Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 20
Föstudagur 25. júlí 200820 Umræða DV
Toblerone handa Mörthu
Stewart
„Frétt vikunnar er án efa að Dorrit hafi
borðað með Mörthu Stewart, ég er mikill
aðdáandi Dorritar. Alltaf þegar ég hitti hana
kemst ég í hrikalega gott skap, hún er ógeðs-
lega skemmtileg og mikill húmoristi. Ég þori
að veðja að það hefur verið gaman hjá henni
og Mörthu að skiptast á húsráðum og ein-
hverjum bröndurum. Ég sendi Dorrit einu
sinni bol sem stóð á You made me sleep on
the wet spot og slatta af Tobleroni, þannig
ég vona að hún hafi verið í bolnum og boðið
Mörthu upp á Toblerone.
Ég var loksins að koma heim eftir langt
tónleikaferðalag. Ég hef verið meira og
minna að heiman í þrjá mánuði, þannig það
var hrikalega gott að koma heim og hitta
börnin mín og konuna hérna á Súðavík. Við
höfum verið að undirbúa tónleikana á Nasa
sem verða í kvöld og við erum alveg ótrúlega
vel upphitaðir eftir alla spilamennskuna
undanfarna mánuði. Það var rosalega gaman
að enda tónleikaferðalagið í Póllandi, ég hef
aldrei komið þangað áður en mig hefur lengi
langað til þess.“
Mugison,
tónlistarmaður
Nýjar vélar og
gegndarlaust okur
„Fyrir mig persónulega var það þessi
samningur sem Iceland Express var að und-
irrita um nýjar flugvélar sem bar hæst. Við
erum að fara að taka nýjar vélar í notkun
sem eiga eftir að gjörbylta öllu hérna hjá
okkur, allt viðhald verður þægilegra, þær eru
mun sparneytnari og öruggari. Þó að þær
vélar sem við erum með hafi þjónað okkur
vel eru þær eldri en þessar sem við fáum og
við bindum miklar vonir við nýju vélarnar.
Stærsta frétt vikunnar er þó að stríðsglæpa-
maðurinn Radovan Karadzic hafi náðst.
Stærsta frétt síðustu mánuði hlýtur samt
að vera þetta gegndarlausa okur. Ég finn það
svo vel þegar ég er að kaupa í matinn hvað
allt er orðið dýrt. Einn lítill tyggjópakki getur
kostað heilar 110 krónur sem er náttúrulega
bara bilun. Ég finn rosalega mikið fyrir þessu,
ég er með stóra fjölskyldu. Þetta er það sem
er helst talað um í boðum innan fjölskyld-
unnar. Maður vonar að forsætisráðherrann
geri eitthvað í þessum málum.“
Lára Ómarsdóttir,
upplýsingafulltrúi Iceland Express
Fundur með borgarstjóra
„Mér kemur fyrst í hug fundur borgar-
stjóra með dómsmálaráðherra um mikil-
vægi fjölgunar lögreglumanna í miðborginni.
Umræðan sem fylgt hefur í kjölfarið leiðir
vonandi til þess að ríkisvaldið muni koma til
móts við yfirlýstar forgangsáherslur borgar-
stjóra um öryggi borgaranna, að nóttu sem
degi. Hér þurfa til að koma tafarlaus og já-
kvæð viðbrögð fjárlaganefndar Alþingis.
Þá mætti nefna glæsta verðlaunatillögu
um Listaháskóla Íslands milli Hverfisgötu og
Laugavegar jafnhliða þeirri miklu samstöðu
sem virðist um það í borgarstjórn að vernda
þá 19. aldar götumynd Laugavegarins sem
núverandi borgarstjóri hefur ávallt barist fyrir.
Líklegt er að Listaháskóli Íslands verði að laga
sig að þeirri staðreynd.
Loks ber að fagna ráðningu Tryggva Þórs
Herbertssonar efnahagsráðgjafa forsætis-
ráðherra og ríkisstjórnar. Full ástæða er til að
óska honum velfarnaðar í starfi sem vonandi
leiðir til skjótra úrlausna þeirra flóknu við-
fangsefna sem við blasa í efnahagslífinu.“
Jakob Frímann Magnússon,
miðborgarstjóri
Oddakirkja kom á óvart
„Túr minn um Ísland byrjaði í vikunni þar
sem ég Spilaði á 800 Bar á Selfossi og í Odda-
kirkju. Á miðvikudagskvöld spilaði ég á Egils-
stöðum. En Oddakirkja kom mér skemmti-
lega á óvart, hún er ein minnsta og fallegasta
kirkja sem ég hef komið í. Þetta er kirkjan sem
Sæmundur fróði á að hafa barist við kölska
um að fá að vera prestur í. Hún er svo fallega
máluð og svo gaman að byrja tónleikaferð-
ina hérna. Það er líka rosalega gaman að vera
farin að ferðast um landið aftur. Annars er
búin að vera mikil skipulagning fyrir túrinn í
vikunni þar sem ég lagði af stað út á land aft-
ur í fyrradag og svo hef ég verið að taka upp
vídeóblogg á hverjum stað. Ég stoppaði við
Jökulsárlón en það eru tvö ár síðan ég kom
þangað síðast. Ég fæ mikinn innblástur frá
náttúrunni og er búin að semja tvö ný lög en
ég þarf að passa að fara ekki á undan sjálfri
mér þar sem ég er með plötu með nýjum lög-
um. Mér finnst skemmtilegast að sjá alla foss-
ana og kríuna líka þar sem það er ekki mikið
af þeim heima, svo má ekki gleyma mosan-
um og blóðberginu. Öll þessi lykt sem er ekki
heima er alveg æðisleg.“
Hera Hjartardóttir,
tónlistarkona
HVAÐ BAR HÆST í Vikunni?
SÍÐSUMAR Á FJÖLLUM
Eigum laust í eftirfarandi ferðir í ágúst: