Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Page 48
föstudagur 25. júlí 200848 Helgarblað DV
Var í raun mögulegt að kona hefði
skrifað skelfilegu söguna um
Frankenstein? Í janúar 1818 veltu
margir lesendur á Englandi þessi
spurningu fyrir sér en þá var þessi
fræga skáldsaga nýkomin út. Höf-
undar var ekki getið en almælt var
að ung kona væri höfundur þess-
arar óhuggulegu sögu. Gagnrýn-
endur voru furðu lostnir og marg-
ir þeirra sögðu bókina ókvenlega
og skelfilega. Aðrir lofuðu sög-
una og líktu höfundi hennar við
Shakespeare.
Um þær mundir var ekki al-
gengt að konur sendu frá sér rit-
verk. Þær fáu sem það þó gerðu
skrifuðu hreint ekki um ófreskjur
og skrímsli. En höfundur Frank-
ensteins var auðvitað engin
venjulega kona. Foreldrar hennar
voru þjóðþekktir; rithöfundurinn
og kvenréttinakonan Mary Woll-
stonecraft og blaðamaðurinn og
samfélagsrýnirinn William God-
win. Barn þessara foreldra vissi
frá blautu barnsbeini að það var
einstakt.
Lét viðteknar
venjur lönd og leið
Enda varð ævi hennar hreint
ekki venjuleg. Hún skrifaði ekki
bara bækur, en til undantekninga
heyrði að ungar konur stunduðu
slíkt í upphafi 19. aldar. Hún hirti
ekki um fjölskyldumynstur, flutti
að heiman, eignaðist börn ógift,
ferðaðist um Evrópu þvera og
endilanga og lét álit annarra sig
litlu varða.
Fyrir galt hún háu verði. Þeir
sem þekkja ævi hennar telja ekki
undarlegt að verk hennar fjalli um
myrkar hliðar lífsins. Ekki skorti
hörmungarnar í hennar lífi.
Flúðu frá Lundúnum
Mary Wollstonecraft Godwin
var tæplega 19 ára þegar hún hóf
að skrifa söguna um Franken-
stein. Þetta var sumarið 1816 og
hún og lítill hópur menningar-
vita hafði flúið Lundúni og leitað
skjóls í útlöndum.
Leiðtogi hópsins var um-
deildasta skáld Evrópu, George
Byron lávarður. Hann hvarf frá
Englandi í kjölfar frægra ástaræv-
intýra og ku hafa flúið ógreiddar
skuldir. Aðrir menningarvitar voru
lífsförunautur Mary, Percy Bysshe
Shelley, stjúpsystir hennar Claire
og læknir Byrons, John Polidori.
Með í för var líka William, ungur
sonur þeirra Mary og Percys.
Þau settust að við Genfarvatn
í Sviss og elstu menn mundu ekki
aðra eins ótíð. Byron lávarði datt
þá í hug að hvert þeirra skrifaði
hryllingssögu, svona til að drepa
tímann.
Metnaður Mary var mikill. Hún
vildi gjarnan vekja aðdáun þess-
ara vina sinna og skrifa sögu sem
fengi blóðið til að frjósa í æðum
lesenda.
Fyrsta vísindaskáldsagan
Hryllingssögur voru nokkuð
vinsælar þá um stundir en með
sögunni um Frankenstein fór
Mary skrefinu lengra. Sög-
una um vísindamann-
inn Victor Franken-
stein sem tekst að
skapa manneskju
úr líkamshlutum
héðan og þaðan
má jafnvel telja
fyrstu vísinda-
skáldsöguna.
Ekki dregur
það úr mikil-
vægi hennar.
Í raun fjall-
ar hún um
hvað gerst get-
ur þegar
maðurinn
reynir að
leika eftir
skaparanum.
En hún
fjallar líka og
ekki síður um ást
og vináttu. Mann-
vera sem kastað er út úr
samfélagi manna hlýtur að
vera ill – rétt eins og ófreskjan
hans Frankensteins.
Bókin naut mikilla vin-
sælda og hver útgáfan rak aðra.
Öld síðar var hún kvikmynd-
uð og túlkun Borisar Karloff
á ófreskjunni hrelldi heims-
byggðina. Hávært þramm hans
í þröngum klæðum, með ofur-
hátt enni og þung augnlok varð
eitt af megineinkennum hryll-
ingsbókmenntanna.
Mary var einu sinni sem oftar í
útlöndum þegar bókin kom út árið
1818. Og það var ekki fyrr en hún
sneri heim árið 1823 að hún áttaði
sig á hve vinsæl sagan var. En hún
átti fullt í fangi með að gleðjast yfir
árangrinum. Harmur og hremm-
ingar sem hún átti að baki höfðu
breytt sýn hennar á rómantískt líf
bóhemanna.
Ofurhuginn Percy, stóra ást-
in í lífi hennar, hafði drukknað í
Lerici-flóa á Ítalíu. Hún hafði líka
misst tvö af þremur börnum sín-
um.
Flutti að heiman
Percy Bysshe Shelley kom eins
og ferskur andblær inn í líf henn-
ar þegar hún var 16 ára. Hún var
þá orðin hundleið
á tilbreyting-
arlausri og
innilok-
aðri
til-
veru
sinni
og ekki
síður á
stjúpmóður
sinni en móðir Mary
lést skömmu eftir fæðingu henn-
ar.
Mary og Percy voru sálufélagar
og árið 1814 fluttu bæði að heim-
an og hófu sambúð. Foreldrar
beggja settu sig alfarið upp á móti
þessu sambandi, ekki síst vegna
þess að Percy var kvæntur mað-
Mary Shelley skrifaði fjölda skáldsagna auk Frankensteins, t.a.m. leikrit og
ferðasögur.
Í bókinni Mathilda fjallar hún um sjáflsmorð og sifjaspell. Hún skrifaði hana
á árunum 1819-1820 en bókin var ekki gefin út fyrr en árið 1959. Faðir Mary
Shelley fékk handritið til yfirlestrar og fannst umfjöllunin um sifjaspell ógeðsleg
og óviðeigandi. Árið 1823 kom Valperga út, þar verður kvenhetja á miðöldum
að velja milli ástar og frelsis. Hún velur frelsið. The Last man kom út árið 1826,
Mary hugar þar að framtíðinni og falli mannsins. Hún hlaut harkalega dóma fyr-
ir hana en sagan telst nú eitt af bestu verkum hennar.
Mary Shelley sá einnig um útgáfu á heildarverkum eftir Percy Bysshe Shelley.
Að honum látnum neyddist hún til að skrifa blaðagreinar og ferðafréttir til að
hafa í sig og á.
Mary Shelley skrifaði um
sjálfsmorð og sifjaspell
Mary Shelley Var þrjósk
manneskja og flutti til
útlanda á unglingsaldri.
„Það sem skelfir mig, skelfir aðra.”
Mary sagði þetta uM drauM seM Varð henni að yrkisefni í sögunni uM frankenstein.
Hún skapaði
Frankenstein-
óFreskjuna
Mary Shelley var aðeins 21 árs þegar hún sendi frá sér hryllingssöguna um Frankenstein. Dapurlegustu
hlutar bókarinnar endurspegla þær hremmingar sem einkenndu líf hennar.
Byron lávarður lét
sér detta í hug að
Mary Shelley skrifaði
hryllingssögu.
ef tir önnu l arsdot ter
Fr ægir rithöFundar mary shelley