Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Qupperneq 52
föstudagur 1. ágúst 200852 Sport
Manchester United hefur alltaf státað af mögnuðu unglinga- og varaliðsstarfi. Grunnurinn
að ótrúlegri sigurgöngu liðsins síðustu áratugi er hinn magnaði ´95 árgangur sem innihélt
David Beckham, Neville-bræðurna, Nicky Butt og fleiri. Margir aðrir hafa slegið í gegn með varaliði Unit-
ed og verið í og við aðalliðið. Nokkrir þeirra voru taldir vera næstu stjörnur Manchester United en eins og
Chris Eagles, sem gaf Manchester-drauminn upp á bátinn í vikunni, yfirgáfu þeir félagið. DV tekur saman
átta nöfn sem áttu að verða lykilmenn en urðu aldrei.
PhiliP Mulryne
Fæddur: 1. janúar 1978
Staða: Miðjumaður
Núverandi lið: án liðs
Manchester United: frá 1996-1999 (1 leikur með
aðalliði)
Mulryne er nafn sem líklega aðeins harðir
Manchester united-stuðningsmenn muna eftir.
Hann lék aðeins einn leik fyrir aðallið Manchester en
var konungur varaliðsins. Hann var ennþá í
varaliðinu þegar hann var fyrst kallaður í írska lands-
liðið en hann hefur leikið 27 leiki með því. árið 1999
fannst honum þó nóg vera komið og var seldur á
500.000 pund (80 milljónir króna) til Norwich. Með
Norwich lék hann 161 leik á 6 árum áður en hann
gekk til liðs við Cardiff. síðast hjálpaði hann
utandeildarliðinu Kings Lynn að sigra í sinni deild í
suður-Englandi. Mulryne var harðskeyttur
miðjumaður sem vann mikið af boltum og hafði
fína sendingargetu.
Daniel narDiello
Fæddur: 22. október 1982
Staða: framherji
Núverandi lið: Blackpool
Manchester United: frá 2000-2005 (enginn leikur
með aðalliði)
daniel Nardiello er uppalinn hjá úlfunum og var
mikið rætt og ritað um vistaskipti hans yfir til
Manchester united. úlfarnir voru alls ekki sáttir við
Manchester united í þeim skiptum og sögðu
Englandsmeistarana hafa stolið þeirra mesta efni og
til einskis því hann ætti aldrei eftir að leika fyrir
félagið. Það var nokkuð til í því hjá úlfunum því
hann lék aldrei með aðalliði united en svoleiðis
raðaði inn mörkunum með varaliðinu. Hann fór á
lán þrisvar sinnum, þarf af tvisvar til Barnsley en
hann samdi við Barnsley á endanum fyrir fullt og
allt. Meiðsli hafa elt Nardiello allan hans feril og er
hann nú kominn til Blackpool í von um að geta fest
sig í sessi einhvers staðar.
Jonathan GreeninG
Fæddur: 2. janúar 1979
Staða: Vængmaður
Núverandi lið: WBa
Manchester United: frá 1998-2001 (14 leikir með
aðalliði)
sama hvað hver segir um Jonathan greening
getur hann alltaf rifið upp úr vasanum meistara-
deildarmedalíuna frá því í Barcelona 1999.
greening var svo sannarlega ein af vonarstjörnum
Manchester united og tókst að leika 14 leiki með
aðalliðinu. Hann var allavega það góður að
úrvalsdeildarlið vildi fá hann og lék hann með
Middlesbrough 99 leiki áður en hann flutti sig til
WBa. Þar er hann orðinn kóngur og hefur leikið
160 leiki fyrir félagið á síðustu 4 árum. Hann er
ekki sama úrhrakið og margir sem hrökkluðust frá
Manchester united urðu en hann varð svo sannar-
lega aldrei maður til að taka við stöðu á væng
united.
DaviD healy
Fæddur: 5. ágúst 1979
Staða: framherji
Núverandi lið: fulham
Manchester United: frá 1999-2001 (1 leikur með
aðalliði)
Healy var aðeins í tvö ár hjá united og héldu margir
united-menn að það væri einungis tímaspursmál
hvenær þessi geðþekki Norður-Íri myndi slá í gegn
með aðalliðinu. Eins og margir raðaði hann inn
mörkum með varaliðinu og var ekki mikil sátt um
það í Manchester-borg þegar hann var seldur til
Preston fyrir 1,5 milljónir punda (240 milljónir ). Hjá
Preston sýndi hann og sannaði hversu mikill
markaskorari hann væri og setti 43 mörk í 136
leikjum. Eftir svipaðan feril hjá Leeds fékk hann loks
tækifæri í úrvalsdeildinni þegar fulham keypti hann
til félagsins í fyrra. Hann hefur lítið gert hingað til en
það eru margir Manchester-menn sem sakna
Healys.
