Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 18
Föstudagur 25. júlí 200818 Helgarblað DV
Hún hefur stundum verið köll-
uð húsmóðir Ameríku. Og nú er
hún orðin opinber Íslandsvinur.
En Martha Stewart er ekki einung-
is fræg fyrir bakstur og saumaskap
því að hún var dæmd í fangelsi árið
2004 fyrir það að leyna upplýsingum
um fyrirtæki sitt. Í júní síðastliðnum
var henni svo meinað að koma til
Bretlands á þeim forsendum að hún
væri dæmdur glæpamaður. Hún átti
þó auðvelt með að fá landvistarleyfi
á Íslandi og ferðaðist um landið um
síðastliðna helgi þar sem hún skoð-
aði meðal annars Þingvelli, fór í Bláa
lónið og hitti gamla vinkonu sína og
forsetafrú Dorrit Moussaieff.
Gamlar vinkonur
Martha mætti til Íslands síðast-
liðinn föstudagsmorgun með einka-
þotu sinni og hélt rakleiðis á Nesja-
velli að hitta forsetann, Ólaf Ragnar
Grímsson, og skoða virkjunina. Því
næst kom Martha sér vel fyrir í for-
setabústaðnum á Laufásvegi og hélt
skömmu seinna á Þingvelli ásamt
föruneyti sínu þar sem bragðað var á
dýrindis bleikju á Hótel Valhöll. Um
kvöldið snæddi hópurinn á Fjöru-
borðinu á Stokkseyri ásamt forseta-
hjónunum en Dorrit og Martha hafa
verið góðvinkonur í tuttugu og fimm
ár. Að lokum var Mörthu svo boðið
í stjörnukvöldverð á Bessastöðum
en aðrir gestir voru meðal annars
Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg
Pálmadóttir, Björgólfur Thor, Kristín
Ólafsdóttir, Kári Stefánsson og Ólaf-
ur Jóhann Ólafsson.
Uppvaxtarár Mörthu
Martha Stewart fæddist 3. ág-
úst 1941 en hún ólst upp með fimm
systkinum og pólskum foreldrum
í bænum Nutley í New Jersey. Sem
barn lærði Martha fljótt að vinna
heimilisstörfin en móðir henn-
ar kenndi henni að elda og sauma.
Faðir hennar hafði mikinn áhuga
á garðyrkju og kenndi dóttur sinni
mikið í þeim efnum. Martha var
einnig mjög virk í félagsmálum, hún
skrifaði fyrir skólablaðið í mennta-
skóla og tók þátt í starfi listaklúbbs-
ins. Á þeim árum hófst fyrirsætu-
ferill hennar. Hún var ráðin sem
fyrirsæta og birtist í framhaldinu í
nokkrum sjónvarps- og blaðaaug-
lýsingum, þar á meðal „Rather fight
than switch“-sígarettuauglýsing-
unni. Martha sem kláraði mennta-
skólann með glans fékk skólastyrk
til þess að fara í Barnard-háskólann
í New-York borg.
Varð verðbréfasali
Í upphafi ætlaði hún að klára
nám í efnafræði en skipti yfir í evr-
ópska sögu og lærði loks sögu bygg-
ingarlistar. Það var á þeim tíma sem
hún hitti tilvonandi manninn sinn,
Andrew Stewart. Eftir að þau giftust
tók Martha sér pásu frá skólanum
og hélt fyrirsætustörfunum áfram.
Á meðan kláraði maðurinn hennar
embættispróf í lögfræði við Yale-há-
skóla. Hún hélt svo námi sínu áfram
ári seinna og útskrifaðist með tvö-
falda gráðu í almennri sögu og sögu
byggingarlistar. Árið 1965 fæddist
svo dóttir hennar, Alexis Stewart.
Á þessum tíma, fór Stewart að
rækta viðskiptahæfileika sína og
árið 1967 varð hún verðbréfasali.
Henni gekk mjög vel þar til hún
hætti starfinu árið 1973 til þess að
geta átt meiri tíma með dóttur sinni.
Martha og Andrew keyptu gamalt
sveitahús í Turkey Hill Road í Conn-
ecticut og gerðu það upp. Það var þá
sem áhugi Mörtu Stewart á því að
laga og endurgera kom fyrst í ljós.
Erfitt að starfa með Mörthu
Árið 1967 settu Martha og vin-
kona hennar, Narma Collier úr fyr-
irsætubransanum, upp veitinga-
þjónustu. En ævintýrið endaði fljótt
vegna þess að Collier sagði erfitt að
starfa með Mörthu og keypti Mart-
ha hlut hennar. Á sama tíma hafði
maður Mörthu orðið forseti út-
gáfufyrirtækisins Harry N. Abra-
hams í New York. Í einu útgáfupartí-
inu fékk hann veitingaþjónustuna
hennar Mörthu til þess að sjá um
veitingar og þar hitti hún Alan Mir-
ken, forstjóra útgáfunnar Crown
Publishing. Alan dáðist að Mörthu
og hafði samband við hana eftir á
um að gefa út bók með uppskrift-
um og myndum úr veislunum sem
fyrirtækið hennar sá um. Bókin Ent-
ertaining kom út og eftir það óx fyr-
irtækið mikið. Bókin varð metsölu-
bók og best selda uppskriftabókin í
tvo áratugi síðan Mastering the Art
of French Cooking kom út.
Sjálfstæð amerísk kona
Í kjölfarið sendi Stewart frá sér
margar bækur sem voru vinælar.
Hún skrifaði einnig greinar í blöðin
og kom fram í sjónvarpsþáttum Op-
ruh Winfrey og Larry King. Martha
skildi við manninn sinn árið 1989
og ári seinna gaf hún út nýtt tíma-
rit, Martha Stewart Living, sem varð
strax mjög vinsælt og seldist í 250
þúsundum eintaka. Martha byrjaði
með sjónvarpsþátt árið 1993 sem
byggður var á tímariti hennar. Vin-
sældirnar jukust hratt og þátturinn
sem í upphafi átti að vera hálftími
varð að klukkutíma þætti. Mart-
ha var á forsíðu New York-tímarits-
ins í maí 1995 og var henni þar lýst
sem dæmi um sjálfstæða, ameríska
konu.
Martha milljarðamæringur
Í september 1997 tókst Mört-
hu ásamt viðskiptafélaga sínum,
Sharon Patrick, að kaupa upp mis-
munandi vörumerki á fjölmiðla-
markaðnum er tengdust Mörthu
Stewart-vörumerkinu og setja þau
undir nýtt fyrirtæki sem hún kall-
hin eina sanna húsmóðir ameríku
Jón BJarki MaGnúSSon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Martha Stewart Hún kom til íslands
um helgina og snæddi dýrindis
kvöldverð með forsetahjónunum.
Í dómssal Martha var dæmd árið 2004
fyrir að leyna upplýsingum um fyrirtæki
sitt fyrir rannsóknarnefnd.
Skrifstofur omnimedia Martha
stewart living-vörumerkið breyttist síðar
í Martha stewart living Omnimedia.
Martha Stewart Living Blaðið sem
leiddi til þess að Martha stewart varð
risastór fjölmiðlakona í Bandaríkjunum.
Hún var fundin sek í
mars 2004 fyrir sam-
særi og að ljúga að
rannsóknarnefnd.
Martha var dæmd í júlí
sama ár í fimm mán-
aða fangelsi og fékk
tveggja ára skilorðs-
bundinn dóm.