Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 27. Ágúst 2008 19Heilsa og líkamsrækt
Lífsstíll fyrir konur
Svokölluð Ketilbjöllunám-
skeið eru byrjuð aftur í bardaga-
félaginu Mjölni, Mýrargötu 2.
Námskeiðin náðu miklum vin-
sældum í fyrra enda um eina
árangursríkustu líkamsrækt að
ræða sem í boði er. Ketilbjöllu-
námskeiðin eru fyrir fólk á öllum
aldri en æfingarnar þjálfa styrk,
þol og vöðvaúthald allt í einu.
Líkamsræktarfrömuðurinn
Steve Maxwell var nýlega hér á
landi. Hann var með réttinda-
námskeið og útskrifuðust rúm-
lega 20 þjálfarar með réttindi til
kennslu.
Hver ketilbjöllutími er ekki
nema 40 mínútur á lengd en inn-
an þess tíma rúmast einnig upp-
hitun og teygjur. Tímarnir eru
alla virka daga. Mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga frá 17.15
til 17.55 og á þriðjudögum og
fimmtudögum frá 12.10 til 12.50.
Mánaðargjaldið á ketilbjöll-
unámskeiðin er 8.500 krónur og
gegn því er hægt að mæta í alla
tíma sem í boði eru.
Ketilbjöllurnar
Hollt og gott
fyrir börnin
Ebba Guðný Guðmundsdóttir er að fara af stað með vinsæl námskeið sem kenna foreldrum
hvaða matur er bestur fyrir börnin. Kennt er hvernig á að útbúa einfaldan en næringarríkan
mat fyrir börn frá sex mánaða aldri:
„Markmiðið er að hjálpa fólki
að fá andagift og uppfræða það um
nauðsyn þess að venja barnið sitt á
hreinan mat eins og ávexti, grænmeti
og heilkorn,“ segir Ebba Guðný Guð-
mundsdóttir sem verður með nám-
skeiðin „Hvað á ég að gefa litla barn-
inu mínu að borða?“ í haust. „Þetta
er svo einfalt ef þau venjast því að
borða góðan og hollan mat frá byrj-
un. Ég byrjaði með námskeiðið fyrir
einu og hálfu ári og það er alltaf fullt
á námskeiðunum hjá mér. Ég er með
aðstoðarkokk með mér, vinkonu
mína sem er mjög flink og hún útbýr
alls kyns barnamat og hollar útfærsl-
ur af mat fyrir alla fjölskylduna.“
Mataræðið hefur breyst
„Það er mjög einfalt að breyta
mataræðinu en alltaf þegar maður
eldar eitthvað í fyrsta skipti tekur það
langan tíma, þetta lærist. Það er líka
svo skemmtilegt þegar maður kemst
upp á lagið með þetta, maður fer að
versla öðruvísi og passar til dæmis
að það séu alltaf til ávextir á heimil-
inu því þetta er alltaf borðað.“ Ebba
segir að hennar eigið mataræði hafi
breyst mjög mikið eftir að hún fór
að hugsa meira um mataræði dótt-
ur sinnar. „Mér líður miklu betur.
Ég reyni að hjálpa fólki að skilja út af
hverju maður ætti að vera að þessu.
Börn sem fá hollan mat, grænmeti,
ávexti og heilkorn og hreinan mat
yfir höfuð líður betur.“ Ebba segir að
það sé rosalega mikilvægt að börn-
in fái góða fitu eins og hörfræjarol-
íu, avókadó og fiskiolíu, þannig hafa
þau meira úthald í leik og starfi og
eru hressari og glaðari.
Læra að vanda fæðuval sitt
„Það er hægt að leiða líkum að
því að minna sé um skapofsaköst
hjá börnunum þegar mataræðið
er passað. Þegar börn fá eintóm-
ar hitaeiningar skýst blóðsykur-
inn upp og fellur svo hratt niður
og skapið fylgir oft blóðsykrinum.
Ef börn borða lélegan mat fer þau
að vanta vítamín og steinefni og þá
fara þau oft að borða allt of mik-
ið. Líkamann vantar næringu og
þá sækja börnin frekar í óhollustu.
Ef maður venur börnin á að borða
hollan mat vanda þau frekar fæðu-
val sitt þegar þau eru orðin sjálf-
stæðari. Það þarf að útskýra fyrir
þeim að fæðuvalið skiptir máli upp
á líðan og úthald í leik og starfi,“
segir Ebba.
Námskeiðin
Námskeiðin eru haldin í Heilsu-
húsinu Lágmúla og kostar ein kvöld-
stund 3.500 krónur. Fyrsta nám-
skeiðið í haust verður 24. september.
Allir fá að smakka það sem er búið
til á staðnum og það sem kemur úr
Heilsuhúsinu, hefti með uppskriftum
og fróðleik fylgir með. Að auki er tíu
prósenta afsláttur gefinn á bókinni
Hvað á ég að gefa barninu mínu að
borða? Ef fólki vantar aðstoð seinna
við matargerðina er hægt að hringja
í Ebbu eða senda henni vefpóst til að
fá spurningum þar að lútandi svarað.
Nánari upplýsingar er að finna á vef
Heilsuhússins, heilsuhusid.is.
astrun@dv.is
Hlátur eykur jákvæðni
HLáturjógaLeiðbeiNaNdi
Þegar Ásta valdimarsdóttir fór að
stunda hláturjóga fór hún meira að
einbeita sér að því sem er jákvætt og
hætti að taka hlutina of alvarlega.
ebba guðNý guðMuNds-
dóttir „Þetta er svo einfalt ef
börnin venjast því að borða góðan
og hollan mat frá byrjun.“