Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.2008, Side 2
fimmtudagur 27. nóvember 20082 Fréttir
StjórnlauS reiði
felldi formann
Tölvupóstsamskipti milli valins hóps
framsóknarmanna og Jóns Sigurðs-
sonar undirstrika alvarlegan klofn-
ing innan flokksins. Jón hefur að
undanförnu staðið í tölvupóstsam-
skiptum við valinn hóp manna þar
sem hann greinir meðal annars frá
því af hverju hann hafi ekki mætt á
miðstjórnarfund Framsóknar sem
var haldinn um miðjan mánuðinn.
Það er ekki bara slegist um Evrópu-
málin heldur einnig efnahagshrunið
en Jón segir sér hafa mislíkað það að
Guðni væri að „gera sig eitthvað sak-
lausan á kostnað annarra sem voru í
fyrri ríkisstjórn“.
Þetta er persónulegt
„Átti ég að senda þjóðinni þetta
eða hvað?“ segir Jón Sigurðsson að-
spurður af hverju aðeins valinn hóp-
ur manna hafi fengið tölvupóstinn
fáeinum dögum fyrir miðstjórnar-
fundinn. Í honum segir Jón meðal
annars fram að Guðni teldi það ein-
hvers konar tilræði við sig sem for-
mann ef hann væri að skrifa í blöð
eða hafa sig í frammi á fundum í
flokknum. Aðspurður hvort það væri
kalt á milli hans og Guðna sagði Jón
ekki svo vera af sinni hálfu.
„Ég veit að hann var farinn að
álíta það að ég mætti hvergi skrifa í
blöð, koma fram eða láta sjá mig á
fundi, að það væri alltaf eitthvað á
móti honum, en það er algjörlega úr
lausu lofti gripið.“
Þegar Jón er spurður aftur af
hverju ákveðinn hópur hafi feng-
ið þennan tölvupóst segir Jón: „Ég
sendi hann þeim einstaklingum sem
ég kærði mig um. Þetta er persónu-
legt á milli okkar Guðna því hann tók
þetta eitthvað til sín.“
Talaði af sér
Í fyrstu hélt Jón að blaðamaður DV
hefði komist yfir annan trúnaðarpóst
en raun bar vitni. Þann tölvupóst hafði
Jón einnig sent völdum flokksfélög-
um sínum. Jón gerði þau mistök að
upplýsa blaðamann um efni hans en í
honum vildi Jón að valdir flokksfélagar
sínir kæmu í veg fyrir það á miðstjórn-
arfundi að Guðni næði að skella skuld-
inni vegna hruns bankanna á fyrri rík-
isstjórn.
„Þessi tölvupóstur er ekki um
Guðna eða deilur við Guðna,“ sagði
Jón og hélt áfram að útskýra innihald
hans: „Mér mislíkaði það að hann væri
að gera sig eitthvað sak-
lausan á kostn-
að annarra sem
voru í
fyrri ríkisstjórn, mér fannst það ómak-
legt og ódrengilegt,“ segir Jón. Valgerð-
ur Sverrisdóttir, núverandi formaður
flokksins, staðfesti við blaðið að hafa
fengið umræddan póst.
Þann tölvupóst segist Jón aðeins
hafa sent þremur „persónu-
legum“ vinum sínum.
„Ég var að reyna að
leiða rök að því að at-
burðarásina þarf ekki
að rekja svo langt aft-
ur. Atburðarásin verður
í mesta lagi rakin aftur
um tólf til fjórtán mán-
uði frá deginum í dag.
Mér fannst það ómaklegt af Guðna að
hann teldi sig að einhverju leyti stikk-
frí.“ segir Jón.
Missti stjórn á sér
Tölvupósturinn sem barst DV fjallaði
hins vegar ekkert um efnahag þjóð-
arinnar eða hrun bankanna. „Þá ert
þú með einhvern annan póst, ég er
kannski að ruglast á þessum pósti
við annan,“ sagði Jón þegar blaða-
maður spurði hann út í efni hans. Sá
póstur fjallaði um samskipti þeirra
Guðna sem Jón segir persónulegt og
viðkvæmt mál sem væri illa til fallið
að taka upp í blöðunum. Þrátt fyr-
ir það sendi Jón þennan tölvupóst,
sem fjallaði um persónuleg mál, til
ellefu flokksfélaga Framsóknar.
„Ég segi þér það að þetta er per-
sónuleg útskýring af minni hálfu og
hún á ekkert erindi í blaðið. Þetta er
bara einkamál sem þarna er.“
Spurður af hverju Guðni hafi
beðið hann að mæta ekki á fund-
inn sagði Jón: „Hann vildi það síð-
ur að ég mætti á fundinn því hann
taldi það einhverja ögrun við sig því
ég væri ekki sammála honum í ein-
hverjum málum.“
Hvað afsögn Guðna varðar hafði
Jón þetta að segja: „Eftir mínum
upplýsingum kveður hann stjórn-
málin vegna þess að honum mislík-
aði það sjálfum að hafa misst stjórn
á sér.“
Þegar blaðamaður sagði það
hafa farið framhjá alþjóð svaraði
Jón: „Það fór ekki framhjá þeim sem
voru á miðstjórnarfundinum, svo
mikið er víst.“
Spurður um hugsanlegt framboð
hans í næstu kosningum sagði Jón
að hann myndi ákveða það þegar að
því kæmi.
Ekki formlegur hópur
„Ég veit ekki hvernig þessi hópur
verður til en hann er ekkert form-
legur á neinn hátt, þetta er eitthvað
sem honum (Jóni) hefur dottið í hug í
þetta skiptið,“ segir Valgerður Sverris-
dóttir aðspurð af hverju hún væri ein
þeirra útvöldu sem fengi tölvupóst frá
Jóni Sigurðssyni.
„Það er allt of stórt orð að tala um
klofning en hins vegar eru mismun-
andi skoðanir í flokknum. Guðni tal-
aði um það opinberlega á miðstjórn-
arfundum og taldi að þessar skoðanir
myndu rúmast innan flokksins. Hann
kom með sáttaleið sem varðar Evr-
ópumálin og það var mikil ánægja
með það. Svo er ekki því að neita að
sumum fannst hann ekki fylgja þeirri
stefnu þegar hann fór að tala um á Al-
þingi að Samfylkingin hrærði í blóði
sjálfstæðismanna og að umræða um
ESB ætti ekki við nú eftir þetta mikla
ATli Már GylfAson
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Jón sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, sendi völdum flokksfé-
lögum sínum að minnsta kosti tvo tölvupósta þar sem hann sagðist meðal annars ekki
mæta á miðstjórnarfund flokksins vegna Guðna ágústssonar. Á þeim fundi segir Jón
að Guðni hafi misst sig og þess vegna sagt af sér. Valgerður sverrisdóttir er ein þeirra
sem fengu tölvupóstana en hún viðurkennir að einhverjum aðilum innan Framsóknar
hafi mislíkað afstaða Guðna til ESB. Jón segir málið persónulegt milli hans og Guðna.
siv friðleifsdóttir er úti í kuldanum og fær engan tölvupóst.
Blæs köldu fyrrverandi formenn framsóknar,
Jón Sigurðsson og guðni Ágústsson, eru langt í
frá sáttir við hvor annan ef marka má tölvupóst-
sendingar til útvalinna flokksmanna.
Valgerður sverrisdóttir
viðurkennir að hafa fengið
póstinn og segir að sumum
innan flokksins hafi
mislíkað afstaða
guðna til eSb.
siv friðleifsdóttir
Situr í kuldanum og
fær engan póst.