Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Qupperneq 26
fimmtudagur 6. nóvember 200826 Vesturland
m
yn
d
b
r
a
g
i Þ
. j
ó
se
ps
so
n
Hrifinn af
rómantískum
kvenhetjum
Síðasta orðið á Guðbjartur Hannesson þingmaður
Samfylkingarinnar. Hann telur forsendu þess að end-
urheimta traust vera að skipta út stjórn Seðlabankans
og vildi helst gefa þjóðinni nýtt og betra samfélag.
Guðbjartur felldi tár yfir ræðu Obama og biður fólk
um að breyta réttlátri reiði í kraft til uppbyggingar.
SíðaSta orðið
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „fara í sturtu.“
Hver er sérgrein þín í eldhúsinu? „fáar sérgreinar þar, skástur í að
leggja á borðið, taka til mat og setja í uppþvottavélina.“
Hvaða kvikmyndahetju lítur þú upp til? „var alltaf hrifinn af
rómatískum kvenhetjum. Lít þó ekki upp til neinna þeirra en nýt þess
að sjá þær leika.“
Hvar ólst þú upp? „fæddur og uppalinn á akranesi, innfæddur
Skagamaður.“
ef ekki alþingismaður, hvað þá? „Kennari, skólastjóri eða í
uppeldisstörfum.“
Hvað drífur þig áfram? „Löngunin til að láta gott af mér leiða, gera
heiminn betri, vera með fjölskyldunni og öðru góðu fólki.“
Hvernig hefur þú upplifað undanfarnar vikur? „Sem óvissuferð,
þar sem maður fylgir einhverri leið, veit ekkert hvert stefnir, þar sem
litlu hefur verið hægt að bjarga. verkefnið er að skerpa framtíðarsýnina
og velja okkur aðra og betri leið en hingað til.“
Treystir þú stjórn seðlabanka Íslands?
„Ég tel nauðsynlegt að skipta um stjórn í Seðlabankanum sem lið í
endurreisninni. Það er forsenda þess að endurheimta traust.“
Hvaða lag kemur þér alltaf í gott skap? „Svo mörg lög, nýt þess að
hlusta á létt sönglög. Skátalögin gleðja mig alltaf, helst þegar við
syngjum þau sjálf.“
Hver er uppáhaldsborgin þín? „Kaupmannahöfn, en London
keppir þó við hana. Það er gott mannlíf á báðum stöðum. Ég hef búið í
þeim báðum.“
Hvað hefur Vesturland fram yfir aðra landshluta? „frábæra
náttúru og sögu. Yndislega staði og gott mannlíf. Hingað ættu allar
helgarferðirnar af höfuðborgarsvæðinu að vera.“
Hver er þín helsta fyrirmynd? „foreldrar mínir. einlæg, æðrulaus,
heiðarleg, nægjusöm og full af réttlætiskennd.“
Hverju sérðu mest eftir? „Lít ekki oft til baka en hef örugglega gert
mistök. velti mér þó ekki upp úr þeim. Ég vel að horfa fram á við.“
ef þú mættir gefa íslensku þjóðinni gjöf, hvað myndirðu gefa
henni? „nýtt og betra samfélag, sem byggir á meiri jöfnuði milli fólks
og byggða og meira réttlæti. Ég held að fólk sé að læra nú að margt
hefur meira gildi en peningar.“
Hvar líður þér best? „Heima með fjölskyldunni eða úti í náttúrunni.
til dæmis á akrafjallinu. Konan myndi segja að mér liði best í vinnunni.“
Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? „botnsdalur var lengi efst á
listanum. Snæfellsnesið með alla sína fallegu staði er efst á listanum
einnig. Þá á Þórsmörk marga strengi í hjarta mínu. Ég fór þangað
árlega með útskriftarnema og átti ógleymanlegar stundir.“
Hver er fremsti stjórnmálamaður heims fyrr og síðar? „Ég hef
alltaf borið virðingu fyrir frelsis- og réttindabaráttu fólks og leiðtogum í
þeirri baráttu. til dæmis martin Luther King og nelson mandela. Þeir
komu upp í hugann eftir að hafa horft á Obama vinna í nótt.“
Hvenær felldir þú síðast tár? „Ég felli mjög oft gleðitár þegar
eitthvað jákvætt gerist eða einhver fagnar. Síðast í nótt þegar Obama
hélt ræðu og ég sá stemninguna, væntingar og vonir.“
Hvernig er heimilisverkunum skipt? „næsta spurning takk! Ég
kem lítið að öllu, sé um bílinn, svolítið af lóðinni og þrif á ákveðnum
stöðum hússins. Öðru get ég varla státað af.“
stundar þú líkamsrækt? „ekki eins og er, nánast enga. Þarf að koma
því í lag, ganga meira og synda.“
Hvert er takmark þitt í lífinu? „að ná árangri í minni vinnu og gera
eitthvert gagn. Halda heilsu, rækta fjölskylduna og ná að ferðast
meira.“
Hvort ætti að leggja áherslu á stóriðju eða þróun hugvits?
„Þróun hugvits. Stóriðjan er mjög mikilvæg, en við þurfum að auka fjöl-
breytni.“
Hvaða bók getur þú lesið aftur og aftur? „enga en hef lesið
Harðarsögu Hólmverja oftar en einu sinni. Ég er með margar
bækur og læt nægja að lesa þær einu sinni.“
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? „eitthvað
tengt félags- og uppeldisstörfum.“
Hvernig er fullkomið laugardagskvöld? „Kvöld með
fjölskyldunni eða félögum og vinum. góður matur og notaleg
samvera.“
Hver er þinn helsti kostur? „Ég er umburðarlyndur. Ég reyni
alltaf að sjá lausnir og ljósar hliðar á hlutunum og hef þolin-
mæði.“
Hvar liggur ábyrgðin vegna núverandi ástands? „Ég hef
mikið velt fyrir mér hugtakinu ábyrgð. ef átt er við hvað veldur
núverandi ástandi þá liggur ábyrgðin víða. Hún liggur í
lagaumhverfi sköpuðu af stjórnmálamönnum, einstaklingum í
fjármálaheiminum, þar með talið á Íslandi, bönkum, fyrirtækjum
og einstaklingum sem hafa sýnt græðgi, einstaklingshyggju og
fyrirhyggjuleysi í sínum rekstri. margar rangar ákvarðanir
stjórnvalda, ekki hvað síst Seðlabanka og ríkisstjórnar á
þenslutímum síðastliðinna ára. við öll sem tókum þátt í
dansinum og neyslunni og auðvitað núverandi eftirlitsstofnanir
og stjórnvöld. Þar með talin ríkisstjórn og alþingi í einhverjum
mæli. Það á eftir að skýrast betur.“
Finnst þér gaman í vinnunni? „Já, ég geng alltaf jákvæður til
verka. verð þó að viðurkenna að síðustu dagar og vikur hafa
verið erfiðar. en verkefnin eru til að leysa þau af bestu getu.“
Hvaða skref væri mest til heilla íslenskri þjóð? „Æðruleysi
en um leið að nýta óánægju og reiði til jákvæðra hluta fyrir eigin
fjölskyldu og vini og til breytinga á þjóðfélaginu. við þurfum öll
að endurskoða gildin og sameiginlega þurfum við að lágmarka
skaðann.“
síðasta orðið? „Ég vona að þrátt fyrir misgjörðir síðustu ára og
fjármálalega erfiðleika þjóðarinnar takist okkur í sameiningu að
breyta réttlátri reiði í kraft til að byggja upp betra samfélag, með
meira jafnræði og réttlæti.“ ásgeir@dv.is