Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Side 62
Föstudagur 25. júlí 200862 Helgarblað DV
Tónlist
Lágstemmd Karen O
Forsprakki Yea Yeah Yeahs, söngkonan Karen O, hefur
nú undanfarið verið að túra með hliðarverkefni sínu,
Native Korean rock. tónlistin er aðeins lágstemmdari
en pönk-rokkið frá Yeah Yeah Yeahs, í þetta skiptið er
Karen hreinlega að syngja gamaldags ástarsöngva.
tónlistarunnendur ættu svo sannarlega að kynna
sér Native Korean rock á Myspace-síðu sveitarinnar,
myspace.com/nativekoreanrock.
uMsjóN: Krista Hall krista@dv.is
Endurkoma
Davíðs Smára
Idolstjarnan Davíð Smári
og hljómsveitin hans hafa spil-
að úti um allt land í sumar og
næsti viðkomustaður verður
á 800 bar á Selfossi. Strákarn-
ir eru nýkomnir úr stúdíói þar
sem þeir tóku upp nýtt lag eftir
meðlimi sveitarinnar en það
fer í spilun á útvarpsstöðvun-
um í haust. Davíð sagðist lofa
geðveiku lagi og er greinilega
ánægður með árangurinn en
það hefur ekki farið mikið fyrir
honum síðan hann sló í gegn í
Idolinu árið 2003.
Rokkað gegn
nauðgunum
„Við erum með starfsemi allt
árið en við höfum verið að detta í
gang með þetta átak fyrir verslun-
armannahelgina frá árinu 2003. Í
fyrra héldum við í fyrsta skipti tón-
leika til að vekja athygli á málstaðn-
um og það lukkaðist svo rosalega
vel að við ákváðum að gera það aft-
ur í ár,“ segir Hjálmar Gunnar Sig-
marsson „ráðskona“ karlahópsins.
Þær hljómsveitir sem fram
koma á tónleikunum eru: Æla, Ark-
ir, Kettir, Jan Mayen, Morðingjarnir,
My Summer As A Salavation Sold-
ier, Naflakusk, Poetrix, Tríó Magn-
úsar Tryggvasonar og Vicky Poll-
ard. „Það er frítt inn á tónleikana
en fólk getur hins vegar stutt okk-
ur með frjálsum framlögum eða
kaupum á Nei-bolunum sem við
erum að selja. Við erum einmitt
búin að bæta vel í litaflóruna þar
svo þeir sem eiga bol nú þegar geta
fengið sér nýjan í öðrum lit.“
ekki nóg að vera bara
ósáttur
Að sögn Hjálmars er takmark
karlahópsins og Jafningjafræðsl-
unnar að leggja áherslu á mikil-
vægi þess að fólk taki virkan þátt í
baráttunni gegn kynjabundnu of-
beldi.
„Við viljum sérstaklega vekja at-
hygli karlmanna á málinu en auð-
vitað líka vekja athygli á því að
þetta kemur öllum við og það er
ekki nóg að vera ósáttur við þetta
ofbeldi heldur verður að gera eitt-
hvað í málinu. Þegar karlahópur-
inn fór af stað árið 2003 kom upp
sú hugmynd að gera eitthvað tengt
verslunarmannahelginni. Við fór-
um þá að velta því fyrir okkur að
það væri einn vinkill sem vantaði
í baráttunni gegn kynjabundnu of-
beldi. Umræðan hafði alltaf beinst
að kvenmönnunum, um að þær
yrðu að passa sig að verða ekki of
fullar og alltaf að halda hópinn, en
það vantaði að beina umræðunni
að karlmönnunum sem eru yfir-
þyrmandi meirihluti gerenda.“
stuðningur almennings
aukist
Hjálmar segist finna fyrir gríð-
armikilli aukningu á stuðningi við
hópinn undanfarin ári. „Fyrst þeg-
ar við vorum að fara í gang með
átakið Nei við nauðgunum skildi
fólk ekki alveg hvað við áttum við
og margir spurðu hvort við værum
að ráðast á karlmenn með átak-
inu. Við erum að sjálfsögðu ekki að
því heldur erum við einfaldlega að
hvetja þá til að taka afstöðu og sýna
ábyrgð. Við vorum á eins konar
byrjunarreit að kynna átakið fyrstu
tvö árin en upp úr 2005 fórum við
að finna fyrir miklum breytingum.
