Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Qupperneq 28
Miðvikudagur 27. Ágúst 200828 Fókus
Getur mynd, sem er leikstýrt af Ben
Stiller eftir handriti sem hann skrif-
ar í félagi við Etan Cohen, með Still-
er, Jack Black, Robert Downey Jr.,
Nick Nolte, Steve Coogan, Matt-
hew McConaughey og Tom Cruise
í helstu hlutverkum klikkað? Ekki
sjens og Tropic Thunder er einfald-
lega langbesta gamanmynd sem rek-
ið hefur á fjörur íslenskra bíógesta á
ansi köflóttu og á stundum daufu
bíósumri.
Þessi mynd er fáránlega fynd-
in og það segir sína sögu að einn
jafnleiðinlegasti leikari kvikmynda-
sögunnar, sjálfur Tom Cruise, stel-
ur senunni ítrekað og fer beinlín-
is hamförum í hlutverki óprúttins
og ómerkilegs kvikmyndaframleið-
anda. Þessi snoppufríði dvergur sem
hefur komist miklu lengra en hann á
innistæðu fyrir nýtur sín hér í botn
og tekur af öll tvímæli um að hann
er bestur þegar hann leikur skíthæla.
Cruise hefur ekki náð slíkum hæð-
um frá því hann túlkaði síðast ógeð
í Magnolia.
Fyrir utan kúnstugt handrit og
kostulegar persónur liggur aðal-
styrkur Tropic Thunder í því að þessi
úrvals leikarahópur sýnir allur sínar
bestu hliðar og þótt Cruise og Robert
Downey drottni yfir öllum sínum
senum þá er í raun enginn að spila
sóló. Krafturinn liggur í sterkri liðs-
heildinni.
Ferill hasarmyndaleikarans Tugg
Speedman (Stiller) er á hraðri leið
ofan í klósettið. Kempan hefur misst
aðdráttaraflið og áhorfendur eru
hættir að hópast á endalausar fram-
haldsmyndir hans um harðhaus
sem hefur ítrekað bjargað heimin-
um á hvíta tjaldinu. Síðasta tækifæri
hans til að rétta úr kútnum er Tropic
Thunder, hádramatísk bíómynd um
hetjudáð nokkurra bandarískra her-
manna í Víetnamstríðinu.
Gallarnir á þessari annars ágætu
björgunartilraun eru nokkrir. Í fyrsta
lagi stendur Speedman frammi fyrir
því að á móti honum leikur fimm-
faldur óskarsverðlaunahafi, Kirk
Lazarus, sem gerir takmarkaða leik-
hæfileika kempunnar enn meira
áberandi. Lazarus, sem Downey
leikur af takmarkalítilli snilld, tekur
hlutverk sitt vægast sagt alvarlega.
Hann er Ástrali en leikur harðsnúinn
blökkumann og undirgekkst sérstaka
húðlitunaraðgerð til þess að lifa sig
sem best inn í hlutverkið. Downey
er hreint út sagt brjálæðislega fynd-
inn í túlkun sinni á Ástrala sem týn-
ir sjálfum sér í þeldökkri persónu og
þetta tvöfalda eðli persónunnar býð-
ur upp á kostulega grínspretti.
Vandamál Speedmans aukast svo
enn við það að leikstjórinn (Coogan)
er gjörsamlega hæfileikalaust Breta-
grey sem hefur hvorki tök á mynd-
inni né prímadonnunum sem leika
í henni. Framleiðandinn (Cruise) er
því alvarlega að íhuga að slá mynd-
ina af þegar leikstjórinn grípur til
örþrifaráða. Að undirlagi uppgjaf-
arhermanns (Nolte) flýgur hann
með stjörnur myndarinnar á afvik-
inn stað í frumskógi og hyggst láta
þær horfast í augu við raunveruleg-
ar hættur til þess að ná fram raun-
verulegum leik hjá þeim. Áætlunin
fer vitaskuld í vaskinn og stjörnurn-
ar standa uppi rammvilltar, án fjar-
skiptatækja og vopnaðar byssum
með púðurskotum, í skóginum og
lenda í lífshættulegum átökum við
miskunnarlausa eiturlyfjasmyglara.
Sagan er sem sagt mátulega
kjánaleg en svínvirkar í höndum
þessa einvalaliðs sem frussar út úr
sér kostulegum línum og rótar sér
stöðugt í enn verri og fyndnari vand-
ræði. Þá spillir ekki fyrir að myndin
er löðrandi í vísunum í kvikmynda-
söguna þannig að þeir sem eru vel
verseraðir í þeim fræðum fá hell-
ing af aukagóðgæti. Óspart er skot-
ið á Platoon, hinn mikla Nam-ópus
Olivers Stone, og Rambó fær, ásamt
öðrum, einhverjar sneiðar líka.
Tropic Thunder er auðvitað bölv-
aður fíflagangur en liðið hlýtur að
hafa skemmt sér stórkostlega við
gerð hennar og það smitast út í sal.
Og þegar annað eins leikaralið er
leitt saman á góðum degi þar sem
allir sýna sínar bestu hliðar, þá get-
ur brandarinn ekki klikkað. Tropic
Thunder er frábær gamanmynd sem
stendur fyllilega undir fjórum stjörn-
um og Tom Cruise, af öllum mönn-
um, er hársbreidd frá því að landa
henni þeirri fimmtu. Manngarmur-
inn er svo fáránlega fyndinn hérna
að maður kemst ekki hjá því að íhuga
í nokkur augnablik að fyrirgefa hon-
um öll þau leiðindi sem hann hefur
kallað yfir mann í gegnum árin.
