Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Page 83
föstudagur 1. ágúst 2008 83Sviðsljós
Í Þjórsárdal eru margir fallegir
og áhugaverðir staðir t.d.
Hjálparfoss, Stöng, Gjáin,
Háifoss og Þjóðveldisbærinn.
Rhys Ifans fann ástina á nýjan leik í Kimberly Stewart:
Sienna Miller dömpaði unnusta sínum
Rhys Ifans fyrir nokkru. Hún skildi grín-
leikarann eftir í ástarsorg og henti sér beint
í faðm leikarans Balthazars Getty. Það hef-
ur varla farið framhjá neinum að Sienna og
hinn gifti Balthazar Getty eyddu nokkrum
rómantískum dögum á Ítalíu.
Rhys Ifans er loksins tilbúinn að halda
áfram og segja skilið við Siennu Miller,
en hann hefur sést mikið undanfarið með
dóttur Rods Stewart, Kimberly. Það virðist
fara vel á með þeim. Rhys hefur verið skæl-
brosandi síðustu daga og er gott að sjá hann
hamingjusaman.
Rhys kominn yfiR siennu
Hlegið yfir sígó
Kimberly stewart og
rhys Ifans hlæja sam-
an úti í smók.
Kominn yfir Siennu
rhys Ifans hefur fundið
ástina á nýja leik eftir að
sienna Miller olli honum
ástarsorg.
Ólík Siennu
Kimberly stewart líkist
siennu ekki neitt.
Trúlofuð
rhys Ifans þurfti að biðja
siennu Miller þrisvar áður
en hún játaðist honum.
Ekki skemmtileg sjón
rhys Ifans hefur eflaust
ekki líkað að sjá þessa
mynd í blöðunum.
ÖnnuR Legend-mynd
Aðdáendur Wills Smith hafa eitthvað til þess að hlakka til, en íhug-
að er að gera aðra I am Legend-mynd. Að sögn leikstjórans mun myndin
gerast áður en atburðir fyrri myndarinnar áttu sér stað. Leikstjóri mynd-
arinnar hefur staðfest að það eigi að gera aðra mynd, en hann segir fram-
leiðendur og handritshöfunda vera á fullu að undirbúa hugmyndir fyr-
ir handritið. Hann segir enn fremur að það verði auðveldara að skjóta
þessa mynd þar sem þeir þurfi ekki að tæma götur New York-borgar eins
og fyrir I am Legend.
Að sögn heimildarmanna í Hollywood er það enginn annar en Johnny Depp sem mun leika Gátu-
manninn (The Riddler) í næstu Batman-mynd Christophers Nolan. Þeir sem koma að myndinni vita
að þeir verða að fá leikara af sama kalíberi og Heath Ledger, sem fór á kostum sem Jókerinn í The Dark
Knight. Johnny Depp er einn af fáum sem getur borið uppi svona veigamikið hlutverk. Þessir sömu
heimildarmenn segja einnig að til greina komi að Philip Seymour Hoffman muni fara með hlutverk
Mörgæsarinnar. Eins og flestir muna lék Jim Carrey hlutverk Gátumannins í Batman Forever og var
það Danny DeVito sem fór með hlutverk Mörgæsarinnar.
Johnny depp
í Batman
hvað kom fyRiR?
Leikarinn Gary Dourdan úr
hinum vinsælu þáttum CSI hefur
heldur betur tekið stakkaskiptum.
Kappinn var handtekinn fyrir ekki
svo löngu síðan fyrir akstur undir
áhrifum eiturlyfja. Síðan þá hefur
farið lítið fyrir honum. Það er ekki
vitað hvort hann er edrú, en hann
hefur heldur betur bætt á sig. Þess-
ar myndir náðust af Gary er hann
var í fríi á Íbiza. Hann er í rosalega
lítilli Speedo-skýlu sem er ekki sú
fallegasta. Við fyrirgefum honum
það svo lengi sem honum líður vel
- og vonandi er hann edrú líka.
Spengilegur Gary Dourdan
úr CSI hefur látið lítið fyrir sér
fara síðan hann var
handtekinn fyrir að keyra
undir áhrifum eiturlyfja.
Smart
Í skýlunni litlu.
Heitur gaur
Gary Dourdan lítur ekki
svona vel út í dag.