Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Blaðsíða 19
DV Helgarblað Föstudagur 25. júlí 2008 19
aði Martha Stewart Living Omn-
imedia. Martha var stjórnarmaður,
forseti, og framkvæmdastjóri nýja
fyrirtækisins. 19 október 1999 var
fyrirtækið skráð á New York-hluta-
bréfamarkaðinn. Bréfin voru skráð
á 18 dollara í upphafi en fóru fljótt
upp í 36 dollara, þessi mikla hækk-
un gerði Mörthu Stewart að millj-
arðamæringi á pappírunum.
Fimm mánaða fangelsi
Martha Stewart var ákærð árið
2004 eftir að hafa selt allan hlut sinn
í ImClone árið 2001. Það gerði hún
eftir að hafa fengið fregnir af því að
framkvæmdastjóri ImClone ætl-
aði að selja öll sín bréf. Bréf í fyrir-
tækinu féllu um 16 prósent daginn
eftir að hún seldi. Hún var fundin
sek í mars 2004 fyrir samsæri og að
ljúga að rannsóknarnefnd. Martha
var dæmd í júlí sama ár í fimm
mánaða fangelsi og fékk tveggja
ára skilorðsbundinn dóm.
Eftir fangelsisvistina var Martha
sett í stofufangelsi í aðra fimm
mánuði þar sem hún þurfti að vera
með staðsetningartæki á ökkla-
bandi. Martha borgaði einnig sekt
upp á tvær og hálfa milljón króna.
Endurnærð úr fangelsinu
Eftir að Martha slapp úr fangelsi
árið 2005 lét hún aftur til sín taka.
Fyriræki hennar, Martha Stewart
Living, blómstraði og hún fór að
selja innanstokksmuni í verslun-
um K-Mart og í stærri Sears-versl-
unum. Martha mætti aftur í sjón-
varpið með pompi og prakt í þætti
sínum The Martha Stewart Show
og stjórnaði einnig sérstakri útgáfu
af Apprentice-þættinum sem hét
The Apprentice: Martha Stewart.
Martha gaf einnig út bækur þetta
sama ár. Ein þeirra fjallaði um það
hvernig reka ætti fyrirtæki og hin
var um bakstur, fleiri bækur fylgdu
árið á eftir. Allt hefur verið í blóma
hjá Mörthu síðan þá, hún var til-
nefnd til Emmy-verðlauna, hús
voru seld undir vörumerki henn-
ar og vörur hennar seldust grimmt
í verslunarkeðjunni Macy’s. Hún
kom einnig fram í Ugly Betty-
þáttaröðinni þar sem hún gaf vin-
konu sinni Wilhelmu Slater, sem
leikin er af Vanessu Slater, góð ráð
um það hvernig elda ætti kalkún.
Bönnuð í Bretlandi
Í ágúst samþykkti öryggis- og
eftirlitsnefndin sem hafði rann-
sakað mál Mörthu að loka málinu.
Samkomulag varð um að Martha
Stewart myndi ekki vera stjórnandi
eða framkvæmdastjóri félagsins
næstu fimm árin, né heldur sjá um
fjármál og bókhald annarra fyrir-
tækja. Síðastliðinn júní var Martha
stöðvuð af landamæravörðum í
Bretlandi sem meinuðu henni að
fara inn í landið þar sem hún var
dæmdur glæpamaður. Hún hafði
ætlað sér að tala á ráðstefnu í land-
inu um tísku í Konunglegu aka-
demíunni.
Flott framtíð
Í september 2007 tilkynnti fyr-
irtæki hennar Martha Stewart Liv-
ing Omnimedia að í bígerð væri
samstarf við vínframleiðanda um
að framleiða vín í nafni Mörthu.
Martha hefur einnig skrifað undir
samning þess efnis að selja frosin
og ferskan mat undir nafni sínu.
Martha hefur undanfarið viðrað þá
hugmynd að setja upp alfræðiorða-
bók Mörthu Stewart undir slóðinni
marthamedia.com.
hin eina sanna húsmóðir ameríku
Í Þjórsárdal eru margir fallegir
og áhugaverðir staðir t.d.
Hjálparfoss, Stöng, Gjáin,
Háifoss og Þjóðveldisbærinn.
Húsin hennar Martha keypti hús
og lét innrétta þau og seldi þau
svo undir vörumerkjum sínum.