað Guðjóns
voru tvíburarnir Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir ráðnir þjálfarar
liðsins. Þeirra bíður það verkefni
að bjarga ÍA frá falli. Takist það
verður þetta í annað skipti sem
bræðurnir bjarga ÍA frá falli. Þeir
tóku við stjórn liðsins árið 2006
þegar Ólafur Þórðarson var rek-
inn vegna slaks gengis liðsins.
tvíburarnir snúa aftur
Þriðjudagur 22. júlí 2008 17
Sport
Heiðursmannasamkomulag Hjá Ía o
g FH arnar og Bjarki
gunnlaugssynir sem taka við liði ía af guðjó
ni Þórðarsyni munu hvorki
leika með né stýra liðinu í næsta leik. Næsti l
eikur er einmitt gegn FH
sem tvíburarnir leika núna með og hafa liðin
gert heiðursmannasam-
komulag sín á milli um að arnar og Bjarki sta
rfi ekki með ía í þeim leik.
Fyrri leik liðanna á leiktíðinni lauk með 2-0 si
gri FH í Kaplakrika. Ekki er
óalgengt að gera slíkt heiðursmannasamkom
ulag og stendur nær allt-
af. Það er að undanskildu máli Valsmanna og
Framara um danann Bo
Henriksson sem allt varð vitlaust út af þegar
Valsmenn sögðu Framara
hafa brotið samkomulag er hann lék með Fr
am gegn Val.
Bjargar Bjarki Ía Í þriðja sinn? Takist t
víburunum arnari og Bjarka gunnlaugssonu
m
að bjarga ía úr þeim hremmingum sem liðið
er komið í verður það í þriðja skiptið sem Bja
rki
bjargar ía. Þeir tvíburar björguðu liðinu 2006
þegar þeir tóku við ía á miðju tímabili. Þá ly
ftu þeir
Skaganum úr fallsæti upp í það sjötta á aðein
s hálfu móti og þótti ía leika einstaklega ske
mmti-
legan bolta undir þeirra stjórn. Bjarki kom ei
nnig til ía 2002 þegar liðið lék sem ríkjandi ís
lands-
meistari. Þá hafði liðið ekki unnið sigur í fimm
fyrstu leikjunum en með Bjarka í fararbrodd
i
breyttist leikur liðsins og segja stuðningsme
nn ía að hann hafi hreinlega bjargað þeim fr
á falli.
LESTU NÚNA SPORTIÐ Á DV.IS!
MOLAR
Pálmi kominn til staBæk
Pálmi rafn Pálmason sem seldur
var frá Val til Stabæk stóðst lækn-
isskoðun hjá norska úrvalsdeild-
arliðinu í gær.
Hann er því
formlega orð-
inn leikmað-
ur liðsins og
getur leikið
með því þegar
félagaskipta-
glugginn opn-
ast í Noregi
1. ágúst. Á
heimasíðu Stabæk segir að Pálmi
komi til íslands aftur í dag en hefji
æfingar með félaginu á föstudag-
inn. „Við erum mjög ánægðir að
fá Pálma til okkar. Hann er ungur
með mikla hlaupagetu, líkamlega
sterkur og hefur góða sendinga-
getu,“ segir lars Bohinen yfirmað-
ur knattspyrnumála hjá Stabæk á
heimasíðu félagsins.
Hk og Ía Fá viðvaranir
landsbankadeildarliðin HK og ía
munu fá viðvaranir frá KSí vegna
ráðninga nýrra þjálfara. Hvorki
rúnar Páll
Sigmundsson
sem HK réði
út tímabilið
né arnar og
Bjarki gunn-
laugssynir sem
taka við ía
hafa nægilega
menntun til að
þjálfa í efstu
deild. Félögin fá viðvörun frá KSí en
verður ekki meinað að ráða þjálfar-
ana. Þeir geta hins vegar ekki hafið
störf á næsta tímabili verði þeir
ekki komnir með tilskilin réttindi.
