Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 61
Nafn?
„Kenya Kristín Emilíudóttir.“
Starf?
„Söngkona og lagasmiður.“
Stíllinn þinn?
„Þægilegur, rómantískur og litríkur.“
Allir ættu að...?
„...gefa sjónvarpinu frí eitt kvöld í viku og fara út að ganga, eða
glugga í góða bók. Það auðgar andann.“
Hvað er ómissandi að eiga?
„Góða skó sem gott er að ganga á.“
Hvað keyptir þú þér síðast?
„Sumarkjól í Rokk og rósum fyrir brúðkaup í fjölskyldunni.“
Hvert fórstu síðast í ferðalag og í hvaða tilgangi?
„Ég fór síðast til Frakklands í endaðan janúar, til að fara á tón-
listarráðstefnuna í Midem.“
Náttúruperlur á Íslandi?
„Eyjafjöllin eins og þau leggja sig og Gullfoss er stórkostlegur.“
Uppáhaldsflíkin í fataskápnum?
„Þessa stundina er það kjóll sem ég keypti í Hveragerði í Efna-
vörubúðinni fyrir 15 árum eða svo og svartur mjúkur bolur
sem Svana vinkona mín gaf mér, fæ stundum bara æði fyrir
einstaka flíkum.“
Hvenær hefur þú það best?
„Þegar ég er búin að afreka eitthvað og sest niður með mann-
inum mínum eða góðri bók og gleymi stað og stund.“
Lumar þú á góðu tískuheilræði?
„Ekki elta tískuna í blindni og vertu þú sjálf(ur).“
DV Tíska Föstudagur 25. júlí 2008 61
Kenya Kristín
Emilíudóttir
Persónan
GAmmoSÍUrNAr UppSeLdAr Fyrr í sumar greind-
um við frá því að ný gammosíulína hönnuð af linds-
ay lohan væri væntanleg í búðir í júlí. Nú einungis
skömmu eftir að gammosíurnar fóru í sölu hafa þær
selst upp alls staðar í Bandaríkjunum. línuna kallar
lindsay 6126 sem er tilvitnun í afmælisdag Marilyn
Monroe og eru aðdáendur gammosíanna nú flestir
búnir að skrá sig á biðlista til að tryggja sér að ná alla-
vega einu pari þegar næsta sending kemur í verslanir.
dV MYNd Ásgeir
AfmæLiSArmbANd mANdeLAS Nelson Mandela
hefur látið skartgripahönnuðina hjá Montblanc sér-
hanna armband fyrir sig í tilefni af níutíu ára afmæli
sínu. armbandið var búið til úr suðurafrískum efniviði
og unnið af mönnum sem allir hafa smitast af HiV eða
alnæmi. Á armbandinu er gamla fanganúmer Mand-
elas, en í þau tuttugu og sjö ár sem hann sat inni var
hann þekktur sem fangi 46664 og rennur allur ágóði
af sölu armbandsins til Mandela-sjóðsins.
HPI Savage XL
fjarstýrður
bensín
torfærutrukkur, sá stærsti og
öflugasti til þessa.
Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is
SAVAGE XL
Nýkominn
H
ild
ur
H
lín
Jó
ns
dó
tt
ir
/ h
ild
ur
@
dv
.is
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Opið alla daga frá 15. maí til 15. sept. milli kl 11 - 18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi.
sími 483 1504 | husid@south.is | www.husid.com
Reiskólinn Faxaból
bíður uppá skemmtileg
reiðnámskeið fyrir börn
og unglinga.
Eigum nokkur laus pláss á
reiðnámskeiðið
5.ágúst - 15.ágúst
Sjá nánar á
www.faxabol.is