Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.2008, Blaðsíða 42
Ættfræði DVföstudagur 26. september 200842
Runólfur fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Garðabæ frá fjögurra ára
aldri. Þá var hann í sveit á sumrin á
Flögu í Skaftártungu. Runólfur lauk
stúdentsprófi frá MR 1978, stundaði
nám við Tónlistarskóla FÍH 1983-84,
lauk kandídatsprófi í viðskiptafræði
frá HÍ 1984, lauk meistaranámi í við-
skiptafræði með áherslu á stjórnun
og stefnumótun við HÍ 2001.
Runólfur var flokksstjóri í vinnu-
skólum í Garðabæ og í Kópavogi á
menntaskólaárum, stundaði versl-
unarstörf hjá FACO, starfaði við
menntamálaráðuneytið 1981-90,
síðast deildarstjóri fjármála og tölvu-
deildar 1987-90.
Runólfur var framkvæmdastjóri
Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1991-
2000, var fjármálastjóri Fræðslumið-
stöðvar Reykjavíkur og síðar Mennta-
sviðs Reykjavíkur 2000-2007 og hefur
síðan verið framkvæmdastjóri fjár-
mála- og rekstrarsviðs Háskólans í
Reykjavík.
Runólfur sat í samninganefnd rík-
isins 1986-89, var formaður mats-
nefndar tónlistarkennara 1984-90, sat
í nefnd til að endurskoða reglugerð
um sérkennslu 1987-88, í nefnd til
að endurskoða reglugerð um Reikni-
stofnun HÍ og í Úthlutunarnefnd
Starfsmenntunarsjóðs FT og FÍH,
var formaður nefndar vegna endur-
skoðunar á rekstri Sjálfsbjargar á Ak-
ureyri og formaður nefndar um mál-
efni tónlistarskóla 1990, var gjaldkeri
stjórnar FÍH 1988-96, sat í byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins 1989-96, hefur
setið í úthlutunarnefnd Verkefna- og
starfsmenntunarsjóðs Starfsmanna-
félags Sinfóníuhljómsveitar Íslands
frá 1990, sat í stjórn Sinfóníuhljóm-
sveitar æskunnar 1991-94, í stjórn
Samtaka um tónlistarhús frá 1991-
2000, í stjórn Tónlistarráðs Íslands frá
1991-2000 og í stjórn Tónlistar fyrir
alla 1994-2000.
Runólfur er stofnfélagi í JC Görð-
um og var nefndarformaður, varafor-
seti og gjaldkeri félagsins á árunum
1978-82. Hann starfaði í skátafélag-
inu Vífli í Garðabæ á árunum 1964-76
og var m.a. flokksforingi þar og sveit-
arforingi.
Fjölskylda
Runólfur kvæntist 18.7. 1998
Guðrúnu Eyjólfsdóttur, f. 14.7. 1960,
þroskaþjálfa. Hún er dóttir Eyjólfs
Sigurðssonar, fyrrv. framkvæmda-
stjóra Kiwanis í Evrópu, og Sjafnar
Ólafsdóttur húsmóður.
Börn Runólfs eru Sigrún Þuríður
Runólfsdóttir, f. 18.5. 1981, BS í sál-
fræði og flugfreyja, búsett í Reykjavík;
Lilja Björk Runólfsdóttir, f. 10.2. 1988,
nemi við Tónlistarskóla FÍH; Leif-
ur Ingimundur Runólfsson, f. 19.11.
1994, nemi í grunnskóla.
Stjúpdóttir Runólfs er Kristín
Harðardóttir, f. 30.4. 1976, háskóla-
nemi.
Systir Runólfs var Hjördís Leifs-
dóttir, f. 6.2. 1962, d. 19.1. 2003, var
búsett í Hveragerði.
Foreldrar Runólfs eru Leifur Krist-
inn Guðmundsson, f. 19.9. 1934,
vélfræðingur í Reykjavík, og Sigrún
Þuríður Runólfsdóttir, f. 6.12. 1939,
skrifstofukona.
Runólfur heldur upp á afmælið
með fjölskyldunni.
50 ára á föstudag
RunólfuR BiRgiR leifsson
framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Háskólans í reykjavík
Ættfræði
umsjón: Kjartan gunnar Kjartansson kgk@dv.is
Kjartan gunnar Kjartansson
rekur ættir þjóðþekktra
Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp
fréttnæma viðburði liðinna ára
og minnist horfinna merkra
Íslendinga. Lesendur geta sent
inn tilkynningar um stóraf-
mæli á netfangið kgk@dv.is
Stefán Haraldsson
verkefnastjóri hjá ÍAV
Stefán fæddist í
Reykjavík og ólst þar
upp í Norðurmýrinni.
Hann lauk B.Sc.-prófi
í véltæknifræði frá
Tækniháskólanum í
Odense 1983.
