Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2008, Side 63
DV Helgarblað Föstudagur 25. júlí 2008 63
The Dark Knight
stærsta mynd ársins. stendur undir
væntingum og vel það.
mælir með...
n Tónleikar með mugison á nasa
örn Elías guðmundsson eða Mugison eins og
flestir þekkja hann heldur tónleika á Nasa á
föstudagskvöldið. Mugison var með tónleika á
Hróarskeldu í ár og sló allrækilega í gegn.
Mugison er þekktur fyrir að halda uppi góðri
stemningu með söng sínum og því má búast við
svaka tónleikum þegar þessi frábæri listamaður
stígur á svið. Miðaverð er aðeins þúsund krónur.
n Bryndís JakoBsdóTTir í gamla Bænum í mývaTnssveiT.
Bryndís jakobsdóttir er í tónleikaferð um ísland um þessar mundir og heldur
tónleika í gamla bænum í Mýtvatnssveit. Platan hennar kom út fyrr á árinu og
hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og selst vel. lög dísu eins og hún er
kölluð, anniversary og temptation, hafa hljómað á útvarpsstöðvum landsins og
hefur slegið í gegn hjá landanum. Miðaverð á tónleikana er 1000 krónur.
n dalTon á Frönskum dögum á FáskrúðsFirði
Hljómsveitin dalton spilar á frönskum dögum á
Fáskrúðsfirði. stuðboltarnir í dalton, þeir Böddi,
danni, gunnar, Kiddi gallager og Haddi Már munu
halda uppi góðri stemningu á Frönskum dögum eins
og þeim einum er lagið. Því ekki að skella sér á ball á
Frönskum dögum og finna stemninguna í bænum
þegar hátíðin er haldin?
n Hugsandi dans-
TónlisT
Mánaðarlegt klúbbakvöld á tunglinu þar sem
koma fram landsþekktir plötusnúðar ásamt
ýmsum dans- og raftónlistarmönnum. Á
klúbbakvöldunum er aðeins eitt markmið
og það er að miðla bestu og flottustu
danstónlistinni í dag. skelltu þér í
dansgallann og dansaðu frá þér allt vit. skemmt-
unin hefst klukkan ellefu og stendur fram á morgun.
nmærudagur á Húsavík
stebbi og strákarnir hafa getið
sér gott orð fyrir skemmtilegt
prógramm. Þeir stebbi, jósi, addi, danni,
raggi og unnsteinn verða á gamla
Bauk á föstudagskvöldið. Mikil
stemning myndast á dansgólf-
inu þegar þeir félagar taka lög
hljómsveita á borð við
Þursaflokkinn, Queen og u2.
n dJ rikki g á sólon
léttur föstudagur á sólon. dj rikki
g sér um að halda fólkinu á dansgólfinu. Erfitt er að sitja
kyrr á meðan rikki er í búrinu. góð tónlist frá upphafi til
enda. taktu vini þína með og myndið góðan danshóp á
gólfinu. Þeir sem ekki eru mikið fyrir að dansa geta setið
og horft á hina á fleygjandi
sveiflu um gólfið.
snyrtilegur klæðnað-
ur á solon.
n aTómsTöðin með úTgáFuTónleika á
organ klukkan 23.
atómstöðin heldur útgáfutónleika á Organ í
kvöld. Nýverið gaf hún út diskinn Exile
republic. atómstöðin er fjögurra manna
rokkgrúppa. Bandið þykir hresst og fjörugt
með góða sviðsframkomu sem skilar sér ávallt
í rífandi stemningu. Það kostar aðeins fimm
hundruð kall inn á tónleikana og því ættu allir
rokkarar að láta sjá sig.
n JeT Black Joe á 800Bar á selFossi
jet Black joe er ein magnaðasta rokksveit
íslandssögunnar með Pál rósinkrans og
gunnar Bjarna í broddi fylkingar. í vor fyllti
hljómsveitin laugardalshöllina og var
gríðarleg stemning. að fara á tónleika með jet
Black joe er mikil skemmtun, bæði fyrir þá
sem finna sig á dansgólfinu og hina sem koma
til að hlusta á tónlistina. Fyrstu 100 fá frían bjór
og það kostar 2000 kr. inn.
n BræðsluHáTíðin á BorgarFirði eysTri
tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystri er
haldin í fjórða sinn í ár og hafa margar
stórstjörnur komið fram á hátíðinni, þar má
nefna Belle & sebastian og Megas og senuþjóf-
ana. Á hátíðinni í ár koma fram frábærir
tónlistarmenn, írska söngvaskáldið damien rice,
Eivör Pálsdóttir og heimamaðurinn Magni
Ásgeirsson.