Þórarinn Þórarinsson
á m i ð v i k u d e g i
Fjörudagur á álFtanesi
Fjörudagur verður haldinn á Álftanesi þann 31. ágúst í fjörunni við HrakHólma sem
er norðvestan við Álftanes. Á sama tíma verður þess minnst að sveitarfélagið er
hundrað og þrjátíu ára. góð dagskrá verður allan daginn og mun Tryggvi m.
Baldvinsson bæjarlistamaður kynna hana og hefst hún klukkan ellefu. Formleg
dagskrá lýkur um klukkan fjögur síðdegis.
stríðsbrölt
fábjánasýning Viggos MortensenÁ ljósmyndasafni Reykjavíkur í sum-
ar hefur verið sýning á verkum Vigg-
os Mortensen. Heiti sýningarinar,
Skovbo, kemur úr öðru móðurmáli
ljósmyndarans, dönsku, og gæti út-
lagst sem „skógarbýli“ eða í víðara
samhengi það að eiga heima í skóg-
inum. Margir tengja eflaust Viggo
fremur við leiklist en ljósmyndun en
hann hefur notið mikillar velgengni
sem kvikmyndaleikari og hlaut ný-
verið tilnefningu til hinna eftirsóttu
Óskarsverðlauna. Ljósmyndasafn
Reykjavíkur er til húsa í Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15, á 6. hæð og verður
sýningin opin til 7. september.
Klikk í klipp
Myndlistarsýningin Klikk í klipp
opnar í austursal efri hæðar Starf
Art á morgun, fimmtudag, klukkan
fimm. Myndlistarkonan er Harpa
Dögg Kjartansdóttir og er þetta
hennar fyrsta einkasýning eftir út-
skrift. Hún hefur ekki einskorðað
sig við ákveðna miðla, heldur gert
ýmiskonar innsetningar, ljósmynd-
ir, klippimyndir og fleiri verk með
blandaðri tækni. Klippimyndirnar
sem Harpa sýnir eru afrakstur til-
rauna sem hún hefur verið að vinna
að undanfarin ár og hafa nýst henni
sem góð leið til að láta hugann
flæða. Sýningin verður opin frá 28.
ágúst til 24. september og er aðgang-
ur ókeypis.
tríó sigurð-
ar Flosason-
ar í iðnó
Tríó Sigurðar Flosasonar held-
ur tvenna tónleika á Jazzhátíð
Reykjavíkur í kvöld og á morg-
un. Tónleikarnir hefjast klukkan
tíu og eru á efri hæð Iðnó. Auk
Sigurðar skipa tríóið Lennart
Ginman, einn fremsti kontra-
bassaleikari Dana, og gítarleik-
arinn þjóðsagnakenndi Jón Páll
Bjarnason.Tríóið mun fytja valda
djassstandarda sem tilheyra
hinni sígrænu amerísku söngbók
djassbókmenntanna. Báðir tón-
leikarnir verða teknir upp með
mögulega útgáfu í huga.
Sjaldan eða aldrei hef ég orðið fyr-
ir jafn miklum vonbrigðum með
mat og síðustu tvö skipti sem ég
hef farið á American Style uppi á
Höfða. Í fyrra skiptið keypti ég há-
degistilboð mánaðarins sem var
hamborgari, franskar og kók. Það
er skemmst frá því að segja að það
var einn versti hamborgari sem ég
hef fengið.
Að öllu gríni slepptu, þá var ein
gúrka, einn laukhringur og paprik-
usneið á hamborgaranum. Hann
var skraufþurr og ofeldaður. Við
vorum sennilega sjö saman í hóp
og það var sömu sögu að segja hjá
öllum hinum. Það var reyndar lít-
ið mál að fá auka grænmeti á ham-
borgarann en það bætti ekki upp
bragðið og þurkinn.
Síðan lét plata mig aftur á Am-
erican Style á Höfða og þá ákvað
ég að fara í pítuna þar sem borg-
arinn var svo vondur síðast. Píta
klikkar nú varla. Þar snarskjátlaðist
mér. Pítubrauðið var það hart að
ég gat brotið það eins og kex. Það
var brotið í tvennt þannig að pítan
var eins og hamborgari en ekki lok-
að eins og píta. Kjötið var ofeldað
og það eina sem var í raun fínt var
grænmetið sem var nokkuð ferskt.
En fyrir tæpar 1.400 krónur var
þetta satanískt.
Ég hef farið töluvert mikið á Am-
erican Style í gegnum tíðina og allt-
af litið á staðinn sem lúxus-ham-
borgarastað en þetta var í síðasta
skipti sem ég legg leið mína þang-
að. Í það minnsta upp á Höfða.
Kannski er þetta bara bundið
við staðinn upp á Höfða. Ég man
reyndar ekki eftir því að hafa far-
ið ósáttur útaf staðnum í Skipholti.
En það er ljóst að það þarf virki-
lega að taka til á þessari búllu upp
á Höfða því það er geðveiki að vera
rukka fólk um þetta mikinn pen-
ing fyrir jafn slakan mat og raun
ber vitni.
Ég hefði kannski sætt mig við
svona sjoppufæði fyrir 300 kall á
götuhorni í Kaupmannahöfn.
Ásgeir Jónsson
Ásgeir jónsson
fór á American Style
Bíldshöfða 14
Hraði: HHHHH
VeiTingar: HHHHH
ViðmóT: HHHHH
UmHVerfi: HHHHH
Verð: HHHHH
3. flokks sjoppufæði
í skyndi
tropic thunder
HHHHH
Leikstjórn: Ben stiller
aðalhlutverk: Ben stiller, robert downey
Jr., Jack Black, Brandon t. Jackson
kvikmyndir