Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Page 54
föstudagur 1. ágúst 200854 Sport
Það var búið að ráða framtíð Robb-
ies Keane áður en hann gat nokk-
uð fengið að segja um hana. Sem
táningur hjá Úlfunum var grannt
fylgst með honum og það vitað
að þetta yrði einn besti leikmaður
heims seinna meir. Englendingar
grétu mikið þá staðreynd að hann
fæddist í „vitlausu“ landi eins og
þeir orða það. Sama hversu góð-
ur Robbi Keane yrði, hann myndi
aldrei leika með enska landsliðinu
því hann er jú Íri.
Þegar loksins var kominn tími
á að yfirgefa Úlfana varð Covent-
ry fyrir valinu. Keane var dýrasti
táningur sem keyptur hafði verið
á Bretlandseyjum og það byrjaði
ekki illa. Tvö mörk í sínum fyrsta
leik með þeim heiðbláu. Eftir það
reyndi hann fyrir sér á Ítalíu hjá
Inter en fór þaðan að láni til Leeds
og skrifaði svo endanlega undir
samning við enska félagið. Þar gekk
honum mjög vel og fór á endanum
til Tottenham þar sem hann var
orðinn fyrirliði áður en Liverpool
keypti hann á 20,3 milljónir punda.
Keane er eins og Dalglish
Goðsögninni Ian Rush hefur
sjaldan leiðst að tjá sig um mál-
efni Liverpool enda mikill stuðn-
ingsmaður liðsins eftir veru sína
þar. Hann lýsir yfir mikilli ánægju
með kaupin og líkir Keane við sjálf-
an Kenny Dalglish. „Robbie Keane
býr hluti til eins og Kenny Dalglish.
Hann býr til mikið af mörkum en
hann skorar einnig mikið sjálfur
og það á eftir að hjálpa Liverpool,“
segir Rush.
„Ég elskaði að spila með Dalgl-
ish því hann vissi alltaf hvenær ég
vildi fá boltann í fæturna. Keane
getur gert það sama fyrir Liverpool
því hann hefur einstaka yfirsýn yfir
völlinn og finnur mikið af auðum
svæðum. Það á eftir að hjálpa Fern-
ando Torres mikið í framlínunni. Ég
er mikill aðdáandi Keanes. Eins og
ég segi veit ég að hann getur skor-
að en hans starf hjá Liverpool verð-
ur eflaust meira að búa hluti til. Ég
get ekki beðið eftir því að sjá hann
klæðast rauðu treyjunni,“ segir Dal-
glish.
Peningum illa varið
Mark Lawrenson er einnig goð-
sögn í lifandi lífi hjá Liverpool.
Hann lék í sjö ár með Liverpool og
vann fjöldann allan af titlum á 9.
áratugnum. Í dag starfar hann sem
sérfræðingur í þættinum Match of
the day í breska ríkissjónvarpinu,
BBC, þar sem hann fer yfir leiki
hverrar umferðar ekki ósvipað og
Heimir og Guðni á Stöð 2 Sport
nema mun ítarlegar.
Hann segir að Keane sé ekki
nægilega sniðug kaup í fjármála-
vandræðum Liverpool. „Persónu-
lega finnst mér Liverpool ekki hafa
nægilegan kraft fram á við þrátt fyr-
ir kaupin á Keane,“ segir Lawren-
son sem finnst 20 milljón pund of
mikið fyrir mann sem ekki skorar
meira en Keane.
„Torres skoraði yfir 20 mörk á
síðustu leiktíð en það dugði þeim
ekki nærri því til að komast í topp-
baráttuna og hvað þá vinna titil-
inn. Í fyrra gerði Liverpool allt of
mikið af jafnteflum því það hafði
ekki nægilegan kraft fram á við til
að vinna jöfnu leikina. Hver á að
vera maðurinn sem tryggir það að
á næstu leiktíð að Liverpool vinni
líka leikina sem þeir spila illa í?“
segir Lawrenson.
Liverpool keypti írska landsliðsmanninn Robbie Keane í vikunni á ríflega 20 milljónir
punda og greiðir honum enn fremur 80.000 pund í vikulaun. Gömlu Liverpool-hetjurnar,
Ian Rush og Mark Lawrenson, eru ekki á sama máli um gæði kaupanna.
SKIPTAR SKOÐANIR UM KEANE
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Breyttir tímar robbie Keane
er loksins kominn að toppnum.
SÍÐSUMAR Á FJÖLLUM
Eigum laust í eftirfarandi ferðir í ágúst: