Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 58
Leikurinn Mario Super Slugg-
ers kemur út 25. ágúst. Hann
mun sennilega koma aðeins
seinna hér heima en Nintendo
hefur kynnt leikinn á leikjaráð-
stefnunni E3 2008. Um er að
ræða hafnaboltaleik þar sem
leikmönnum gefst tækifæri til
að nota Wii-stýrikerfið til þess
að líkja eftir alvöruhreyfingum í
íþróttinni.
Mario Super Sluggers er ekki
ósvipaður Mario Strikers Charg-
ed sem kom út á Wii í fyrra. Þar
var fótbolti aðalmálið en nú er
það hafnabolti. Líkt og í þeim leik
eru grunnhugtök íþróttarinnar
notuð en Nintendo bætir við alls
kyns skemmtilegum aukareglum
og aukakröftum á keppendurna.
Þeir eru að sjálfsögðu góðkunn-
ingjar Marios, svo sem Princ-
ess Peach, Luigi, Yoshi, Donkey
Kong, Bowser, Toad og Wario. Á
leikvöllunum er að finna ýmsa
hluti sem geta haft áhrif á leik-
inn. Svo sem ísklumpa sem geta
hægt á þér verði þeir á vegi þín-
um.
Eins og fyrr sagði er notast
við Wii-stýrikerfið þegar
spilað er. Líkt og í hafna-
boltaleiknum sem fylgdi
vélinni með Wii-Sports er
fjarstýringunni haldið eins
og kylfuskafti og henni
sveiflað. Tímasetningin er
lykilmálið til þess að hitta bolt-
ann en hægt er að snúa kylfunni
í litla rólega hringi við öxlina líkt
og alvöruleikmenn gera til þess
að fá örlítið meiri kraft.
Hver leikmaður er síðan með
sína kosti og sína galla. Sum-
ir eru góðir að slá og geta neglt
boltann út af vellinum á meðan
aðrir eru sneggri að hlaupa eða
betri að kasta. Til dæmis kemur
regnbogi á eftir bolta Yoshis þeg-
ar hann kastar og gerir það þeim
sem slær erfiðara fyrir.
asgeir@dv.is
Mario Super Sluggers er væntanlegur í lok ágúst:
Tölvuleikir
fyrir sTelpurnar
Þótt það sé algengara að reiðin,
hasarinn og ævintýrin séu við
völd í tölvuleikjum sem gerðir
eru eftir vinsælum kvikmyndum
virðist daglegt líf hins venjulega
tánings vera að koma sterkt inn í
tölvuleikjaheiminn á næstunni.
Fyrirtækin Paramount Digital
Entertainment og Legacy
Interactive tilkynntu á dögunum
að ætlunin væri að gera tölvuleiki
sem byggðir væru á klassísku
unglingamyndunum Pretty in
Pink, Clueless og Mean Girls. Með
þessu er líklegt að tölvuleikja-
framleiðendurnir nái til breiðari
markhóps og að ástsjúkar
unglingsstúlkur geti nú farið að
skemmta sér yfir tölvuleikjunum.
Föstudagur 25. júlí 200858 Helgarblað DV
Tækni
umsjón: PÁll sVanssOn palli@dv.is
BIrGðIr Gætu ÞrotIð nintendo Wii
kom út fyrir jólin 2006 og var nánast ófáanleg strax í
upphafi þar sem hún seldist upp um leið. sérstaklega
í Bandaríkjunum. sömu sögu var að segja um jólin
2007 og nú gæti farið eins árið 2008. satoru Iwata,
forseti nintedo, sagði nýlega í viðtali við tímaritið
Forbes að hann gæti ekki lofað því að nintendo Wii
yrði undir trjánum hjá öllum sem vilja. nintendo ætlar
að reyna að útvega Bandaríkjamönnum vélar eftir
eftirspurn en segist engu geta lofað.
Hafnabolti
með mario BæTisT við
GuiTar Hero
Activision hefur tilkynnt að
lög eftir gítargoðsögnina Jimi
Hendrix verði í Guitar Hero:
World tour. Þetta staðfesti fyr-
irtækið á ráðstefnunni E3 sem
núna stendur yfir. Lögin sem
um ræðir eru ofursmellirnir
Wind Cries Mary og „live“ út-
gáfa af Purple Haze. Fyrirtækið
tilkynnti líka nýlega að AC/DC,
the Eagles og Van Halen hefðu
bæst í hóp þeirra sveita sem
verða í Guitar Hero-leikjunum.
Þeir hafa náð gríðarlegum vin-
sældum á skömmum tíma og
hafa verið kallaðir hið nýja Sing
Star.
xxxxxxx xxxxxxxx
NÝ
PR
EN
T
eh
fBYGGÐASAFN
HÚNVETNINGA OG STRANDAMANNA
Reykjum Hrútafirði
Hákarlaveiðar
við Húnaflóa
Shark Fishing Exhibition
Opið daglega frá kl. 10:00 - 18:00 frá 1. júní til 31. ágúst
Sími 451 0040 / 863 4287 www.simnet.is/reykirmuseum
Mario Super Sluggers
mario og vinir hans leggja fyrir
sig hafnabolta í leiknum.
Wii-stýrikerfið
Þú slærð boltann eins og
með alvöru kylfu.