Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Qupperneq 8
„Ef maður fer út og leitar finnur
maður nær alltaf flæking. Ekki allt-
af sjaldgæfa flækinga en það kemur
þó fyrir. Þetta sumar er keimlíkt fyrri
sumrum en þó hafa sést nokkrar afar
sjaldgæfar fuglategundir,“ segir Björn
G. Arnarson. Hann er annar tveggja
sem vinna við Fuglaathugunarstöð
Suðausturlands. Eitt af hlutverkum
hennar er að fanga og merkja fugla
sem hér hafa viðkomu. Upplýsingar
um flækinga eru svo samviskusam-
lega settar á fuglar.is sem er vefur
stöðvarinnar. Þar má sjá langan lista
yfir flækingsfugla sem sést hafa und-
anfarin ár.
Kjarnbítur og kornhæna
„Það sem upp úr stendur það sem
af er sumri er flækingur sem heitir
straumsöngvari. Hann sást í sumar
en hefur aðeins tvisvar sinnum sést
áður. Þetta er móbrúnn fugl á stærð
við þúfutittling. Hann er með stærri
söngvurum og hefur verið hér í um
mánuð,“ segir Björn. Meðal ann-
arra merkra fugla sem sést hafa eru
kjarnbítur, sönglævirki, bláheiðir,
þyrnisvarri, dvergmávar, bleshæn-
ur, krossnefur, eyrugla, silkitopp-
ur og nú síðast kornhæna sem sást
í Önundarfirði. Björn segir ekki allt-
af auðvelt að greina flækingsfugla
sem líkjast hinum íslensku staðfugl-
um, sér í lagi þegar allir ungarnir
er komnir á stjá. Þá getur það orðið
mjög snúið.
Þúsund merktir kríuungar
Fuglaathugunarstöð Suðaustur-
lands hefur í Einarslundi komið upp
netum þar sem fuglar eru fangað-
ir og merktir. Björn hefur lengi haft
áhuga á fuglum og segir frábært að
hafa tækifæri til að vinna við það sem
hann hefur mestan áhuga á. „Það er
frábært að geta sinnt áhugamálinu
og fá smáræði fyrir það um leið. Rík-
ið styrkir starfsemina hér og það ger-
ir sveitarfélagið líka,“ segir hann.
Íslendingar hafa lengi fylgst vel
með kríunni. Í fyrra varð mikill við-
komubrestur um allt land. Björn seg-
ir að varpið virðist hafa tekist mjög
vel á Suðausturlandi. „Í síðustu viku
náðum við þeim áfanga að merkja
þúsundasta kríuungann. Við höfum
aldrei merkt annan eins fjölda, þrátt
fyrir dræmari fréttir frá öðrum lands-
hornum. Stærstur hluti var merkt-
ur við Jökulsá á Breiðamerkursandi.
Til samanburðar merktum við ekki
nema 100 unga í fyrra,“ segir Björn.
Haustin skemmtilegust
Sumir fuglar sem flækjast hing-
að freista þess að reyna varp. Það
hafa nokkrir flækingar gert í sumar,
með ágætum árangri. Þar má nefna
dvergmáv og barrfinku en báðar teg-
undir komu upp ungum í sumar. Þá
verpti í Einarslundi gráþröstur, en
hann er náfrændi skógarþrastarins
að sögn Björns.
Fuglaáhugamenn bíða spennt-
ir eftir haustinu. Þá er helsti ferða-
tími farfugla og snarpar sunnan-
eða austanáttir gera það að verkum
að hingað flækjast sjaldgæfar fugla-
tegundir. „Þegar það eru stífar aust-
anáttir koma margir fuglar frá Evr-
ópu. Þegar áttirnar eru suðvestlægar
koma fuglar frá Ameríku. Það er sér-
staklega gaman á haustin að taka
góðan göngutúr eftir stífar lægðir.
Þá er ekki leiðinlegt að hafa áhuga á
fuglum,“ segir Björn að endingu.
föstudagur 1. ágúst 20088 Fréttir DV
Ár hvert streyma til landsins hundruð ef ekki þúsundir flækingsfugla utan úr hinum stóra heimi. Þeir hrekj-
ast að ströndum landsins undan djúpum lægðum Atlantshafsins. Höfn í Hornafirði er viðkomustaður þeirra
margra. Björn Gísli Arnarson er mikill fuglaáhugamaður og annar tveggja sem vinna við Fuglaathugunarstöð
Suðausturlands. Hann hefur fylgst vel með þeim fuglum sem hafa flækst hingað undanfarið.
Flækingar og
FurðuFuglar
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Það er sérstaklega
gaman á haustin að
taka góðan göngutúr
eftir stífar lægðir. Þá er
ekki leiðinlegt að hafa
áhuga á fuglum.“
Björn G. Arnarson Með
þúsundasta kríuungann.
dV-Mynd Brynjúlfur Brynjólfsson og Björn gísli arnarson
Eyrugla sást í Einarslundi snemma í
sumar. Einarslundur er stundum kallaður
ugluskógur vegna þess að þar má oft
finna uglur.
Sönglævirki er líkur
þúfutittlingi sést
nánast á hverju ári en
yfirleitt að hausti.
Barrfinka, kvenfugl Þær eru farnar að
koma í hópum og komu upp ungum
allvíða í sumar.
Kjarnbítur festist í
neti í Einarslundi í
sumar Hefur aðeins
nokkrum sinnum sést á
landinu áður.
Straumsöngvari
Hefur aðeins sést
tvisvar áður á
landinu.
Þyrnisvarri Kom til
Hafnar fyrr í sumar.