Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Page 17
Leiðin út úr vandanum
DV Helgarblað Föstudagur 25. júlí 2008 17
björgvin g. sigurðsson, viðskiptaráðherra:
Peningamálin verði
endurskoðuð
„Það blasti lengi við að við myndum lenda í ákveðnu aðlögunar-
skeiði eftir lánadrifna ofsaþenslu nokkurra ára, þar sem gengi
krónunnar var mikið sterkara en menn töldu raunveruleika vera
fyrir. síðan hefur margt gerst. við sitjum uppi með erfið heims-
markaðsverð, lausafjárkreppu sem ríkir á alþjóðamörkuðum og
snarpa gengislækkun krónunnar. seðlabankinn er eitt þeirra
verkfæra sem við höfum yfir að ráða. við verðum að treysta
honum og því lögbundna hlutverki sem hann hefur þar til alþingi
breytir þeim lögum.
Enginn að draga fæturna
aðgerðir á fjármála- og húsnæðismörkuðum eru svo dæmi um
mjög mikilvægar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þær voru
kynntar snemma sumars og skipta miklu máli. Þar er ég að tala
um breytingar á íbúðalánasjóði og niðurfellingu stimpilgjalda að
hluta. Þær höfðu jákvæð áhrif og bættu stöðu húsnæðismarkað-
arins. eins styrkti útgáfa ríkisskuldabréfa gengi krónunnar. Það
eina sem ríkisstjórnin á eftir að klára er lántakan á gengisforðalán-
inu. allir vita að það verður tekið um leið og seðlabankinn
stendur frammi fyrir tilboði um ásættanlegt lán.
í grunninn skipta mestu máli aðgerðir sem styrkja gengið og
verða til þess að við náum einhverju raungengi, í grennd við 130
til 140 stig. styrking krónunnar dregur úr verðbólgunni og eftir
því sem krónan verður sterkari því hraðar gengur verðbólguskot-
ið til baka. Það er verið að gera allt sem hægt er að gera. við
búum við peningamálastefnu með fljótandi gjaldmiðli og
verðbólgumarkmiðum.
Tveir kostir raunhæfir
Þegar við höfum náð okkur út úr þessu blasir við okkur þetta
langstærsta pólitíska verkefni margra ára; endurskoðun á
peningamálastefnunni. Menn hafa verið að tala um að ekki skuli
ræða um framtíðarlausnir meðan verið er að glíma við skamm-
tímavanda. Það er bara vitleysa. partur af skammtímavandanum
felst í lengri tíma lausnum. stefnufesta og vissa um framtíðarfyrir-
komulag bætir stöðuna á alþjóðlegum mörkuðum. við erum hins
vegar dæmd til að rétta okkur af við núverandi fyrirkomulag. við
höfum tvo kosti að mínu mati; núverandi fyrirkomulag eða
aðildarumsókn að evrópusambandinu og evrunni og mynt-
bandalaginu í kjölfarið. aðrir hafa talað fyrir upptöku evru í
gegnum ees-samninginn. Það er sjálfsagt að taka þá umræðu.
Tilrauninni lokið
Það er auðvelt að segja að ekki sé verið að gera nóg. enginn
stjórnarandstöðuflokkur hefur bent á aðgerðir sem ekki er verið
að gera eða stendur til að gera. stjórnvöld leituðu strax í upphafi
eftir samstarfi við verkalýðshreyfingar og
samtök atvinnulífsins. við náum
jafnvæginu fyrr en síðar en það
verður að sjálfsögðu sársauka-
fullt.
nú eru sex eða sjö ár síðan
ákveðið var að krónan yrði
fljótandi. Það var samþykkt
með miklum húrrahrópum
allra flokka á alþingi.
aðalhagfræðingur seðlabank-
ans lýsti þessu sem tilraun með
gjaldmiðil. nú er henni lokið
að mínu viti og tímabært að
líta yfir farinn veg og taka
ákvörðun um framhaldið.“
jón Magnússon, ÞingMaður Frjálslynda Flokksins:
krónan eins
og korktaPPi
„Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að við þyrftum að vera
með einhvers konar mynttengingu, hvort sem það er danska
krónan, dollarinn eða evran. Það er galið að blása einhvern
möguleikann af án þess að skoða hann. Með mynttengingu
væri hægt að tryggja að gjaldmiðillinn sé ekki á stöðugu flökti.