BjarnólFur ræðir við ÍBv
Fréttamiðillinn eyjar.net greinir frá
því að 1. deildar lið íBV sé í viðræð-
um við Bjarnólf lárusson. Bjarnólf-
ur sem hefur leikið með Kr síðustu
ár er hættur að æfa með liðinu en
er samningsbundinn því út 2009.
Heimir Hallgrímsson staðfestir að
íBV hafi rætt við Bjarnólf um að
koma til íBV en hann er uppalinn
Eyjapeyi og lék með liðinu um
árabil. „Bjarnólfur er einn af þeim
sem við höfum rætt við og vonandi
gengur það eftir. Bjarnólfur yrði
mikill styrkur fyrir liðið og myndi
hjálpa mikið til í erfiðum leikjum
eins og í kvöld,“ segir Heimir Hall-
grímsson við eyjar.net.
HaFdÍs stökk yFir 6 metra
Hafdís Sigurðardóttir úr HSÞ stökk
6,02 metra í langstökki á héraðs-
leikum HSÞ um helgina. Meðvind-
urinn var þó of mikill til að fá ár-
angurinn staðfestan en hann var
3,8 m/s en má vera mest 2 m/s. Þá
stökk Þorsteinn ingvarsson úr HSÞ
7 metra slétta og Berglind Kristj-
ánsdóttir lyfti sér yfir 1,65 metra í
hástökki. alls tóku 164 keppendur
frá 15 félögum þátt á mótinu.
„Það gerðist bara í morgun [gær-
morgun] þegar Gaui var rekinn að
formlega var haft samband,“ sagði
Bjarki Gunnlaugsson við DV í gær
en hann ásamt tvíburabróður sín-
um Arnari yfirgaf FH og tók við liði
ÍA eftir brotthvarf Guðjóns Þórðar-
sonar. „Án þess að segja nákvæm-
lega hversu langur aðdragandinn
er hefur þetta verið að gerjast svona
smátt og smátt. Það var ekki
fyrr en nú að þetta var stað-
fest. Fyrir það voru þetta
bara nafnlausar hringing-
ar ef þú skilur hvað ég á
við,“ sagði Bjarki og hló.
Þeir bræður hugsuðu sig
ekki tvisvar um áður en þeir
tóku við starfinu. „Þetta er
klárlega nokkuð sem við höfð-
um áhuga á. Maður vonar auð-
vitað aldrei að einhver verði rek-
inn og sérstaklega ekki Gaui. Hann
átti náttúrlega stóran þátt í okkar
ferli þegar við vorum ungir. Hann
veit það samt manna best að þegar
illa gengur er auðveldara að skipta
út þjálfara en 20 leikmönnum. Fyrst
hann var að fara vorum við meira
en til í starfið,“ sagði Bjarki sem
kann vel að meta þátt FH í málinu.
„FH hefur sýnt okkur þvílíkan
drengskap og hversu öflugur klúbb-
ur það er. Það er ekkert sjálfgefið að
menn fái að sleppa svona og ég tala
nú ekki um að næsti leikur er gegn
þeim. Þetta er mjög höfðinglegt af
þeim og við kunnum vel að meta
þetta,“ sagði Bjarki.
Hefð fyrir sóknarbolta
Blaðamanni var
minnisstætt sjónvarps-
sviðtal eftir lokal-
eik ÍA gegn Víkingi
2006. Þar var orðið
nokkuð ljóst að
Guðjón Þórð-
arson myndi
taka við lið-
inu og tví-
burarn-
ir fengju
því ekki
að halda
sínu
góða starfi
áfram en
þeir höfðu
bjargað lið-
inu frá falli.
Arnari og
Bjarka var mik-
ið niðri fyrir í við-
talinu og augljóst á
þeim að þetta væri
nokkuð sem skipti þá
miklu máli. „Skag-
inn er okkar
klúbb-
ur og
við höf-
um alltaf
haft miklar
taugar til ÍA.
Okkur fannst
við hafa unnið
gott starf þeg-
ar við vorum
með liðið þá,“ sagði
Bjarki en sóknarfótbolti
einkenndi liðið þá og sú
heimspeki verður aftur í
fyrirrúmi.
