Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Side 20
Á sumrin hægist á öllu mannlífinu og
erfiðara verður að fylla fjölmiðla af
fréttum. Hugtakið gúrkutíð er sprott-
ið af óvenjulega miklum áhuga fjöl-
miðla af gúrkusprettu á hásumrin,
líklegast þegar ekkert bitastæðara er
til að fjalla um í fjölmiðlum.
Á Íslandi er það hins vegar ekki
óvenju góð grænmetisspretta, sem
heillar fjölmiðlamenn. Nær lagi væri
að tala um fréttir sem tengjast dýr-
um og því hvernig þau hafa komið
sér í sviðsljósið. Dýrin geta haft mik-
il áhrif inn í ráðhús og ráðuneyti. Til
dæmis má nefna þrjá valdamenn sem
hafa bakað sér óvinsældir og illt um-
tal dýraverndunarsinna, vegna um-
deildra ákvarðana sinna. Þau Þórunn
Sveinbjarnardóttir, Gísli Marteinn
Baldursson og Guðni Ágústsson hafa
öll orðið umdeild fyrir að hafa fyrir-
skipað dýradráp. Það væri mögulega
efni í rannsóknarritgerð að skoða
hvaða áhrif umdeildar
ákvarð- anir
um dýrin geta haft á feril stjórnmála-
manna. DV rifjar hér upp nokkrar
undarlegar fréttir sem stolið hafa sen-
unni síðustu tvö sumur.
Ísbirnir eða ofsjónir?
Eftir að tvö mál komu upp snemma
sumars, þar sem ísbirnir sáust hér á
landi, hafa landsmenn ekki mátt sjá
hvítan blett í fjarlægð án þess að setja
allt á annan endann. Málin þar sem
ísbirnirnir voru skotnir vöktu gífur-
lega mikla athygli og deilur. Björg-
unarsveitir og Landhelgisgæslan
hafa hins vegar haft í nógu að snúast
að leita að meintum ísbjörnum við
strendur landsins. Ekki hefur tangur
eða tetur fundist af ísbjörnum síðustu
vikur, en það kann að vera að hrútar
á fjalli og snjóskaflar sem sólin skín á
hafi villt um fyrir fólki.
Lúkas Lifir
Hundurinn Lúkas hefði vafalaust
fengið um sig fjórtán síður af minn-
ingargreinum í Mogganum ef það
hefði verið í boði. Að minnsta kosti
fékk flækingshundurinn frá Akureyri
kertafleytingu á Tjörninni í Reykjavík
og grátandi dýravini í sjónvarpinu.
Mitt í þessu öllu var sakleysinginn
Helgi Rafn Brynjarsson, sem fékk yfir
sig ótrúlega gusu af brjáluðum blogg-
aralýð sem vildi helst troða honum
í íþróttatösku og sparka í hann. Svo
kom Lúkas niður af fjalli, nokkuð hor-
aður og mannfælinn, en að öðru leyti
í ágætis standi og hinn meinti dýram-
orðingi fékk uppreisn æru.
Tófa beiT konu
Mannýg tófa skammt frá Hafn-
arfirði komst í fréttirnar í vikunni
fyrir að ráðast á konu sem var
á göngu í hlíðum Húsfells. Tóf-
an beit konuna í fótlegginn svo úr
varð nokkuð sár. Konan þurfti að
leita sér aðhlynningar og fá stíf-
krampasprautu á slysadeild. Atvik af
þessu tagi eru ótrúlega sjaldgæf, að
minnsta kosti hafði prófessor í spen-
dýrafræði aldrei heyrt um annað
eins. Þó fréttin sé vissulega athyglis-
verð hefði hún sennilega verið enn
athyglisverðari ef konan hefði bitið
tófuna til baka.
fiskur áT mink
Veiðivefurinn Flugufréttir
sagði frá því að þegar feðg-
inin Birgir Össurarson
og Hrund Nilima Birg-
isdóttir skáru á maga
væns urriða sem þau
veiddu í Ljósavatni
hafi blasað við þeim
ótrúleg sjón. Svo
virðist sem urrið-
inn hafi gleypt
minkahvolp í
heilu lagi og var
hræið af honum
nánast ómelt í
maga fisksins.
Þessi merkilega
frétt rataði á
síður fjölmiðla
og fóru Mogga-
bloggararnir meðal annars
hamförum um þetta und-
arlega atvik. Það er ekki
óvanalegt að minkar
éti urriða, en þegar
urriðarnir éta mink-
ana er það orðið
stórmerkilegt.
GÍsLi marT-
einn
oG mávarnir
Blaðið setti allt
á annan endann
í júlí 2006 þeg-
ar því var slegið
upp á forsíðu að
mávar ætu and-
arunga við Tjörn-
ina í Reykjavík.
Blaðamanni var
greinilega mikið
niðri fyrir og kom
fréttin á versta tíma fyrir mávana, en
hafði að sama skapi nokkra
pólitíska þýðingu fyrir
Gísla Martein Bald-
ursson, formann
umhverfisráðs
Reykjavíkur.
Gísli Mart-
einn skar
föstudagur 1. ágúst 200820 Helgarblað DV
OFSJÓNIR EÐA ÍSBIRNIR?
Hin svokallaða gúrkutíð ríður yfir í fjöl-
miðlum á sumrin. Þá eru flestir farnir í frí
og mannfólkið hefur almennt hægt um sig.
Kastljós fjölmiðla beinist þó ekki að góðri
gúrkusprettu á sumrin, heldur að hremm-
ingum og örlögum fulltrúa dýraríkisins.
Hver dýrafréttin á fætur annarri hefur sett
allt á annan endann í samfélaginu síðustu
sumrin, hvort sem um ræðir ísbirni, smá-
hund, mávadráp eða fréttir af óvenjulegri
hegðun fiska.
„Það er ekki óvanalegt að
minkar éti urriða, en þegar
urriðarnir éta minkana er
það orðið stórmerkilegt.“
vaLGeir örn raGnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is