Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Side 60
föstudagur 1. ágúst 200860 Ferðir DV
Á ferðinni
Meira í dag en í gær...
Þeir sem ætla í útilegu en sneiða fram
hjá útihátíðunum ættu að íhuga að taka
ferðabækur með í bílinn. ferðahandbók-
in sýnir okkur hvar er best að stoppa til
að borða nesti, hvar áhugaverða staði er
að finna og hvaða bæir eru komnir í eyði.
Þannig lærum við meira í dag en í gær.
umsjón: ásgeir jónsson asgeir@dv.is
Húsbílar á flakki
um landið
Flakkarar, félag húsbílaeigenda, skipuleggja fimm til sex ferðir yfir sumartímann. Í fé-
laginu eru hátt í sjö hundruð manns og er mikil gleði þegar hópurinn hittist.
„Húsbílalífið er alveg frábært.
Við fórum í stóra ferð í byrjun júlí
og það voru á bilinu fimmtíu til
sjötíu bílar,“ segir Anna Guðrún
Jóhannsdóttir, formaður Flakkara
sem er félag húsbílaeigenda. „Við
fórum á flakk um Austfirði. Á ein-
um tímapunkti var megnið af lið-
inu uppi á Egilsstöðum en nokkrir
bílar fóru á Borgarfjörð eystri.“
Fimm til sex ferðir á sumrin
Flakkarar, eins og þeir sem eru í
félagi húsbílaeigenda kalla sig, hitt-
ast oft yfir sumartímann hvort sem
það er í skipulögðum ferðum eða
að fólk lætur vita af ferðum sínum
um landið og hittist eftir því. Í byrj-
un hvers árs eru skipulagðar fimm
til sex ferðir sem allir reyna að hitt-
ast í. Þegar ferðir eru ákveðnar eru
valdir staðir til að hittast á og það
er fyrirfram ákveðið hvar á að gista.
„Við hittumst alltaf á einhverjum
vissum stað en það er ekki keyrt í
halarófu eða neitt svoleiðis,“ segir
Anna Guðrún, „fólk kemur sér bara
á staðinn.“
„Við byrjum svona snemma því
það þarf að finna tjaldsvæði sem
tekur svona marga bíla og finna
húsnæði. Þegar við förum í lang-
ar ferðir reynum við að finna hús-
næði minnst á tveimur stöðum,“
segir Anna Guðrún. „Þegar við
erum með húsnæði förum við inn
og spilum félagsvist eða bingó um
kvöldið. Einnig eru nokkrir sem
kunna á nikkur og þá er spilað,
sungið og dansað.“
engin aldursskilyrði
Í félagi húsbílaeigenda eru um
þrjú hundruð og fjörutíu núm-
er skráð, og um sex hundruð og
fimmtíu til sjö hundruð manns
skráðir í félagið. „Bílarnir eru ekki
allir eins, það er eiginlega bara
allur gangur á því. Sumir eru enn
á gömlum rúgbrauðum og aðr-
ir komnir á mjög flotta bíla,“ seg-
ir Anna Guðrún, „en flestir bílarn-
ir eru bara temmilegir. Minn bíll
er 6,5 metrar á lengd og er það fín
stærð.“
Þeir sem eru í Flökkurum eru
flestallir komnir á miðjan aldur.
„Það þarf ekki að uppfylla nein ald-
ursskilyrði til að komast í félagið,
hér eru allir jafnir. Aldursdreifingin
er frá fjörutíu ára upp í áttatíu ára,
en flestir eru á bilinu fjörutíu til
sextíu ára,“ segir Anna Guðrún.
Veiðiferð á Vopnafjörð
Næsta skipulagða ferðin sem
Flakkarar ætla í er nú um miðj-
an ágúst. „Við ætlum að fara í
svokallaða veiðiferð til Vopna-
fjarðar. Þá erum við með svæði
út af fyrir okkur og erum búin að
fá veiðileyfi fyrir þá sem vilja,“
segir Anna Guðrún. „Svo um
kvöldið er yfirleitt mikil gleði,
spilað og sungið.“
Árgjaldið í félagi húbílaeig-
enda er þrjú þúsund krónur .