n euroBandið á Players
Hin landsþekkta hljómsveit Eurobandið
mun stíga á svið á Players á laugardags-
kvöld. Þau Friðrik Ómar og regína Ósk
eru þekkt fyrir það að trylla lýðinn á
dansgólfinu og það verður engin
breyting á því þetta kvöldið. að skella sér
á ball með Eurobandinu er góð skemmtun
og þú átt ekki eftir að sjá
eftir því.
n naPoleon á Hressó
klukkan 23.00
Hljómsveitin Napoleon frá
Kirkjubæjarklaustri spilar á
Hressó í kvöld. Hljómsveitin er
þessi týpíska sveitaballahljóm-
sveit, spilar það sem fólk vill
heyra hvort sem það er gamalt, nýtt,
rólegt eða hresst. Fjörið hefst klukkan ellefu og lýkur hálf
tvö. Eftir það mun dj hússins halda uppi stemningu langt
fram á nótt.
n Bermúda á HoFsósi
Hljómsveitin Bermúda mun
troða upp á Hofsósi á
laugardagskvöldið. Bermúda
hefur verið að spila síðustu
fjögur ár en á síðustu
tveimur árum hefur hún
komið sterk inn sem
ballhljómsveit ársins. Hljóm-
sveitin spilar meðal annars
diskótónlist, stevie Wonder og Beyoncé Knowles og því
ættu allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð. dragðu fram
dansskóna og skelltu þér á ball.
FösTudagur laugardagur
HHHHH
HHHHH
HHHHH
Hvaðeraðgerast
mælir ekki með...
Hellboy II: The Golden Army
Myndin er leiðinleg á köflum, mjög löng-
um köflum. Það sem þó rífur hana upp
við og við er metnaðarfull hreyfimynda-
gerð, förðun og brellur.
Deception
Handritið er almennt í fínu lagi en senni-
lega of ótrúverðugt. Plottið þarf algjört
hámark af rugli, tilviljunum og vand-
ræðagangi til að geta gengið upp.
Austurlandahraðlestin
demantur í veitingaflóru reykjavíkur.
Caruso
góður matur og frábær og
heimilisleg þjónusta.
Mamma Mia!
Á grensunni hvort myndin eigi að
vera í þessum flokki. Hún er þó allra
fínasta skemmtun fyrir þá sem eru
mikið fyrir söngvamyndir. Hinir ættu
að halda sig fjarri.
HHHHH
HHHHH
HHHHH
N
ýt
t í
b
íó THe dark knigHT leikstjórn: Christopher Nolan aðalhlutverk: Christian Bale, Heath ledger, Morgan Freeman, Michael Caine, gary Oldman, aaron Eckhart, Maggie
gyllenhaal
Handrit: jonathan Nolan, Christopher
Nolan
myndin sem allir hafa beðið eftir. Hún
fær varla slæman dóm og gagnrýn-
endur kalla mynd ársins. dv gaf henni
4,5 stjörnur af fimm. Batman eltist við
mafíósa gotham-borgar og veitir
nýjum glæpahrotta litla athygli þegar
hann fær tækifæri til þess að ná þeim
öllum í einu. Það reynast dýrkeypt
mistök því Jókerinn er fantur sem ber
að taka alvarlega.
imdb: 9,5/10
rottentomatoes: 95/100%
metacritic: 82/100
THe sTrangers
leikstjórn: Bryan Bentino
aðalhlutverk: liv tyler, scott speedman,
gemma Ward, glenn Howerton, Kip
Weeks, laura Margolis
Handrit: Bryan Bentino
Frumraun ungs leikstjóra sem margir í
hrollvekjuheiminum binda mikla vonir
við. Bryan Bentino skirfar bæði handrit
og leikstýrir. myndin The strangers
fjallar um par sem kemst í hann krapp-
an. eftir að hafa verið í brúðkaupi fara
þau í afskekkt sumarhús sitt. um miðja
nótt er síðan barið að dyrum hjá þeim.
ókunnugt fólk ryðst inn á heimili þeirra
og parið þarf að berjast fyrir lífi sínu.
Þau þurfa að gera hluti sem fólk á
aðeins að þurfa að sjá í bíómyndum.
imdb: 6,8/10
rottentomatoes: 41/100%
metacritic: 47/100