Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Blaðsíða 16
Miðvikudagur 27. Ágúst 200816 Heilsa og líkamsrækt
„Við erum einkaþjálfarar í Sport-
húsinu og megintilgangurinn með
síðunni body.is er að setja inn efni
sem hingað til hefur ekki verið að-
gengilegt áður fyrir fólk sem er að
koma sér í form,“ segir Björn Þ. Sig-
urbjörnsson sem í félagi við Kristján
Samúelsson heldur úti mjög fram-
sækinni vefsíðu. „Við setjum á vef-
síðuna næringarprógrömm, mat-
arprógrömm og matardagbækur.
Þetta er eina vefsíða landsins sem
inniheldur líkamsreiknivélar en þær
eru mikið notaðar til að svara ýms-
um spurningum. Við höldum líka úti
fjarþjálfun. Þannig getur fólk sett sig
í samband við okkur og við spyrjum
fólk eftir hverju það er að leita. Þetta
er í rauninni einkaþjálfun á netinu.“
Fjarþjálfun
Þegar fólk setur sig í samband
við Björn og Kristján til þess að
fara í fjarþjálfunina fær það not-
andanafn og lykilorð inn á ákveð-
ið æfingaforrit þar sem æfinga-
prógrammið er sett saman auk
matarprógramms. „Þetta er að-
allega hugsað fyrir fólk sem þarf
þetta aðhald og er að koma sér af
stað og auðvitað fyrir alla aðra líka.
Þjálfunarprógrömmin eru eng-
in fjölföldun og við gerum þetta
að sjálfsögðu einstaklingsmiðað.
Þannig persónugerum við pró-
gramm fyrir hvern og einn.“
Frumkvöðlar í vefsíðugerð
„Á vefsíðunni eru greinar eftir
okkur, við höfum verið svo lengi
í þessum bransa og safnað mikl-
um fróðleik að okkur. Í hverri viku
kemur inn ný æfing, við erum
að reyna að gera eitthvað nýtt og
skemmtilegt. Edda Björgvins byrj-
ar í september með vikuleg skrif
um heilsusamlegt mataræði og
hvernig hún lítur á heilsusamlegu
hliðina eins og henni einni er lag-
ið,“ segir Björn.
Strangur undirbúningur
„Ég og Kiddi erum báðir að und-
irbúa okkur fyrir fitnessmót. Kiddi
fer á Norðurlandamótið og ég stefni
á að fara á Bikarmót IFBB þannig að
nú eru æfingarnar mjög strangar hjá
okkur. Við höfum fundið fyrir mikilli
ásókn eftir að við settum upp vef-
síðuna, upp undir þúsund manns
fara inn á síðuna á hverjum degi.
Við byrjuðum í maí með síðuna en
það er með ólíkindum og maður
trúi því ekki hvað þetta er búið að
vinda mikið upp á sig,“ segir Björn
að lokum.
Björn og Kristján halda úti framsækinni vefsíðu, body.is.
Þeir bjóða líka upp á fjarþjálfun og eru í óða önn að æfa
fyrir fitnessmót sem þeir fara á eftir nokkrar vikur.
Líkamsrækt
á netinu
Björn og KriStján
Einkaþjálfararnir í sporthúsinu
geta hjálpað þér að komast í form
á netinu eða með fjarþjálfun.
Hefur þú áhyggjur af holdafari barnsins
þíns? Á heimasíðu Lýðheilsustofnunar má
finna tólf reglur sem gott er að fara eftir til
að halda þyngd barna innan eðlilegra marka
með eðlilegum hætti. Mjög mikilvægt er að
foreldrar gæti þess að vera góðar fyrirmynd-
ir og lifi eftir reglunum rétt eins og börnin.
Er barnið þitt
að þyngjast?
01. Höfum reglu á máltíðum, þrjár aðalmáltíðir og tveir til þrír millibitar
á dag henta fyrir börnin og er þá minni hætta á að seilst sé í óholla
millibita.
02. gefum börnunum hollan morgunverð þá sækja þau síður í ruslfæði
þegar líður á daginn.
03. sköpum rólegt andrúmsloft við matarborðið og fáum börnin til að
gefa sér góðan tíma til að borða. Látum líða tíma áður en barnið
fær ábót þá finna þau ef til vill að þau eru orðin södd og þurfa ekki
á ábótinni að halda.
04. kennum börnunum að skammta sér hæfilegt magn á diskinn.
05. Eigum alltaf nóg úrval af girnilegu grænmeti og ávöxtum til á
heimilinu og höfum það aðgengilegt. Þannig gerum við börnunum
auðveldara með að grípa til þess ef þau verða svöng milli mála.
06. Hvetjum börnin til að drekka vatn við þorsta, auk þess að bjóða
þeim upp á vatn með matnum.
07. Höfum sælgæti, kex, kökur og gosdrykki ekki aðgengileg fyrir
barnið á heimilinu dagsdaglega. Notum laugardaga og hátíðisdaga
til að gera þeim dagamun.
08. Hvetjum börnin til að hreyfa sig. Það hefur verið sýnt fram á að sú
hreyfing sem stunduð er daglega eins og að ganga eða hjóla í
skólann eða ganga upp tröppur í stað þess að taka lyftuna skilar
árangri.
09. Hvetjum börnin til að fara frekar út að leika sér en að setjast fyrir
framan sjónvarpið. Þegar horft er á sjónvarp fylgir oft aukið nart og
lokkandi auglýsingar geta aukið á neysluna og löngunina í mat eða
sælgæti það er því gild ástæða til að draga úr sjónvarpsáhorfi
barnanna.
10. Hvetjum börnin til að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi eða
tómstundastarfi skólanna.
11. stundum hreyfingu og útivist með börnunum. Förum í göngu, á
skíði, skauta, út að hjóla. Það hefur sýnt sig að aukin hreyfing
foreldra leiðir til aukinnar hreyfingar barna.
12. Foreldrar eru sem uppalendur og fyrirmyndir í lykilaðstöðu til að
hafa áhrif á lifnaðarhætti barna sinna.