Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Blaðsíða 31
fimmtudagur 6. nóvember 2008 31Umræða
Hver er maðurinn?
„andri Karel Júlíusson.“
Hvað drífur þig áfram?
„að vinna flotta tónlist.“
Hvar ólst þú upp?
„Í Hafnarfirði.“
Við hvað lékstu þér helst þegar
þú varst lítill?
„Það voru svona dótakarlar eins og
actionman og batman.“
Hvað er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Pitsa.“
Hefurðu lengi leikið þér að því
að búa til tónlist?
„nei, ég hef verið að því í tvö til þrjú
ár og verið aðallega að vinna á
tölvuna mína.“
Hvernig kom það til að lögin þín
fóru í Dagvaktina?
„ragnar bragason leikstjóri hafði
samband við mig því hann hafði
heyrt lög af mySpace-síðunni minni.
Hann spurði hvort hann mætti nota
tvö af þeim.“
Ertu byrjaður á laginu fyrir
lokaþáttinn?
„Já, ég er byrjaður á því og nokkuð
langt kominn.“
Langar þig að vinna við tónlist í
framtíðinni?
„Já, mig langar það frekar mikið.“
Hver er draumurinn?
„bara að vera tónlistarmaður.“
Hvað finnst þér um að lykilstarfsmenn banka fái skuldir sínar niðurfelldar?
„mér finnst það bara rangt, það á að
niðurfella hjá öllum ef það er niðurfellt
hjá þeim, annað er bara fíflagangur!“
SVanHiLDur EyjóLfSDóttir
55 ára verSlunarKona
„Þetta er mjög einkennilegt, ég veit
ekki hvort það eigi að fella niður
skuldir hjá öllum en vissulega verður
að ganga jafnt yfir alla.“
Guðbjartur SiGurðSSon
58 ára Prentari
„mér líst bara ekkert á þetta, hvernig
væri að fella niður hjá okkur hinum
líka?“
SiGrún StEfánSDóttir
44 ára SJúKraliði
„Ég veit eiginlega ekkert um þetta.“
auður jökuLSDóttir
17 ára StarfSmaður Í
SandHolt baKarÍ
Dómstóll götunnar
anDri karEL júLíuSSon
hefur þrátt fyrir að vera aðeins 14 ára
samið mikið af tónlist. Í síðasta þætti
af dagvaktinni mátti heyra tvö lög
eftir hann auk þess sem óskað hefur
verið eftir að hann semji lag fyrir
lokaþáttinn.
Vill Verða
tónlistarmaður
„Þetta er náttúrlega bara út í loftið, það
er bara þannig. erum við ekki öll jöfn
fyrir einhverjum þarna uppi?“
HiLmar friðStEinSSon
67 ára ellilÍfeyriSÞegi
maður Dagsins
Krafan er skýr, ráðamenn þjóðar-
innar, stjórnendur og embættis-
menn ríkis og bæja verða að lækka
laun sín um 30% strax. Þeir sem
gefa út dagsskipanir verða að finna
kreppuna á eigin skinni líkt og þjóð-
in. Þessi hópur manna er með allt
sitt á þurru að venju en það gengur
ekki lengur. Sá tími er liðinn.
Nú þrengir að almenningi svo
um munar og margir sjá ekki fram-
tíð sína hér á landi. Það ríkir gríðar-
leg sorg á mörgum heimilum. Fólk
er vanmáttugt og finnst það hafa
misst sjálfstæði sitt og alla stjórn á
eigin lífi, hangir í lausu lofti. Skjól
fólksins er að hverfa því húsin, íbúð-
irnar, svefnstaðurinn eru að fara á
uppboð og ekkert nema svartnætt-
ið framundan. Þetta er veruleikinn á
Íslandi í dag.
Maður sem ég hef þekkt í árar-
aðir kom að máli við mig í síðustu
viku, afskaplega dapur og illa hald-
inn á líkama og sál. Maðurinn er
kvæntur fimm barna faðir í Reykja-
vík. Hann er ómenntaður sjálfstæð-
ur einyrki og hefur unnið myrk-
ranna á milli í áraraðir við að koma
sér og fjölskyldu sinni upp þaki yfir
höfuðið. Hann hefur alltaf verið
glaður og ánægður með sig og sitt
og því lifandi sýnishorn yngri kyn-
slóðar þessa lands. Þessi maður
hefur ekki lifað um efni fram, hef-
ur ekki leyft sér neinn lúxus. Hann
hefur aldrei leyft sér þann munað
að fara með fjölskyldu sína í frí til
útlanda. Hann kaus að vera Íslend-
ingur og taka þátt í hinni hörðu lífs-
baráttu þeirra tekjuminni í íslensku
samfélagi. Í dag er hann ekki glað-
ur, hann er niðurdreginn og dapur,
fullur örvæntingar vegna fjölskyldu
sinnar. Hann á fimm ung börn eins
og fram hefur komið og sér ekki
fram á að geta framfleytt þeim á
komandi árum. Honum finnst hann
hafa brugðist fjölskyldu sinni. Hann
sér ekki fyrir endann á greiðslubyrð-
inni og hefur gefist upp eftir harða
baráttu. Hann sagði mér á þessum
fundi okkar að nú væri öllu lokið hjá
sér og það glitti í tár í augum þessa
duglega og vinnusama manns. Hann
stefnir í gjaldþrot. Hann er að missa
allt sitt. Hann er að missa húsið sitt,
athvarf fjölskyldu hans, griðastað-
inn heilaga. Hann er að missa at-
vinnutækið sitt. Hann er að missa
þá eðlilegu umgjörð lífsins, hann er
að missa allt og æruna með. Hvað
getur maður sagt við slíkar aðstæð-
ur? Maður verður orðlaus, finnur til
mikillar samkenndar og sorgar fyrir
hönd þessa manns og fjölskyldunn-
ar. Góðir lesendur, þessi maður er
ekki sá eini sem stendur í stormin-
um. Það eru þúsundir manna sem
standa í þessum sömu sporum.
Hann brást ekki fjölskyldu sinni,
það voru íslensk stjórnvöld.
Ráðamenn í sama báti og þjóðin?
kjallari
svona er íslanD
áSGErður jóna
fLoSaDóttir
formaður Landssambands
kvenna í Frjálslynda flokknum
Í dag er hann ekki
glaður, hann er niður-
dreginn og dapur, full-
ur örvæntingar vegna
fjölskyldu sinnar.