Stefán stundaði
tækni- og stjórnun-
arstörf hjá Asiaco hf.,
Ísal og Ístak á árun-
um 1983-93. Hann
var framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs Reykja-
víkur 1993-2007 en hef-
ur verið verkefnastjóri
hjá Íslenskum aðal-
verktökum síðan þar
sem hann vinnur nú við bygg-
ingu Tónlistarhúss við Austur-
bakkann í Reykjavík.
Stefán hefur sinnt ýmsum
trúnaðar- og félagsstörfum fyr-
ir Bandalag íslenskra Farfugla,
allt frá unglingsárunum. Hann
er stjórnarformaður Farfugla
á Íslandi og gegndi trúnaðar-
störfum fyrir Hostelling Inter-
national, IYHF.
Fjölskylda
Stefán kvæntist 30.12. 1979
Guðrúnu Indriðadóttur, f. 18.10.
1957, leirlistakonu. Hún er dótt-
ir Indriða Sigurðssonar sem er
látinn, og Svövu
Jennýjar Þorsteins-
dóttur í Reykjavík.
Börn Stefáns
og Guðrúnar eru
Helga Jenný Stef-
ánsdóttir, f. 14.7.
1980, háskólanemi;
María Rún Stefáns-
dóttir, f. 3.12. 1991,
nemi.
Systir Stefáns
er Áslaug Har-
aldsdóttir, f. 21.10.
1956, yfirverkfræð-
ingur hjá Boeing-
verksmiðjunum í
Seattle í Bandaríkj-
unum.
Hálfbróðir Stefáns, sam-
feðra, er Þórður Haraldsson, f.
19.7. 1951, annast rekstur tré-
smiðju Stálsmiðjunnar, búsett-
ur í Kópavogi.
Foreldrar Stefáns eru Har-
aldur Þórðarson, f. 5.1. 1927,
fyrrv. forstöðumaður tækni-
deildar SVR, og María Áslaug
Guðmundsdóttir, f. 27.2. 1930,
fyrrv. deildarstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, en þau eru búsett
í Reykjavík.
Stefán hélt upp á afmælið
25.9. sl. og verður að heiman á
afmælisdaginn.
50
ára á
föstudag
Anna Sólveig Smáradóttir
sjúkraþjálfari á Akranesi
Anna Sólveig
fæddist á Akranesi
og ólst þar upp auk
þess sem fjölskyldan
var í Danmörku á ár-
unum 1984-87. Hún
var í Grundaskóla
á Akranesi, barna-
skóla í Óðinsvéum,
lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akra-
nesi 1998, stundaði
nám í líffræði við
Auburn Univers-
ity í Mont Gom-
ery í Alabama og
lauk þar B.Sc.-prófi
í sameindalíffræði,
stundaði nám í sjúkraþjálf-
un við University of Alabama
Birmingham og lauk þaðan
mastersnámi í sjúkraþjálfun
2003.
Anna Sólveig vann í fisk-
verkun hjá H.B. & Co á Akra-
nesi, vann á gæsluvelli og var
knattspyrnuþjálfari hjá ÍA á
skólaárunum. Þá vann hún eitt
sumar hjá deCODE, Íslenskri
erfðagreiningu.
Að námi loknu hóf hún störf
á Reykjalundi í ársbyrjun 2004
og hefur starfað þar síðan. Þá
kennir hún pilates-leikfimi.
Anna Sólveig lék með
meistaraflokki ÍA í
fótbolta, AUM-há-
skólaliðinu í Banda-
ríkjunum og lék
nokkra leiki með
U-16 ára landsliði
íslands. Hún situr í
stjórn Rauða kross
Íslands á Akranesi
og í stjórn Félags
íslenskra sjúkra-
þjálfara. Þá er hún
í saumaklúbbun-
um DSOA og Skaga-
saumi.
Fjölskylda
Eiginmaður
Önnu Sólveigar er
Sigurjón Jónsson, f. 1.4. 1978,
kennari.
Sonur Önnu Sólveigar og
Sigurjóns er Gunnar Smári Sig-
urjónsson, f. 15.8. 2006.
Bræður Önnu Sólveigar eru
Arnór Smárason, f. 7.9. 1988;
Sverrir Mar Smárason, f. 1.11.
1995.
Foreldrar Önnu Sólveigar
eru Smári Viðar Guðjónsson,
f. 17.9. 1960, véltæknifræðing-
ur og framkvæmdastjóri Klafa,
búsettur á Akranesi, og Guð-
laug Margrét Sverrisdóttir, f.
5.3. 1961, leikskólakennari.
30
ára á
fimmtudag
Daníel Snær fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp og í Mosfells-
bænum. Hann var í Varmárskóla
og Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar,
lauk stúdentsprófi frá MS 1998 og
lauk prófi í tölvurekstrarfræði við HÍ
2001. Þá stundar hann nú nám við
Viðskiptaháskólann á Bifröst með
vinnu.