ef við höfum kost á því að tengjast stóru myntkerfi eigum við
að gera það. Það myndi miklu máli skipta hvað öryggi í
viðskiptum snertir. Ég tel brýnast nú þegar að stýrivextir
seðlabankans yrðu lækkaðir. Það er að mínu viti mál númer eitt
hjá ríkisstjórninni en einnig þarf að koma í veg fyrir að hjól
atvinnulífsins hætti að snúast.
Horfa til Norðurlanda
stjórn seðlabankans taldi lengi vel að það væri ekki samdráttur
í aðsigi. við bentum á, sem augljóst var, að það yrði samdráttur
í byggingariðnaði og á fjármálamarkaði. Það hefur komið á
daginn og mun, ef fer sem horfir, leiða til aukins atvinnuleysis
með haustinu. í fyrsta lagi þarf að skapa lánamarkað með
svipuðum hætti og í nágrannalöndum okkar. síðan er meira
langtímamál með hvaða hætti við komum gjaldmiðlinum út úr
því að vera spákaupmannagjaldmiðill á ólgusjó eins og
korktappi. Það hefur verið reyndin frá því um aldamót.
Galið að slá evruna af borðinu
ríkisvaldið á að draga úr umsvifum sínum og lækka skatta.
sérstaklega á vörum eins og bensíni og olíu. Því miður er stóri
vandinn í efnahagsmálum sá að við skulum búa við ríkisstjórn
sem er í sumarfríi þegar það eru vandamál í efnahagsmálum.
stjórnin hefði átt að vinna að lausnum og fara svo í sumarfrí.
ekki öfugt. Það talar hver í sína áttina og það var skynsamleg
hugmynd vg að kalla þingið saman.
Ég hef talað fyrir því að það sé
nauðsynlegt að losna við
verðtryggingu lána. Það
gengur ekki nema
hægt sé að treysta
gjaldmiðlinum.
verðtrygging er
afleiðing af
vondum
gjaldmiðli. hvað
nýjan efnahags-
ráðunaut
ríkisstjórnarinn-
ar varðar tel ég
eðlilegt að hann
hjálpi til við að
leysa þau
vandamál sem
hann hefur hjálpað
til við að skapa.“
Ertu að flytja, láttu fagmenn
sjá um verkið fyrir þig
Örugg og trygg
þjónusta
Að eiga og elska heimsins versta hund
-Mjög fyndin ástarjátning
... Í bókinni Marley og ég
er viðfangsefninu lýst af
hlýju ... gamansemi og
ástúð.
New York Times
-Fyndin og hjartnæm saga um
fimmtíu kílóa Labrador sem
var jafn tryggur og elskulegur
og hann var óþekkur.
People
-Hugsanlega hugljúfasta bók
ársins. Sannarlega
hundavinabók ársins.
USA Today
MARLEY OG ÉG er bók sem allir
hundaáhugamenn verða að lesa
- og hinir líka.
Marley og ég
John Grogan
Að eiga og elska
heimsins versta hund
Á metsölulista New York
Times Frum-
útgáfa í
kilju
HÓLAR
Nánari upplýsingar
í síma 698 2312 - Jón Aðalsteinn
TIL SÖLU !!!
Honda Shadow
1100cc Sabre
árg.2000,
ekin 6þús mílur
Honda Valkyrie
Interstate 1520cc
árg.1999,
ekin 25þús km
Honda Valkyrie
Rune
árg.2004, ekin
1þús km
ÞAKSPRAUTUN ehf
Þarf að vinna í þakinu í sumar en hefur ekki
tíma?
Því ekki að láta það í hendur fagmanns?
Sérhæfi mig í sprautun á öllu bárujárni sem
gefur einstaka áferð, ásamt allri annari
alhliða málningarvinnu.
Uppl. í síma 8975787