Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Síða 8
fimmtudagur 6. nóvember 20088 Fréttir
Mikill óróleiki er nú innan Fram-
sóknarflokksins vegna slæmr-
ar stöðu hans og er sú krafa að
verða háværari að ný forysta taki
við stjórnartaumunum í flokkn-
um. Margir framsóknarmenn hafa
kallað eftir afgerandi breytingum
innan flokksins. Kallað er eftir því
að flokkurinn afmarki sér skýrari
stefnu í helstu málefnum og geri
upp sína ábyrgð á efnahagshruni
síðustu vikna sem fyrrverandi ríkis-
stjórnarflokkur.
Samkvæmt áræðanlegum heim-
ildum DV innan Framsóknarflokks-
ins hefur Birkir Jón Jónsson alþing-
ismaður oft verið nefndur sem
hugsanlegur arftaki Guðna Ágústs-
sonar í formannsstóli flokksins.
Renna margir hýru auga til hans
sem fulltrúa nýrrar kynslóðar sem
geti rifið fylgi flokksins aftur upp.
Framsóknarmenn eru óþreyjufull-
ir eftir að ný skoðanakönnun sem
Capacent gerði fyrir Morgunblað-
ið leiddi í ljós að fylgi Framsókn-
arflokks mælist nú 7,8 prósent á
landsvísu.
Ungliðar kalla eftir
endurnýjun
„Þetta er góð spurning. Ég held að
Framsóknarflokkurinn þurfi að íhuga
stöðu sína almennt í þjóðfélaginu,“
svarar Bryndís Gunnlaugsdóttir, for-
maður Sambands ungra framsóknar-
manna, um hvort hún telji að það sé
kominn tími á nýja forystu í flokkn-
um. „Við erum ekki að hækka í skoð-
anakönnunum, sem er áhyggjuefni.
Hvort það þarf nýja forystu eða ekki
þarf bara að skoða. Ég hef hins veg-
ar predikað fyrir því að það þurfi að
endurnýja í flokknum. Við erum ekki
að koma okkar málefnum nægilega
skýrt á framfæri,“ segir hún. En krist-
allast það ekki í því að forystan virkar
ekki sem skyldi? „Ég held að við þurf-
um góða blöndu af ungu kraftmiklu
fólki og eldra reynslumeira fólki.“
Bryndís segist styðja þann sem er
formaður flokksins á hverjum tíma.
Aðspurð hvort hún telji Birki Jón vera
framtíðarleiðtoga flokksins svarar
hún: „Birkir Jón er klárlega einn af
fyrstu kostunum sem kemur til greina
ef það á að skipta um forystu.“
Út með þau öll
Hallur Magnússon, fyrrverandi
miðstjórnarmaður í Framsóknar-
flokknum og einn af helstu banda-
mönnum Óskars Bergssonar for-
manns borgarráðs, fór mikinn á
bloggsíðu sinni um helgina, þar sem
hann lagði til að flýta flokksþingi
Framsóknarflokksins til 1. desem-
ber. Hann segir að efni flokksþings
ætti að vera þríþætt. Í fyrsta lagi að
flokkurinn taki skýra afstöðu til þess
hvort ganga eigi til aðildarviðræðna
um Evrópusambandið. Í öðru lagi að
kjósa nýja forystu í flokkinn. „Það er
deginum ljósara að núverandi for-
ysta Framsóknarflokksins er ekki að
ná flokknum upp úr þeirri lægð sem
hann hefur verið – þrátt fyrir að vera
í stjórnarandstöðu gegn ríkisstjórn
sem hefur gersamlega mistekist við
stjórn landsins. Því þarf nýja for-
ystu,“ skrifar hann á blogginu. Hann
nefnir nöfn nokkurra framsóknar-
manna og vekur athygli að Guðni
Ágústsson, Valgerður Sverrisdóttir
og Siv Friðleifsdóttir eru ekki meðal
þeirra sem hann nefnir.
Hann klykkir út með því að hvetja
til þess að þeir þingmenn Fram-
sóknarflokksins sem voru ráðherrar
í síðustu ríkisstjórn taki persónulega
á sig ábyrgð með því að segja af sér
þingmennsku og hleypa nýju fólki
að.
Hallur segir í samtali við DV að
bloggfærslan hafi ekki verið samin á
einni nóttu. „Ég hef talað við fjölda
framsóknarmanna undanfarnar vik-
ur og fengið mjög mikil viðbrögð. Ég
hef til að mynda fengið á milli tut-
tugu og þrjátíu tölvupósta frá fram-
sóknarmönnum á öllum aldri sem
hafa verið mér sammála. Því skal
líka haldið til haga að ég hef verið
gagnrýndur fyrir að taka þessa um-
ræðu ekki innan flokksins. Ég mat
það svo að svona umræða verður að
vera opin og heiðarleg.“
Kannast ekki við þrýsting
Aðspurður hvort hann stefni í
formannsslag, neitar Birkir Jón því
sjálfur. „Ég hef ekkert íhugað þetta
og ég kannast ekki við slíkan þrýst-
ing. Menn hafa verið mjög duglegir
að tilnefna krónprinsa Framsókn-
arflokksins á síðustu árum, en þeir
spádómar hafa yfirleitt ekki ræst.“
Birkir Jón segist sjálfur vera á ágæt-
um stað í pólitíkinni og hyggja ekki
að svo stöddu á formannsframboð.
