Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Page 41
DV Helgarblað föstudagur 1. ágúst 2008 41
Ég hef ekki farið á Þjóðhátíð í Eyjum
í fleiri, fleiri ár, geri það líklega aldrei
aftur. Þar er svo mikið fyllerí og ég
fann það út eitt sinn að ég gæti alveg
staðið og þagað eða bara sagt fólki
að þegja og hlusta. Það er
þannig stemning hjá
fólkinu að það vill
bara syngja en er
ekkert að spá í
hvað maður er
að gera uppi á
sviði. Þegar ég
fann að það skipti
ekki máli hver stóð
á sviðinu ákvað ég
að standa ekki í
þessu meir. En
í leikhúsinu er
pottþétt að-
staða.“
Borgarleikhúsið
Laddi hefur verið áberandi í
Borgarleikhúsinu undanfarin ár. Og
breiddin er mikil því hann hefur verið
í Grease, Kalla á þakinu, Sölku Völku
og Ronju Ræningjadóttur, Viltu finna
milljón?,
Ófagra
veröld
og
Lík
í
óskilum, svo eitthvað sé nefnt. En
verður hann áfram í Borgarleikhús-
inu núna þegar nýr leikhússtjóri,
Magnús Geir, hefur tekið við?
„Ég veit ekki hvað verður með
nýjum leikhússtjóra en ef mér verð-
ur boðið hlutverk get ég vel hugsað
mér að vera þar áfram. Ég hef ver-
ið í Borgarleikhúsinu óslitið í 5 ár og
kann rosalega vel við mig þar. Enda er
þetta skemmtilegt og gott hús og þar
ríkir góður andi. Það kom mér á óvart
hvað ég kunni vel við mig í leikhús-
inu, mig hafði ekki langað svo mikið
að vinna í leikhúsi en svo er það svo
rosalega gaman. Borgarleikhúsið er
lokað í sumar og ég er í fríi í tvo mán-
uði. Svo tekur sýningin mín við aftur
í haust. Það er yfirleitt lítið að gerast
yfir sumarið, svona eitt og eitt verk-
efni. En yfirleitt vil ég vera í fríi í mínu
golfi á sumrin. Sumarið er svo stutt
svo ég nýt þess að spila golf og hlaða
batteríin.“
Leiklistarskóli í Los Angeles
Fórstu ekki í leiklistarnám til út-
landa eftir að þú varst orðinn þekktur
á Íslandi?
„Jú, ég fór einn vetur til Banda-
ríkjanna. Ég var að reyna að komast
inn í Félag íslenskra leikara. Það var
erfitt því ég var ekki lærður leikari
svo ég gerði bara eitthvað í þessu
og fór einn vetur í UCLA og það
dugði. Þetta var árið ´82 og ég
var ekkert unglamb. Enda var
ég langelstur í skólanum,
jafngamall kennaranum,
sem sagt eldri maður!
Það var
voða-
lega gaman að vera í Los Angeles,
náttúrulega svolítið erfitt. Ég var ekk-
ert svo góður í málinu og hefði þurft
að vera lengur og komast betur inn
í málið til að verða „flúent“ í ensku.
Þessi tungumálahindrun gerði mér
erfitt fyrir í ýmsum senum og það var
mikið hlegið að mér þegar textinn
kom öfugur út úr mér. En það var allt í
lagi, ég gat þá skemmt fólkinu. Ég fékk
spark í rassinn þarna úti. Ég var búinn
að vera svo lengi þekktur á Íslandi en
þarna úti var ég alveg óþekktur, léleg-
ur í málinu og lítill karl. Ef ég hef ekki
verið alveg niðri á jörðinni hér heima
áður, þá skall ég algjörlega niður á
jörðina í skólanum. Ég var lítill karl
þarna. Það var aðallærdómurinn.“
Minnimáttarkennd
En þú virkar svo hógvær, stjörnu-
stælar eru víðs fjarri þér. Hefurðu ekki
alltaf verið niðri á jörðinni?
„Ég hef alltaf verið með mína
minnimáttarkennd og ekki haft mikla
trú á sjálfum mér, sjálfsmat mitt er
ekki hátt svo ég hef í raun alltaf ver-
ið með báða fætur á jörðinni. Ég
geng ekki upp á svið og segi „þetta er
pottþétt“, ég er alltaf í vafa og finnst
ég ekkert sérstaklega góður, nema
stundum.“
Á sviðinu ertu stjarna og átt allan
salinn. En það er sagt um þig að þú
sért rólegur og hlédrægur baksviðs. Er
það rétt?