eKKi urÐu allir
rauÐir DJÖFlar
Danny hiGGinbothaM
Fæddur: 29. desember 1978
Staða: Varnarmaður
Núverandi lið: sunderland
Manchester United: frá 1997-2000 (4 leikir með
aðalliði)
Í sumarútgáfu Manchester united-tímaritsins var
stór grein um Higginbotham með yfirskriftinni:
„Næsta stórstjarna.“ annar eins varnarmaður hafði
ekki sést hjá félaginu svona ungur og var einfald-
lega vitað að hann myndi taka sér stöðu í miðri vörn
liðsins á einhverjum tímapunkti. fjórir leikir hjá
Manchester united varð öll uppskeran og tvö ár á
láni í Belgíu. Eftir það söðlaði hann um í neðri
deildunum áður en gamall united-maður, roy
Keane, fann honum samastað í sunderland.
Higginbotham er ágætur varnarmaður en varð svo
sannarlega aldrei næsta stórstjarna united eins og
reiknað var með. Hann var seldur frá united á 1,3
milljónir punda (206 milljónir króna).
GiusePPe rossi
Fæddur: 1. febrúar 1987
Staða: framherji
Núverandi lið: Villarreal
Manchester United: frá 2005-2007 (5 leikir með
aðalliði, eitt mark)
gullmolinn. Ef einhvern tíma var haldið að
leikmaður úr varaliðinu gæti unnið sér sess í aðalliði
Manchester united var það giuseppe rossi. rossi
bar höfuð og herðar yfir alla leikmenn í varaliðs-
deildinni og leiddi liðið til fjölda titla þau ár sem
hann var þar. Hann fékk mun færri tækifæri en
haldið var með aðalliði Manchester en heillaði
Villarreal-menn nægilega mikið. Þeir greiddu 6,6
milljónir punda (1 milljarð króna) fyrir drenginn en
talið er að Manchester geti keypt hann aftur
samkvæmt klásúlu í samningi milli liðanna. Hann
sló í gegn með Villarreal á fyrsta tímabili og sýndi
þar allar sínar bestu hliðar. Kannski hann verði
kominn aftur í rautt áður en langt um líður?
luKe ChaDwiCK
Fæddur: 18. nóvember 1980
Staða: Miðju- og vængmaður
Núverandi lið: Norwich
Manchester United: frá 1999-2004 (25 leikir með
aðalliði)
Ekki þekktur fyrir frítt andlit þessi ágæti maður.
Hann er hins vegar fínasti fótboltamaður og á að
baki mun fleiri leiki en aðrir á listanum fyrir aðallið
united. ferguson virtist hafa mikla trú á honum og
gerði mikið til þess að halda honum hjá félaginu í 5
ár. Lengst af var hann þó að láni í Belgíu og 1.
deildinni á Englandi. á endanum gafst Chadwick
upp á að bíða og samdi við West Ham þar sem
hann lék í tvö ár. Eftir smá tíma hjá stoke endaði
hann hjá Norwich en Chadwick hefur ekki spilað
marga leiki. Hann var uppáhald stuðningsmanna
royal antwerpen þegar hann var þar að láni og
kallaður „super-Chadwick“ af stuðningsmönnum
liðsins.
MarK wilson
Fæddur: 9. febrúar 1979
Staða: Miðjumaður
Núverandi lið: doncaster
Manchester United: frá 1997-2001 (3 leikir með
aðalliði)
Mark Wilson er ekki nafn sem margir þekkja en
hann var svo sannarlega ein af skærustu
stjörnum varaliðs Manchester united. Hann var
fyrirliði varaliðsins í þrjú ár og fór aðeins eitt ár að
láni frá félaginu. Hann var þekktur fyrir að leggja
sig allan fram og það kunnu Manchester united-
menn virkilega að meta. En eins og með marga
þreyttist hann á biðinni eftir alvöru tækifæri með
aðalliðinu og flutti sig til Middlesbrough sem
hluti af pakkadíl Manchester og Middlesbrough í
kaupum þess síðarnefnda á Jonathan greening.
ferill hans tók mikla dýfu og hefur hann verið
mestmegnis á lánum fyrir utan tvö ár sem hann
lék í ameríku.