Óskar styður Guðna
Óskar Bergsson lýsir sjálfur
yfir stuðningi við formann flokks-
ins. „Ég tel að hluti af því að vinna
að endurreisn flokksins sé að allir
standi saman og það er mikilvægt
að grípa ekki til örþrifaráða þó hlut-
irnir gerist ekki nógu hratt.“
Hann bendir á að núverandi for-
maður hafi tekið við stjórnartaum-
unum við erfiðar aðstæður og það
sé eðlilegt að það taki flokkinn tíma
að ná fyrri styrk. Vissulega gæti
óþreyju þegar flokkurinn lyftir sér
ekki í skoðanakönnunum.
„Ég tel að það sé ekki góð póli-
tík að láta skoðanakannanir ráða
ákvörðunum sínum. Forysta flokks-
ins er kosin og það er best að menn
standi saman og styðji kjörna full-
trúa,“ segir hann.
valGEIR ÖRN RaGNaRSSON
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Ég hef talað við fjölda framsóknarmanna und-
anfarnar vikur og fengið mjög mikil viðbrögð.
Ég hef til að mynda fengið á milli tuttugu og
þrjátíu tölvupósta frá framsóknarmönnum á
öllum aldri sem hafa verið mér sammála.“
Óróleiki er innan Framsóknarflokksins vegna slæmrar stöðu hans. Hallur Magnússon, fyrrverandi mið-
stjórnarmaður, kallar eftir því að ný forysta taki við. Ungliðahreyfingin kallar einnig eftir endurnýjun.
Allir verða að standa saman, segir Óskar Bergsson, borgarfulltrúi flokksins.
VILJA NÝJA FORYSTU
Ólík örlög Sæunn Stefánsdóttir féll af þingi í síðustu
kosningum en guðni varð formaður eftir kosningar.
nú renna sumir hýru auga til birkis Jóns Jónssonar
sem formannsefnis og fulltrúa nýrrar kynslóðar.
Guðni Ágústsson segist finna fyrir miklum stuðningi innan Framsóknarflokksins:
„Ég tók við Framsóknarflokknum að af-
loknum síðustu kosningum. Formaður
hans, Jón Sigurðsson, féll í þeim kosning-
um og hvarf úr pólitík. Áfallið að missa for-
manninn og fimm þingmenn var stórt og
sársaukinn mikill fyrir flokksmenn,“ segir
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins. „Ég hef hins vegar átt því láni að
fagna í pólitískum störfum mínum, að ég hef
búið við traust í mínum flokki og reyndar í
þjóðfélaginu. Ég sá ekki ástæðu til að flýja af
hólmi. Það er okkar þingmanna flokksins að
byggja flokkinn upp á ný með grasrótinni.
Það geta allir gert sér grein fyrir því að það
er mikið verk að byggja upp stjórnmálaflokk
sem fer illa í kosningum. Það gerir ekki einn
maður og það veltur ekki á formanninum
einum. Við þurfum trúverðugleika og sam-
stöðu. Framsóknarmenn yfir höfuð kenna
mér ekki um fall flokksins. Fremur er það
spillingarumræða og persónulegar árás-
ir sem nokkrir lykilmenn flokksins bjuggu
við og síðan of langt samstarf við Sjálfstæð-
isflokkinn. Ég hef sem formaður farið um
landið, þar á meðal hér á höfuðborgarsvæð-
inu. Það hafa verið mjög fjölmennir og góð-
ir fundir. Mér hefur verið vel tekið af flokks-
mönnum.“
Spurður um afdráttarlausar skoðan-
ir Halls Magnússonar á bloggi sínu svarar
Guðni: „Ég sé alls konar menn blogga og spyr
mig gjarnan hvað gerist í sál þeirra sumra.
Þeir menn sem eru á bloggi ættu kannski
að fella færri dóma yfir heiðarlegu fólki. Að
halda því fram að Framsóknarflokkurinn
eigi að losa sig við alla þá menn og konur
sem hafa verið ráðherrar er ódrengilegt og
ekki líkt þeim Halli sem ég þekki.“
Guðni segir að lágt fylgi flokksins hafi ver-
ið viðbúið, þar sem sagan sýni að þá stjórn-
málaflokka sem hafi tapað styrk taki tíma að
byggja upp á ný. „Capacent Gallup var þó að
mæla okkur nærri kjörfylgi í lok október. Þú
skalt gá að því að þegar stjórnmálaflokkur
er tapari í kosningum þá tekur það tíma að
afla fylgis á ný, byggja upp traustið og sætta
flokksmenn við flokkinn á nýjan leik. Fram-
sóknarflokkurinn er þó að mælast sæmileg-
ur í landsbyggðarkjördæmunum þó það sé
langt frá hans fyrri stöðu. Í Reykjavík er nú
viðspyrna með Óskari Bergssyni og hans
fólki. Framsóknarmenn hafa tekist á um að-
ild eða ekki aðild að Evrópusambandinu.
Ég reyndi strax að ná sátt í þeirri umræðu
og hef ekkert hvikað frá þeirri stefnu,“
segir hann og bætir við: „Þar er ég á
fullu í þeim verkefnum sem for-
ysta flokksins hefur heitið og
miðstjórnarfundurinn í
vor ákvað. Einhverj-
ir halda að vísu
öðru fram sem
vilja fara enn
hraðar, en
flokksþing-
ið ræður
í þessari
stefnumörkun
sem ann-
arri.“
valgeir@dv.is
Á fullu í vinnu fyrir flokksmenn