„Ég er oftast inni á mínu herbergi
baksviðs fyrir sýningu og í hléi. Er
einn og pæli í hlutum, ræð krossgátur
og dreifi huganum. Þannig gleymi ég
stressinu.“
Kemstu alveg upp með þetta, býst
fólk ekki við því að fá frá þér einhver
skemmtilegheit?
„Í leikhúsinu fæ ég alveg að vera
í friði. En á almannafæri hefur það
verið svolítið þannig að fólk vill
panta skemmtun og býst við að mað-
ur leiki á als oddi. Fólk vill að maður
sé hress. Þá er horft á mann og beð-
ið: „Nú kemur eitthvað.“ Þetta er dá-
lítið óþægilegt. Og ég hef spekúler-
að í að gott væri að hafa hluta af því
sjálfstrausti sem það fólk hefur sem
er hrókur alls fagnaðar á almanna-
færi. Ég hef skánað mikið en ég mætti
gjarnan hafa smáskammt af þessu
sjálfstrausti.“
Ástæður óöryggisins
Hvaðan er þetta óöryggi og þessi
sjálfsgagnrýni sprottin?
„Kannski úr æsku. Ég var hlédræg-
ur og mér var strítt þó ég kalli það ekki
beint einelti en maður fór inn í sína
skel og þetta gætu verið leifar af því.
Mér var mikið strítt af því ég var frá fá-
tæku heimili og ekki alltaf í flottustu
fötunum. Og svo lá ég vel við höggi út
af feimninni. Það kom þá upp í mér
að ég væri ómögulegur og ég sagði
við sjálfan mig að ég væri glataður.“
Hvernig var þinn uppvöxtur?
„Ég ólst upp í Hafnarfirði og var
heppinn að eiga ömmu og afa í Aust-
ur-Landeyjum og var þar oft á sumr-
in, það bjargaði mér, bjargaði mér
rosalega vel. Ég sótti beljurnar og
naut þess að vinna venjuleg sveita-
störf. Mamma og pabbi skildu þegar
ég var þriggja ára og mamma var ein-
stæð móðir með okkur strákana. Það
var óregla á heimilinu hjá mömmu.
Hún var að reyna að vinna eitthvað
en stundaði ekki alltaf vinnu vegna
óreglu. Við vorum fjórir albræður,
tveir fóru í sveit og til vinafólks og
við vorum tveir eftir hjá mömmu.
Við bjuggum í kjallaranum í húsi afa
og ömmu í Hafnarfirði og maður gat
fengið að borða hjá þeim en þau áttu
þó ekki mikla peninga. Þetta bjargað-
ist samt. Afar mínir og ömmur skiptu
mig miklu máli og reyndust mér vel
og ég kom því sæmilega út úr lífinu.“
Margir skapandi einstaklingar
upplifa andlega öldudali og þunga.
Hvernig ert þú?
„Ég er yfirleitt hress og kátur en á
til þunglyndi eftir að hafa gefið mik-
ið af mér. Þegar ég hef skemmt fólki
verð ég þungur á eftir. Þetta er skrít-
ið því þá ætti ég að verða ofsaglaður
en þessu fylgir oft að ég verð þungur
og tómur á eftir. Já, ég á mína þungu
daga en oftast er ég bara kátur og
skemmtilegur.“
Spánarbakterían
Hefurðu ekki verið töluvert tengd-
ur Spáni undanfarin ár?
„Í kringum árið 2000 var leitað
til mín og ég beðinn um að gerast
umboðsaðili fyrir íbúðir á Spáni.
Þeir voru að leita að þekktum aðila
á Íslandi til að vera umboðsmaður
og ég hafði lengi haft áhuga á Spáni
eftir að hafa verið þar fararstjóri. Og
það var mjög gaman í þessu starfi í
svona 3 ár því það voru ekki margir
í þessu en svo flykktust allir í þetta,
fjöldi fasteignasala byrjaði í þessu
og ef vel hefði átt að vera hefði ég
þurft að læra að verða fasteignasali
og opna skrifstofu en ég ákvað að
hætta bara í þessu. Vildi frekar vera
í leiklist og skemmta fólki.
En ég held enn mikið upp á Spán,
var til dæmis alltaf að skemmta á
Mæjorka í gamla daga. Var farar-
stjóri líka og núna starfa ég stundum
hjá Sumarferðum við að skemmta á
Kanarí og Tenerífe.
