Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2008, Side 30
Miðvikudagur 27. Ágúst 200830 Fólkið
Dr. Gunni verður með bás í
Kolaportinu á laugardaginn kem-
ur. Doktorinn er búinn að búa til
þrælöfluga auglýsingu á heimasíðu
sinni þar sem hann spyr lesend-
ur hvað Leoncie og Bukowski eigi
sameiginlegt. Jú, að verk þeirra
beggja verða til sölu á bás Dr.
Gunna í portinu. Alls kyns dót verð-
ur til sölu svo sem bækur, geisla-
diskar, plötur, teiknimyndablöð og
síðast en ekki síst föt. En Dr. Gunni
hefur ávallt verið vel til fara. Neyt-
endafrömuður Íslands lofar svo
auðvitað „engu okri“.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir at-
hafnakona hefur tekið að sér enn eitt
starfið. Ásdís mun verða með opnu
í blaðinu Monitor sem kemur út
mánaðarlega þar sem hún mun svara
spurningum lesenda og ráðleggja
þeim. „Undanfarið hefur mér borist
nokkur skemmtileg tilboð frá dag-
blöðum og tímaritum í Rvk sem vilja
fá mig til að skrifa hina ýmsu dálka
tengda tísku, fegurð, heilsu, lífstíl og
bara öllu milli himins og jarðar. Ég
ákvað að taka einu áhugaverðu til-
boði sem ég fékk frá Monitor,“ segir
Ásdís á bloggi sínu. „Þeir sem eru í
vanda og hafa áhuga á að fá ráðlegg-
ingar frá mér geta sent inn spurningar
í gegnum vefsíðuna hjá Monitor fyrir
október blaðið.“
„Þú spyrð
og ég svara“
með fjórar
einkaÞotur
Rússneski auðkýfingurinn
Roman Abramovitsj hefur dval-
ið á landinu frá því um helgina
en Roman er einna þekktastur
fyrir það að vera eigandi breska
knattspyrnuliðsins Chelsea
og vera í hópi ríkustu manna
heims.
Þrátt fyrir að hafa einung-
is verið hér í sannkallaðri fjöl-
skylduferð, með börnum sín-
um og kærustu, fylgdu fjórar
einkaþotur auðkýfingnum til
landsins samkvæmt heimild-
um DV. Ein einkaþotan ku hafa
flogið frá Zagreb í Króatíu en
með þeirri vél komu börn Rom-
ans til landsins, önnur þotan
kom frá Frakklandi en barna-
píurnar voru ferjaðar á Klakann
með þeirri vél frá Nice. Þriðja
þotan flaug svo frá Moskvu en
þar innanborðs voru lífverð-
irnir sem fylgdu fjölskyldunni
í Íslandsfríinu en sjálfur flaug
Roman beint frá London. Allar
lentu vélarnar á Keflavíkurvelli.
Eftir að hafa hagað sér eins
og sannur túristi á Íslandi og
meðal annars skoðað Gullfoss
og Geysi og skellt sér í ýmiss
konar jeppaferðir um hálendið
lauk Roman Íslandsför sinni á
tónleikum Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Brassbandsins og Jónas-
ar Sen í Langholtskirkju í gær-
kvöldi. Uppselt var á tónleikana
og mætti Rom-
an og fylgdarlið
hans snemma í
kirkjuna til að
forðast
óþarfa athygli.
Nærstaddir sáu þó ekki bet-
ur en Roman skemmti sér kon-
unglega á tónleikunum sem
voru hinir glæsilegustu.
Þess má geta að þrátt fyrir
að venja sé hjá erlendum stór-
stjörnum sem heimsækja land-
ið að skella sér í verslunarleið-
angur og fjárfesta í íslenskri
hönnun gerði rússneski auð-
kýfingurinn ekkert slíkt.
Þvert á móti ku hann hafa
verið hinn sveitalegasti
og einstaklega jarð-
bundinn og ekkert
að stressa sig á því
að eyða örlitlu af
auðæfum sínum
í íslenskan há-
tískufatnað.
krista@dv.is
Rússneska auðkýfingnum Roman Abramovitsj
fylgdu fjórar einkaþotur til landsins en auðkýf-
ingurinn var staddur hér ásamt ástkonu og
börnum í fjölskyldufríi. Fríinu luku Roman
og fylgdarlið hans á tónleikum Bjarkar Guð-
mundsdóttur í Langholtskirkju í gær.
„Þetta eru auðvitað brot á höf-
undarrétti,“ segir Halldór Þor-
geirsson framleiðandi Veðramóta
og eiginmaður Guðnýjar Halldórs-
dóttur leikstjóra, en myndin hef-
ur verið sett í ellefu hlutum inn á
kvikmyndavefinn Youtube. „En
svona er nú heimurinn í dag,“ bæt-
ir Halldór við og segir að búið sé
að tilkynna um myndbrotin inni á
youtube.
Notandinn sem setti Veðramót
á youtube.com heitir krissimar92
og segir að hann sé þrítugur Ak-
ureyringur búsettur í Reykjavík.
krissimar92 hefur einnig sett inn
hina frægu Sódómu Reykjavík í
nokkrum brotum. Sömu sögu er að
segja um myndina Djöflaeyjan eft-
ir Friðrik Þór Friðriksson sem og
þættina Sönn íslensk sakamál. Þá
hefur krissimar92 einnig dundað
sér við að setja inn myndina Home
Alone 2 og hrollvekjuna Slither.
„Við erum búnir að kæra þetta
til Smáís og láta Youtube vita,“ seg-
ir Konstantín Mikaelsson vöru-
stjóri hjá Senu sem er með dreif-
ingarrétt á myndunum þremur.
„Þetta eru klár brot á höfundar-
rétti en því miður er lítið sem við
getum gert í svona málum.“
asgeir@dv.is
sódóma á youtube
ÓpRúttinn AðiLi setuR ísLenskAR myndiR á netið:
Veðramót Hefur verið sett á
Youtube í 11 hlutum.
Roman abRamovitsj:
doktor-
inn í kola-
portinu
Roman Abramovitsj
var í fjölskyldufríi á
Íslandi
rússneska auðkýfingn-
um fylgdu fjórar
einkaþotur til landsins,
hver frá sínu landinu.
Skelltu sér á Bjarkartónleikana í
Langholtskirkju
abramovitsj og fylgdarlið hans luku
Íslandsheimsókn sinni á glæsilegum
Bjarkartónleikum í gærkvöldi.