Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Side 88
n Sigvaldi Kaldalóns, útvarps-
maður á FM957, og kona hans,
Jóhanna Katrín Guðmundsdóttir,
eignuðust sitt þriðja barn, dreng,
fimmtudaginn 31. júlí. Svali, sem
er einn þáttarstjórnenda vinsæla
morgunþáttarins Zúúber, þurfti
að hafa hraðar hendur því hann
var kominn í stúdíó í þáttinn
sinn þegar kallið kom. Konan
hans hringdi um átta og sagði
að eitthvað mikið væri að gerast.
Svali þaut af stað, kom þeim upp
á fæðingardeild um hálf tíu og
barnið var komið um tólf mínút-
ur yfir tíu. Allt gekk vel og er fjöl-
skyldan hin hressasta. Ekki er
ljóst hver leysir Svala
af en hann ætlar þó
ekki að vera mikið
lengur en tvær vik-
ur í burtu. Aðdá-
endur þurfa því
ekki að bíða
lengi eftir
hinum
nýbak-
aða
föður í
stúdíóið
aftur.
Voru þeir hátt uppi?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Við erum með hefðbundið eftirlit
með vegum og vötnum,“ segir Bryndís
Stefánsdóttir, vaktkona Landhelgis-
gæslunnar, en veiðimenn urðu held-
ur hissa fyrir tveimur helgum þeg-
ar þyrla gæslunnar stöðvaði þá við
Veiðivötn og út komu lögreglumenn.
Í fyrstu töldu mennirnir að slys hefði
orðið í nágrenninu en síðan kom í ljós
að lögreglan hafði annað í huga. Þeir
vildu að ökumaðurinn blési í áfengis-
mæli.
Að sögn Bryndísar hefur verið
samtarf á milli lögreglunnar og Land-
helgisgæslunnar í nokkurn tíma. Lög-
reglan slæst þá í för með gæslunni en
stundum eru bílar hraðamældir auk
þess sem eftirlit er haft með hálend-
inu.
„Samstarfið er búið að vera súper,“
segir Bryndís sem er sátt við það
hvernig til hefur tekist. Hún segir eft-
irlitið aðallega felast í umferðareftir-
liti en að auki eru margir látnir blása
í áfengismæli en sjálf segir hún að
stundum komi fyrir að bátaslys til að
mynda megi rekja til áfengisneyslu.
Hún bendir á að menn eigi að sjálf-
sögðu að láta áfengið vera þegar þeir
aka hvort sem það er í bænum eða við
veiði.
Þess má geta að ökumaðurinn
mældist ekki drukkinn en var nokkuð
hrifinn af öflugu eftirliti lögreglunnar.
valur@dv.is
n Bæjarstjóra Hafnarfjarðar, sam-
fylkingarmanninum Lúðvík Geirs-
syni, er margt til lista lagt, en golf er
ekki eitt af því. Hann atti kappi við
aldraða golfáhugamenn á Hrafnistu
í gær. Svo virðist sem ellilífeyris-
þegarnir hafi æft sig af meira kappi
en bæjarstjórinn í sumar því þeir
burstuðu hann í púttkeppni sem
var haldin í bakgarði Hrafnistu.
Bæjarstjórinn hefur leitt meirihluta
Samfylkingarinnar í gegnum eitt og
hálft kjörtímabil og mörg-
um þótt hann standa
sig með prýði. En allar
sigurgöngur hljóta
að taka enda,
hvort þetta sé
fyrirboði um
frekari breyt-
ingar er þó
óljóst.
n „Þegar þú hleypur í burtu frá hættu
veistu ekki hvort þú átt að fara til
hægri eða vinstri. Þú reynir að finna
öruggan stað. Ég gerði það, hljóp á
öruggan stað til Íslands,“ segir Ramses
við DV. Ramses hefur notað tímann
í að skokka og einnig hefur hann far-
ið í líkamsrækt. Hann segir gott að
hreyfa sig til þess að losa um streitu og
uppsafn- aða spennu. Ramses
talar við konu sína
Rosemary þegar
hann getur en það
kostar peninga
sem hann á ekki
mikið af. „Fólk
á Íslandi hefur
stutt við bakið
á Rosemary og
hún sendir mér
peninga þegar
hún getur.“
Tapaði fyrir
ellismellum
svali fjölgar
mannkyninu
STRAUMURINN
LIGGUR TIL DALVÍKUR Á FISKIDAGINN MIKLA
Fiskidagurinn mikli á Dalvík er vinsæll og þangað liggur
straumur fólksins jafnan.
Dalvíkingar byrjuðu að nota rafmagn snemma á síðustu öld eins og aðrir
Íslendingar. Fyrir ríega hálfri öld komust þeir að þeirri niðurstöðu að
þjónusta RARIK væri þeim nauðsynleg.
Nú liggur straumurinn um dreiker RARIK til Dalvíkinga.
Getur þú hugsað þér daglegt líf án rafmagns?
Sími 528 9000 • www.rarik.is
st
ea
rn
Lögreglumenn á þyrlu létu ökumenn blása til að skera úr um ölvun:
skýjalöggur með áfengismæla
Veiðimaður Veiðimenn ættu að fara
varlega í drykkjuna en langur armur
laganna athugar hvort ökumenn við
Veiðivötn séu undir áhrifum.
ramses
skOkkar