„Þegar við erum að fara í stór-
um hópum reynum við oftast
að semja um afslætti á þeim stað
sem við förum en stundum borg-
ar félagið eitthvað niður í ferð-
inni,“ segir Anna Guðrún. „Svo er
ein ferð á ári sem er félögum alveg
að kostnaðarlausu en það er svo-
kölluð berjaferð. Í síðustu skipu-
lögðu ferðinni er fundur og svo um
kvöldið er árshátíðin. Það er oftast
mesta skemmtunin yfir sumartím-
ann. Allir glaðir og ánægðir eft-
ir sumartímann og spenntir fyrir
næsta sumri.“
Myndi Carrie
Bradshaw
versla í H&M?
fimm dóu í umferðinni. Í gauta-
borg voru tveir skotnir og í malmö
einn. 60 manns handteknir á
öland og fimm nauðganir kærðar.
Lögreglan segir að þetta hafi
verið róleg jónsmessunótt í ár.
á meðan svíar fagna nótt ásta
með hætti sem er þeim einum (og
finnum) lagið heldur sex and the
City-æðið áfram að heltaka þann
hluta heimsins sem verslar af
ástríðu fremur en nauðsyn. Ég veit
ekki hvað Carrie Bradshaw myndi
segja um H&m-búðirnar á
dronninggatan í stokkhólmi.
danir eru hins vegar vissir um að
hún myndi kunna vel við sig í
Köben. á ferðamannasíðunni alt
om Köbenhavn er einmitt hægt
að sjá hvar ungfrú Bradshaw (eða
frú Big?) myndi líklega versla og
skemmta sér þar í borg (aok.dk/
shopping/guide/hvis-carrie-var-
koebenhavner).
Það er þó ólíklegt að manneskj-
an, sem þoldi ekki nokkurra daga
dvöl i París með útsýni yfir
eiffelturninn, myndi endast lengi í
kóngsins Köben.
Líklega er hún best geymd á
manhattan og í new York er boðið
upp á ferðir um helstu söguslóðir
þáttanna. en ef Carrie yrði af
einhverjum ástæðum innlyksa á
norðurlöndunum myndi hún
líklega kunna best við sig í
noregi.
norðmenn eiga nú norðurlanda-
met í milljónamæringum, í
dollurum (man einhver eftir
dollaranum?) talið. Þeir eru nú
með 62.000 milljónamæringa,
heilan Hafnarfjörð og Kópavog og
mosfellsbæ samanlagt af litlum
og stórum Bjöggum.
Íslendingar verða að fara að taka
sig á. noregur er eina norður-
landaþjóðin sem fólki fer enn
fjölgandi en ef til vill hefur
milljónamæringum hér eitthvað
fækkað upp á síðkastið. svíar
þurfa líka að fara að herða sig.
Volvo og saab og járngrýtið og
ericson og abba hafa ekki gefið
þeim nema um 50.000 milljóna-
mæringa samanlagt. ekki að það
hafi nein áhrif á vinsældir sex and
the City-myndarinnar.
Hvar sem kona kaupir skó eða
handtösku sem hún þarf ekki
raunverulega á að halda svífur
andi Carrie yfir vötnum. Hugrakk-
ur eða hugsanlega heimskur
sænskur kvikmyndagagnrýnandi
sagði nýlega að ef að konum
fyndist sex and the City-myndin
skemmtileg ættu þær skilið að fá
helmingi minni laun fyrir sömu
störf. Líklega þyrfti hann í svona
búr fyrir kafara sem skoða
hákarlatorfur ef hann segði það
sama hér á Íslandi.
sex and the City-myndin var ekki
góð. Þættirnir voru hins vegar
mjög skemmtilegir. Þar var gert
grín að kaupæði Carrie. Í
myndinni er hins vegar ekkert
fundið athugavert við það. svo
mikið hefur heiminum hrakað á
aðeins einum áratug.
Valur gunnarsson er
skrifar frá Svíþjóð
myndir magnús árnason
Fullt af húsbílum Þegar flakkarar hittast á
einum stað er það alveg stórfengleg sjón.
gaman að sjá marga eins bíla á einum stað.
í góðu veðri Hér sitja
nokkrir félagar saman á
spjalli eftir góðan dag.
gleði á kvöldin á kvöldin
getur myndast góð stemning
því nokkrir kunna að spila á
harmonikku og þá er spilað
og sungið langt fram eftir.
Árshátíð síðasti
skipulagði
hittingurinn
endar á árshátíð.