„Okkur hefur allt-
af fundist Skaginn eiga
að leika sóknarbolta og
það á ættir sínar að rekja
alveg frá því félagið kom
fyrst inn í deildarkeppn-
ina. Þegar
liðið vann
sinn fyrsta tit-
il 1951 var sókn-
arbolti spilaður og
menn höfðu aldrei
séð annað eins.
Þetta hefur fylgt
okkur alla tíð og
hefðin á Akra-
nesi er sú að það
eigi að vera leikinn
sóknarbolti,“ sagði
Bjarki sem ætlar
nú ekki að gleyma
vörninni. „Við ætlum
samt ekkert að spila
einhvern „Kami-kazi“-
fótbolta með engan í vörn
og alla frammi,“ sagði Bjarki
og hló. „Þetta er líka það sem fólk
vill sjá. Stuðningsmenn eru kannski
aðeins fljótari að fyrirgefa einstaka
tap ef það er spilaður fallegur fót-
bolti,“ sagði Bjarki.
leikmenn hafa fullt traust
ÍA missti engan leikmann frá lið-
inu í fyrra sem kom öllum að óvör-
um og endaði í þriða sæti deildar-
innar. Heldur var bætt í með komu
Stefáns Þórðarsonar og hlakkar
Bjarki til þess að fara vinna með
þennan hóp. „Það gerir okkar starf
auðveldara en ella að í þessu liði er
klárlega fótboltaleg geta. Það væri
helvíti erfitt að mæta á fyrstu
æfingu og þurfa að kenna
öllum að sparka í bolta,“
sagði Bjarki hlæjandi.
„Þetta er nánast
sami hópurinn og í
fyrra fyrir utan að
Stefán kom til liðs-
ins þannig að lið-
ið hefur margt til
brunns að vera.
Sjálfstraustið er hins vegar ekki
mikið hjá liðinu og það hefur mikið
að segja í fótbolta. Sjálfstraustsleys-
ið endurspeglast í leikjunum því
menn eru hræddir við að fá bolt-
ann og hræddir um að gera mistök.
Þetta eru helstu hlutirnir sem við
þurfum að laga,“ sagði Bjarki sem
sagði þá bræður leggja mikið upp
úr trausti við þjálfunina.
„Þeir leikmenn sem eru inn á
vellinum hafa traust þjálfarans og
eiga ekki að vera hræddir við að
gera mistök. Okkur sjálfum leið allt-
af best þannig og við sjáum enga
ástæðu til að breyta því þegar við
erum orðnir þjálfarar. Menn hafa
100% traust þeg-
ar þeir leika
fyrir okk-
ur,“ sagði
Bjarki
við DV
að lokum
en hann
var á
leiðinni
á sína
fyrstu
æfingu
í gær-
kvöldi þegar
DV ræddi
við hann.
tómas þór þórðarson
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
SÓKNARBOLTINN
arnar Bjarki gunnlaugssynir
ólafi þórðarsyni
Farinn guðjón Þórðarson náði
frábærum árangri með ía í fyrra
en hefur verið leystur frá störfum.
Betri tímar? arnar og Bjarki
vonast til að kveikja sama
neista og þeir kveiktu 2006.
þjálfa nú drenginn
Tvíburarnir hætta nú að leika
gegn ía og þjálfa nú meðal
annars hinn bráðefnilega
Björn Bergmann Sigurðsson.
ENDURVAKINN
4
Símafyrirtækið Vodafone olli usla með nýjustu aug-
lýsingaherferð sinni. Þar er lufsum sem líkjast íslenska fánanum
sundurklipptum flaggað óspart. Vodafone er þó langt því frá fyrsti
aðilinn sem hrasar um fánalögin, en meðal annarra sem hafa mis-
stigið sig eru mótmælendur, anarkistar, rokkhljómsveitir og jafn-
vel forseti lýðveldisins.
hitt málið
Hinn langi armur
fánalaganna
hAFsteinn gunnAr hAuKsson
blaðamaður skrifar hafsteinn@dv.is