Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Side 21

Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1958, Side 21
Iðnaðarskýrslur 1953 19 Kostnaður við fasteignir, vélar og áhöld, leigutekjur af fasteignum. Upphaflega var ætlunin að birta sérstakar tölur fyrir fasteignir og sérstakar fyrir vélar og áhöld, en frá því var horfið, einkum vegna þess, hve erfitt reyndist að fá sundur- liðaðar tölur um vátryggingaiðgjöld og viðhald. Afskriftir eru færðar eftir bókum fyrirtældsins og því reiknaðar af kaupverði eða kostnaðarverði, nema um sé að ræða hús önnur en verksmiðjubyggingar, þá er afskriftin reiknuð af fasteignamati. Þær tölur gefa eðlilega að ýmsu leyti ranga og ófullkomna mynd af þessum kostnaði fyrirtækja, svo sem alkunna er, en hins vegar er mjög erfitt að bæta úr því. Kemur þar bæði til álita ákvörðun liundraðs- hlutatölu afskriftarinnar og mat fjármunarins, sem afskrifaður er. Með opinherum gjöldum af fasteignum er átt við fasteignagjöld (þ. á m. lóða- leigu) til bæjaryfirvalda, fasteignaskatt til ríkisins og brunatryggingagjald. Lóða- leiga til einkaaðila og kostnaður við rekstur bifreiða er hvort tveggja talið í „öðrum gjöldum“. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á því, að vörubirgðir eru oft tryggðar með vélum og áhöldum. Þess vegna verður að taka töluna um vátryggingaiðgjöldin með nokkurri varúð, þótt reynt hafi verið eftir föngum að lagfæra þetta. Enda þótt fasteignir, vélar eða áhöld hafi verið notað jafnhliða til annarrar starfsemi en iðnaðar, er allur kostnaður við rekstur þeirra talinn með, enda eru leigutekjur af þeim taldar til tekna. Meðal „annarra gjalda“ (dálkar 13—18 í töflu XI) kennir margra grasa, en sundurliðun þeirra er mjög misjöfn hjá einstökum fyrirtækjum. Áður en skýrslu- eyðublaðið 1953 var sent til iðnaðarfyrirtækja, fór fram könnun á reikningum þeirra undanfarin ár og á grundvelli hennar var sundurgreining „annarra gjalda“ ekki ákveðin meiri en svo, að hvert fyrirtæki hefði hana á takteinum. Vitaskuld mætti gera miklu ýtarlegri sundurliðun á gjöldum margra fyrirtækja og iðnaðar- greina, en litið á iðnaðinn sem heild, mundi það reynast torvelt og tímafrekt. Aðrir orkugjafar en rafmagn eru þessir helztir: kol, koks, olía, bensín (bensín á bifreiðar ekki talið með orkugjöfum, heldur með öðrum rekstrarkostnaði bifreiða í 17. dálki í töflu XI), heitt vatn o. fl. til uppliitunar og ljósa og sem aflgjafi véla. Nolckur brögð voru að því, að „aðrir orkugjafar“ væru vantaldir á skýrslunum, og varð þá að grípa til áætlana. Hjá nokkrum fyrirtækjum er vélaleiga talin með í „húsaleigu greiddri öðrumíl, þar sem það kemur fyrir, að leigðu húsnæði fylgir vélakostur. „Önnur gjöldil (dálkur 17 í töflu XI) verða ekki talin upp á tæmandi hátt. Þar er m. a. færður bifreiðakostnaður og akstur, símakostnaður og burðargjöld, slysatryggingaiðgjöld, pappírs-, prentunar- og ritfangakostnaður, endurskoðun og stjórnarlaun, eignarskattur, lóðaleiga til einkaaðila, auglýsingakostnaður og ræst- ingarkostnaður o. fl. algengir liðir. I einstökum greinum bætast svo við mjög stórir liðir, sem eru bundnir við greinina, og sérstök ástæða er til að vekja athygli á miklum kostnaði útflutningsfyrirtækja (t. d. frystihúsa, mjöl- og lýsisvinnslu- stöðva) í þessu sambandi. Yfirleitt er söluverð afurðanna, sem fært er til tekna hjá þeim, fob-verð, en kostnaður við að koma því um borð í skipin talinn til gjalda, og þá er oft mikill aksturs- og útskipunarkostnaður, sem færður er, ásamt útflutn- ingsgjöldum, sem „önnur gjöld“ í 17. dálk töflu XI. Þegar fyrirtæki selja ekki um hendur sölusamtaka eða sjálfstæðra útflytjenda, heldur flytja afurðirnar út sjálf, er oft um cif-sölur að ræða, og þá bætast aðrir liðir í „önnur gjöld“, þ. e. a. s. einkum vátrygging og flutningsgjald til erlendrar liafnar. Að þessu leyti er söluverð- mætið hjá þessum útflutningsfyrirtækjum, og þá um leið gjöldin, ekki fyllilega
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Hagskýrslur um iðnað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um iðnað
https://timarit.is/publication/1130

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.