Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Qupperneq 43
DV Helgarblað Föstudagur 1. ágúst 2008 43
Draumaútihátíðin
Stuðmenn í Atlavík
og Bræðslan
Magni Ásgeirsson, söngvari Á Móti sól
„Það væri að sjálfsögðu í atlavík. Bara atlavík árið 84.
stuðmenn væru að spila. Þá á ég við gömlu góðu
stuðmenn. Með þeim væru greifarnir með Felix og
upprunalegir meðlimir síðan skein sól. Það væri
alvöruútihátíð.
samt held ég að ein fullkomnasta útihátíð sem ég
veit um sé núna um helgina (síðustu helgi). Bræðslan
á Borgarfirði eystri. Það er búið að vera 25 stiga hiti
og sól undanfarna daga og tjaldsvæðið er strax orðið
fullt. Það er reyndar smá skýjabakki að læðast yfir
okkur núna en það kemur ekki að sök. Maður er
hérna á heimavelli og þetta er bara frábært. Eins
nálægt því að vera fullkomið og hægt er.“
Dúett með
Hauki Morthens
ragnar bjarnason, söngvari
„Ég myndi vilja syngja dúett með Hauki Morthens. Ég
náði því nefnilega aldrei,“ segir raggi Bjarna
söngvari, spurður um skemmtiatriði á draumaútihá-
tíðinni sinni. „Haukur söng mikið með pabba og
hljómsveitinni hans og ég spilaði meira að segja
undir á trommur hjá Hauki í hljómsveit árna Ísleifs.
svo byrjaði ég að syngja en af einhverjum ástæðum
sungum við aldrei saman. síðan myndi ég vilja hafa
alla hina góðu gæjana þarna líka,“ segir raggi.
aðspurður hvar hún myndi fara fram segist raggi
ekki hafa sterka skoðun á því. „Ég veit það ekki, verða
ekki allar Þjóðhátíðir að vera í Vestmannaeyjum?“
raggi segist ekki myndu rukka inn á hátíðina ef hann
hefði efni á því. „En strákarnir þyrftu náttúrlega að fá
kaup svo það yrði að rukka inn.“
Fjör á
fjölskylduhátíð
Katrín júlíusdóttir, alþingisMaður
„Ég er stödd á minni fullkomnu útihátíð á
Bræðslunni í Borgarfirði eystra. Hér er fullt af
fólki saman komið á rosalega fallegum stað.
Þetta er hátíð fyrir fjölskyldufólk líka. Við erum
saman hérna á níu bílum og eru fleiri börn en
fullorðnir. Ég vil næs samveru, ekki of mikið
prógramm. Það verður að vera mikið af fólki og
fjöri. Ég vil samt ekki ball heldur ljúfa stemningu.
síðan er ég mikið fyrir að hlusta á góða tónlist.
Væri spennt fyrir því að sjá Bang gang. En fyrst
og fremst yrði þetta fjölskylduútihátíð og
útilega.
Hollustan í fyrirrúmi
davíð sMÁri Harðarson, söngvari
„sko, ég myndi halda útihátíð á einhverju túni nálægt selfossi sem er í
alfaraleið. Það yrði mjög gott veður á hátíðinni.Ég myndi reyna að fá sem
flesta tónlistarmenn. Páll Óskar, Edgar smári, Eurobandið og Einar ágúst
myndu öll syngja. svo myndi BMV líka syngja og að sjálfsögðu dress-
code, hljómsveitin mín. sveitin Buff myndi svo spila undir fyrir hina vel
völdu söngvara og hver og einn söngvari myndi syngja eitt lag. Ég myndi
fá ölgerðina til að styrkja mig svo að allir gætu drukkið eins mikinn
Kristal Plús og hægt er. Ekkert yrði um áfengi þar sem þetta er fjölskyldu-
hátíð. Það væri líka gaman að fá aðila til að útbúa hollustumatsölubása
og svo yrði grillað kjöt sem kostaði svona 100 krónur á mann. Þannig
sleppur fólk við að koma með sinn eigin mat. Hægt væri að spreyta sig á
þrekþrautum og kraftþrautum. Ég þekki mikið af íþróttafólki sem er í
fitness sem gæti komið og keppt í aflraunum, en svo fengi fólk að spreyta
sig líka. Það er mikilvægt að fá styrktaraðila fyrir útihátíðina til að gera
hana ókeypis. Ætli svona 14 manns myndu ekki mæta?“
Hátíðin væri opin öllum
gísli einarsson, fréttaMaður
„draumaútihátíðin mín væri haldin fyrir ofan Húsafell þar sem síðast var útihátíð um
verslunarmannahelgi 1987. Það væri ekki 23 ára aldurstakmark heldur væri hátíðin
öllum opin, ungum sem öldruðum, allsgáðum sem ölvuðum, ófríðum sem smáfríðum
osfrv. dagskráin yrði líka fjölbreytt og vönduð eftir því. Hljómsveitin Bermúda sæi um
fjörið og þá yrðu Hvanndalsbræður á svæðinu, steindór andersen myndi kveða rímur,
álftagerðisbræður tækju lagið og Bjartmar á Norðurreykjum færi með gamanmál. Ég
myndi hinsvegar ekki ráða Ingó og Veðurguðina (með fullri virðingu) heldur trausta og
veðurfræðingana til að tryggja að veðrið yrði í lagi. Inn á milli atriða yrði keppt í Kubb og
sveitafitness. að sjálfsögðu myndu öll dýrin í Húsafellsskógi vera vinir á þessari hátíð.“
Dolly Parton
og Dixie Chicks
Helga arnardóttir,
fréttaKona Á stöð 2
„Mín draumaútihátíð væri kántríhátíð með
dolly Parton, dixie Chicks og the Be good
tanyas. Það væri líka kenndur línudans og
mikil stemning. Hallbjörn Hjartarson mætti
svo vera á kantinum að kontróla þessu. Það
væri náttúrlega best að hafa þetta á
skagaströnd þar sem það er „hometown“
kantrísins hér. Ég er svona leyndur kántríað-
dáandi og hef yfirleitt verið gagnrýnd fyrir
það. En ef þessir listamenn kæmu til landsins
myndi ljós mitt skína að fullu.“