Daníel starfaði á Essó-bensín-
stöðvum á menntaskólaárunum
og var sendill hjá Heilsugæslunni í
Reykjavík. Hann hóf störf hjá Hag-
stofu Íslands 2007 og hefur starfað
þar síðan.
Daníel Snær hóf að æfa og keppa
í handbolta með Aftureldingu er
hann var ellefu ára. Hann lék síð-
an með Val frá 1994, lék með meist-
araflokki liðsins 1997-2001, lék með
Haslum í Ósló í Noregi 2001-2003,
með Torrevieja á Spáni 2003-2004,
FCK Köbenhavn 2004-2005 og loks
með Team Helsinge í Danmörku
2005-2006.
Daníel lék fjölda landsleikja með
unglingalandsliðum Íslands í hand-
bolta.
Fjölskylda
Eiginkona Daníels Snæs er Agn-
es Helga Martin, f. 14.3. 1978, dýra-
læknir.
Sonur Daníels Snæs og Agnesar
Helgu er Ísak Sindri, f. 3.6. 2008.
Systir Daníels Snæs er Ása Ragn-
arsdóttir, f. 8.2. 1983, háskólanemi í
Reykjavík.
Fóstursystkini Daníels eru Grím-
ur Ásgeir Björnsson, f. 19.4. 1989,
nemi; Erla Björnsdóttir, f. 26.7.
1992, nemi.
Móðir Daníels Snæs er Ása Jóns-
dóttir, f. 7.3. 1957, gjaldkeri hjá ASÍ,
búsett í Reykjavík.
Stjúpfaðir Daníels Snæs er Björn
Halblaub, f. 9.5. 1944, starfsmaður
við Heilsugæsluna í Reykjavík.
Daníel Snær Ragnarsson
starfsmaður við Hagstofu Íslands
30 ára á laugardag
upplýsingar
um afmælisbörn
senda má uppLýsingar um
afmæLisbörn á kgk@dV.is
merkir íslendingar
Karl fæddist á Norðfirði, sonur Lúð-
víks S. Sigurðssonar, þekkts útgerðar-
manns á Norðfirði, og k.h., Ingibjargar
Þorláksdóttur húsfreyju.
Karl lauk gagnfræðaprófi frá MA,
stundaði nám við MR, var lyfjafræði-
nemi við Reykjavíkur Apótek, lauk
DfH-prófi 1933 og cand.pharm.-prófi
með 1. einkunn 1937. Hann var lyfja-
fræðingur við Laugavegs Apótek 1937-
1939, við Reykjavíkur Apótek 1939-
1952, stofnaði Apótek Austurbæjar
1953 og var fyrsti lyfsali þess og starf-
rækti það til 1986.
Karl var formaður Lyfjafræðinga-
félags Íslands 1945-1947 Á þeim árum
varð til fyrsti skriflegi kjarasamningur
Lyfjafræðingafélags Íslands við Apó-
tekarafélag Íslands en með því bötn-
uðu kjör lyfjafræðinga til muna. Þá sat
hann í stjórn Apótekarafélags Íslands
og var formaður þess í fjögur ár.
Karl kom að stofnun og
starfrækslu fjölda fyrirtækja.
Hann var einn af stofnend-
um Pharmaco hf. 1956 og
sat í stjórn þess í mörg ár,
stofnaði, ásamt Werner
Rasmusen, fyrirtækið
Flugeldar sf. 1959, keypti
verslunina Bristol sf. af
Þorsteini, tengdaföð-
ur sínum, stofnaði Inn-
réttingahúsið hf. 1978,
var meðeigandi í Austur-
bakka og stofnaði, ásamt
Ara Sæmundsen og bræðrum
hans, fyrirtækið Gróco hf. Þá var
hann einn af stofnendum Fiskeldis hf.
á Húsavík 1980.
Karl keypti land og byggði sér
sumarhúsið Lynghól við Elliðavatn
þar sem hann stóð fyrir myndar-
legri skógrækt. Þá festi hann
kaup á eyðifirðinum Hell-
isfirði, ásamt Sigurði, syni
sínum, og byggði þar
myndarlegt sumarhús.
Karl var mikill silungs-
og laxveiðimaður en
hann setti frægt lax-
veiðimet árið 1970 er
hann veiddi 93 laxa á
þremur dögum í Langá
á Mýrum í Borgarfirði.
Eiginkona Karls var
Svanhildur Jóhanna Þor-
steinsdóttir og eignuðust þau
fjögur börn.
Niðjamót afkomenda Lúðvíks Sig-
urðar Sigurðssonar og Ingibjargar Þor-
láksdóttur á Norðfirði verður haldið á
Álftanesi nú um helgina.
Karl Lúðvíksson
f. 27. september 1908, d. 28. september 1997