Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Page 13
M I Ð V I K u d a g u r 2 7 . á g ú s t 2 0 0 8
uMsjón: ásgEIr jónssOn, asgEIr@dV.Is HEILSA&
líkamsrækt
„Núna eru tveir og hálfur mánuð-
ur þangað til ég fer til Jóhannesar-
borgar til að taka þátt í Ungfrú heimi
og því nóg að gera í ræktinni,“ segir
hin 19 ára gamla, fegursta kona Ís-
lands, Alexandra Helga Ívarsdóttir.
Alexandra sem æfði í mörg ár
bæði ballett og djassballett telur
þann grunn hafa hjálpað sér mikið í
líkamsræktinni. „Ég bý vel að því að
hafa æft vel á mínum yngri árum.“
Alexandra hefur enga hvíld tek-
ið frá því að hún hóf undirbúning-
inn fyrir Ungfrú Reykjavík snemma
á þessu ári. „Fyrir keppnina fékk ég
mér einkaþjálfara og hef verið hjá
honum síðan. Hann hefur verið með
mig í stífu prógrammi og breytt því
reglulega. Núna er ég til dæmis farin
að lyfta aðeins meira en það geri ég í
þeim tilgangi að móta líkamann bet-
ur.“ Keppendur í Ungfrú heimi þurfa
eins og þekkt er orðið að koma fram
í bikiní og ætti Alexandra ekki að
eiga í neinum erfiðleikum með það.
„Maður gerir bara sitt besta og reynir
að vera í eins góðu formi og maður
getur,“ segir Alexandra yfirveguð.
Keppnin um fegurstu konu heims
átti upphaflega að fara fram í Úkra-
ínu en vegna stríðsins í Georgíu var
henni seinkað og ákveðið að halda
hana annars staðar af öryggisástæð-
um, að sögn Alexöndru. „Ákveðið
var því að halda keppnina þann 12.
desember í Jóhannesarborg í Suð-
ur-Afríku en ég legg af stað 16. nóv-
ember,“ segir Alexandra sem hlakkar
mikið til að heimsækja landið.
Aðspurð um góð ráð fyrir ungar
stúlkur sem hafa áhuga á að byrja í
líkamsrækt og jafnvel taka þátt í feg-
urðarsamkeppnum segir Alexandra
mjög mikilvægt að æfa skynsamlega.
„Það má ekki taka hlutina of alvarlega,
auðvitað er gott fyrir alla að hreyfa
sig, borð hollt og lifa heilbrigðum
lífsstíl en öllu skiptir að finna hinn
gullna meðalveg,“ segir Alexandra
að lokum. kolbrun@dv.is
Mikilvægt að æfa skynsamlega
Alexandra Helga Ívarsdóttir sem vann keppnina Ungfrú Ísland 2008 æfir nú hörðum höndum fyrir Ungfrú heim: