Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2008, Page 36
fimmtudagur 6. nóvember 200836 Fókus
Myndin Quarantine er endurgerð
spænskrar hrollvekju sem heitir Rec
og er nýkomin á vídeóleigur lands-
ins. Ef þú ætlar að sjá aðra hvora
myndina þá vil ég vara þig strax við
því að horfa á stiklu Quarantine. Þar
sem framleiðendur myndarinn-
ar misstu sig algjörlega í markaðs-
setningunni og hreinlega eyðileggja
endir annars ágætrar spennumynd-
ar. Markaðsklúður ársins í Holly-
wood.
Quarantine fjallar um fréttakon-
una Angelu Vidal sem fær það verk-
efni að fylgja næturvakt slökkvi-
liðsdeildar Los Angeles ásamt
myndatökumanni. Angela og
myndatökumaðurinn fá að fylgja
slökkviliðinu í frekar hefðbund-
ið útkall í íbúðarblokk. En þegar á
staðinn er komið kemur í ljós að út-
kallið er alls ekki hefðbundið.
Eldri kona í einni íbúðanna hef-
ur vakið nágranna sína með hræði-
legum öskrum. Þegar inn í íbúð
hennar er komið fer allt á versta
veg og íbúarnir ásamt slökkviliði
og lögreglu reyna að komast út úr
blokkinni en án árangurs. Efna-
vopnadeild borgarinnar hefur lok-
að húsinu og hleypir engum út né
inn. Smátt og smátt smitast fleiri
og fleiri af þessum ógnvænlega vír-
us og ástandið verður blóðugra og
blóðugra.
Quarantine er öll séð í gegn-
um myndavél myndatökumanns-
ins sem fylgir Angelu og því er stíll-
inn kannski ekki ólíkur Blair Witch
Project. Þessi stíll getur verið mjög
góður kostur í hryllingsmynd upp
á að auka spennuna og mér finnst
það takast vel í Quarantine. Eftir því
sem líður á myndina kemst maður
svo meira og meira að því hvað er
að gerast í húsinu í raun og veru.
Fléttan í lokin er svo nokkuð óvænt
og skemmtileg.
Persónulega var ég heillaðri af
spænsku útgáfu myndarinnar og ég
mæli frekar með henni. Mér fannst
þó Jennifer Carpenter jafnvel betri
heldur en Manuela Velasco í hlut-
verki Angelu. Hún virkar aðeins
mannlegri og maður fær meiri sam-
úð með henni. En það var bara eitt-
hvað við fléttuna alla sem virkaði
betur á Spáni en í Bandaríkjunum.
Niðurstaðan er sú að Quaran-
tine og Rec eru fínar hrollvekjur en
hvernig myndin er eyðilögð í stikl-
unni er alveg ótrúlegt og hreint út
sagt glatað.
Ásgeir Jónsson
á f i m mt u d e g i
Hvað heitir lagið?
„Allt þeirra líf er tölvutækt,
tilveran öll í netið flækt.“
Hjaltalín fagn-
ar bolasölu
Ungmennaráð UNICEF á Íslandi
og íslenskir hönnuðir taka nú aftur
höndum saman og framleiða boli
sem geta breytt lífi barna. Hljóm-
sveitin Hjaltalín ætlar að halda
órafmagnaða tónleika til að fagna
því að bolirnir séu komnir í sölu, á
Kaffi Hljómalind í kvöld klukkan 20.
Aðgangur er ókeypis. Hönnun bol-
anna er sem fyrr í höndum Kron-
kron og grafíska hönnuðarins Harð-
ar Kristbjörnssonar. Bolirnir verða
seldir í verslun Kronkron, Spúútn-
ik í Kringlunni, í jólabúð UNICEF,
Laugavegi 42 og ennfremur á tón-
leikunum í kvöld.
Hlynur opnar
sýningu
Tuttugu þjónustufyrirtæki í mið-
bænum taka virkan þátt í sýningu
Hlyns Hallssonar, Út / Inn, sem
verður opnuð í Hafnarhúsi Lista-
safns Reykjavíkur í dag. Sýning
Hlyns felur í sér að færa hluta
af safnkosti safnsins út á með-
al almennings og á sama tíma að
varpa nýju ljósi á viðtekna hluti í
umhverfi okkar og setja þá í nýtt
samhengi innan veggja safns-
ins. Listaverkin verða sett upp hjá
þjónustuaðilum sem í skiptum
lána á sýninguna
hlut sem er
einkennandi
fyrir starf-
semi þeirra.
Lánsmunirn-
ir á sýning-
unni eru af
ýmsum toga,
til dæmis
uppstoppaður
ísbjörn, minja-
gripir, verslun-
arkælir og
jakkaföt.
edda syngur
mozart og
Verdi
Edda Austmann sópran syngur á
hádegistónleikum í Hafnarborg
í dag. Edda hefur meðal annars
sungið í Töfraflautunni og Cosi fan
tutte í Zürich-óperunni, í Krýningu
Poppeu, Carmen og Brúðkaupi
Fígarós og komið fram með Konung-
legu skosku sínfóníuhljómsveitinni.
Á efniskrá tónleikanna í dag eru til-
finningaþrungin verk eftir Mozart,
Donizetti og Verdi. Þetta eru níundu
tónleikar ársins í hádegistónleikaröð
Hafnarborgar, menningar- og lista-
stofnunar Hafnarfjarðar, og hefjast
þeir klukkan 12.
Greindur franskur bókmennta-
rýnir sagði eitt sinn að eng-
inn rithöfundur gæti talist full-
þroska fyrr en hann hefði fært
bernskuminningar sínar í letur á
svo skemmtilegan og skáldlegan
hátt að lesandinn gleymdi sér við
lesturinn og vissi ekki hvort hann
væri að lesa skáldsögu eða sjálfs-
ævisögu. Ólafur Haukur Símon-
arson er vitaskuld orðinn full-
þroska höfundur fyrir löngu en
að öðru leyti á kenningin vel við
um þessa nýju bók hans. Hún er
augljóslega hvort tveggja í senn
minningabók og skáldverk, en
umfram allt bráðskemmtileg af-
lestrar.
Ánægju væntanlegra les-
enda skal ekki spillt með því
að rekja efni bókarinnar. Hún
byggir á minningum höfund-
ar frá bernskuárunum í vestur-
bæ Reykjavíkur, nánar til tek-
ið vestur við Kaplaskjólsveg, og
hann dregur upp skáldlega en þó
sannferðuga mynd af lífinu þar
um og eftir 1950. Hér kemur alls
konar fólk við sögu, börn og full-
orðnir, búrar og kamparar, kyn-
legir kvistir og skrýtnir kennarar
og dýrin gegna einnig sínu hlut-
verki, ekki síst „gluggahesturinn“,
vinur sögumanns. Persónurnar
eru margar ærið litríkar en skýr-
ar og vel má vera að gamlir sam-
ferðamenn höfundar geti þekkt
sjálfa sig aftur í frásögninni.
Í bókartitli segir að þetta sé
„sönn lygasaga“. Það er vafa-
laust rétt, hvernig svo sem menn
vilja skilja það. Ég er til í að trúa
hverju orði, nema helst sögunum
um mikinn og langvinnan snjó í
Reykjavík. Þær eru svolítið þing-
eyskar sumar. Jón Þ. Þór
kvikmyndir
Quarantine
Leikstjórn:John erick dowdle
Aðalhlutverk: Jennifer Carpenter, Jay
Hernandez, Columbus Short, greg
germann.
Jennifer Carpenter
Kann að öskra fyrir
allan peninginn.
SvAr: StúlKurnar á internetinu
Quarantine fínasta
hrollvekja sem er
klúðrað í „trailer“.
bernskusögur úr vesturbænum
bækur
Fluga á vegg
- sönn lygasaga
Skáldsaga/minningabók
Höfundur: ólafur Haukur Símonarson
Útgefandi: Skrudda
markaðsklúður
ársins