Um síðustu áramót var ég með
skemmtun á Tenerífe á nýársdag og
það tókst svo vel að ég hef verið beð-
inn um að vera aftur. Það komu 600
manns, allir Íslendingar á eyjunni
held ég bara. Vonandi verð ég aftur
þarna um næstu áramót.“
Leiðinlegt að reka bar
Svo varstu í veitingarekstri um
tíma, rakst bar á horni Ingólfsstrætis
og Hverfisgötu?
„Já, hann hét Sur Óliver, bar-
inn sem ég rak. Það var ömurlegt
tímabil, ömurlegt að reka bar. Mér
bauðst þetta í skiptum fyrir ein-
hverja skuld. Staðurinn kom því
upp í hendurnar á mér og ég ákvað
að prufa þetta, en það gekk ekki vel
og svo var þetta svo leiðinlegt. Ég
gat ekki verið þarna öllum stundum
en fólk bjóst við því að ég væri að
skemmta þarna á hverju kvöldi, en
það gekk ekki, ég mátti ekkert vera
að þessu. Þetta átti ekki alveg við
mig. Mjög leiðinlegt og ég flúði út.
Ég man að þegar ég var á barnum og
að reyna að vinna eitthvað kom fólk
og beið bara: „Segðu eitthvað.“ Og
svo var engin sala þegar ég var ekki
á staðnum.
Ég fór ekkert vel út úr þessu pen-
ingalega. Tapaði einhverju en vil
ekki tala um það.“
Ladda leiðist að tala um peninga
en segir þó: „Allir sem eru í Ladda-
sýningunni með mér eru með fín
laun. Þó maður verði aldrei ríkur
á því að vera leikari á Íslandi er ég
samt sáttur núna.“
Vill leika skúrk í bíó
Og hvað með framtíðina, hvernig
horfir hún við þér af toppnum upp
úr sextugu?
„Framtíðin, ég veit ekki hvern-
ig ég sé hana fyrir mér. Ég ætla að
njóta þess að taka upp Laddasýn-
inguna aftur í Borgarleikhúsinu í
haust og sjá svo til hvað ég vil gera.
Ætti maður að hætta á toppnum,
ekki fara niður öldudalinn, því ég er
kominn á aldur? Ég veit það eitt að
ég ætla að staldra við um áramótin
og meta þetta og sjá til. Hugleiða.“
Og svo er plata í bígerð?
„Við Björgvin Halldórsson erum
rétt að byrja að funda um að gefa
út plötu. Þetta er á byrjunarstigi en
platan kemur út fyrir jólin og verður
grín og alvara fyrir alla fjölskylduna.
Við þurfum eitthvað svona létt og
skemmtilegt því það er allt að fara til
andskotans miðað við umræðuna.
Hugarfarið er orðið þannig að allir
eru bara búnir á því. Fjölmiðlarn-
ir tala stöðuna alveg niður og þetta
verður bara múgæsing. En munum
það að ástandið hefur oft verið verra
en þetta.“
Það munu örugglega margir
fagna því að fá létta Laddaplötu í
þessu árferði. En Laddi hefur sleg-
ið í gegn í bíómyndum til dæmis í
ógleymanlegu hlutverki í Stellu í or-
lofi. Verður framhald á slíku?
„Það er mjög gaman að leika í
sjónvarpi og í kvikmyndum. En mér
hefur ekki verið boðið að leika í bíói
undanfarið, en ég væri til í það.
Annars er aldrei leitað til mín nema
til að grínast en ég vil leika skúrk.
Ég vil leika þennan sem allir halda
að sé góði karlinn en er skúrkur. Úti
í heimi eru til góðlegir karlar sem
allir treysta en eru svo í raun alveg
geggjaðir skúrkar, svona hlutverk
vil ég fá. Ef einhver er að gera svona
mynd, þá er ég til.“
„Það var ömurlegt tímabil, ömurlegt að reka bar. Mér bauðst
þetta í skiptum fyrir einhverja skuld. Staðurinn kom því upp
í hendurnar á mér og ég ákvað að prufa þetta, en það gekk
ekki vel og svo var þetta svo leiðinlegt.“
Stressaður yfir Elsu Lund Laddi
óttaðist í upphafi að Elsa Lund myndi
ekki virka en raunin hefur verið önnur,
Elsa hefur verið gríðarlega vinsæl.
Laddi segist stundum luma á karakter-
um á lager Magnús bóndi er ein
ástsælasta týpan sem Laddi hefur skapað.