Í stað þess að við værum að troða
barmmerkjunum upp á fólk byrj-
aði það að koma til okkar og óska
eftir fleiri barmmerkjum og lím-
miðum.“
Tónleikarnir á Organ í kvöld
hefjast upp úr níu og standa yfir til
klukkan þrjú eftir miðnætti. Í kjöl-
farið tekur við plötusnúðasett sem
skemmtir gestum til klukkan fimm
um morguninn. „Við hvetjum að
sjálfsögðu alla til að mæta og sér-
staklega þá sem vilja sýna þessum
málstað stuðning og kíkja í leiðinni
á flottar hljómsveitir. Með átak-
inu viljum við leggja áherslu á að
tryggja það að verslunarmanna-
helgin sé það sem hún á að vera,
góð skemmtun,“ segir Hjálmar að
lokum.
krista@dv.is
Karlahópur Femínistafélagsins
í samstarfi við Jafningjafræðsl-
una stendur í kvöld fyrir tón-
leikum á Organ sem bera yfir-
skriftina Nei við nauðgunum.
Þar kemur fram fjöldi íslenskra
hljómsveita og er frítt inn á
tónleikana.
Halda tónleika fyrir Helga Hóseasson
Rokkararnir í Atómstöðinni
standa í stórræðum um helgina og
fara heldur ótroðnar slóðir í tón-
leikahaldi. Í kvöld, föstudag, blæs
sveitin til mótmælendatónleika
til að sýna samstöðu með Helga
Hóseassyni milli klukkan sjö og
átta en annað kvöld verða útgáfu-
tónleikar Atómstöðvarinnar á Org-
an.
„Málið er að hann Helgi, sem er
orðinn níræður, treystir sér ekki til
að fara langt frá heimili sínu. Hann
hefur því ekki getað þegið það að
koma á tónleika sem við höfum
verið að bjóða honum á og því
sáum við ekkert annað í stöðunni
en að fara til hans og halda tónleika
á horninu hans á Langholtsvegin-
um. Með því langaði okkur að votta
þessum magnaða manni virðingu
okkar og standa með honum vakt-
ina í smástund og vekja með hon-
um athygli á hans málstað,“ seg-
ir Guðmundur Ingi Þorvaldsson,
söngvari Atómstöðvarinnar.
„Við lítum mikið upp til Helga
og sú tenging sem við höfum við
hann er að okkur hefur alltaf fund-
ist við svolítið utan við í íslensku
tónlistarsenunni en okkur er al-
veg sama og höldum bara áfram að
rokka fyrir okkur.“
Annað kvöld verða svo tónleikar
á Organ til að fagna nýjustu plötu
Atómstöðvarinnar, Exile Republic.
„Við vorum orðnir svo þreyttir á
þessu hefðbundna tónleikaformi
þar sem allir taka sig svo alvarlega
að það má ekki brosa svo okkur
langaði að bjóða gestum okkar upp
á óhefðbundna skemmtun,“ segir
Guðmundur.
Tónleikarnir á Organ hefjast
klukkan tíu með Jojo, hálftíma
seinna mætir harmonikkuleikari
á svæðið, því næst Vicky Pollard,
svo leynigestur og á miðnætti stíg-
ur Atómstöðin á svið. Sjálfur Stjáni
stuð sér um að loka kvöldinu með
stæl en miðasala á tónleikana fer
fram við innganginn og kostar ein-
ungis fimm hundruð krónur inn.
krista@dv.is
Atómstöðin heldur tvenna heldur óvenjulega tónleika um helgina:
Nýtt Rott-
wEilERlag
XXX Rottweiler hundar
hafa verið einstaklega iðnir
við tónlistarsköpun að und-
anförnu og er nú splunkunýtt
lag komið inn á Myspace-
síðu sveitarinnar, myspace.
com/xxxrottweilerhundar. Lag
þetta nefnist Gemmér og var
það Lúðvík Páll sem sá um
lagasmíð og Ágúst Bent um
textaflutning. Laginu er hægt
að hlaða niður af Myspace-síð-
unni fyrir útvarpsspilun og eru
allir aðdáendur sveitarinnar
hvattir til að tékka á þessu eit-
urferska lagi.
Ósætti Zeppelin-
meðlima
Alltaf minnka líkurnar á því
að tónleikaferðalag Led Zepp-
elin verði að veruleika. Robert
Plant er ekki sáttur við Jimmy
Page eftir að hann gleymdi að
þakka honum í þakkarræðunni
þegar hann tók við verðlaun-
um fyrir hljómsveitina í síðasta
mánuði. Haft var eftir heimild-
armanni að Robert væri mjög
ósáttur við að hann hafi ekki
fengið þakkir. Verðlaunin voru
fyrir frammistöðu hljómsveit-
arinnar og því hefði Page átt að
þakka honum.
standa vaktina með Helga Hóseassyni atómstöðin blæs til mótmælatónleika í kvöld á langholtsveginum.
Hjálmar gunnar sigmarsson,
„ráðskona“ karlahóps Femínista-
félagsins Hjálmar segir mikilvægt að
fólk taki virkan þátt í baráttunni gegn
kynjabundnu ofbeldi.
dV mynd: arnar ómarsson
Hljómsveitin Vicky Pollard Er
meðal þeirra hljómsveita sem
ætla að vekja athygli á málefninu
Nei við nauðgunum.